Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Side 29
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988. 29- I>v LífsstOI Unnum kjötvörum hrakar - svört skýrsla biit í Neytendablaðinu Engin íslensk framleiðsla gæti kallast skinka ef miðað væri við bandarískar reglur heldur vatnsbætt skinka og skinkulíki. Þetta er meðal þess sem fram kem- ur í lokaverkefni Valgerðar Ástu Gunnarsdóttur í matvælafræði við Háskóla íslands en niðurstöður þess eru meðal efnis í nýútkomnu 3. tbl. Neytendablaðsins. Mælingar annað- t Tegund-stærð Blómaval Alaska Landgræðslusj. Skógræktarfél. Rvk. NORÐM-ÞINUR 0-100 cm 995 850 1.170 995 100-125 cm 1.260 1.250 1.430 1.260 126-150 cm 1.760 1.730 1.890 1.760 151-175 cm 2.180 2.150 2.360 2.180 176-200 cm 2.850 2.820 3.260 2.850 201-250 cm 3.410 3.350 3.730 RAUÐGRENI 0-100cm 455 440 460 460 101—125 cm 745 720 740 740 126-150 cm 1.045 1.020 1.040 1.040 151-175 cm 1.370 1.350 1.390 1.390 176-200 cm 1.840 1.795 1.850 1.850 201-250cm 2.240 2.150 2.220 2.220 STAFAFURA 0-100 cm 650 630 640 640 101-125cm 1.015 1.020 1.030 1.030 126-150 cm 1.455 1.430 1.460 1.460 151-175cm 1.975 1,920 1.940 1.940 176-200 cm 2.640 2.560 2.600 2.600 201-250 cm 3.100 3.020 3.100 3.100 GRENIBÚNT, 500g 165 165 165 Verð með söluskatti. ist Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins. Tilgangur verkefnisins var m.a. sá að bera núverandi ástand saman við rannsókn sem gerð var á unnum kjötvörum 1983 og bera niðurstöður saman við erlenda kjötstaðla. Valgerður Ásta kemst að þeirri nið- urstöðu að full þörf sé á að setja reglugerðir um unnar kjötvörur hér Neytendur á landi. í öörum löndum er fram- leiðslan miðuð við ákveðna kjöt- staðla þar sem leyfilegt efnisinnihald er tilgreint en hérlendis er ekkert slíkt fyrir hendi og lítið eftirlit með framleiðslunni. Það vekur athygli að við saman- burðinn kom í ljós að síðan 1983 hef- ur fituinnihald lækkað í sumum vör- um og vatnsinnihald aukist. í fitulítið hangiálegg hefur verið bætt rúmlega 12% af vatni. Sama er að segja um skinku og hefur vatnsinnihald í henni aukist um 5,7%-19% frá 1983 eftir framleiðendum. Höfundur telur aö ástandið hafi versnaö síðan 1983 hvað varðar framleiðslu á malakoffi og spægi- pylsu. í malakoffi hefur fita aukist, prótín minnkað og vatn aukist. Eng- inn framleiðandi spægipylsu stenst danska staðla. Þeir eru allir yfir mörkum í magni fitu, salts og þrír af fimm eru yfir magni í kolvetni. Auk þessarar fróðlegu skýrslu er í Neytendablaðinu greint frá niður- stöðum skoðanakönnunar sem Neytj^ endasamtökin gerðu nýlega á við-' horfi fólks til auglýsinga í útvarpi og sjónvarpi. Fjallað er um heimilis- fræöslukennlu í skólum og birt nið- urstaða úr notendakönnun á heimil- istækjum. -Pá Samkvæmt skýrslu, sem birt er i Neytendablaðinu, hefur unnum kjötvörum hrakað á undanförnum árum. Verð á jólatijám Vegna mistaka féll niður tafla Hér birtist taflan og ættu þá neyt- sem birtast átti meö verðsaman- endur aö geta séð hvar er ódýrast burði á jólatrjám í DV á þriðjudag. að kaupa jólatré. -Pá Þegar keypt er i stórum sparnaðarpakkningum getur borgað sig að bregða kassanum eða pokanum á vigt þegar heim er komið. Röngvigtá Neytandi hringdi og kvartaði und- an því að hafa keypt kassa af svína- kjöti í Hagkaup frá Höfn á Selfossi. Kassinn átti samkvæmt miða að vera 26 kg á 455 krónur kílóið. Þegar heim var komið var pakkinn vigtaður og reyndist aðeins vega 16 kíló. Sá sem hringdi vissi um annan sem haföi keypt sams konar kassa og sá vóg einungis 14,6 kíló. Guðmundur Viðar Friðriksson, verslunarstjóri í Hagkaup, sagði í samtah við neytendasíðu DV að hér svínakjöti hefðu mistök átt sér staö. Röng vigt hefði verið á kössunum eins og þeir komu frá Höfn á Selfossi. Þetta hefði verið leiðrétt og þeir sem keypt hefðu kassa eins og þá sem um er rætt áttu skýlaust rétt á bótum. Guðmundur sagði að þegar hefðu nokkrir kassar komið til baka. Uppákomur af þessu tagi eru þörf áminning til neytenda um að það getur borgað sig að bregða því sem keypt er á vigtina þegar heim er kom- iö. -Pá Hornskápar og veggskápar. Sófaborð með 4 innskots- .. borðum, Sófasett í úrvali og margt, margt fleira. HÚSGÖGN á 800 m2 sýningarsvæði Sófasett í háum gæðaflokki. Kommóður, video- eða stereoskápar. Þetta er aðeins smáhugmynd um úrval- ið. Það er til mikið, mikið meira. gsiýja JBólsturgGrðin Garðshorni við Fossvogskirkjugarð, simi 16541

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.