Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1989, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989. Utlönd Ótrúlegur heiðarieiki Norsk kona, sem hafði keypt sér lottómlöa í bankanum sínum, skildi hann eftlr á afgreiðsluboröi þar þegar hún taldi að hún heíði ekki hlotið vinning á hann, er tveiraur milijónum íslenskra króna ríkari vegna heiðarleika annars viöskiptavinar bankans. Dagblaðið Verdens Gang skýröi frá þvi í gær aö heiöarlegi við- skiptavinurinn helöi skilaö mið- anum og bankinn gat fundiö kon- una út frá myndbandi sem falin myndavél í bankanum tók. Nafn- iö á konunni var ekki gefið upp. Ráðamaður segir af sér Fyrrum innanríkisráðherra Austurríkis, sem sagði þvi emb- ætti af sér í janúar vegna ásakana um aðild að tryggingasvindli, sagöi af sér þingmennsku í gær. Karl Blecha sagðist hafa sagt af sér þingmennsku til aö geta varið sig gegn ásökunum um aö hann væri viðriötnn hneyksli sem varö vegna skips sem sökk á Indlandshafi fyrir tólf árum. Umhverfisvemdarmenn á þingi hafa sakaö Blecha um aö hafa hindrað lögreglurannsókn á „Lucona hneykslinu", sem kennt er við flutningaskip sem sprakk í loft upp árið 1977 með þeim af- leiöingum að sex sjómenn biðu bana. Biecha, sem var innanríkisráö- herra í sex ár, lét hætta rannsókn málsins. Eigandi skipsins var vinur hans, sem nú er ákæröur fyrir að hafa reynt aö svlkja stórfé út úr tryggingum með því að segja aö um borö hafi verið úraníum verksmiöja, þegar eini farmurinn var brotajám. HoHendingar nelta smjörsvindií Hollenska ríkisstjómin hefur neitað ásökunum þingmanns á Evrópuþinginu um að hún hafi gert samsæri með mjólkurfram- leiöendum um aö ná sjötíu mill- jöröum íslenskra króna út úr Evrópubandalaginu (EB) með smjörsvindli. HoUenskur þingmaöur á Evr- ópuþinginu í Strassborg sakaöi á fímmtudag hollenska mjólkur- framieiðendur um aö hafa reynt aö svindla á EB um ofengreinda upphæð með því að fara fram á niðurgreiöslur á smjöri, sem þeir áttu ekki rétt á á árunum 1982-87. Hann sagði aö hollenska land- búnaðarráðuneytið heföi vitaö af þessu lögbroti, sem framleiðend- ur í Vestur-Þýskalandi, Frakk- landi og Beigíu heföu síðan tekið upp. Talsmaður landbúnaöarráöu- neytislns sagöi að stjóravöld hefðu ekkert vitað af svhodli sem þessu. Khomeiní fer í mefoyroamai Khomeini erkikierkur hefur höföaö mál á hendur júgóslavn- esku dagblaöi vegna gagnrýni blaðsins á morðhótun hans gegn Salman Rushdie, höfundi Söngva Satans, að því er ritstjóri blaösins skýrði frá í gær. Blaðið var eina blaöiö í Júgó- slavíu sem birti kafla úr bókinni. Fyrstu kaflamir birtust þegar Ali Khamenei, forseti írans, var í heimsókn í landinu. Pravda viduricennir styik andstædinga Pravda, málgagn sovéska Kommúnistaflokksins, viður- kenndi í gær aö stjóraarand- stöðuhópur, sem nefnist Lýðræö- isbandalagið, hefði náð töiuverðu fylgi í Leningrad, annarri stærstu borg Sovétríkjanna. Pravda réðst harkalega á forystumenn hópsins og kallaöi þá valdasjúka öfga- menn og fyrrum glæpamenn sem vildu koma Kommúnistaflokkn- Umfrá. Reutor Samkomulag um bandarísku flárlögln: Engir nýir skatt- ar á næsta ári - fjárlagahalli stórminnkar George Bush Bandaríkjaforseti til- kynnti í gær aö hann hefði náð sam- komuiagi við þingið um að ná fjár- lagahalla á næsta ári niður fyrir 100 milljarða dollara markið. „Við höfum náð samkomulagi um fjárlagafrumvarp. stutt af báðum flokkum, fyrir árið 1990,“ sagði Bush, þegar hann