Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Side 28
28
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1989.
t x) u ; ? > aM
Iþróttir
Nú fara allir á
fjórðungsmót
á Iðavöllum
- sex félög standa að mótinu sem
fram fer dagana 29. júní - 2. júlí
Fjórðungsmót austfírskra hestamanna verður
haldið á Iðavöllum við Egilsstaði dagana 29.
júní til 2. júh næstkomandi. Austfírðingar
halda sín íjórðungsmót til skiptis á Hornafirði
og Egilsstöðum. Það eru sex hestamannafélög sem
standa að mótinu en Freyfaxi hefur séð um undirbún-
ing að þessu sinni enda verður mótið haldið á umráða-
svæði félagsins. í félaginu eru um það bil 200 manns
og eru þeir dreifðir um allt Fljótsdalshérað og nær-
hggjandi firði.
r V,,. .. .. ..... ....
2 m.V. mMÍlri'. ...
Mótssvæðið á Iðavöllum er tilbúið fyrir fjórðungsmót.
DV-mynd Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir
Austfirðingar búast við töluverð-
um manníjölda á mótið og hafa
hagað undirbúningi í samræmi við
það. Undirbúningur hefur reyndar
staöið yfir í langan tíma. Mikil
vinna hefur verið lögð í aðstöðu-
og vaUarbætur. Byggð hafa verið
hús fyrir snyrtiaðstöðu og svo
stjómstöð. Skipt hefur verið um
jarðveg í kappreiðabrautinm og
svæðið rykbundið. Einnig hafa
tjaldstæði verið endurbætt og gróð-
ursett tré og limgerði þar í kring.
Mikil áhersla hefur verið lögð á að
gera hreinlætisaðstöðu sem besta
og eins verður mikið lagt upp úr
því að veitingaaðstaða sé næg.
Stutt er í aðra þjónustu því Egils-
staðir eru um það bil 12 kílómetra
frá Iðavöllum.
Færeyingar skoða
Austfjarðahross
Austfirðingar hafa frétt af hesta-
mönnum með ferðahross frá Akur-
eyri, Homafirði, Vík, Vopnafirði
og Þistilfirði. Einnig munu Færey-
ingar mæta á staðinn að skoða
austfirsk hross.
Sýninga- og keppnishross verða
rétt rúmlega þijú hundmð. í A-
fiokki gæðinga verða leiddir fram
23 fákar en 27 í B-flokki. 14 ungling-
ar koma með gæðinga sína og 18
böm. Rúmlega þrjátíu úrvals tölt-
arar keppa og era meðal þeirra
Snjall frá Gerðum, Muni frá Ketils-
stöðum, Tryggur frá Vallanesi og
ef til vill Kjami frá Egilsstöðum.
Þeir Snjall og Kjami hafa orðið ís-
landsmeistarar í tölti.
Kynbótahross verða um þrjátíu
samtals. Þrjár hryssur verða af-
kvæmadæmdar, þær Bára og Ör
frá Ketilsstöðum og Ljónslöpp frá
Skorrastað. Auk þess verða rúm-
lega tuttugu hryssur sýndar sem
einstaklingar. Flosi frá Brunnum
verður sýndur með afkvæmum en
einstakir stóðhestar eru tveir,
Bjártmr frá Egilsstöðum og Dofri
frá Höfn, báöir fiögurra vetra. Sýnd
verða hross frá tveimur rækfim-
arbúum, Jaðri í Suðursveit og Ket-
ilstöðum á Völlum.
Dagskrá verður svipuð og undan-
farin ár. Fimmtudaginn 29. júní
hefst mótið klukkan 10.00 með
dómum á kynbótahryssum. Klukk-
an 13.00 hefiast dómar á B-flokki
gæðinga og klukkan 16.00 dómar á
gæðingum unglinga, 12 ára og
yngri. Klukkan 18.00 hefiast dómar
á hryssum með afkvæmi og klukk-
an 20.00 veröur töltkeppni.
Föstudaginn 30. júní hefst dag-
skráin klukkan 9.00 með dómum á
stóðhestum en klukkan 10.00 hefi-
ast dómar á gæðingum unglinga í
eldri flokki. Gæðingar í A-flokki
verða sýndir og dæmdir frá klukk-
an 13.00 og klukkan 16.00 hefiast
kappreiðar. Um kvöldið verður
sölusýning og dansleikur.
Laugardaginn 1. júlí hefst dag-
skrá klukkan 9.30 með kappreiðum
en klukkan 12.00 verður mótið sett.
Þann dag verða gæðingar í A- og
B-flokki, ásamt gæðingum bama
og unglinga, kynntir. Einnig verða
kynbótahross og ræktimarhópar
sýnd og úrslit í töltkeppninni.
Mótinu lýkur sunnudaginn 2.
júlí. Dagskráin hefst þann daginn
með úrslitum í 150 og 250 metra
skeiði en einnig verða kynbóta-
hross sýnd og dómum lýst. Úrslit
verða í öllum flokkum í gæðinga-
keppni og loks verður mótinu slitið
klukkan 18.30.
