Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987. 49 Um daginn var sagt frá því í sjón- varpinu mínu aö búið væri að setja hitaveitu í gangstéttirnar í Banka- stræti, Laugavegurinn nýi er víst líka upphitaður og þegar menn hafa lokið við að hita upp gangstíg- ana á Arnarhóli verður svo komið að menn geta eiginlega hvergi handleggsbrotið sig lengur. Ég þekki að vísu konu sem fót- braut sig á stofugólfmu heima hjá sér en þrátt fyrir það er algjörlega ósannað að það sé hægt að hand- leggsbrjóta sig ef á þarf að halda. Og nú mun vera búið að gera stati- stikk yfir það hverjir brjóta sig oftast, hvar, hvenær og hvers vegna og kom í ljós að metið eiga gamlar konur sem detta á svelli eða annarri hálku og bera fyrir sig hendumar í fallinu. Oftast nær brutu gömlu konurnar sig á leið- inni niður Bankastræti og býst ég við að það hafi aðallega verið þess vegna sem farið var að hita upp gangstéttirnar þar en hvers vegna ' menn eru að hita upp nýja Lauga- veginn hef ég ekki hugmynd um því að þar hefur enginn brotið sig svo vitað sé. Kannski það sé verið að hita upp Laugaveginn svo að portúgalska grjótið njóti sín betur að vetrarlagi en snævi þakið er það auðvitað ekki meira augnayndi en fegurðar- drottning alheimsins í nútíma svefnpoka sem eru þeirrar náttúru að ef manni tekst á annað borð að skríða ofan í þá er alveg undir hælinn lagt að maður komist upp úr þeim aftur hérna megin grafar. Flókið mál En þannig eru nú einu sinni tímarnir sem við lifum á og sú spurning sígild hvers vegna gera eigi hlutina einfalda ef hægt er að hafa þá flókna. Að vísu halda flestir á minu heimili að það sé afskaplega einfalt að gera þá hluti sem þeir þurfa ekki að gera sjálfir. - Er ekki hægt að færa stofuvegginn innar um svo sem einn og hálfan metra til að stækka með því eldhúsið? segir kannski einhver yfir morgunkaff- inu á sunnudögum. - Væri ekki Einfalt mál Háaloft Benédikt Axelsson þU Crtz T UfL EK.K.Í j LEyT-i Ti L A•£> FLVTJA tþ-UÐnUhSD fi- I 'A 3AKDA R. IKJA MAIZ&A-Ð ■ hægt að færa kastarann í herberg- inu mínu út í hom? segir annar og sá þriðji vill fá að vita hvort ekki sé hægt að reyna að pumpa í fót- boltann sinn með ónýtu hiólhesta- pumpunni, sem sé úti í bílskúr, vegna þess að blaðran í boltanum sé hvort sem er ábyggilega sprung- in. Það þarf víst ekki að taka það fram að allt á þetta að gerast fyrir mánudagsmorgun. En stundum eru kröfurnar miklu hógværari en þetta, maður er til dæmis beðinn um að setja ljós und- ir eldhússkápinn sem sé ekkert mál að sögn Gunnu hans Jóns en á þeirra heimfii gerir Jón alla skap- aða hluti og fer létt með það. Þegar svona löguðu er skellt framan í mann, sjálfsagt í þeim til- gangi að hvetja mann til dáða, er maður ekkert að hafa fyrir því að tilkynna að maður treysti sér svo sem líka til að gera alla skapaða hluti heima hjá Jóni og Gunnu. Maður kaupir einfaldlega ljósið og þegar maður er hér um bil búinn að drepa sig og kveikja í húsinu hringir maður í rafvirkja ef maður er skynsamur. Ef maður er það ekki heldur maður áfram að tengja ljósið og hringir að því búnu í slökkviliðið. Og vegna þess að jólin og flensan eru að koma, hvort tveggja hefur stungið sér niður í Kringlunni, Hagkaupi og Miklagarði, gerir maður margt fleira en manni gott þykir, um daginn tók ég til dæmis þátt í bakstri heima hjá mér og fékk að launum að smakka á framleiðsl- unni en var rekinn frá störfum þegar ég hafði smakkað eina teg- undina tíu sinnum. Þetta kallaði ég vönduð vinnu- brögð en konan mín var ekki á sama máli og setti mig í það að þurrka af í stofunni með þeim ummælum að þótt það væri kannski ekki hundrað prósent ör- uggt að ég æti ekki afþurrkunar- klútinn skipti það svo sem ekki svo miklu máh þótt ég gerði það, hún ætti nóg af klútum. Kveðja Ben. Ax. Fiimurðu átta breytingar? 73 Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins en á neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega eríitt að fmna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum. Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun, öll frá versluninni Japis, Brautar- holti 2. Þau eru LED útvarpsvekjari (verðmæti 4.680,-), Supertech útvarp (verðmæti 2.840,-) og Supertech ferðatæki (verðmæti 1.880,-). I öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði. Góða skemmtun! Merkið umslagið: „Átta breytingar - 73, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.“ Verðlaunahafar 71. gátu reyndust vera: Helgi Guðmunds- son, Sæbólsbraut 23, 200 Kópavogi (ferðatæki); Linda Rut Hreggviðsdóttir, Strandgötu 75 a, 735 Eskifirði (útvarpsvekj- ari); Teitur Jóhannesson, Hellisgötu 22, 220 Hafnarfirði (útvarpstæki). Vinningarnir verða sendir heim. < NAFN ....... HEIMILISFANG PÓSTNÚMER ..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.