Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Page 20
20 LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. Stj ómley si afnumið Kæri vin Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ég búi í stjórnlausu þjóð- félagi. Þá á ég ekki við þetta stjórh- leysi sem þeir flokkar sem eru í stjómarandstöðu á hvexjum tíma ásaka jafnan ríkisstjóm um. Nei, ég á við almennt sljómleysi í fyrir- tækjum, stofnunum og svona almennt. Ég hef nefnilega tekið eft- ir þvi að stöðugt fjölgar auglýsing- um um námskeiö í stjórnun af ýmsu tagi. Kennarar sækja nám- skeið til að læra að stjóma börnun- um og skólastjórar setjast á námskeið tii að læra að stjórna kennurum. Forstjórar taka kúrs í að stjórna skrifstofustjórum og hinir síðamefndu em svo þegar byrjaðir á námskeiði í stjómun undirmanna. Þetta stjórnunaræði fer nú sem eldur í sinu um landið. Sérfræðingar í stjómun virðast allt í einu vera til á öðm hveiju götu- horni. Svo þegar yfirmenn em orðnir svona sprenglærðir í að stjóma undirmönnum þarf að halda enn eina námskeiðsröðina til að kenna undirmönnum að með- taka hina nýtískulegu stjómun. Þú manst í dentíð þegar við vor- um í skóla hvað það var misjafnt hvemig kennurum gekk að halda uppi aga, Sumir höfðu svo gott lag á nemendum að þar gekk allt upp án þess að þeir þyrftu að áminna nokkum. Það var skemmtilegt að læra hjá þeim mönnum. Aðrir héldu uppi sannkölluðum járnaga með hálfgerðum Gestapóaðferðum og við óttuðumst þá og hötuðum í senn. Svo var það þriðji kennara- hópurinn sem var fyrir löngu búinn að gefast upp á að halda uppi aga og stjóma. Þeir svona luf- suðust um og var ekki annaö að sjá en þeim stæði nákvæmlega á sama hvort á þá væri hlustað eða ekki eða hvort nemendur lærðu nokk- um skapaðan hlut. Ófáir nemend- ur nýttu sér þetta útí ystu æsar en grétu svo beisklega þegar prófein- kunnir komu. En þessi munur á kennumm verður auðvitað úr sög- unni þegar allir era búnir að ljúka námskeiði í stjómun. En mikið skelfmg held ég að þá verði leiðin- legt að sitja á skólabekk. Þjóðminjasafnið átti 125 ára af- mæli um daginn og af því tilefni var þingmönnum boðið að skoða safnið. Ekki veit ég hve margir þeirra hafa komiö þangað áður en til þess að tryggja að allir mættu var þeim boðið upp á hákall og brennivín, það er að segja þeim er vildu en hinir fengu hrútspunga og mysu. Þeir á DV vora nú að gantast með það að það væri við hæfi að skilja suma þingmenn eftir þama á safn- inu. Ekki ætla ég að taka undir slíkt gáleysishjal því ég vil endilega að það ríki áfram friður og ró á safn- inu og þar verði ekki aðrir innan- hússmenn en þessar elskulegu eldri konur sem sitja í homum með pijónana sína. Þær era ómissandi hluti safnsins og skera sig úr öðr- um munum vegna þess að þær standa upp og hreyfa sig af og til. Mér hefur stundum dottið í hug hvort ekki væri upplagt að fá nokkra gamla sjómenn af Hrafn- istu til aö vera á vappi í skinnklæð- um í þeirri deild safnsins sem hefur að geyma báta og aðra muni frá sjósókn fyrri tíma. Allavega þætti útlendingum matur í slíku. „Þeir a DV voru nu að gantast með það að það væri við hæfi að skilja suma þingmenn eftir þarna á safnínu." Annars er ég hnur viö að sækja söfnin. Hef til dæmis aldrei skoðaö myntsafn Seðlabankans né heldur Náttúrugripasafnið. Og svo er mað- ur að flengjast milli safna í hinum og þessum borgum erlendis. En svona er þetta líka með lands- byggðarfólk á íslandi. Það skrepp- ur til Reykjavíkur nokkram sinnum á ári og skoðar þá allar málverkasýningar, sækir leikhús og bíó og yfirleitt allt sem í boði er. Svo flytur þetta fólk búferlum til höfuðborgarinnar og eftir það er bara setið fyrir framan sjónvarpið og allar sýningar látnar lönd og leið því það má alltaf fara á morgun eða um næstu helgi fyrst þetta er alveg við bæjardymar. Um daginn rakst ég á kunningja í Austurstræti. í fylgd með honum var Þjóðveiji sem var búinn að vera hér í fjóra daga. Við stungum okkur inn á Hressó og fengum kafS. Þjóðveijinn fór að segja frá öllu sem hann hafði skoðað í borg- inni og næsta nágrenni á fjórum dögum. Þaö var meira en ég kemst yfir á einu ári. Ég var því heldur sneypulegur þegar ég kvaddi, en náði mér brátt og hugsaði með mér að svona væra þessir Þjóðverjar. Allt vildu þeir gleypa á sem skemmstum tíma og þeir væru svo vanir að skipuleggja tíma sinn að ekki færi mínúta til spillis. Við þessir innfæddu höfum hins vegar svo mikið að gera við að hafa mik- ið að gera að við megum ekki vera að neinu. Að endingu ætla ég svo að þakka þér fyrir bréfið sem mér barst í gær. Það er gott að þú ert búinn Sæmundur Guðvinsson að fá betra húsnæði þar sem þú getur lært í friði. En segðu mér eitt. Hvenær reiknaröu með að ljúka prófi? Þetta era nú að verða ellefu ár síðan þú fórst fyrst utan til náms og alltaf ertu að skipta um fóg. Svei mér ef ég man hvað þú ert að stúdera núna. En með sama áfram- haldi þarftu ekki að vinna nema svona 10 ár að námi loknu áöur en þú kemst á ellilaun. En þetta er þitt líf en ekki mitt. Jón gamli á Hallærisá, þú manst sem við vor- um í sveit hjá sem strákar, kom í bæinn um daginn og var þá að spyrja um þig. Sagðist ekki hafa heyrt frá þér áram saman. Ég sagði að þú værir að mennta þig í stjóm- un með þann tilgang í huga að stjórna landinu þegar þú útskrifað- ist. - Ja, mig skal ekki undra að það taki tímana tvo að læra það, sagði Jón gamli. Hafðu það gott. Þinn vinur Sæmundur. Fiimurðu átta breytingar? 83 Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins en á neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að finna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum. Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun, allt Philipsvörur frá Heimilistækj- um h/f. Þau eru Philips útvarpsklukka (verðmæti 3.210,-), Philips kaffivél (verðmæti 2.280,-) og Philips ferðastraujárn (verðmæti 1.600,-). í öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði. Góða skemmtun! Merkið umslagið: „Átta breytingar-83, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík." Verðlaunahafar 81. gátu reyndust vera: Hermann Gunn- arsson, Sundstræti 27, 400 Isafjörður (segulband); Harpa Kristinsdóttir, Skarðshlíð 151, 603 Akureyri (útvarp); Matt- hías Ólafsson, Hæðargarði 40, 108 Reykjavík (útvarpsvekj- ari). Vinningamir verða sendir heim. gHe NAFN ....... HEIMILISFANG PÓSTNÚMER ..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.