Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. Útlönd Múrsteinar gegn klámi PáH ViIhjálniaBon, DV, Osló: Andstaðan gegn klámi er sterk í Noregi. Hingað til hafa konur veriö fremstar i Qokkar í andóf- inu gegn klámi. í vikunni bættist konumun liðsauki vasks hóps karlmanna sem jafnfrarnt tók í notkun nýstárlega baráttuaðferð gegn klámi. I skjóli nætur ók hópur karl- manna í Osló á vörubíl um götur borgarinnar og aö tveimur bygg- ingum. Múruöu þeir fyrir inn- göngudyrnar að byggingunum. Aö loknu múrverkinu var kallaö til blaðamannafundar þar sem forkólfarnir sogðust með þessu móti vilja mótmæla dreiflngu kláms. Þær byggingar sem í fyrstu at- rennu voru skotspónn múra- ranna eru annars vegar húsnæði dreifingaraðila kláraraynda og hins vegar blaðsölufyrirtæki sem meöal annars selur tímarit sérs- taklega ætluð karlmönnum. - ísraelar felldu tvo Palestínumenn ísraelskir hermenn skutu tvo Pal- estínumenn til bana og særðu marga á Vesturbakkanum í gær. Nokkru fyrr um daginn hafði ísraelski herinn meinað fréttamönnum að fara frá Jerúsalem yfir á hertekna svæðið á Vesturbakkanum. í gær fann lögreglan í ísrael öfluga sprengju í bifreið skammt frá hótel- inu sem George Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, dvelst á. Sprengjan var gerð óvirk. Bifreiðin, sem sprengjan var í, haföi lent í umferðaróhappi og bif- reiðarstjórinn hafði flúið af vett- vangi. Ekki er vitað hvar eða hvenær sprengjunni var ætlaö að springa. ísraelar hafa nú orðið liðlega átta- tíu Palestínumönnum að bana í átökunum sem staðið hafa á her- teknu svæðunum undanfarna mánuði. Lögreglan í israel leitar í bifreiðinni sem sprengjan fannst í. Símamynd Reuter Bandarísk flugfélög búast við hagnaði Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverötryggö Sparisjóösbækurób. 19-20 Ib.Ab Sparireikningar 3jamán. uppsögn 19-23 Ab.Sb 6mán. uppsögn 20 25 Ab 12mán. uppsögn 21-28 Ab 18mán. uppsögn 32 Ib Tékkareikningar, alm. 8-12 Sb Sértékkareikningar 9-23 Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsögn 3.5-4 Ab.Úb, Lb.Vb, Innlán meösérkjörum 19-28 Bb.Sp Lb.Sb Innlán gengistryggó Bandaríkjadalir 5,75-7 Vb.Sb Sterlingspund 7,75-8.25 Úb Vestur-þýsk mörk ‘2-3 Ab Danskarkrónur 7.75-9 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 29,5-32 Sp Vióskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 31-35 Sp Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr) 32,5-36 Utlan verðtryggð Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb Utlan til framleiðslu isl. krónur 30,5-34 Bb SDR 7,75-8.25 Lb.Bb, ' Bandarikjadalir 8,75-9,5 Sb Lb.Bb, Sterlingspund 11-11,5 Sb,Sp Úb.Bb, Vestur-þýsk mork 5-5,75 Sb.Sp Úb Húsnæðislán 3,5 Lifeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45.6 3,8 á mán. MEÐALVEXTIR I Óverðtr. feb. 88 35,6 Verótr. feb. 88 9.5 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala mars 1968stig Byggmgavisitalamars 343stig Byggingavísitalamars 107,3 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 9%1 . jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávöxtunarbréf 1,3927 Einingabréf 1 2,670 Einingabréf 2 1,555 Einingabréf 3 1,688 Fjölþjóðabréf 1,342 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,672 Lífeyrisbréf 1 342 Markbréf 1,387 Sjóðsbréf 1 1,253 Sjóðsbréf 2 1,365 Tekjubréf 1,365 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 130 kr. Eimskip 384 kr. Flugleiðir 255 kr. Hampiðjan 138 kr. Iðnaðarbankinn 155 kr. Skagstrendingurhf. 189 kr. Verslunarbankinn 135 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í rv á fimmtudögum. Anna Bjamason, DV, Denver: Flugfargjöld í Bandaríkjunum fara nú hækkandi og styrkir það vonir ráöamanna bandarísku flugfélag- anna um góðan hagnað á þessu ári. Talsverð farþegaaukning hefur oröið í byrjun þessa árs eftír mikinn samdrátt og lægð á síðasta ársfjórð- ungi 1987 og kom það ráðamönnum flugfélaganna mjög á óvart. Þessi umtalsverða aukning hefur orðið á árstíma sem venjulega er slakur hjá flugfélögunum. Til aö nýta sér þennan byr út í æsar ákváðu stjórnendur allra helstu bandarísku flugfélaganna, undir forystu Americ- an Airlines, að hækka lægstu far- gjöldin um tíu dollara í síðustu viku. Fulltrúar flugfélaganna segja að eftír sem áður sé hægt aö fá ýmis konar afsláttarfargjöld. En tíu doll- ara hækkunin kom á óvart því venjulega auka flugfélögin