Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Síða 48
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987. Ferðamál ar eru starfandi á öllum þessum stööum sem hafa verið nefndir. Davos þekkja margir íslendingar ^en þangaö voru skipulagðar ferðir "^Trá Islandi í nokkur ár. Loftið í Davos og Klóster er mjög gott, þurrt og ákaf- lega sólríkt (sterk áhrif útfjólublárra geisla). Frá Kloster er stutt að bregða sér yfir landamærin til Lichtenstein. Eins og áður sagði eru skiðastað- irnir í Sviss fjölmargir, eða um fimmtíu talsins, og vart hægt að nefna þá alla. Til viðbótar þeim stöð- um, sem við höfum nefnt, eru enn nokkrir þar sem skíðað er sumar sem vetur. Það er m.a. i Interlaken, Bett- meralp, Celerina, Engelberg, Sils og Silvaplana. W Ischgl í Austurríki Við tökum skíðin af okkur í Sviss og bregöum okkur með þau aðeins yfir landamærin til Austurríkis. í föstum ferðamálaþætti DV var nýlega greint frá skíðastöðum í Austurríki og beinu flugi til Salzburg hvem laugar- dag til marsloka. Við höfum nú bent á möguleikann með beinu flugi til Zurich nú eftir áramótin og skipu- lagðri ferð til Crans-Montana. Og fyrir utan skipulagðar ferðir á ákveðinn stað eru fjörutíu og níu aðrir staðir svo úr mörgu er aö velja. Áður en við segjum alveg skilið við skíðastaðina á þessum slóðum er einn staður sem vert er að geta sér- staklega og það er Ischgl í Austurríki. Þangað er skipulögð ein ferð í byrjun febrúar. Þá er flogið til Zúrich og ekið í tæpar þijár klukkustundir yfir til Austurríkis. Ischgl er lítið fjalla- þorp (1400 m.h.) í Paznaudalnum og eru íbúarnir um tólf hundruð tals- ins. Bændurnir, sem búa í dalnum, hafa verið aö byggja svæðið upp fyr- ir ferðamenn og hefur það tekist einkar vel. Þorpið er ákaflega frið- sælt og þar er engin bílaumferð éftir sex á kvöldin. Byggð hafa verið þar glæsileg hótel og mikið framboð er góðra veitinga- og dansstaða. Þarna er líka stór íþróttamiðstöð með sund- laug og annarri aðstöðu til íþrótta- iökana. Ischgl er á Silvretta-skíðasvæðinu. í Paznaudalnum eru fimmtíu og sjö lyftur og gildir sami skíðapassinn í þær allar. Reyndar er hann einnig tveggja landa skíðapassi. Frá Ischgl er auðvelt aö fara á skíðum yfir til Sviss í þorpið Samnaun sem er toll- frjálst svæði og því hagstætt að versla þar. Þessi ferð til Ischgl er tveggja vikna ferð og kostar frá tæp- um fimmtíu þúsund krónum fyrir manninn í tveggja manna herbergi með morgunmat. Við leggjum skíðin frá okkur um stund. -ÞG Frá Mathon, F-am er á Silvrettasvæðinu, lítið þorp rétt fyrir norðan Ischgl. Gildirtil og með 16. des. GSMANNA I STORMARKADI FYRIR FRAMTlÐINA Félagsmannadagar KRON hafa gengiö stórvel. Félagsmenn hafa nýtt sér góðan afslátt og gert góð kaup. Við höldum áfram. Nú efnum viðtil jólafélagsmannadaga alla daga fram til 16. desember. Félagsmenn KRON fá þá 5% afslátt af öllum vörukaupum í Stórmarkaði KRON, Skemmuvegi. Laugardaginn 12. desemberverður mikið um að vera. Þá líta jólasveinamir við, og boðið verður upp á heitan jóladrykk og piparkökur. Félagsmenn, nú er tækifærið. Nýtið ykkur félagsmannaafsláttinn og gerið hagstæð jólainnkaup. Munið 5% afslátt af öllum vörum. ■ Leikföng á góðu verði, mikið úrval. * Ýmsarjólavörur, kerti, kertastjakar, jólapappír, servíettur, jólaseríur og margt fleira, einnig á mjög hagstæðu verði. ■ Jólagos og öl í heilum einingum og kössum 10% afsláttur. * Epli, appelsínur og mandarínur í heilum kössum 10% afsláttur. > ■ Úrvals konfekt í fallegum öskjum 10% afsláttur. KKN Geristfélagar. Þaðer hægtt.d. í Stórmarkaði KRON og á skrifstofu KRON, sími 22110 KRON óskarfélagsmönnum og öðrum gleðilegrajóla. Þökkum samskiptin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.