Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
65
Afmæli
Guðni Guðjónsson
Guðni Guðjónsson, Fossheiði 60,
Selfossi, er níræður í dag.
Guðni er fæddur á Brekkum,
Hvolhreppi, RangárvaUasýslu.
Hann ólst upp á Brekkum og bjó
þar, að undanskildum sex árum, til
73 ára aldurs. Guðni vandist ungur
öllum almennum sveitarstörfum
og um tvítugt fór hann sem aðgerð-
armaður til Vestmannaeyja. Alls
fór Guðni á um það bil 20 vertíðir
til Eyja.
Guðni hóf búskap á Brekkum
1922 en eftir árið tók hann við
Guýnastöðum í Austur-Landeyjum
og var þar í þrjú ár. Þá fylgdi eitt
ár í Vestmannaeyjum en þaðan fór
Guðni aftur að Brekkum og bjó þar
til ársins 1971. Það ár fór Guöni til
Reykjavíkur og vann um tveggja
ára skeið hjá Guðmundi í Víði. Að
lokinni Reykjavíkurvist fór Guöni
til Selfoss og lagði stund á söðla-
smíði sem hann sinnir enn.
Guðmundur var einn af stofnend-
um Ungmennafélagsins Baldurs,
sat í stjórn félagsins og veitti því
formennsku um nokkurt skeið.
Guðni var forðagæslumaður í sinni
sveit i mörg ár og starfaöi í stjórn
Búnaðarfélagsins. Einnig vann
hann mikið við dýralækningar.
Guðni átti 3 bræður og 5 systur.
Af þeim eru tveir bræður á lífi og
tvær systur. Systkini Guðna: Ingi-
gerður, húsmóðir í Kirkjulækjar-
koti, Fljótshlíð, látin; Katrín Jón-
ína, húsmóðir í Króktúni, Hvol-
hreppi, látin; Guðný, lengi búsett í
Vestmannaeyjum, látin; Anna,
húsmóðir í Hveragerði; Björgvin
Kristinn, verkamaður í Þorláks-
höfn; Guðjón, sjómaður og fom-
bókasali í Reykjavík, látinn; Bogi
Pétur, byggingaverkam. á Akra-
nesi; Guðrún, húsmóðir á Eyrar-
bakka.
Guðni kvæntist Jónínu Guð-
mundu Jónsdóttur, b. í Austur-
Búðarhólshjáleigu í Austur-Land-
eyjum, Goðmundssonar. Valgerð-
ur Gestsdóttir var móðir Jónínu.
Með Jónínu eignaðist Guðni 12
börn, eitt dó á fyrsta ári en hin
komust öll upp án fjölskyldubóta.
Afkomendur Guðna eru 80 en af
þeim eru fimm dánir.
Böm Guðna og Jónínu era: Val-
gerður, f. 14.6.1923, húsmóðir, Sel-
fossi; Ingólfur, f. 21.2.1925, málara-
meistari, Reykjavík; Guðni Björg-
vin, f. 1.4.1926, aðstoðarkaupfélags-
stjóri, Selfossi; Ágústa, f. 20.8.1927,
látin; Haraldur, f. 14.12.1928, starfs-
maður Hitaveitu Reykjavíkur;
Gunnar, f. 7.3. 1930, mjólkurbíl-
stjóri, Selfossi; Hafsteinn, f. 22.10.
1932, verkamaður í Reykjavík; Júl-
íus, f. 16.10. 1933, látinn; Dagbjört
Jóna, f. 1.9.1939, húsmóðir, Hafnar-
firði; Sverrir, f. 31.5. 1935, fisk-
vinnslumaður í Vestmannaeyjum
og Þorsteinn, f. 10.6.1942, bensínaf-
greiðslumaður í Reykjavík.
Faðir Guðna var Guðjón, b. á
Brekkum og söðlasmiður, Jón-
geirsson, b. i Mörk, Jóns hómópata,
b. í Mörk. Kona Jóngeirs var Gunn-
vör Jónsdóttir, b. í Hlíðarkoti, Ól-
afs, prests á Eyvindarhólum. Kona
Ólafs var Helga Jónsdóttir eld-
prests Steingrímssonar.
Móðir Guöna hét Guðbjörg
Guðnadóttir, bróður Bjarna, fóður
Bjarna, skólastjóra á Laugarvatni.
í móðurætt var Guðbjörg af Selja-
landsætt.
Kristín
Þorsteinsdóttir
Kristín Þorsteinsdóttir frá Eski-
firði er sjötíu og fimm ára í dag.
Kristín er dóttir hjónanna Þor-
steins Marteinssonar og Þuríðar
Andrésdóttur. Kristín giftist 22.11.
1934 Viggó Á. Loftssyni frá ísafirði.
Þau hjónin eignuðust tíu börn og
eru níu þeirra á lífi, sjö synir og
tvær dætur. Afkomendur Kristínar
og Viggós era orðnir margir, 35
barnabörn og 11 barnabarnabörn.
