Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Page 30
30
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987.
Veröld vísindaima
Sími sem skilur öll mál
- tölva sér um að túlka af einu máli á annað
Hjá breska símafélaginu Britísh
Telecom er nú unniö aö hönnum
síma sem hefur þann kost fram
yfir aðra slíka aö hægt er að nota
hann tíl aö ræða saman á tveim
ólíkum tungumálum. Símar af
þessari gerð hafa til þessa aðeins
þekkst í vísindaskáldsögum en nú
er þetta að verða raunhæfur mögu-
leiki.
Tilraunir með þennan síma voru
hafnar að frumkvæði Efnahags-
bandalags Evrópu en eitt af
vandamálunum, sem bandalagið
stendur frammi fyrir, er að ekkert
samkomulag er um hvaða tungu-
mál á að nota í samskiptum
bandalagsþjóðanna.
Takist aö búa símann tíl, sem
fullyrt er að verði á næstu árum,
geta Spánveijar og Grikkir, Eng-
lendingar og Frakkar rætt saman
á móðurmálum sínum án þess að
kalla tíl túlk. Hugmyndin byggist á
því að láta tölvu túlka máhn við-
stöðulaust. Ýmsir hafa orðið tíl að
efast um að þetta geti nokkurn tíma
orðið en hjá Britsih Telecom er
fullyrt að að þetta sé hægt og þar
hefur þegar verið gerður símatúlk-
ur sem ræður við einfóld samtöl.
í minni tölvunnar eru einíold orð
og orðasambönd sem oft koma fyr-
ir í samræðum manna. Þegar
setning er sögð í símann leitar tölv-
an uppi þá setningu í minni sínu
sem líkist henni mest og finnur
jafnframt setningu á öðru máli sem
hefur sömu merkingu.
Enn sem komið er leyfir þessi
aðferð ekki flókin samtöl og stund-
um geta þýðingarnar hljómað
undarlega. En mjór er mikils vísir
og fullyrt er að með tíð og tíma
verði símatúlkar af þessari gerð
fullfærir um alla túlkun. Ekki er
þó búist við að almenningur hafi
aðgang að honum á næstunni því
mikinn búnað þarf til að túlka
mörg samtöl.
Nýi siminn styttir bilið milli þjóða.
Óreiðufræði gætu skýrt
hrunið á verðbréfunum
Gætu óreiðufræðin skýrt hegðun þessara manna?
Hagfræðingar eru enn að velta fyrir
sér hvað fór úrskeiðis á verðbréfa-
mörkuðunum í haust. Allir vita að
þessi markaður er óstöðugur en
vandamálið er hvernig á að skýra
óstööugleikann. Vísindakenningar
þykja jafnan bestar þegar þær styðj-
ast við einfóld lögmál. Einfóld lögmál
um verðbréfamarkaðinn hafa hins
vegar aldrei fundist.
Nú horfa hagfræðingar til svokall-
aðra óreiðufræða í leit að skýringum.
Frá þessari fræðigrein var sagt hér
á síðunni fyrir skömmu. Óreiðufræð-
in eiga ekki nema fárra áratuga sögu
að baki og voru lengi ekki talin
merkileg vísindi. Það hefur verið að
breytast á síðustu árum og nú hafa
hagfræðingar fengið áhuga á henni.
Oreiðufræðin fjalla um hvaðeina
sem ekki sýnir reglulega hegðun og
þar er verðbréfamarkaðurinn kjörið
viðfangsefni. „Viö vitum nú að hefð-
bundin hagfræðilögmál duga ekki tíl
að skýra allt það sem gerist á verð-
bréfamarkaðnum," er haft eftír
James Ramsey, hagfræðingi við New
York háskóla. Hann er nú talinn einn
helsti sérfræðingurinn í óreiðufræð-
um innan hagfræðinnar.
Hagfræðingar eru sammála um að
trú manna eða vantrú á markaðnum
valdi mestu um sveiflumar en hvem-
ig slíkt gerist er flóknara mál. Sumir
segja að aukið streymi upplýsinga
valdi nokkm um óstöðugleikann en
það skýrir ekki atburðarásina.
Óreiðufræðin gætu skýrt hana en fela
ekki í sér lausn á vandanum þótt þau
gætu mótað nýjar starfsreglur.
Eðlisfræðingar, sem lagt hafa
stund á óreiðufræði, segja að þau
komi að bestum notum við að skýra
hvernig smávægileg röskun veldur
allsherjar óreiðu. Hagfræðinga segja
að þeir séu í raun að fást við sama
hlutínn. Þeir eru að leita að skýring-
um á hvers vegna hrun á markaðn-
um getur hlotist af litlu tílefni.
Hagfræðingarnir verða þó að auki
að fást viö mannlega breytni.
