Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 5. MARS 1988.
Popp
Oft hefur veriö talað um Ríó tríóið
sem eitt af stærri tríóum heimsins.
Sennilega hefur það aldrei verið fjöl-
mennara en einmitt nú.
„ Við erum komnir með þrjár söng-
konur til liðs við okkur, þær Ernu
Þórarinsdóttur, Evu Albertsdóttur
og Guðrúnu Gunnarsdóttur," segir
Helgi Pétursson. Nú, og svo höfum
við á að skipa vænum flokki hljóð-
færaleikara, þeim Eyþóri Gunnars-
syni, Friðrik Karlssyni og Gunnlaugi
Briem úr Mezzoforte. Einnig er með
okkur Haraldur Þorsteinsson bassa-
leikari, belgiskur steelgítarleikari og
fjórir blásarar. Yfir þessu öllu gin svo
Gunnsi, það er Gunnar Þórðarson
tónlistarmaður."
Ríó „tríóið" var einmitt endurvak-
ið um síðustu helgi og skemmtir í
Broadway næstu vikurnar. Að sögn
Helga Péturssonar er dagskráin allt
önnur en síðast þegar hann, Ólafur
Þórðarson og Ágúst Atlason komu
saman ásamt undirleikurum.
„Viðerum meónokkurþjóðlögaf
síðustu plötunni okkar á dagskrá -
byrjum raunar á þeim. Síðan kemur
gamla góða ritúalið með upptrekkta
karlinum og sliku, þar á eftir bregð-
um við okkur í gospelsöngva og
endum loks með nokkrum slögurum
afeldri plötunumokkar.Óla Jóog
því um líku.“
Ríó tríóið tók þátt í slagnurn á síð-
asta jólaplötumarkaði með góðum
árangri. Platan Á þjóðlegum nótum
fór í gull nokkru.fyrir jól.
-ÁT-
Enn stækkar
Ríó tríóið
n
srna íyrstu
lt
Eyjólfur Kristjánsson tónlistar-
maður á annríkt um þessar mundir.
Hann syngur í Næturgalanum á
Sögu, í Superstar í Evrópu, syngur á
veitingastaðnum Evrópu og skrepp-
ur meira að segja öðru hverju til
Akureyrar til að taka lagið á veit-
ingahúsi þar. Hann hefur nýlokið við
að syngja tvö lög í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstööva og til við-
bótar viö allt þetta vinnur Eyjólfur
að eigin hljómplötu um þessar mund-
ir. - Sumum verður einfaldlega
meira úr tímanum en öðrum!
„Við byrjuöum á plötunni í október
síðastliönum, lögðum síðan verkið á
hilluna um skeið og byrjuöum loks
að nýju fyrir nokkru,“ segir Eyjólf-
ur. „Ég hef hins vegar ekki upptöku-
manninn, sem hefur unnið með
okkur, nema til tólfta mars. Hann
þarf þá að fara utan en kemur aftur
í apríl. Þá ljúkum við vonandi plöt-
unni.“
Með Eyjólfí vinnur Eyþór Gunn-
arsson aðallega við upptökurnar.
Gunnlaugur Briem sér um áslátt og
Jóhann Asmundsson kemur til með
að spila á bassa það sem á annað
borð verður handspilað. „Annars
notuin við tölvur aö langmestu
leyti,“ segir Eyjólfur. „Ég sé sjálfur
um allan gítarleik, nema hvað það
getur veriö að ég fái einhvern snilling
til að taka nokkur sóló.“
Allt í allt verða á plötunni níu til
tíu lög. Öll eru þau eftir Eyjólf Krist-
jánsson og textar velflestir eftir
Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Einn
eftir Sverri Stormsker kann að fá að
fljóta með. Þegar þetta birtist er enn
allt óvíst um hvort Eurovisionlögin
tvö, sem Eyjólfur syngur, verða með
á plötunni. Væntanlega ræðst það af
því hvernig þeim vegnar í forkeppn-
inni.
-ÁT-
Eyjólfur Kristjánsson gefur sér tima mitt í öllu annrikinu til að hljóðrita plötu.
Skin og skúrir hjá Tíbet Tabú
— búið að skipta. um trommu- og bassaleikara.
Rió trióið syngur nú gospeltónlist
i bland við gömlu, góðu slagarana.
Hljómsveitin Tíbet Tabú er enn
ekki orðin ýkja þekkt. Þótt hún hafi
einungis nokkrum sinnum komið
opinberlega fram er geta hennar þó
farin að spyrjast. Tíbet Tabú er ný-
lega komin úr hljóöveri og.. .beina
leið í bílskúrinn að nýju til að æfa
enn belur.