Lengst af bjuggu Kristín og Viggó
á Eskifirði en fluttust til Reykjavík-
ur 1972 og hafa búið þar síðan.
Heimili þeirra er að Krosshömrum
5.
Á afmælisdaginn varður Kristín
hjá dóttur sinni, Kristínu, og
tengdasyni, Birgi Dýrfjörð, í Skeif-
unni við Breiðholtsveg.
Hólmar Öm
Sigfússon
Hólmar Örn Sigfússon, Sólheim-
um 25, Reykjavík, verður sextugur
á morgun, 12. júní.
Örn fæddist í Reykjavík, sonur
hjónanna Kristrúnar Fransdóttur
og Sigfúsar Sigfússonar málara
sem nú er látinn. Örn stundaði
ýmsa vinnu á yngri árum, svo sem
vélavinnu og akstur, en frá árinu
1969 var hann á sjó, fyrst vélstjóri
á síldar- og loðnuskipum en síðar
á Sambandsskipum. Eftir að Örn
hætti sjómennsku hefur hann
starfað hjá Stálsmiðjunni.
Örn kvæntist Hildi Þórlindsdótt-
ur þann 29.8. 1957.
Örn á fjóra uppkomna syni, Ing-
ólf, Sævar, Rúnar og Guðna. Fóst-
ursynir Amar era tveir, Halldór
og Ævar. Bamabörn Arnars eru
nú orðin 18.
Örn og sambýliskona hans, Fríða
Valdimarsdóttir, dvelja um þessar
mundir á Benidorm á Spáni.
Sigríður Stefánsdóttir
Sigríður Stefánsdóttir, Rauðar-
árstíg 9, Reykjavík, er níræð í dag.
Sigríður fæddist á Brattalandi í
Vestur-Skaftafellssýslu, dóttir
hjónanna Sigríðar Jónsdóttur' og
Stefáns Péturssonar bónda. Sigríð-
ur átti þijá bræður, Þórarinn,
Matthías og Valdimar, en þeir eru
allir látnir.
Sigríður missti föður sinn korn-
ung og var henni komið í fóstur til
föðurbróður síns, Jóns, og síðan til
annars föðurbróður síns, Sigurðar.
Sigríður fluttist til bróður síns,
Matthíasar, bónda á Fossi í Síðu.
Þar vann Sigríður í 16 ár. Frá Fossi
á Síðu lá leiðin til Reykjavíkur þar
sem Sigríður vann við heimilis-
hjálp.
Sigríður giftist Halldóri Gísla-
syni, uppeldisbróður Vilmundar
landlæknis. Þau Halldór hófu bú-
skap á Sjónarhóli, Vatnsleysu-
strönd, og bjuggu þar í um 17 ár. Á
Sjónarhóli lést Halldór. Eftir lát
eiginmanniin'í fluttist Sigríður til
Reykjavikur og hefur búið síðan í
eigin íbúð á Rauðarárstíg 9.
Á afmælisdaginn dvelur Sigríður
hjá Ingibjörgu Jóhannesdóttur,
Blesastöðum, Skeiðahreppi í Ár-
nessýslu.
Ester Kristjánsdóttir
Ester Kristjánsdóttir, húsfreyja
að Skógum í Dalasýslu, er fimmtug
í dag.
Ester fæddist að Belsstaö í
Saurbæ, en fluttist mánaðargömul
að Efri-Múla í Saurbæ og ólst þar
upp í foreldrahúsum.
Veturinn 1953-1954 var Ester
vinnukona hjá hjónunum Halldóri
E. Sigurðsyni og Margréti Gísla-
dóttur á Staðarfelli. Um áramótin
1955 fór Ester í Húsmæðraskólann
á Staðarfelli og var þar til vors.
Ester kynntist Guðmundi Jóns-
syni veturinn 1954 og hófu þau
búskap að Túngarði á Fellsströnd
vorið 1955. Guðmundur er sonur
hjónanna Jóns Guðmundssonar og
Jófríðar Einarsdóttur. Ester og
Guðmundur eiga sex börn: Jón, f.
27.6. 1956; Valgeir Kristján, f. 7.4.
1958; Friðjón, f. 25.3. 1959; Garðar
Hlíðar, f. 16.5.1963; María Kristín,
f.' 9.4.1965; Guöni Hannes, f. 20.10.
1972.
Ester og Guðmundur fluttust að
Skógum á Fellsströnd sumarið
1979.
Foreldrar Esterar eru Kristján
Jóhannsson og Valgerður Hannes-
dóttir. Systkini Esterar eru 6.
Ester hefur starfað í kvenfélag-
inu Hvöt um margra ára skeiö, þar
af formaöur 1985-1988. í 35 ár hefur
Ester sungið í kórnum.
Ester tekur á móti gestum á
heimili sínu i dag.
Einar Kjartan Ólafsson, Látra-
strönd 26, Seltjarnarnesi, er sjötiu
og fimm ára í dag.
Einar fæddist og ólst upp í
Reykjavík. Hann hóf nám í bif-
vélavirkjun hjá Sveini Egilssyni
1932 og starfaði þar til ársins 1960.
