Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1989. 13 Fréttir Sauðárkrókur: Betra útlit í húsbyggingum tæknlfræðmgur. einnig í Hlíðarhverfi svðra. Hlvnur areöhi. nr. 2-4. vnstanvprftn vift Hncninnm hooar Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki: „Mér sýnist að 16 íbúðir verði fok- heldar í ár. Þetta er heldur betra út- lit með húsbyggingar í bænum núna en verið hefur undanfarin ár. Það er eins og þetta sé heldur á uppleið,“ sagi Hallgrímur Ingólfsson bæjar- tæknifræðingur. Að sögn Hallgríms er fyrir utan þessar 16 íbúðir verið að vinna á vegum verkamannabústaða í fjórum íbúðum sem urðu fokheldar í fyrra og koma til afhendingar nú í haust. Af íbúðunum 16 eru átta í einbýhs- húsum, mestmegnis í Túnahverfi og einnig í Hlíðarhverfi syðra. Hlynur hf ætlar aö byggja tvær raðhúsaíbúð- ir í Grenihlíðinni og búist er við að seinni hluta sumars verði hafin bygging sex kaupleiguíbúða í gamla bænum. Verða það 2ja hæða hús með íbúðum á báðum hæðum. Fjórar íbúðanna verða byggðar upp í Skóg- argötu, nr. 2-4, að vestanverðu við norðurenda götunnar. Tvær íbúðir verða niðri við Freyjugötu á lóðinni þar sem Báran stóð áður. Byggingaverktakar virðast samt sammála um að ekki verði um auð- ugan garð að greskja í nýbyggingum í sumar. Sem dæmi má nefna að á dögunum, þegar hitaveitan bauð út smíði á fimm brunnum, sem ekki hefur þótt eftirsóknarvert verkefni til þessa, buðu fimm aðilar í. Húsavlk: Bæjarstjórn vill for- könnun á varaflugvelli Jóhaimes Siguijónsson, DV, Húsavík: Hugsanleg forkönnun vegna vara- flugvallar í Aðaldal hefur verið mjög til umræðu í Þingeyjarsýslum í vet- ur. M.a. fór fram undirskriftasöfnun til stuðnings varaflugvallargerð. Bæjaryfirvöld á Húsavík hafa verið spör á yfirlýsingar vegna þessa máls og jafnan talað um að fyllri upplýs- inga um máhð væri þörf áður en hægt væri að gefa opinberar yfirlýs- ingar um það. En á síðasta fundi bæjarstjórnar upplýsti Bjami Þór Einarsson bæjar- stjóri aö meirihluti bæjarstjómar væri einhuga um að mæla með því að slík forkönnun færi fram. Meiri- hluti bæjarstjómar er skipaður fuh- trúum Alþýðuflokks, Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar. Fjölbrautaskólinn Selfossi: 43 nemendur brautskráðir Regína Thoraiensen, DV, SeKossi: Að sögn Örlygs Karlssonar, að- stoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, vom 43 nem- endur brautskráðir 17. júní frá skól- anum af ýmsum brautum, þar af átta stúdentar, nokkrir úr öldungadeild. Fjölmennasti hópurinn útskrifað- ist af iðnbraut húsasmíða, eða 11. Níu nemendur ahs á grunndeildum málm-, raf- og tréiðna. Fjórir luku burtfararprófi af iðnbraut netagerð- ar og fjórir almennu verslunarprófi. Þrír minna skipstjóraprófi. 25 nemendur frestuðu útskrift á stúdentsprófi fram í september og munu þá brautskrást ásámt nokkr- um nemendum af öðrum brautum. Þór Vigfússon skólameistari af- henti prófskírteinin en það var eins og við skólashtin vantaði sanna gleði, kennaraverkfalhð sá um það. Það er mikih sársauki sem einkennir marga unghnga og foreldra í vor. Það sást greinilega þegar horft var á andht fólks við skólashtin. Akureyri: Bílasalan Os beintengd við bifreiðaskrá Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyii: Bílasalan Ós á Akureyri hefur verið tengd við bifreiðaskrá ríkisins og er Ós eina bhasalan á Akureyri sem þannig er tengd. Markmið bhasölunnar með þessari tengingu við bifreiðaskrá er fyrst og fremst að koma í veg fyrir ýmis óþægindi vegna veðbanda og gjalda sem hvílt geta á bifreiðum. Með beinu sambandi við bifreiðaskrá er fljótlegt að komast að því. Þessar og ýmsar fleiri upplýsingar getur bfla- salan fengið ahan sólarhringinn aha daga vikunnar. Ámeshreppur: Þrjú börn fermd Regína Thoraiensen, DV, Gjögri: Búið er að opna veginn th Hólma- víkur og fólk farið að koma í Árnes- hrepp á smábílum og Hótel Djúpavík er opið. Sauðburður gekk vel og lamba- dauði htill sem enginn. Margt tví- lembt að venju. Ekki er búið að sleppa fé ennþá, úthagar eru að koma undan snjónum. Fermd voru þrjú börn í Árnes- kirkju 18. júní og er það óvenjumargt á þessum afskekkta stað þar sem fólkinu fækkar stöðugt. En römm er tauginn, margir burtfluttir Árnes- hreppsbúar að heimsækja uppeldis- stöðvar sínar. Það hefur verið venja síðustu 30 árin að unga fólkið hefur farið fljótlega eftir fermingu í at- vinnu og nám og ekki komið aftur til búsetu. JAFNAR GREIÐSLUR LÉTTA PÉR RÓÐURIMV Oft hefur verið óþægilegt að greiða hærri raf- magnsreikninga á veturna en öðrum árstímum, einmitt þegar fasteignagjöldin, tryggingaiðgjöldin og bifreiðagjöldin dembast inn um bréfalúguna ásamt öllum hinum reikningunum. Rafmagnsveitur ríkisins vilja nú sem áður létta þér greiðslubyrðina. Héðan í frá verður aðeins lesið af mælum einu sinni á ári. Á öðrum tímum verður orkunotkunin áætluð. Greiðslum verður því að mestu leyti jafnað á þá reikninga sem þú færð senda annan hvern mánuð. Þessi nýbreytni er liður í þeirri stefnu okkar að veita örugga og hagkvæma þjónustu. Við höfum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.