Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
7
Fréttir
HJÁ OHKUR ER I.V(.IV,\ IíOSTVAOIR
VEGM MiKlX\(iAIÍ EÐA ÍSXr\I\(iAIÍ Á RAFGETMOI
35 ára reynsla er þín trygging
m
P&URHE
EINHOLTI 6 - NYTT SÍMANÚMER 618401
Skák á Akureyri:
Suðurbrekkan
sigraði í
hverfakeppni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Skákmenn af Suðurbrekkunni
urðu sigurvegarar í hverfakeppni
Skákfélags Akureyrar sem er nýlok-
ið. Þeir hlutu 16 vinninga, Eyrin-
Innbærinn hlaut 12,5 vinninga,
Norðurbrekkan 10,5 vinninga og
skákmenn úr Glerárhverfi ráku lest-
ina með 9 vinninga.
Jón Björgvinsson sigraði í 15 mín-
útna móti sem haldið var nýlega,
hlaut 6 vinninga. Annar varð kraft-
lyftingamaðurinn Kári Elísson með
5,5 vinninga og þeir Sigurjón Sigur-
bjömsson og Jakob Þór Kristjánsson
fengu fjóran og hálfan vinning.
- segir Jóhannes Lárusson hjá Dýpkunarfélaginu hf.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég vil ekki fullyrða um þetta mál,
en ég dreg mjög í efa að þeir geti klár-
að þetta verk sjálfir,“ segir Jóhannes
Lárusson hjá Dýpkunarfélaginu hf.
um þá ákvöröun hafnarstjórnar á
Akureyri að vinna sjálf við dýpkun
nýrrar flskihafnar sem áformað er
að taka í notkun í haust.
Jóhannes er mjög óánægður með
að verkið skyldi ekki hafa veriö boð-
ið út. Reyndar gerði Dýpkunarfélagið
hf. tilboð í verkið en hafnarstjórn
ákvað að hafna því tilboði og vinna
verkið með eigin tæki.
„Ég fer ekkert ofan af því að ef
þeir geta unnið verkið með þessum
krana þá þarf ekki dýpkunarskip hér
í landinu. Það hefði verið langeðlileg-
ast að þetta verk hefði verið boðið
út, því það eru þrír aðilar hér á landi
sem fást við vinnu af þessu tagi.“
Verkið var aldrei boðið út heldur
hafði Dýpkunarfélagið frumkvæðið
að þvi að fá að gera tilboð í verkið,
að sögn Guömundar Sigurbjömsson-
ar, hafnarstjóra á Akureyri. „Þeir
sögðust geta gert okkur tilboð sem
við gætum ekki hafnað og það tilboð
kom í nóvember. Við svömðum því
enda er það sjálfsögð kurteisi. Ég
skil hins vegar ekki þessi læti í Jó-
hannesi og það má benda á aö ef við
hefðum ætlað að bjóða verkið út þá
eru fleiri fyrirtæki sem geta unnið
þetta verk, t.d. Björgun hf. sem sýndi
þessu máli áhuga.“
Og þið verðið ekki í vandræðum
með að klára þetta verk sjálfir?
„Nei, það verðum við ekki, og við
hefðum aldrei farið út í það að vinna
það sjálfir ef við værum ekki vissir
um að geta kláraö það. Hvað kostn-
aðinn varðar þá vinnum við verkið
með gamalli gröfu sem við eigum
sjálfir og við getum það á mun ódýr-
ari hátt en tilboð Dýpkunarfélagsins
gerði ráð fyrir, þetta tilboð sem ekki
átti að vera hægt að hafna að þeirra
sögn,“ sagði Guðmundur
Unnið með dýpkunarkrananum við Akureyrarhöfn. DV-mynd gk
Hafnarstjóm Akureyrar hyggst dýpka nýja fiskihöfn:
Dreg mjög í efa
að þeir geti
klárað verkið
ARNARogORLYGS
ALLT AÐ
90%
AFSLÁTTUR
á hundruðum bókatitla i takmörkuðu
upplagi
í 14 DAGA FRÁ 21. JAN-4.FEB
Komdu við á bókamarkaðinum í Síðumúla 1 1 og bættu
gullvægum bókum í safnið.
ÖRN OG
ÖRLYGUR
SÍÐUMÚLA 1 1 - SfMI 84866
<
1/1
o
oö