Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Qupperneq 38
50 LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987. Popp Veðmangar- artelja aö 'Madonna veröi Itklega f efsta sætl breska vín- sældalistans yfir jólin. Vinsældalistar eru fyrirbæri sem jafn erfitt er aö spá í og veðrið elleg- ar kosningaúrslit, Til dæmis getum við ómögulega sagt neitt fyrir vissu um hvað verði á toppnum hér á landi yfirjólahátíðina. Sömu sögu er vitaskuld að segja frá Bretlandi. En þar gera merni sér leik úr h veiju sem er eða næstum þ ví. Nú eru Bretar teknir að veðja um hvaða lag verði í efsta sætinu á jólun- um. Og flestir reynast veðja á Madonnu og lagið Look of Love. Möguleikar þess ku vera einn á móti þremur. Rick Astley þykir reyndar sigur- stranglegur líka. Gamla Nat King Cole-lagið, When I Fall in Love, sem er að finna á nýjustu breiðskífu Ást- leys er sagt hafa möguleikana 2 á móti 7 til að verða í efsta sæti um jójin. Pet Shop Boys og gamla Presley lagið Always on My Mind er reyndar sagt hafa sömu möguleika. Veðóðir Bretar telja einnig að The Christians og iagiö Ideal World hafi nokkra möguleika eða einn á móti sjö. Paul McCartncy og Once Upon a Long Ago segja veðmangarar að hafi líkurnar tveir á móti níu. Og nú er bara að bíða og sjá hver verður á toppnum. Kannski verður það ekkert fram- angreindra laga í sætinu eftirsótta. Fáir veðjuðu til að mynda á topplag- ið í fyrra. Það kom gjörsamlega að óvörum mörgum árrnn eftir að það kom fyrst út: Reet Petite með Jackie heitnumWilson. Popp DV Fyrsta platínuplatan afhent í dag Gullæði á íslenska hljómplötumarkaðinum Loksins kom að því. íslenskur tón- listarmaður vinnur sér inn platínu- plötu fyrir góða sölu. Bjartmar Guðlaugsson er sá sem hlotnast heið- urinn að verða fyrstur. Hann tekur við plötunni á útitónleikum á Lækj- artorgiídag. Nýlega var reglunum um gullplöt- ur breytt. Áður fengu tónlistarmenn þær afhentar er fimm þúsund plötur höfðu selst. Nú þurfa þær að fara í þrjú þúsund. Og til að vinna sér inn platínuplötu þarf listamaðurinn, eða öllu heldur útgefandi hans, að selja 7.500 plötur. Á þriðjudaginn var var tíu þúsundustu plötu Bjartmars dreift í einhverja verslun- ina. Vegna þessara breytinga verður mikið gullplötuflóð fyrir jólin. Ríó tríóið tekur við sinni gullplötu í versluninni Miklagarði í dag og Greifarnir voru’í byrjun vikunnar búnir að ná settu gullmarki. Megas hafði selt yfir þrjú þúsund plötur strax í síðustu viku og tíu þúsund- asta plafa Bubba Morthens fór frá Gramminu fyrripartinn í síðustu viku. Hann er með öðrum orðum kominn í platínuhópinn með Bjart- mari Guðlaugssyni. En skyldu fleiri eiga eftir að ná því marki fyrir j ólin? Steinar Berg er ekki í nokkrum vafa. „Ég er sannfærður um að Laddi á ' eftir að slá Bjartmari og Bubba við fyrir jólin," sagði hann. „Á útgáfu- degi eru fjögur þúsund eintök seld og væru fleiri ef hægt væri að anna eftirspuminni." Og meira gull Fleiri eiga væntanlega eftir að hengja gullplötur á veggi sína á næst- unni ef marka má heimildarmenn DV. Jólaplöturnar Jólagestir og Jóla- stund fóru að hreyfast í hillum hljómplötuverslananna nú í vikunni og eiga áreiðanlega eftir að renna út þegar líða fer að jólum. Þá er kominn kippur í sölu plötunnar Leyndarmáls með Grafík. Þá bar mönnum saman um að platan með lögum Jóns Múla og Jónasar Ámasona ætti eflaust eft- ir að ná gullmarkinu áður en langt umliði. Óþekktu stærðimar í dæminu eru að sjálfsögðu þær hljómplötur sem voru að koma út í síðustu viku og þessari. Enn eru ellefu dagar til j óla. Nýr kreditmánuður hefst þann átj- ánda og þá hefst æðið fyrir alvöru. En hvemig er með erlendu plöt- urnar? Era þær hættar að koma út eða seljast þær ekki lengur? Jú, þær halda vitaskuld áfram að berast til landsins. Allt auglýsingapúðrið fer vitaskuld í íslensku tónlistina og reynsla undanfarinna desember- mánaða sýnir að þá velur fólk fyrst og fremst íslenskt. Betur að svo væri alltárið. Bjartmar Guðlaugsson tekur á móti fyrstu platínuplöt- Þrátt fyrir velgengni Bjartmars Guðlaugssonar og Bubba unni á Lækjartorgi. DV-mynd. Morthens er því spáð að Laddi verði með metsöluplöt- una í ár. DV-mynd. Asgeir Tómasson Laugavegi 89 - sími 22453 Austurstræti 6 - sími 22450 Kom ábending um lagið frá Islandi? Um það leyti sem Shakin’ Stevens sló í gegn í upphafi þessa áratugar hélt hann sig aðallega við gamlar þekktar dægurflugur. This Ole House var til að mynda fyrsti smellurinn hans. Síðar kom Green Dpor og fleiri vel þekkt lög. Þorgeir Ástvaldsson, út- varps- og sjónvarpsmaður, hafði einlivem tíma orð á því í góðra vina hópi að réttast væri að benda Shak- in’ Stevens á gamla slagarann, Vertu ekki að horfa svona alltafá mig, sem allatíð hefur nolið mikilla vinsælda hér á landi. Þaö mætti eflaust gera eitthvaðúrhonum. Og viö menn. Fyrir nokkrum dög- um kom á markaðinn lítil plata með Shakin’ Stevens. Á A-hliðinni er lag- iö What DoYou Want to Make Those EyesatMe For sem varö talvert vin- sælt í Bretlandi árið 1959 með Emile Ford and tlie Checkmates. Og þetta er einmitt sama gamla lagið og Raggi Bjarna sönginn á plötu sem Vertu ekki að horfa s vona alltaf á mig fy rir langalöngu. „ Jú, ég skrifaði Shakin’ Stevens fyrir mörgum árum og skýrði honum frá því að þetta lag haft notið fádæma vinsælda hér á landi í áratugi,” sagði Þorgeir steinhlessa þegar honum var tjáð að lagið góða væri komið á plast með Shakin’ Stevens. „Ég var satt að segja búirm að steingleyma þessu.“ Ómögulegt er að segja tfl um það hvort ábending Þorgeirs Ástvalds- sonar hafi eitthvað haft að segja. Eitt er þó víst að garala góöa flugan er komin út að nýju og nú er bara að bíða og sjá hvort hún tekur að skríða upp vinsældalistana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.