„Við vorum ekki fyrr búnir að
hljóðrita sex lög en trommuleikarinn
yfirgaf okkur og bar við tónlistarleg-
um ágreiningi," segir Jóhannes
Eiðsson, söngvari Tíbet Tabú. „Áður
höfðum við skipt um bassaieikara.
Össur Hafþórsson, fyrrum liðsmaður
Rauðra fiata, leikur nú með okkur
og á trommur leikur nú Hallur Ing-
ólfsson. Við erum í óða önn að æfa
þessa tvo upp.“
Hallur lék áður með hljómsveitinni
Gypsy og eftir aö hún lagði upp laup-
ana var hann um skeiö í hljómsveit
með Bjarna Tryggva. - En hvaö með
lögin sex sem tekin voru upp. Á að
koma þeim á hljómplötu?
„Við vonum það,“ svarar Jóhann-
es. „Viö erum einmitt um þessar
mundir aö leyfa útgefendum að
heyra þau. Lítist þeim ekki á þaö sem
við höfum fram að færa ætlum við
að reyna að gefa okkur út sjálfir."
Lagahöfundur Tíbet Tabú er Gu-
mundur Jónsson sem í eina tíð lék
meö hljómsveitinni Kikk. Textar eru
samdir í sameiningu - á íslensku. -
Hljómsveitin hefur nú þegar um
fimmtán lög á prógramminu, öll
frumsamin.
„Við stefnum síöan að því að lengja
prógrammið og taka líka upp meira
þegar fram liða stundir og við erum
búnir aö æfa nýju mennina upj>,“
segir Jóhannes. -AT-
Popp
Ásgeir Tómasson
Hljómsveitin Tíbet Tabú í æfingabúðum sinum i vesturbænum.
Konungar
Afkastamestu popplagasmiðirnir um þeaaar mundir, Stock, Aitken og
Waterman. Þeir sjá meðal annars um tónlist og upptökur fyrir Rick Astley.
smellasmiðanna
Hvaöskyldu Bananarama, Mel &
Kim, Dead or Alive, Samantha Fox,
Hick Astley og Princess eiga sam-
ciginlegt? Jú, öll hafaþessi nöfn
skreytt toppa vinsældalista víða
um Evrópu. Og merkilegt nokk, li-
statopparnir koma úr einni og
sömudægurlagavcrksmiöjunni.
Þar ráða þeir ríkjum Mike Stock,
Matt Aitken og Peter Waterman.
Þcssir þremenningar hafa þróað
sína eigin formúlu og hún virðist
vera í tískuumþessarmundir.
Þeir byrja til að mynda stundum á
því að finna nafn á lag. Síöan er
einhvertakturhamraðurinn í
trommuheilaoglokser laginu
hlaðið utan á þennan umrædda
takt og bingó! Nýr metsölusmellur
erfæddur.
Áöur en þeir Stock, Aitken og
Waterman siógu í gegn sem laga-
höfundar og upptökustjórar eyddu
þeir mikium tíma í að kanna á
hvaö ungdómurinn hlustaöi aðal-
lega í alimörgum löndum Evrópu.
Þegar þremcnningarnir tóku aö sér
að finna nýja tónlistarstefnu fyrir
kvennatríóið Bananarama var
Waterman til að myndascndurtil
nokkurradagadvaiarí Parístilað
stúdera hvað helst væri leikið þar.
i iann sneri heim til linglands með
fjórardiskóplötur... ítalskar.
I lann taldi sig hafa fundið töfra-
formúluna: ítalska laglínu, evr-
ópskan takt og texta í anda
tónlistar bandarísku Motown útg-
áfunnar. Formúlan virtist virka.
Að minnsta kosti hefur Bananar-
ama aldrei verið vinsælli en •
einmitt nú.
„ Viö skömmu mst okkar ekkert
fyrir að stela svona,“ segja þre-
menningarnir. „Þaöerhvorteöer
búið að finna upp llest jiað sem
liægt er að gera við dægu rtónlist-
ina eins og við þekkjum liana.
Núoröiðeru einungis búin til til-
brigöi viö stefhvað þelta varðar."
Það eru ekki cinungis broskir
tónlistarmenn sem leita á náöir
þeirra Stocks, Aitkensog Waler-
mans. Þessa dagana eru þeir að
vinna í Svíþjóð milli þess sem þeir
skjótast til llollands og Þýskalands,
Þeireru óumdeilaniegaafkvaiða-
mestir í popptónlist livrópu um
jiessar mundir. Hins vegar eiga
[ieir á hættu að veröa gleymdir að
ári eins og aðrir sem einskoröa sig
við léltustu tegund lóttmetis. En
meðan góöu dagarnir vara er um
að gera að vera nógu alkastamik-
ill. Og þaö eru þeir Stock, Ailken
og Walerman sannarlega.