Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Side 6
Útlönd
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
Baráttan um dollar
Slappir
smokkar í
Frakklandi
ann í algleymingi
Seðlabankar stærstu Evrópuríkj-
anna og Japans keyptu í gær banda-
ríska dollara í milljónatali til að
hindra að hann lækkaði enn frekar
á gjaldeyrismörkuðum.
Allt frá því George Bush var kjör-
inn forseti Bandaríkjanna 8. nóv-
ember síðastliðinn er dollarinn á fal-
landa fæti. Gjaldeyriskaupendur
telja líklegt að Bush láti gengi dollar-
ans síga og jafni þannig viðskipta-
halla Bándaríkjanna. Ennfremureru
sterkar efasemdir um að Bush taki á
fjárlagahalla ríkissjóðs og veikir það
enn stöðu gjaldmiðilsins.
í gær komu stóru seðlabankarnir í
tvígang inn á markaðinn og keyptu
stórar summur af dollurum. Eftir-
spurnin, Sem seðlabankarnir skópu,
hélt dollaranum á floti vfir það lág-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 5-7 Bb
Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 5-8 Sb.Sp
6 mán. uppsogn 5-9 Vb.Sb,- Sp
12 mán. uppsogn 6-10 Ab
18mán.uppsogn 15 lb
Tékkareikningar, alm. 1-2 Vb.Sb,- Ab
Sértékkareikningar 5-7 Ab.Bb,- Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Bb.Vb,- Sp
6 mán. upDSOgn 2-3.75 Vb.Sp
Innlán meðsérkjörum 5-12 Lb.Bb,- Sb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 7.25-8 Vb
Sterlingspund 10.50- 11,25 Vb
Vestur-þýskmork 4-4,25 Ab.V- b.S- b.Úb
Danskarkrónur 7-8 Vb.Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 15.5-18 Sp
Vidskiptavixlar(forv.) (1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 16,5-21 Vb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareiknmgar(yfirdr.) 19-22 Lb.Úb
Utlán verötryggö
. Skuldabréf 8-8,75 Vb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 17-20 Lb.Bb
SDR 9-9,75 Lb.Úb,- Sp
Bandarikjadalir 10,25 Allir
Sterlmgspund 13.50- 14,50 Lb.Úb
Vestur-þýskmork 6,75-7,25 Allir nema Vb
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27,6 2.3 á mán.
MEÐALVEXTIR
Överötr. nóv. 88 20,5
Verðtr. nóv. 88 8,7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2272 stig
Byggingavísitala nóv. 399,2 stig
Byggingavisitala nóv. 124,8 stig
Húsaleiguvísitala Engin hækkun 1. okt. Verðstoðvun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,364
Einingabréf 2 1,915
Einingabréf 3 2,181
Fjólþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,565
Kjarabréf 3,359
Lífeyristréf 1.691
Markbréf 1,775
Skyndibréf 1,030
Sjóðsbréf 1 1,618
Sjóðsbréf 2 1,405
Sjóðsbréf 3 1,154
Tekjubréf , 1,565
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 118 kr.
Eimskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr.
Hampiðjan 130 kr.
Iðnaðarbankinn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, ■ lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Bush tekur við forsetaembættinu þann 20. januar 1989 og fjármálamenn óttast að hann ráði ekki við efnahags-
vanda Bandaríkjanna. Símamynd Reuter
mark sem vestur-þýskí seðlabankinn
setti, eða 1,74 mörkr á móti dollar.
Talsmenn seðlabankanna sögðu að
þeir gætu ekki endalaust bjargað
dollaranum. Vestræn iðnríki leggja
áherslu á að bandaríska ríkisstjórnin
með Bush í fararbroddi grípi til að-
gerða sem geri bandaríska gjaldmið-
ilinn trúverðugri.
Fjármálaheimurinn brást illa við
ummælum Nicholas Brady, fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna, þess
efnis að hann hefði ekki áhyggjur af
fallandi gengi dollarans og að ekki
teldi hann líkur á að vextir hækkuðu
í Bandaríkjunum. Hærri vextir í
Bandaríkjunum yrðu mönnum
hvatning til að kaupa dollara og
myndi hann þá styrkjast. Ummæli
Bradys urðu til þess að enn fleiri
vildu selja en áður og stóru seðla-
bankarnir í Evrópu og Japan fóru á
stúfana til að jafna bilið á milli eftir-
spurnar og framboðs.
íslenskur útflutningur á Banda-
ríkjamarkað tapar stórfé þegar doll-
arinn lækkar. Gengisfellingar ís-
lensku krónunnar miða að því að
láta útflytjendur fá hærra verð fyrir
söluvörur sínar. Þegar dollarinn
lækkar á mörkuðum dregur úr þeim
áhrifum sem ætlast er til með gengis-
fellingu krónunnar. Á meðan dollar-
inn hefur aðeins hækkað um rúm 10
prósent miðað við íslenskar krónur
undanfarin þrjú ár hefur enskt pund
hækkað um rúm 50 prósent og vest-
ur-þýskt mark um rúm 80 prósent.
