Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Qupperneq 33
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988.
33
_________________________Lífsstfll
f slenska draumaráðningabókin
Hver er ég?
Bókin um stjörnuspeki „Hver er
ég?“ eftir Gunnlaug Guðmundsson
er tvímælaiaust allra besta upp-
fletti- og fræðirit sem til er um
stjörnuspeki á íslensku. Góðu
fræðiefni um stjömuspeki á ís-
lensku hefur verið talsvert ábóta-
vant, sérstaklega með tilliti til auk-
ins áhuga almennings á þessum
vísindum. Leikmenn jafnt sem
lærðir geta haft mikiö gagn og gam-
an af bókinni og er hún hinn eigu-
legasti gripur.
I formála segir Gunnlaugur að
stjörnuspekin eigi erindi til aUra,
og sé hjálpartæki til að skyggnast
inn í sálarlíf okkar. Bók þessi skipt-
ist í nokkra kafla og er í þeim með-
al annars sagt frá sögu stjörnu-
spekinnar, kerfi hennar og kenn-
ingum og útskýrt hvernig reikna
megi út stjörnukort og lesa úr
þeim. Því má segja að þessi bók sé
alhliða kynningar- og kennslubók
í stjörnuspeki, sú fyrsta sinnar teg-
undar á íslensku.
Meginhluti bókarinnar fjallar þó
um stjörnumerkin tólf. Auk þess
er sagt frá plánetum, húsum og
afstöðu, sem teljast auk merkjanna
til aðalþátta stjörnuspekinnar. í lok
bókarinnar eru töflur yfir stöðu
pláneta frá 1910-2001. Með því að
fletta upp á fæðingardegi og ári í
töflunum getum viö séð stöðu Sól-
ar, Tungls, Merkúrs, Venusar og
Mars á þeim degi. Þetta eykur mjög
viö langtímagildi bókarinnar því
þau merki sem þessar plánetur eru
í við fæðingu viðkomandi eru ekki
síður mikilvæg en sólarmerkið,
þrátt fyrir að á síðari tímum hafi
mest áhersla verið lögð á það.
Bókin er skrifuð á mjög aðgengi-
legan hátt. Gunnlaugur notar mik-
ið stikkorð út á spássíunum og
skiptir öllum texta vel niður með
skýrum millifyrirsögnum. Fyrir
fólk sem ekkert hefur kynnt sér
stjörnuspeki áður ætti bókin því
að vera auðveld aflestrar, þrátt fyr-
ir að hún er mjög fræðileg.
-Ade
íslendingar eru þjóða draumspak-
astir (a.m.k. miðað við mannfjölda),
og er það því kærkomið að fá í hend-
ur alíslenska draumaráðningabók.
Formála ritar Kristján frá Djúpa-
læk og drepur hann m.a. á það að
íslendingar hafi alltaf tekið mikið
mark á draumum og hvernig alþýða
manna lét stjórnast af þeim, þeir
voru veðurboðar, viðvörun, hættu-
merki.
„Sjómenn höguðu gjarna róðrum
eftir þeim, bændur fjárgæslu."
íslenska draumaráðningabókin er,
eins og nafnið gefur til kynna, öll hin
þjóðlegasta. Skýringar eru allar mjög
ítarlegar og fylgir oft saga af draumi
sem hefur ræst til enn frekari sönn-
unar á ráðningunni. Þessar reynslu-
sögur gefa bókinni enn meira gildi
bæði til gagns og skemmtunar. Mik-
ill fróðleikur um gildi drauma felst
einmitt í reynslu fólks í gegnum ald-
irnar og er íslenska draumaráðn-
ingabókin merkileg heimild um líf
og draumfarir íslendinga fyrr og síð-
ar.
Áhersla er lögð á gildi nafna í
draumum og er í bókinni nafnaskrá
með skýringum. Einnig eru í bókinni
kaflar um þjóðtrú tengda draumum
og lýst gömlum aðferöum við forspá,
s.s. þá aðferð að spá með völu, og að
spá í eggjahvítu á Jónsmessunótt.
Síöast en ekki síst má nefna upptaln-
ingu á forboðum úr þjóðtrú sem flest-
ir Islendingar þekkja eitthvaö til: „Sá
eða sú sem situr við horn á borði
giftist ekki í sjö ár“.
Höfundur íslensku draumaráðn-
ingabókarinnar er Steinunn Eyjólfs-
dóttir og hefur hún unnið íirnagott
verk. Allur þjóðlegur fróðleikur er
vel þeginn til mótvægis við það engil-
saxneska afþreyingarefni er tröllríð-
ur íslandi. -Ade
Hjátrú og dulspeki í jólabókunum
íslendingar eru hjátrúarfullir, það
er ekkert vafamál. Draugar og álfar
dansa enn í kringum okkur í skamm-
deginu og umhverfið er fullt af fyrir-
boðum. Hjátrú og dulspeki ýmiss
konar setur mark sitt á jólabóka-
flóðiö að þessu sinni og í talsvert
meira mæli en áður.