Það ár réð Einar sig til Læknavakt-
arinnar í Reykjavík og starfaði þar
sem bílstjóri til ársins 1987.
Guðni söng í fjölda ára annan
bassa í Karlakór Reykjavíkur og
syngur enn með gömlum félögum.
Afmælisdaginn 11. júní árið 1938
kvæntist Einar Þorbjörgu Sigurö-
ardóttur, f. 4. janúar 1919, og eiga
þau þvi gullbrúðkaupsafmæli í dag.
Foreldrar Þorbjargar voru Sigurð-
ur Daníelsson, gullsmiður á Eyrar-
bakka, og Ágústa Ebeneserdóttir.
Börn Einars og Þorbjargar eru:
Sesselia Ólafía, f. 21.8.1938; Katrín
Særún, f. 6.5.1941; Ágústa, f. 14.11.
1943; Sigrún, f. 10.6.1949; Gróa Sig-
ríður,-f. 31.12. 1950; Þórey, f. 1.1.
1954; Lind, f. 11.7. 1956, og Ólafur
Brynjólfur, f. 16.1.1967. Dóttir Ein-
ars fyrir hjónaband er Hjördís
Inga, f. 30.3. 1934.
Foreldrar Einars voru Ólafur
Einarsson, f. 1.9. 1887, d. 19.6. 1974,
og Magdalena Margrét Benedikts-
dóttir, f. 13.5. 1891, d. 6.6. 1930.
Stjúpmóðir Einars er Guðrún Hall-
dórsdóttir, f. 14.7.1908.
Systkini Einars: Benedikt, f. 19.8.
1910; Björgvin, f. 6.8.1916; Halldóra
Kristjana, f. 20.12. 1918; Guðgeir
Oddur, f. 27.5.1920; Kjartan Sigur-
jón, f. 1.8.1921, d. 24.6.1986; Guðrún
Jóhanna, f. 16.11. 1923; Þórólfur
Valur, f. 6.4. 1925; Sigurður Guð-
björn, f. 5.9. 1929. Hálfsystkini:
Magdalena Margrét, f. 29.8. 1931;
Ólafía Auöur f. 21.12.1934; Dagný,
f. 21.9. 1940.
Einar Kjartan Ólafsson
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra
til að senda því myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa
að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Sigurður
Jónsson
Sigurður Jónsson, dvalarheimil-
inu Höfða, Akranesi, áður Skóla-
braut 24, Akranesi, er áttatíu og
fimm ára í dag.
Sigurður er fæddur í Skálanen í
Gufudalssveit, Austur-Baröa-
strandarsýslu, sonur Jóns Einars-
sonar bónda og þriðju konu nans,
Sigurlínu Bjarnadóttur úr Hrúta-
firði.
Sigurður eignaðist eftirtahn
systkini; Finnboga Pétur, sem
drukknaði 19 ára; Jón, bónda í
Skálanesi, kvæntist Ingibjörgu
Jónsdóttur og eignuöust þau 10
börn: Jónínu, Hallgrím, Gyðu,
Kristjönu, Erling, sem lést 2 ára,
Erling, Guönýjn, Svandísi, Hjördísi
og Sverri; Sigríði, fjórðu konu Pét-
urs Pálssonar, bónda í Hafnardal,
átti hún þar eitt barn, Sirrý, og sjö
stjúpbörn; Ástríöi, látin, ógift og
barnlaus.
Sigurður missti fóður sinn 12 ára
gamall og urðu því systkinin
snemma að taka að sér búverkin
með móður sinni. Skálanes er í
þjóðbraut og lenti það mikið á Sig-
urði að flytja ferðafólk. Hann flutti
fólk sjóleiðis yfir á Reykjanes og á
hestum vestur að ísafjarðardjúpi.
Það kom sér oft vel hvað Sigurður
hafði gaman af góðum hestum.
Sigurður er kvæntur Kristínu
Jónsdóttur, Arnfinnsonar, Björns-
sonar frá Eyri í Gufudalssveit. Þau
hófu búskap á parti af Skálanesi
árið 1928, en tíu árum seinna fluttu
þau til Akraness og hafa búið þar
síðan.
Sigurður vann í 15 sumur hjá
Vegagerð ríkisins. Frá 1937 var
hann flokksstjóri á Holtavörðu-
heiði, Stóra-Vatnsskarði, en síðar
víöa í Stranda- og Borgarfjarðar-
sýslu. Á vetrum vann Sigurður á
vertíð. Upp úr 1959 keypti hann
vörubíl og keyrði hann í mörg
ár.
Sigurður og Kristín eignuðust
fjögur börn; Guðmundu Vigdisi, f.
1929, gift séra Róbert Jack, og eiga
þau 10 börn; Arnfinn Ingvar, f. 1930,
kvæntur Þórönnu Jónsdóttur, hús-
móður, og eiga þau 3 börn; Kjartan
Trausti, skrifstofustjóri, skilinn og
á 2 böm; Erlingur, f. 1942 d. 1944.