Af þessum ástæðum hefur dregið úr
útflutningi fiskafurða til Bandaríkj-
anna.
Reuter/DV
Quayle hafður að
spotti og spéi
Beggja vegna Atlantshafsins er
dregið dár að varaforseta Bandaríkj-
anna, Dan Quayle. Það er gert grín
að Quayle fyrir að vera reynslulaus,
að gáfnaskorti hans og ferli í hern-
um.
í kvöldverðarboði fyrir skömmu
sagði bandaríski þingmaðurinn John
Kerry frá Massachusetts að banda-
ríska leyniþjónustan hefði fengið þau
tilmæli að ef Bush forseti yrði skot-
inn skyldi leyniþjónustan skjóta
Quayle. Þegár fréttist af brandara
þingmannsins varð hann að biðjast
opinberlega afsökunar.
Quayle var nefndur í lok fréttatíma
BBC sjónvarpstöðvarinnar í Bret-
landi þegar fréttamaður minntist 60
ára afmælis teikinmyndafígúrunnar
Mikka mús. Fréttamaðurinn sagði:
„þrátt fyrir orðróm er það rangt að
Mikki mús noti Dan Quayle-úr.“
Brandarinn vísar til þess að úr með
mynd af Mikka er vinsælt hjá böm-
um.
Quayle tekur gríninu með bros á
vör og segist ekki láta það trufla sig.
Hann mun þó hafa móðgast þegar
Reagan forseti bauð honum ekki til
kvöldverðar sem haldinn var í vik-
unni til heiðurs Margréti Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands. Blaða-
fulltrúi Nancy forsetafrúar tók fram
að það hefði ekki verið tilviljun að
nafn Dan Quayle sást ekki á gesta-
listanum. Reuter Á leyniþjónustan að skjóta Quayle ef Bush fellur frá?
Bjami Hin riksson, DV, Bordeaux:
Yfirvöld í Frakklandi hafa
bannað sölu fimm tegunda
smokka eftír að niðurstðður
könnunar voru birtar í neytenda-
blaði. Þar kemur fram að þríðj-
ungur af 41 tegund, sem seld er í
landinu, er talinn ófullkomin
vernd gegn eyðnisýkingu.
Þetta hefur vakið mikla athygli
og heilbrigðisyfirvöld bmgðust
hart við, sérstaklega þar sem ný-
lega voru tilkynntar nýjar að-
gerðir í baráttunni gegn eyðni.
Fyrir utan tegundirnar fimm era
fimmtán í viðbót sem gætu hlotið
sömu örlög. Þessi könnun verður
éndurtekin af ríkinu því ekki eru
allir sammála um gildi niður-
staðna hennar. í Frakklandi hef-
ur notkun smokka aldrei verið
sérlega mikil og þessi könnun
bætir ekki úr skák.
Ríkisstjórnin hrinti ekki alls
fyrir löngu af stað auglýsingaher-
ferð fyrir aukinni smokkanotkun
og heilbrigðismálaráöherrann
hefur tekið það fram að þær tæp-
lega þijátíu tegundir, sem fá góða
einkunn í könnuninni, hafi um
áttatiu og fimm prósent allrar
sölu í Frakklandi.
viðurkennd
af A-Evrópu
Sovétríkin og Austur-Þýska-
land viðurkenndu í gær sjálfstætt
ríki Palestínumanna á hertekn-
um svæðum ísraelsmanna. Ekki
er ólíklegt að flest önnur ríki
Austur-Evrópu komi í kjölfarið
og viöurkenni ríki Palestínu-
manna sem þjóðarráö þeirra
stofnaöi á fundi í Alsír í vikunni.
Flestir heföu búist við að Sovét-
ríkin myndu bíða átekta nokkra
stund áður en þau viðurkenndu
nýstofnaöa ríkið. Áður en Sovét-
ríkin viðurkenndu í gær riki Pal-
estínumanna höfðu milli tíu og
tuttugu önnur þjóðlönd gért hið
sama.
Viðurkenning Sovétmanna er
mikill sigur fyrir Yassír Arafat,
leiðtoga PLO, sem knúði fram til-
lögu sem bæði fól í sér yfirlýsingu
um stofnun nýs ríkis og jafnframt
viðurkenningu á tilvistarrétti
Ísraelsríkis. Harðlínumenn úr
röðum Palestínumanna vildu láta
við það sitja aö lýsa yfir ríkis-
stofnun.
Bandaríkin standa núna
frammi fyrir því að viðurkenna
nýtt ríki Palestínumanna eöa
koraa raeö góðar ástæður gegn
þvi að viðurkenna það. Jón Bald-
vin, utanrikisráðherra íslands,
segir það ekki samræraast al-
þjóðavenjum að viðurkenna ríki
á borö við það sem nýstofhað er
í Palestínu.
Reuter/DV