Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Qupperneq 31
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988. 31 ÁRÍÐANDI TILKYNNING TIL FYRIRTÆKJA INNAN LANDSSAMBANDS IÐNAÐARMANNA VEGNA VILLANDI DREIFIBRÉFS TOLLSTJÓRANS í REYKJAVÍK Meðdreifibréfi embættistollstjórans í Reykjavík, dags. 30. nóvembersl., er móttak- endum gert viðvart um að frá og með 1. jariúar 1989 verði gengið ríkt eftir því að atvinnuinnflytjendúr hafi gilt verslunarleyfi. Jafnframt er því baett við að sama gildi um framleiðendur iðnvarnings og þess krafist að þeir leysi til sín iðjuleyfi (kallast reyndar iðnaðarleyfi allt frá 1978). Meistarabréf er aftur á móti ekki nefnt í bréfinu. Dreifibréfið mun hafa verið sent öllum fyrirtækjum sem átt hafa viðskipti við emb- ættið á undaförnum árum. Meðal þeirra eru fjölmörg fyrirtæki sem eru aðilar að Landssamþandi iðnaðarmanna. Samkvæmt ákvæðum iðnaðarlaga skuiu löggiltar iðngreinar ávallt reknar undir forstöðu meistara. Því er Ijóst að til þess að mega standa fyrir atvinnurekstri á sviði löggiltra iðngreina þurfa menn einungis að leysa til sín meistarabréf. Meistarabréfið er því nægjanleg heimild til allrar venjulegrar atvinnustarfsemi á sviði viðkomandi iðngreinar, þ.m.t. til innflutnings á efni sem beinlínis er notað við atvinnureksturinn og ekki er keypt til beinnar endursölu. Fyrirtæki á sviði löggiltra iðngreina þurfa því EKKI að leysa til sín verslunar- leyfi þótt þau flytji inn vörur til nota við reksturinn, svo framarlega sem þau stunda ekki beina endursölu á vörunum. Meistarabréfið er fullnægjandi atvinnu- rekstrarleyfi og nægirtil að svara kröfum tollstjóraembættisins í þessu sam- bandi. Iðnaðarleyfi þurfa þau fyrirtæki ein að hafa sem stunda verksmiðjurekst- ur að einhverju leyti en samkvæmt lögum er enginn munur á iðnaðarleyfi og meistarabréfi að því er verslun varöar. Dreifibréf tollstjórans í Reykjavíkertil þessfallið að villa um fyrirmönnum. Hefur Landssamband iðnaðarmanna þegar lýst undrun sinni á þessum vinnubrögóum og bent embættinu á ofangreindan rétt fyrirtækja sinna. Landssamband iðnaðarmanna hvetur aðildarfyrirtæki sín til að gæta réttar síns í þessu sambandi. Eru þeir sem telja sig þess þurfa hvattirtil að snúa sértil skrifstof- unnar að Hallveigarstíg 1 í Reykjavík. Síminn er 91 -621590. LANDSSAMBAND IÐNAÐARMANNA 'texwöwíw flðeins um eina helgi HARItARA vRartland SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS Sf jlfcUUlL . iSilUiUUUUiiMl Exik Nerlöe ARFURINN ARFURINN Erik Nerlöe Hún er ung og fátæk og ferðast til aldraðrar frænku sinnar til að aðstoða hana í veikindum hennar. Alveg síðan hún var barn hafði hana dreymt um að fá einhvern tíma tækifæri til þess að búa á óðalssetri. Þessir draumar hennar höfðu fengið hana til að gleyma dapurlegri og erfiðri bernsku sinni. Nú virtust óskir hennar mjög óvænt vera að rætast — en ungi maðurinn í draumum hennar elskar aðra . . . Else-Marie Nohr QYLLTU SKÓRMIR GYIITU SKORNIR Else-Marie Nohr Móðir hennar var kona, sem var erfið í umgengni, og hugsaði aðeins um sjálfa sig. Og bróðir hennar var eiturlyfjasmyglari, sem eftirlýstur var af lögreglunni. Eitt kvöldið fer hún frá heimili sínu og eftir það fréttist ekkert af henni. Þegar hún sást síðast, var hún klædd hvítum hlíralausum kjól, með gufa slá og var í gylltum skóm. Lögreglan er á þeirri skoðun, að henni hafi verið rænt af samtökunum, sem bróðir hennar er í. < JiMJtilL . hwíÍWltiitlWM ___ Sigge Stark ÁST OG ÁTÖK AST OG ATOK Sigge Stark Þær höfðu farið upp í selkofa, sem var úr alfaraleið uppi í skóginum. Þær voru dálítið óttaslegnar, því að þær höfðu frétt af því, að smyglarahópur héldi til í nágrenninu. Þær voru taugaóstyrkar, og enn meir eftir að hundur þeirra hafði fundið bakpoka falinn bak við stóran stein í skóginum. í bakpokanum var samanvafinn frakki, fjórir elgsfætur og bréfmiði, sem á var skrifað „Miðvikudag kl. 11“ En hvað átti að gerast á miðvikudag klukkan ellefu? ÖRLAGAÞRÆÐIR Barbara Cartland Idona Overton hafði orðið furðu lostin, þegar hún komst að því, að faðir hennar hafði, áður en hann var drepinn í einvígi, tekið þátt í veðmáli. Og það sem hann hafði lagt undir var húseign hans, allt sem í húsinu var — og þar með talin dóttir hans. Þetta hafði hann lagt undir í veðmáli við markgreifann af Wroxham. En vegir örlaganna eru órannsakanlegir, og þegar heitar tilfinningar leysast úr iæðingi milli tveggja persóna, getur hvað sem er gerst — einnig það, sem síst af öllu var hægt að láta sér detta í hug. . . AÐEINS UM EINA HELGI Theresa Charles Morna, eldri systir Margrétar Milford, hafði tekið fyrstu ást Margrétar frá henni og gifst honum. Og síðan hafði Morna sagt við Margréti: „Gleymdu eiginmanni mínum — og komdu ekki nálægt okkur!" Þetta hafði sært Margréti mikið. Nú var Morna sjúk af einhverri dularfullri veiruveiki og gat ekki hugsað um börnin sín þrjú — og það var erfitt fyrir Margréti að neita hinni örvæntingarfullu beiðni um hjálp. Það er aðeins yfir helgina fullvissaði Margrét hinn góða vin sinn, Hinrik, | um. Það getur nú ekki margt gerst á einni helgi. Örlagaþræðir Skuggsja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.