Draumarnir eru ráðnir fram og til-
baka, rúnir eru lesnar, kíkt í lófa og
afstaða himintungla við fæðingu tek-
in til rækilegrar athugunar. Auðvit-
að eru alltaf hópar efasemdarmanna
sem fussa og sveia yfir allri vitleys-
unni en það kemur ekki í veg fyrir
að æ fleiri grúski í þessum fornu
fræðum sér til gamans og vonandi
einhvers sjálfskilnings, ekki veitir
af á þessum umrótatímum.
-Ade
Bókin um rúnir
Persónuleg
jólagjöf
Tökum tölvumyndir i lit afþér, barninu
þínu, maka eða vrni.
Gleðjiðafa, ömmu, frænku, frænda
með mynd af barninu þinu á dagatal
1989. Komið i Kringluna (i göngugötu
við Byggt og búið). Við myndum og
dagatalíð er tilbuið á ca 3 minútum.
Sendið yósmynd (ekki filmu) úr fjöl-
skyldualbáminu og við sendum daga-
talið ásamt myndinni i póstkröfu strax
daginn eftir. Sendið (Jósmynd tii
Prima, póstverslun, box 63,222
Hafnarfirði, simi 62-35-35.
Kangilqöfjd?
jf ¥ f A * Það teljum við. 4 * *
¥ Enda eingöngu nýtt úrvalskjöt, w 4
taðreykt af reykingameisturum okkar, * t
¥ ¥ ' * Bragðmikið og gott hangikjöt um þessi jól.
¥ * KJÖTIÐNAÐAÞSTÍtO KEA AKUREYPI * 4
Besta
Það er ævaforn iðja fólks að ráða
í véfréttir, rúnir, bein o.s.frv., og nú
er nútíma íslendingum gefinn kostur
á að ráðfæra sig við rúnir eins og
norrænir forfeður okkar gerðu.
í formála þessarar bókar kemur
fram að rúnirnar eru forn véfrétt,
eldri en Nýja testamentið, en hafa
ekki verið í notkun í meira en 300
ár. Einnig telur höfundur að rúnirn-
ar hafi verið síðast í notkun einmitt
hér á íslandi á síðari hluta miðalda,
og gegndu þá svipuðu hlutverki og
Tarot-spilin. Á sínum tíma voru rún-
irnar I Ching víkinganna.
Bókin um rúnir er skrifuð af
bandaríkjamanni, Ralph Blum, sem
greinilega hefur lengi haft áhuga á
norrænni goðafræði og véfréttum.
Bókin skiptist niður í nokkra kafla,
m.a. um sögu rúnanna, hvernig á að
ráðgast við rúnirnar, aðferðum við
að ráða rúnir og túlkun á hverri rún
fyrir sig. Bókinni fylgja 25 rúnastein-
ar og poki til að geyma þá í. Nokkuö
greinargóðar skýringar eru gefnar á
hverri rún fyrir sig, og einnig kennd-
ar nokkrar rúnauppsetningar sem
fólk getur notað.
Bókin um rúnir er öll hin aðgengi-
legasta og eru rúnasteinarnir sjálfir
fallegir og skemmtilegir. Þetta er því
Draumspeki
kærkomin nýjung fyrir áhugafólk
um dulspeki, auk þess sem víkinga-
rúnimar eru véfréttir sem endur-
spegla vestræna menningu. í eftirf-
mála bókarinnar leggur höfundur
áherslu á að rúnirnar leysi ekki
vandamál heldur veki upp ýmsar
myndir og hugsanir sem gefa vís-
bendingu um hvað sé rétt eða viðeig-
andi hverju sinni. Með því að vinna
með véfréttinni á þennan hátt getur
fólk byggt upp sjálfsöryggi og hug-
rekki.
-Ade
Draumar eru leyndardómsfuO og
óræð fyrirbæri. Sumir telja þá
spretta úr undirmeðvitundinni og
endurspegla þannig ómeðvitaðar
langanir og áhyggjur. Einnig eru
draumar lika oft taldir vera fyrirboð-
ar sem hægt sé að ráða í eins og aðra
spádóma, ________________________
í nýútkominni bók, er ber nafnið
Draumspeki, eru gefnar drauma-
ráðningar og leiðbeiningar um lófa-
lestur. í formála segir að drauma-
ráðningarnar í þessari bók séu sóttar
í fomar heimildir, s.s. Cyprianus og
SybiOu og er kerfi þetta byggt á
langri reynslu. Ekki er gefið upp
hver þýddi bókina.
Draumspeki skiptist í tvo hluta,
draumaráðningar, sem taka yfir
meginhluta bókarinnar, og leiðbein-
ingar um lófalestur sem eru aftast á
10 blaðsíðum. Gefnar eru ráðningar
á mjög mörgum hlutum og eru ráðn-
irigarnar alltaf mjög stuttar, yfirleitt
eitt orð. Ekki eru gefnar skýringar á
mannanöfnum enda bókin þýdd.
Leiðbeiningar um lófalestur eru af
fremur skornum skammti en gefa þó
innsýn í þau fornu fræði og eru ágæt-
is bókarauki.
Draumspeki er gott uppflettirit fyr-
ir þá sem vilja vita á skjótan og auö-
veldan hátt hvaða merkingu draum-
ar þeirra hafa en bókin kafar ekki
mjögdjúpt í speki draumanna,. -Ade.