Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Side 8
8 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988. Þáttaröðin Á ógnartímum á Stöð 2: Leikstjóri Forsyte ættarinnar enn við stjómvölinn Þáttarööin Á ógnartímum ber öll merki breskra vinnubragða í sjón- varpi. Það var naumast við öðru að búast þar sem leikstjórinn er einn sá fremsti sem hefur sjónvarps- myndir að sérgrein sinni. Þetta er James Cellan Jones sem frægastur hefur orðiö fyrir að leikstýra Forsyte ættinni, einni lengstu og vinsælustu þáttaröð sem um getur. Sér til aðstoðar hefur Jones hand- ritshöfundinn Alan Plater sem fyrir utan að vera höfundur skáldsagna hefur skrifað handrit að fjölmörgum sjónvarpsþáttum. Hann á heiðurinn af að skrifa sjónvarpshandrit eftir sögum Agöthu Christie um Miss Marple. Að sögulokum í Egyptalandi. Sagan, sem þeir Jones og Plater vinna úr, er eftir ensku skáldkonuna Oliviu Manning. Hún birtist á árun- um 1960 til 1965 í þremur hlutum og er sameiginlega kölluð The Balkan Trilogy. Þetta er frægasta saga Manning en hún hefur sent frá sér margar sögur bæði fyrr og síðar. Saga um flóttafólk í sögunni er höfundurinn að flalla um afdrif hjóna í framandi umhverfi á stríðstímum. Þau koma til Rúme- niu sem saklausir útlendingar. Guy Pringle hefur miklar áhyggjur af Ógnir stríðsins í Rúmeniu. Aftökur án dóms og laga. framvindu mála og dregst inn í of- sóknir nasista gegn gyðingum í Rúmeníu. Éftir að Þjóðverjar hafa náð undirtökunum í landinu kemst hann á lista yfir eftirlýsta menn. Eftir þetta hefst flótti þeirra undan nasistum. Harriet fer til Aþenu og Guy á eftir. Þar verður dvölin stutt því enn verða þau að flýja undan nasistum og nú liggur leiðin til Egyptalands. Þar lifa þau í skugga Afríkustríðsins. Það reynir á hjóna- bandið. Þau skilja um tíma en ná saman á ný. í Egyptalandi lýkur sög- unni þótt ógnartímarnir haldi áfram. -GK Guy og Harriet Pringle á leiðinni til Búkarest. Þar bíða þeirra ógnir stríðsins. Uppskafningurin Yakimov fursti Hjónin Guy og Harriet Pringle. Um þau snýst sagan. Reyndir sviðsleikarar í aðalhlutverkunum Eins og í mörgum sjónvarpsþáttum fer ein af aukapersónunum nærri því að stela senunni frá aöalpersónun- um. í sögunni um það Gay og Harri- et Pringle er það óheillakrákan Yaki- mov fursti sem gerist frekur til rúms- ins. Ástæðan er að þar fer saman stórkostlegur leikur Ronald Pickup og sjálf persónan er þannig saman sett aö hún vekur bæði hrifningu og fyrirlitningu. Yakimov er aðalsmaður af rúss- nesk-írskum ættum. Hann er flótta- maður sem hefur tapað öllu sínu en getur ekki tekið nokkurn skapaðan hlut alvarlega. Hann er snillingur í að bjarga eigin skinni og hugsar ekki um þótt velgerðarmenn hans verði aö gjalda fyrir. Koníak á kostnað annarra Hann er sérvitur uppskafningur sem gengur í ósamstæðum skóm, drekkur eins mikið koníak á kostnað annarra og honum er mögulegt að innbyrða og heillar menn með snilld- arlegri samræðulist. Hann er hrókur alls fagnaðar í boðun þar sem hann birtist jafnan sem boðflenna. Ahorfendur eru frá því hann birtist í fyrsta sinn látnir vera í vafa um hvort maðurinn er óvenjuheimskur, slóttugur og undirforull eöa maður sem hefur lært að bjarga sér í hörð- um heimi. Guy Pringle heillast af þessum manni og tekur hann upp á sína arma. Yakimov launar það með því að svíkja velgjörðarmann sinn en tekst að kjafta sig inn á hann aft- ur. Yakimov heldur sig að hætti aðals- manna þótt hann eigi ekki bót fyrir rassinn. Hann lifir frá degi til dags og vonar að hver nýr dagur færi honum ný tækifæri til að halda lífl - og sníkja svolítið koníak. Á endanum verður kæruleysiö honum að falli. Hann þarf endilega að kveikja sér í sígarettu þegar alger myrkvun hefur verið fyrirskipuð og er skotinn af lögreglunni. Virtur Shake- speareleikari Ronald Pickup, sem leikur Yaki- mov, á að baki langan feril sem leik- ari. Hann er skólaður sem Shake- speareleikari hjá Þjóðleikhúsi Breta og lék þar við góðan orðstír um tíma. Hann hefur einnig leikið í mörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Hann hefur m.a. komið fram í James Bond-myndum. Frægasta myndin, sem hann hefur leikiö í, er The Missi- on, ein nafntogaðasta stórmynd síð- ari ára. -GK Hjónin Guy og Harriet Pringle eru leikin af þeim Kenneth Branagh og Emmu Thompson. Þau teljast bæði til efnilegri yngri leikara í bresku sjónvarpi og hafa að auki töluverða reynslu sem sviðsleikarar. Branagh hóf feril sinn í leikhúsum í Lundúnum og vann tvívegis á þeim árum verölaun sem efhilegasti nýlið- inn í leikarastétt. Eftir það tók hann aö sér aðalhlutverkin í tveimur þáttaröðum í sjónvarpi. Hvorug þeirra hefur þó komið fyrir sjónir íslenskra áhorfenda. Árið 1984 lék hann titilhlutverkið í Hinriki fimmta hjá Konunglega Shakespeare leik- hópnum. Fyrir þetta hlutverk fékk Branagh mikið lof. Emma Thompson á sér annan bak- grunn þótt hún hafi einnig hafið fer- il sinn í leikhúsi. Hún byrjaði sem révíuhöfundur hjá leikhópi í Cam- bridge og síðan einnig sem leikkona. Það varð til þess að hún fékk tilboð um að leika í gamanmyndum í sjón- varpi. Vinsælasta hutverkið af þeirri gerðinni er Sally í Me and My Girl sem lengi gekk í Sjónvarpinu hér. Með hlutverkinu í Á ógnartínum hefur hún snúiö við blaðinu og leikur í fyrsta sinn alvarlegt hlutverk. Þegar þau hjón, Harriet og Guy, koma til sögunnar eru þau nýgift. Áhorfendur kynnast þeim á leið til Búkarest í Rúmeníu þar sem Guy hefur tekið að sér kennslu við há- skólann. Þetta er haustið 1939, sama haustið og heimsstyrjöldin síðari braust út. Þau dragast inn í ógnir stríðsins og sagan berst víða um austanverða Evrópu og Miðaustur- lönd og lýkpr raunar í Egyptalandi meðan stríðið er enn í algleymingi. -GK Óheillakrákan Yakimov fursti sem Ronald Pickup leikur. Þetta er undarlega saman sett persóna sem ekki hefur hæfileika til annars en að kjafta sig frá vandamálunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.