framboð á afsláttarfargjöldum á þessum árs- tíma sem fæstír nota til ferðalaga. Búist er við enn frekari hækkun þeg- ar ferðalag aukast með hækkandi sól. Þrátt fyrir þessa góðu byrjun í ár reikna fulltrúar flugfélaganna aðeins með fimm til sex prósent aukningu á fjölda farþega á þessu ári. Búist er við aukningu í innanlandsflugi og að talsvert fleiri Evrópubúar hugsi til Bandaríkjaferðar vegna stöðu doll- arans. Mjög hefur dregið úr samkeppni bandarískra flugfélaga. Helsta ástæðan fyrir hækkun flugfargjald- anna í síðustu viku er sögö sú að flugfélagið Continental, sem haft hef- ur forystu um alls konar'afsláttarfar- gjöld, hefur ekki lepgur bolmagn til slíks. Félagið tapaði 466 milljónum dollara í fyrra og stendur mjög höll- um fæti. Þetta ætla önnur flugfélög að notfæra sér sem munu að sjálf- sögðu hvert um sig áfram auglýsa alls konar afsláttarfargjöld en ekki er búist við að ný samkeppnisstyrj- öld á því sviði hefjist milli þeirra. Þess vegna telja sérfræðingar að hag- ur flugfélaganna muni batna veru- lega á þessu ári. - perla __islenska skemmtanalífs! „A LA Muniðaðpaníá „Hinn-frábáBrrjom5iylHunt skemmtírá^föstu- dags- og'laíigárdagskvöld. ____—•—— G uðrnijmdur_H au ku i—anriást tórdistarflutning föstudags-.Jaugardags-dgsunnudagskvöld. - Opnunartímar Mánaklúbbsins: Fimmtudaga 18.00-01.00 Föstudaga 18.00-03.00 Laugardaga 18.00-03.00 Sunnudaga 18.00-01.00 — Brautarholti 20, símar 23333, 23335 og 29098 Anna Bjamason, DV, Denver: Fimmtíu og átta prósent Banda- ríkjamanna nota ekki öryggis- beltí. í flestum bandarískum bílum eru öryggisbeltin lakari og veita minni vernd en belti í evr- ópskum og japönskum bílum, Þetta kemur fram í skýrslu um- ferðaröryggisráðs Bandaríkj- anna sem bni: var í vikunni. Ráðið hefur á hálft þriðja ár rannsakað 167 alvarleg umferð- arslys. Niðursíaðan var sú að flestar tegundir bandarískra ör- yggisbelta hafa tílhneigingu til að slakna og telur ráðið nauðsynlegt að herða reglur um gerð þeirra. Fulltrúar í ráðinu eru sammála um að séu bandarísk öryggisbelti notuð á réttan hátt komi þau oft í veg fyrir dauöaslys og dragi verulega úr alvarlegum meiðsl- mn. Ráðið segir að öryggisbelti hafi bjargaö 6700 mannslífum síö- an 1983 en fimmtíu og átta prósent þeirra sem í bílum aka noti þau ekki. Kraílst er notkunar þeirra í 31 iylki Bandaríkjanna auk höíúðborgarsvæðisins. í rannsókn ráðsins kom í Ijós að um áttatíu prósent þeirra fram- sætísfarþega sem notuðu þriggja punkta öryggisbeltí rétt hlutu engin eða einungis minni háttar meiðsli í alvarlegum umferðar- slysum. Algengasta misnotkun bel- tanna fólst í þvi að slaki var á axlarbeltinu eða að því var stung- ið undir arminn. Einnig kom fyrir að tvö börn voru spennt í sama beltið. Gizux Helgason, DV, Liibede Nú ætti ekki að þurfa aö salta eggin lengur. Vestur-þýskur dýralæknir hefur nefnilega kennt hænunura sínum að verpa kryd- duðum eggjum sem bragðast nákvæmlega eins og egg eiga að bragðast. Dýralæknirinn, sem heitir Lau- ermann og er frá Schleswig- Holstein fýlki, hafði velt því fyrir sér í flölmörg ár af hverju menn þjTftu sí og æ að vera aö salta og pipra eggin sín. Þegar hænur eru fóðraöar með fiskmjöli kemur fiskkeimur af eggjunum. Fyrst svo var þá hlutu önnur bragðefni einnig að hafa áhrif, taldi Lauermann. Egg ættu aö bragðast á nálivæmlega sama hátt og þegar hænurnar vöppuöu frjálsar í garðinum hennar ömmu og átu sitt lítið af hverju. Lauermann viöurkennir aö ekki sé neinn möguleiki á því að sleppa 40 milljónum hæna út á akra Vestur-Þýskalands. Þess vegna bjó hann til blöndu aT ba- silikum, rósmarin, salvíu, timjan og hundakexi og vann svo í hálft ár viö að fmna rétt hlutlöll. Hænurnar fengu síðan blönd- una ásamt annarri fæðu og byrjuðu síöan aö verpa eggjum með hárréttu bragöi. Þessi egg þarf ekki aö salta né krydda á annan hátt og því telja markaðs- málasérfræöingar við háskólann í Kiel að hér sé um að ræöa nær- ingarfræðilega framfór. Fólksflótti Páll Vilhjálmsson, DV. Qsló: Fólksflóttinn frá Norður-Nor- egi eykst stöðugt. Þrjár mis- heppnaðar vetrarvertíðir í röð ógna búsetu í mörgum útgeröar- bæjum við strönd Norður-Nor- egs. Skortur á heilsugæslu og menntun og einhæft atvinnulíf eykur á fólksflóttann og einkum er það ungt fólk sem flytur suður á bóginn til borga og bæja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.