Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1988, Síða 40
52 LAUGARDAGUR 5. MARS 1988. Lífcstm___________________ Mestu glæsifleytunni hleypt af stokkunum Stærsta skemmtiferðaskipið, sem siglir um heimshöfin, er Sovereign of the Seas. Það var vígt í síðasta 'mánuði. Rosalynn Carter er „guð- móðir“ skipsins en eigandinn er norska skipafélagið Royal Caribbe- an. Skipið tekur rúmlega tvö þúsund og tvö hundruð farþega og er áhöfnin tæplega átta hundruð manns. Sover- eign of the seas er sjötíu og fjögur þúsund smálestir. Fjórtán hæðir skipsins eru fyrir ofan sjávarmál og eftir okkar heimildum átján lyftur um borð. Skipið er um þessar mundir í sjö daga siglingum á Karíbahafmu en heimahöfn þess er í Miami á Flórída. Norðmenn eru að vonum hreyknir af skipastól sínum á þessum siglinga- leiðum en þetta skipafélag var stofnað árið 1969 og hefur flutt tæpar tvær milljónir farþega til dagsins í dag. Binda eigendur miklar vonir við tíðari ferðir Norðmanna til Karíba- hafsins meö tilkomu Sovereign of the Seas og einnig vegna stöðu dollars- ins. Um borð í þessu flaggskipi eru öll þægindi sem nútíma ferðamaður sækist eftir. Sigling með skemmtiferðaskipum var áður talin kostur fárra útvaidra en í dag eða þetta ferðakostur sem almenningur getur veitt sér í aukn- um mæli. Það er auðvitað skýringin á því að sífellt bætast í skipaílotann ný og fullkomnari skip. í júníbyijun verð- ur enn einni glæsifleytunni hleypt af stokkunum, Crown Odyssey mun hún heita og verður fjörutíu þúsund smálestir að stærð. Siglingaleiðimar em margar og framboð skipa fjölbreytt. Margir sigl- ingaleiðangrar fyrir náttúruskoðara, til dæmis til Galapagos-eyja, hefjast í marsbyriun. Tíu daga sigling verð- ur frá Lissabon til Feneyja í haust og um mitt sumar er ein ferð af mörg- um frá Southampton í Suður-Eng- landi til Malaga á Spáni og til ýmissa eyja í Miðjarðarhafi, t.d. Sardiníu, Elbu og Mallorca. Ferðimar skipta hundruðum. Hafi fólk í hyggju að nota næsta leyfi til skemmtisiglingar verður val- ið að mótast af árstíma, fjárráðum og lengd leyfisins. Karíbahafið er vinsælt á þessum árstíma, Miðjarð- arhafið á vorin og svo mætti áfram telja. Verð samkvæmt upplýsingum í erlendum blöðum er 125-600 dollar- ar á dag fyrir manninn, allt eftir skipaleið, skipi, staðsetningu um borð, stærð káetu o.fl. í íslenskum krónum er þetta frá tæpum fimm þúsund krónum og ailt upp í tuttugu og tvö þúsund krónur rúmar. Það ber að sjálfsögðu að hafa í huga að fargjald, fæði og húsnæði er allt innifaliö í verði sem gefið er upp. Mergurinn málsins er að fjölmörg skip sigla um heimsins höf og fleiri og fleiri ferðamenn hafa tök á því að njóta leyfisdaga á þennan hátt. -ÞG Sovereign of the Seas, flaggskipið glæsilega sem Rosalynn Carter gaf nafn. Concord er ekki aðeins fljótasta farþegaflugvél í heimi heldur einnig ein af þeim glæsilegustu. Einn Islendingur hefur látið bóka sig í heimsferð með Concord: Miðinn kostar 950 þúsund íslensk ferðaskrifstofa býður við- skiptavinum sínum heimsreisu með Concord flugvél. Ferðin tekur 19 daga. Hópurinn kemur fyrst saman í London en fer síðan til Parísar þar sem flug- ferðin hefst. Þrjár ferðir eru fyrirhugaðar með Concordflugvélinni og eru mismunandi áfangastaöir í ferð- unum. Brottfarardagar eru 15. október, 4. nóvember og 23. des- ember. Ef tekið er dæmi um ferðina 4. nóvember þá er komið við á eftir- farandi stöðum: París - Ríó - Lima - Mexíkóborg - Honolulu - Papeete - Fiji - Kuala Lumpur - Abu Dhabi - París. Ferðaskrifstofan Saga í Reykja- vík, sem býður þessar ferðir, hefur þær f umboðssölu fyrir er- lendu ferðaskrifstofuna Kuoni. Sex sæti eru tekin frá fyrir ís- lenska farþega í hverri brottfór. Samtals gefst því 18 íslendingum kostur á að kaupa sér miða. Hvaðerinnifalið? Hvað er svo innifalið í þessum pakka? Allt flug með Concord og öðrum flugvélum. Gisting á góð- um hótelum á áfangastöðum ásamt morgunverði. Ein skoðun- arferð á hverjum áfangastað. Tvær kvöldmáltíðir. Þá er innifalin nafnleynd á far- þegalista svo engin þurfi að óttast ,að það fréttist að hann hafi keypt sér svona ferð. Kostar hátt í milljón Hvað kostar svo að ferðast með þotuliðinu um heiminn? Mismunur er á verði eftir því hvaða ferð er farin. Verðið er á bihnu frá 850.000 til 950.000 krón- ur fyrir manninn. Samkvæmt upplýsingum frá ferðaskrifstofunni þá er mikið hringt og spurt um þessa ferð og við komumst að því (þrátt fyrir leyndina) að einn hefur látið bóka. -EG Komið til Reykjavíkur og sjáið Vesalingana Uppfœrslo Þjóðleikhússins á söngleiknum „Vesolingornir" nýfur olmennror viðurkenningor ■ Arnorflug innonlonds hf. úfvegor miðo, hófel og flyfur ykkur suður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.