Þeir sem litla trú hafa á óreiðu-
fræðunum segja að það sé einmitt
þessi mannlegi þáttur sem valdi
óreiðunni og þá dugi skammt að
vitna til eðlisfræðilögmála í leit að
skýringum. Óreiðufræðingarnir
segjast einmitt vera að leita að skýr-
ingum hvers vegna fjöldi fólks tekur
rangar ákvarðanir. Þegar verðið á
markaðnum lækkaði mest gripu alhr
til þess að selja þó vitað væri að það
lækkaði bara verðið enn meira.
Þessu hafa menn líkt viö snögg
veðrabrigði. Orskakanna er að leita
í mörgum smáum atvikum sem sam-
an valda verulegum breytingum.
Sérfræðinganir eru sammála um að
tölvukerfln, sem notuð hafa verið á
markaðnum, hafi aukið á óreiðuna
en þar er orsakanna ekki að leita.
Þeir eru einnig sammála um að
halli á fjárlögum Bandaríkjanna og
viðskiptahalhnn hafi ráðið miklu um
hrunið en þessi hallarekstur er ekki
nýr af nálinni og lengi hækkaði verð-
ið þrátt fyrir hann. Af hverju féll
verðið ekki fyrr? Óreiðufræðingarn-
ir hafa engin skýr svör gefið við
slíkum spuminum en segja að fræði
þeirra gefi meiri von um svör en
annað sem reynt hefur verið.
Japanir hafa á undan-
förnum árum verið að
þróa svokallaða mynd-
síma. í þeim er hægt að
sjáviðmælandann. Nú
hefúr mönnum dottið í
hug að útfæra þessa þjón-
ustu enn betur og gefa
mönnum kost á að horfa
á kvikmyndir í símanum.
Það eru myndbandafyrir-
tæki sembjóðaþessa
þjónustu. Ekki þarf annað
en að hringja í fyrirtækið
og biðja um tiltekna mynd
og þá er hún sýnd í síman-
um.
Vinna við olíuboranir kann
að léttast á næstu árum.
Fyrirtæki í Japan hefur
látið gera nýja gerð af ol-
íubor. Borinn er að því
leyti ólíkur fyrirrennur-
um sínum að hann
brennir sig niður í jörðina
með leysigeisla. Með þess-
ari nýju tækni er hægt að
bora allt að tíu sinnum
hraðar en áður. Japanir
hafa farið leynt með þessa
nýju uppfmningu en þó
má búast við að hún verði
kynnt aðilum í olíuiðnað-
inum áður en langt um
líður. Því er spáð að vinna
við hinn nýja bor verði
bæði léttari og þrifalegri
en þegar hefðbundnir bor-
ar eru notaðir.
Óprentað
I Bandaríkjunum er nú
hafin útgáfa á vísinda-
tímariti sem hlotið hefur
nafnið Magazette. Rit
þetta er að því leyti ólíkt
öðrum tímaritum að það
er ekki prentað heldur
gefiðútádiskettu.
í sólarorkuverinu er hægt að framleiða 25 kílóvött af rafmagni á klukkustund.
Sólarorka hagkvæmari en olía
Tilraunir meö nýtíngu sólarorku í
Ástralíu sýna að hún getur jafnvel
verið hagkvæmari en hráolía tíl raf-
magnsframleiðslu. Þegar þessi til-
raun hófst höfðu fáir trú á að
árangurinn gæti orðið raunhæfur.
í sólarorkuveri Ástralanna er hit-
anum frá sólinni safnað saman í
íhvolfa diska og hún notuð tíl að hita
upp vatn fyrir gufuvél. Orkuverið
var hannað árið 1979 og því komið
upp á stað sem heitir White Cliffs í
Nýja Suður-Wales.
Alls eru notaðir 14 diskar sem til
samans duga til að framleiða 25 kíló-
vött á klukkustund. í upphafi þótti
sýnt að aldrei gætí borgað sig að
framleiða raforku með þessu móti
því að búnaðurinn er allumfangs-
mikill en nú, þegar verið hefur
gengið áfallalaust í hartnær áratug,
er niður’staðan önnur.
Þrátt fyrir að stofnkostnaöur sé
mikill er hægt aö framleiða raforku
út sólarorkunni á lægra verði en ef
hráolía væri notuð. Kostnaður við
rekstur orkuversins er nánast eng-
inn og viðhald hefur verið sáralítið.
Þegar stofnkostnaðurnn dreifist á
mörg ár er hægt að selja hverja kíló-
vattstund á vægu verði.
Menn utan Ástralíu hafa veitt þess-
ari tilraun athygh. Bandarísk
orkuyfirvöld hafa pantað þrjú orku-
ver af þessari gerð tíl að setja upp á
Hawaii og þau hafa lýst yfir áhuga á
að kaupa þrjú að auki. Þá hefur
bandarískt orkufyrirtæki óskað eftir
aö fá einkaleyfi tU sölu á orkuverum
af þessari gerð í Bandaríkjunum.
Japönsk fyrirtæki hafa einnig sýnt
máhnu áhuga.