-EJ
„Kort fyrir hestamenn
ná yfir altt ísiand“
Eiríkur Jónsson
skrifar um
hestamennsku
Margir hestamenn
rekast á hindranir er
þeir ferðast um landið
á fákum sínum. Þessar
hindranir geta verið smáar sem
stórar en eiga það sameiginlegt
að tefia ferðalanginn og lengja
ferðina.
Ólafur B. Schram er einn
þeirra hestamanna sem hefur
ferðast um hálendið og óbyggðir
íslands á sumrin. Hann hefur
jafnan reynt að skipuleggja
ferðalög sín til þess að gera ferð-
ina auðveldari og ánægjulegri.
Þegar hann hafði farið um flesta
þá staði sem vinsælir eru hjá
hestamönnum leitaði hann á
aðrar slóðir en komst þá að því
að upplýsingar voru torfengnar.
Eins sá hann að margar þeirra
upplýsinga, sem voru fáanlegar,
voru ekki lengur í gildi vegna
breyttra aðstæðna.
„Eg ákvað að skella mér út í
að safha saman og skrá upplýs-
ingar um reiðleiðir á íslandi og
gefa þær út,“ segir Ólafur.
„Ég hafði samband við Kára
Amórsson, formann Landssam-
bands hestamannafélaga, og
honum, og ekki síður Hjalta
Pálssyni framkvæmdastjóra LH,
leist vel á hugmyndina og þeir
buðu fram alla aðstoð sína. Það
hefur tekið töluverðan tíma að
safna upplýsingmn. Það eru
vissulega til skriflegar upplýs-
ingar um flestar reiðleiðir að
fomu og nýju en ekki á einum
stað,“ segir Ólafur.
„Er að safna áskrifendum
að kortunum"
„Það sem ég ætla að gera er að
gefa út yfirprentað kort með upp-
lýsingum um reiðleiðir á íslandi.
Með hverju korti verður lausblaða-
handbók af stærðinni A5 þannig
að auðvelt verður að bæta inn í
hana blöðum eftir því sem við á
vegna nýrrar útgáfu, viðbóta og
leiðréttinga. í möppunni verður:
1. Upptalning á náttstöðum, kofum
eða sæluhúsum.
2. Upptalning á ferðaþjónustubæj-
um, þjónustu þeirra og aðstöðu fyr-
ir hestamenn.
3. Lýsing á reiöleiðum. Vísað er til
skriflegra heimilda sem era þekkt-
ar.
Kortin veröa níu og verða tvö
þeirra gefin út í júlíbyijun. Þau
munu ná yfir Mið-ísland og Vestur-
land. Hin kortin verða gefin út á
næstu árum.
Nú er ég að safna áskrifendum
að þessari útgáfu. Allir kaupendur
verða skráðir þannig að hægt verð-
ur að senda þeim nýjar útgáfur,
viðbætur og leiðréttingar. Það er
enn hægt að gerast áskrifandi að
takmörkuðu upplagi 1. útgáfu og
er heimilisfangið Pósthólf 894,101
Reykjavík," segir Ólafur
„Óbyggðir ófærar
eins og er“
„Það er sennilega kaldhæðnislegt
að kortin séu að koma út núna því
ekki hefur árað jafnilla í langan
tíma. Óbyggðimar era svo til ófær-
ar núna og erfitt að sjá fyrir hvort
eða hvenær hægt verður aö fara á
fiöll á hestum. Enda hefur Náttúra-
vemdarráð beðið hestamenn að
hlífa miðhálendinu í sumar. Ég tel
aö fólk ætti ekki að ana út í ferða-
lög þó að kortin séu að koma út.
Þau era frekar framtíðareign. Von-
andi er þó hægt að nota kortið, sem
nær yfir Vesturland, í sumar, á ferð
um Borgarfjörð og Snæfellsnes.
Við hestamenn verðum að gera
okkur grein fyrir því að landið okk-
ar er framtíðarútreiðarsvæði. Við
verðum aö umgangast viðkvæman
hálendisgróður af tillitssemi ef við
ætlum okkur að geta riðið frjálst
og óhindrað um hálendið. Það er á
ábyrgð okkar hestamanna að fara
að tilmælum Náttúravemdarráðs
og hlífa landinu við ágangi í erfiðu
árferði eins og nú er.
Við ætlumst til þess að landeig-
endur og aðrif sem láta sig náttúra-
vernd varða sýni okkur skilning
þegar við hyggjum á ferðalög og
því er ekki nema eðilegt að við sýn-
um ábyrgð þegar ástandið er eins
og það er nú.
En þeim, sem geta ekki staðist
freistinguna að fara á fiöll bendi
ég á að hafa með sér fóður og sefia
upp aðhöld fyrir hross á ógrónu
landi svo gróður verði ekki fyrir
skemnmdum," segir Ólafur B.
Schram að lokum.
-EJ
1 Áð skammt frá Skjaldbreiði í einum af leiðangri Ólafs B. Schram.
DV-mynd Ólafur B. Schram
Kort af miðhálendinu með reiðleiðum sem fjallað er um í útgáfu Olafs B. Schram.