tilkynnti um samkomu- lagið sem lækkar fjárlagahallann niður í 99,4 milljarða dollara. Sérfræðingar ríkisstjórnarinnar búast við að hallinn aukist á þessu ári upp í 163,3 milljarða dollara úr 155,1 milijarði á síðasta ári. Sam- kvæmt lögum má hallinn á næsta ári ekki verða meiri en 100 milljarðar dollara. Bush og Jim Wright, forseti full- trúadeildar Bandaríkjaþings, uröu sammála um að samningurinn, sem tilkynnt var um í gær, væri ekki endanleg lausn til minnkunar á fjár- lagahallanum á næsta ári. Bush kallaði samninginn, sem náö- ist eftir tveggja mánaða samningaþóf milli stjórnarinnar og þingsins, sem demókratar stjórna, „fyrsta raun- hæfa skrefið" sem sýndi samvinnu flokkanna. Wright sagði að fjárlagafrumvarp- ið sæi ekki fyrir nægum peningum til að mæta öllum félagslegum út- gjöldum sem nauðsynleg væru, svo sem í húsnæðismál. „Þetta er ekki stórfenglegt sam- komulag ... þetta er sennilega eins gott samkomulag og hægt er að ná,“ sagði Wright. Leiðtogi demókrata í öldungadeild- inni, George Mitcheil frá Maine, var ekki eins vinalegur í máh sínu. Hann sagöi að það eina sem væri merkilegt við þetta samkomulag væri tilvera þess, en bætti við að það væri enginn smáárangur. Með þessu samkomulagi tekst Bush að standa við kosningaloforð sitt um að setja enga nýja skatta á, en framlög til vamarmála minnka um 1,4 milljarða frá því sem hann hafði óskað efdr. Reuter Með samkomulagi sinu viö þingið um fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár tókst Bush að standa við kosningaloforö sitt um að setja ekki á nýja skatta. Flestir höfðu talið aö þaö yrði eitt fyrsta kosningaloforðiö sem hann sviki. Mynd Lurie Pamella ætlar Pamella Bordes, fyrrum fegurðar- drottning Indlands, sem er sögð aðal- drifíjöðrin í kynlífshneyksli í breska þinginu, hefur snúið aftur til Bret- lands, tilbúin að segja sögu sína. Ætlar hún að leysa frá skjóðunni við yfirvöld og einnig segja lesendum slúðurblaðs frá lifsreynslu sinni. „Núna er ég tilbúin að segja frá því sem ég veit. Ég veit aö ég hef verið þögul of lengi,“ sagöi Bordes, sem er Pamella Bordes er hrffandi stúika sem háttsettir menn i breska stjórn- kerfinu og fölmiölaheiminum féllu fyrir. Hún er jafnvel talin hafa átt vingott viö ráðherra f bresku stjórn- inni. að segja allt tuttugu og sjö ára, í samtali við dag- blaðið Evening Standard. Hún er í felum einhvers staðar í suðurhluta Englands. „Eftir mikla sjálfsskoðun er ég til- búin að gefa yfirvöldum allar upplýs- ingar sem ég hef um öryggismál Bretlands og alþjóðaöryggismál" sagöi hún. Frá því að hún komst fyrst á forsíð- ur dagblaöa í Bretlandi fyrir mánuði hefur komist upp um sambönd henn- ar við tvo breska ritstjóra, þingmenn og háttsetta menn í líbýsku leyni- þjónustunni. Talin hefur verið full ástæða til að rannsaka hugsanlegan brest í öryggismálum landsins vegna þessara sambanda hennar. Talsmenn konungsfjölskyldunnar sáu meira aö segja ástæðu til gefa út yfirlýsingu þar sem skýrt var frá því að Mark Phillips, eiginmaður Ónnu prinsessu, hefði hitt Pamellu en undir fuilkomlega eðlilegum kringumstæðum. Síðast hafði frést af Pamellu á sjúkrahúsi í Hong Kong þar sem hún var undir læknishendi vegna mótor- hjólaslyss sem hún lenti í á Bali. Pamella hefur verið sökuð um þaö í breskum fjölmiðlum að vera „fín“ vændiskona sem tekur flmmtíu til eitt hundraö þúsund krónur fyrir kvöldið. Reuter Vorið komið í austri Það er komlð vor i sovéskum