Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Síða 49
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987
ca|
tfPVcffiíU
IÐUNN
Bók sem
skiptir okkur máli
Mikhaíl Gorbatsjov
PERESTROTKA
NÝ HUGSUN, NY VON
Ein athyglisverðasta bók síðari ára á alþjóðlegum
vettvangi. Bók eftir þjóðarleiðtoga Sovétríkjanna,
Mikhaíl Gorbatsjov, þar sem hann fjallar um hinar
nýju,stjórnmálahugmyndir sínar. A ótrúlega
hreinskilinn hátt gerir hann hér grein fyrir
aðstæðum þjóðar sinnar fram á þennan dag. Með
áherslu á opinskáa umræðu meðal allra þjóða fjallar
hann um afvopnunarmál og heimsfrið.
— Hugmyndir sem geta skipt sköpum.
Þessi bók er uppgjör Höllu Linker við þá
ímynd sem skapaðist af henni í gegnum
fjölmiðla í fjöldamörg ár. Aldrei sást annað
en yfirborðið, frœgð og velgengni. En þannig
var líf hennar aldrei í raun og veru.
Nú lítur hún til baka yfir tuttugu og átta ár
í hjónabandi með manni sem var fimmtán
árum eldri en hún og stjórnaði henni eins og
brúðu og tók allar ákvarðanir fyrir hana.
Þegar hann lést skyndilega kom að því að hún
þurfti að standa ein og óstudd ífyrsta sinn,
bjarga sér, læra að umgangast karlmenn,
kynnast því að verða ástfangin eins og ung
stúlka . . . Sú ganga var ekki þrautalaus, en
að lokum hefur Halla náð því marki að geta
litið björtum augum til framtíðarinnar, virt
fyrir sér fortíðina með augum áhorfandans,
hlegið og grátið — sátt við sjálfa sig.
Saga Iiöllu er engin harmsaga, heldur
óvenjuleg ævisaga óvenjulegrar konu, sem séð
hefur og reynt fleira en flestir Islendingar og
hefur umgengist bæði hausaveiðara og
Hollywoodleikara. Konu, sem var virt og dáð
út á við, en fékk þó ekki einu sinni að ráða
hárgreiðslu sinni sjálf. Frásögnin lætur engan
ósnortinn, en hún vekur líka ótal hlátra, því
að Halla kann flestum betur að draga fram
skoplegu hliðarnar á því sem fyrir hana hefur
borið.
MIKHAÍL GORBATSJOV
Eferestrojka
NYHUGSUN NYVCN
BRÆÐRABORGARSTÍG 16 • SÍMI 28555