Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Qupperneq 11
«90r Pr fl'IOM'"' r'-i/
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
or
íi
Breiðsíðan
DV-myndbrot
vikunnar
DV-mynd Hanna
Dagskrá ljósvakanna í nýju tímariti:
Tímarit sem hefur
vantað á markaðinn
- segja útgefendur Næst á dagskrá
„Þessi hugmynd var lengi aö velkj-
ast í mér áöur en ég ákvað aö slá til
og fara út í blaöaútgáfu," sagöi Kol-
brún Sveinsdóttir, fyrrum kynning-
arstjóri Stöðvar 2, í samtali viö Breið-
síðuna. Kolbrún fékk Kristínu Kvar-
an, blaðaútgefanda í Garðabæ, til liðs
viö sig og saman ætla þær að gefa
út tímaritið Næst á dagskrá, sem
kemur út í fyrsta skipti 1. desember.
„Hér hefur ekkert blað verið gefið
út sem birtir dagskrár allra ljósvaka-
miðlanna eins og gert er í öðrum
löndum. Blöð sem þessi hafa verið
með vinsælustu tímaritum. Við birt-
um dagskrár sjónvarps-, útvarps- og
gervihnattastöðvanna og upplýsing-
ar um athyglisverðar myndir sem
hægt er að fá á myndbandaleigunum.
Auk þess verðum við með umfjöllun
um bækur og annað áhugavert sem
er að gerast í kringum okkur. Þá
verður sagt frá fréttnæmu fólki, bæði
innlendu og erlendu," sagði Kristín.
Næst á dagskrá verður í B-5 broti,
32 síður að stærð, kemur út vikulega
í tíu þúsund eintökum fyrst um sinn
og kostar 97 krónur. Tímaritið verð-
ur selt í matvöruverslunum. „Ég er
oft að vandræðast yfir að Sjónvarps-
vísir Stöðvar 2 er ekki með dagskrár
annarra stöðva og hef oft bölvað yfir
því,“ sagði Kristín.
Kolbrún bætti við að það hefði ein-
mitt verið þess vegna sem hugmynd-
in hefði fæðst. „Mér hefur fundist
Sjónvarpsvísirinn óaðgengilegur."
Þær stöllur hafa unnið í tvo mánuði
að undirbúningi nýja blaðsins og
segja aö forsvarsmenn allra íjölmiöla
hafi verið mjög samstarfsfúsir. „Þeir
eru tilbúnir að kynna blaðið fyrir
okkur og við höfum ekki mætt neinu
nema góðum skilningi."
- En eru þær ekkert hræddar við
samkeppnina frá helgarkálfum dag-
blaðanna?
„Nei, þetta er ekkert sambæri-
legt,“ svarar Kristín. „Kolbrún þekk-
ir vel innviði þessa starfs eftir aö
hafa unnið hjá Stöð 2 og hún hefur
gert blaðið mjög áhugavert. „Við telj-
um að markaður sé fyrir hendi.“
í tilefni útgáfunnar hafa þær boðið
heimsfrægum kvikmyndaframleið-
anda, David Puttnam, hingað til
lands og mun hann halda einkafyrir-
lestur fyrir fólk er starfar að kvik-
myndagerð. Puttnam hefur framleitt
myndir eins og Eldvagninn, Killing
Fields, Missing og Midnight Express,
svo að einhverjar séu nefndar. Hann
hlaut óskarsverölaun fyrir Eldvagn-
inn.
David Puttnam var forstjóri
Colombia kvikmyndafyrirtækisins
en hætti þar fyrir stuttu vegna ósam-
komulags við Kóka Kóla sem er einn
af stærstu eigendum fyrirtækisins.
Puttnam, sem er Breti, er einn fræg-
asti kvikmyndaframleiðandi í dag og
jafnframt sá umdeildasti. Það er því
sannarlega vel af sér vikið hjá Kol-
brúnu að fá hann hingað til lands.
-ELA
Kristin Kvaran og Kolbrún Sveinsdóttir eru bjartsýnar á að Ijósvakatímarit-
ið fái góðar viðtökur. Þær hafa boðið hingað heimsfrægum kvikmyndafram-
leiðanda i tilefni útgáfunnar. DV-mynd GVA
Yoh Izumo hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir danstúlkun sína sem
hún hefur sýnt víða um heim.
Yoh Izumo í Þjóðleikhúsinu:
Túlkar dansinn
með latbragðsleik
Yoh Izumo er japanskur dansari
og danshönnuður sem vakið hefur
mikla athygli víða um heim. Izumo,
sem er kvenkyns, ef nafnið skyldi
vefjast fyrir einhverjum, kemur
hingað é lands í næstu viku og
ætlar að dansa á Litla sviði Þjóð-
leikhússins. Izumo hefur sýnt
dansa í mörgura borgum Banda-
ríkjanna, Evrópu og Asíu og kom
m.a. fram á listahátíö ólympíuleik-
anna í Seoul.
Yoh Izumo sérhæfir sig í tveimur
tegundum klassískra japanskra
dansa, Juita-mai og Kabuíd-buyo.
Þessar danstegundir eiga sér
margra alda gamla þróunarsögu
og er báðum sameiginlegt að lát-
bragðsleikur er stór þáttur dans-
ins.
Jiuta-mai dansarnir þróuðust
meðal geisha-dansmeyja fyrir um
það bil 200 árum í tehúsum í Os-
aka, sem þá var miðstöð verslunar
og viðskipta. Þessir leikdansar
leggja áherslu á kvenlega fegurð
og kynþokka og tjá tilfinningar
kvenna í gleði og sorg.
Kabuki-buyo eru dansar af hefð-
bundinni Kabuki-leiklist. Þessir
dansar geta ýmist veriö hluti af
söguþræði leikritanna eða verið
sjálfstæöir einþáttungsdansar. Til-
gangur kabuki er að sýna hæfni
leikarans í að túlka persónuleika
og tilfinningar ákveðins hlutverks
með dansi og hreyfingum.
Yoh Isumo hefur hlotiö margar
viðurkenningar fyrir túlkun sína,
m.a. menningarverðlaun japanska
menntamálaráðuneytisins.
Haukur J. Gunnarsson leikstjóri
kynnir sýninguna. Hann hefur
margra ára nám að baki í Japan,
m.a. sem nemandi You Izumo.
Haukur hefur leikstýrt mörgum
verkum, bæði hér og erlendis, m.a.
tveimur japönskum sýningum fyr-
ir Þjóðleikhúsið. Hann starfar nú
sem leiksfjóri í Osló en síðasta
verkefni hans var japanska leikri-
tiö Heike-gani fyrir Det Norske
Teatret, þar sem You Izumo samdi
dansana.
Á meðan á Izumo dvelur hér á
landi verður sýning á japönskum
Ijósmyndum í anddyri Ldtla sviðs-
ins. Myndimar eru frá daglegu lífi
og listalífi í Japan.
-ELA