stjómmálum. Eltt nýlegasta dæmið um það er að stjómvöld þar hafa leyft NaUyu Negodu, rússneskri ynglsmær, að sitja fyrir á myndum hjá hinu vlrta og viðfræga tímariti Playboy. i nýj- asta hefti timarHslns eru tiu blað- siður helgaðar „Glasnost stúlk- unni“. Simamynd Router Charlie Chapiin, sem lést árið 1977, hefði orðið eitt hundraö ára gamall á morgun. Hans verður minnst um allan heim á morgun sem mannsins sem glæddi lif svo margra gleði og ánægju. I Hollywood verður galadans- leikur. í Japan veröur hans minnst með tónlistardagskrá og í Sviss verður heilt torg tileinkað honum. Ferill Chaplins í kvikmyndum hófet árið 1914 er hann lék í þöglu myndinni Making a Living þar sem hann lék svikara sem þóttist vera hefðarmaður. Honum leið illa í hlutverkinu svo að hann leitaöi í búningasafhi kvik- myndaversins þar til hann kom út fullskapaður sem flækingur- inn sem átti eftir aö vera einkenn- ismerki hans um ókomin ár. Ein eftirminnilegasta mynd Chaplins var Einræðisherrann þar sem hann gerði stólpagrín aö aumkunarverðum einræðisherra sem augljóslega var enginn annar en jafnaldri leikarans að nafiú Adolf Hitler. Hitler hefði haidið upp á aldarafinæli sitt næstkom- andi fimmtudag, sumardaginn fyrsta. R«uter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 13-15 Vb.Ab,- Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 11-17 Vb 6mán. uppsögn 11-19 V b 12 mán. uppsögn 11-14,5 Ab 18mán. uppsögn 26 Ib Tékkareikningar, alm. 2-8 Vb Sértékkareikningar 3-17 Vb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb innlán meðsérkjörum 24 Bb.Vb,- Ab Innlán gengistryggö Bandaríkjadal ir 8,5-9 Ib.Vb Sterlingspund 11,5-12 Sb.Ab Vestur-þýsk mörk 4,75-5,5 Sb.Ab Danskar krónur 6.75-7.25 Bb.Sp,- Ib lægst ÚTLÁNSVEXTIR (%) Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 24.5-27 Úb Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgongi Almennskuldabréf 24-29,5 Lb Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 27-31 Úb Utlán verðtryggð . Skuldabréf 7.25-8.5 Utlántilframleiðslu Isl. krónur 20-29.5 Úb SDR 10 Allir Bandaríkjadalir 11,75 Allir Sterlingspund 14,5 Allir Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 33,6 MEÐALVEXTIR Óverötr. apríl 89 20,9 Verðtr. apríl 89 8.1 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala april 2394 stig Byggingavisitala mars 435stig Byggingavisitala mars 136,1 stig Húsaleiguvísitala 1,25% hækkun 1. april VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða Einingabréf 1 3,656 Einingabréf 2 2,046 Einingabréf 3 2,389 Skammtímabréf 1,264 Lífeyrisbréf 1,838 Gengisbréf 1.667 Kjarabréf 3.684 Markbréf 1,955 Tekjubréf 1.627 Skyndibréf 1.123 Fjölþjóöabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 1,779 Sjóösbréf 2 1.458 Sjóðsbréf 3 1,259 Sjóösbréf 4 1,044 Vaxtasjóösbréf 1,2484 HLUTABRÉF Söluverö aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 138 kr. Eimskip 400 kr. Flugleiöir 292 kr. Hampiöjan 157 kr. Hlutabréfasjóður 153 kr. lönaöarbankinn 179 kr. Skagstrendingur hf. 226 kr. Útvegsbankinn hf. 137 kr. Verslunarbankinn 152 kr. Tollvörugeymslan hf. 132 kr. (1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriöja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýöubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lönaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nónari upplýsingar um penlngamarkaö- inn blrtast i DV á flmmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.