Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Qupperneq 30
30
MÍANUDAGUR 26* ’jtlNÍ 1989.
íþróttir
Frétta-
stúfar
SteveJones
sigursæll
Steve Jones sigraöi á
opna kanadíska
meistaramótinu í
golfi sem lauk í gær.
Jones spilaöi á 17 höggum und-
ír pari og tryggöi sér þar meö
rúmlega 160 þúsund doliara
verölaun. í ööru sæti varö
Clark Burroughs, sem haföi
forystu lengi vel á mótinu.
Mark Calcavecchia og Mike
Hulbert komu næstir á eftir í
3.-4. sæti á 15 undir pari. Jack
Nicklaus og Nick Faido náöu
sér ekki nógu vel á strik og
urðu neöar í röðinni. Þess má
geta aö Steve Jones er nú í öðru
sæti yflr verðlaunahæstu at-
vinnugolfara ársins. Aðeins
Tom Kite hefur unniö til hærri
veröiaima en Jones í ár.
Woosnam vann
á Irlandi
lan Woosnam tryggði
sér sigur á opna írska
golfmótinu eftir
hörkuspennandi
keppni viö heimamanninn
Phihp Walton. Kapparair lentu
í aukakeppni eftir að hafa end-
aö jafnir með 10 högg undir
pari. Eftir mikinn taugatitring
og spennu náði Woosnam aö
halda haus og sigra. „Ég var
oröinn ansi taugaóstyrkur 1
lokin,“ sagöi Woosnam, ánægö-
ur eftir sigurinn. Nokkuð mik-
ill vindur. setti svip sinn á
keppnina sem samt sem áöur
var í alla staöi mjög skemmti-
leg og spennandi.
Túnis vannZaire
Túnis sigraöi Zaire,
1-0, í D-Afrfkuriðli
heimsmeistara-
keppnirmar í knatt-
spyrnu í gær. Leikurinn fór
fram í Túnisborg og skoraði
Maaloul eina mark leiksins úr
vítaspyrnu í síöari hálfleik.
Zambía er efst í riölinum en
Túnisbúar koma næstir á eftir.
Egyptar töpuöu óvænt
í B-riöli HM-keppn-
innar í Aftíku sigraöi
/7* Líbería landslið
..... Egypta, 1-0. Sigur Li-
beríumanna kom nokkuð á
óvart þar sem Egyptar eru tald-
ir með sterkasta Uðiö í riölin-
um. James Debah, sem reynt
hefúr fyrir sér sem atvinnu-
maður í Englandi, skoraði sig-
urmark heimamanna.
Elnar vann
Cristfan Staub
Einar Sigurgeirsson,
ÍK, varö sigurvegari
í öðru punktamóti
Tennissambands ís-
Jands sem fram fór á Víking-
svelli um helgina. Einar keppti
í fyrsta skipti hérlendis eftir
langa dvöl í Ástralíu og Banda-
ríkjpnum. Hann sigraöi Crist-
ian Staub í úrslitaleik, 6-0 og
6-2.
Napólí í ööru sæti
\lapólí hafnaði í öðru
sbeti í ítölsku 1. deild-
inni eftir 1-0 sigur á
botnliðinu Como í
gær. Alexandro Renica skoraöi
eina mark Napólí. Inter
Mílanó, sem þegar er búið að
tryggja sér titilinn, sigraði Fi-
orentina, 2-0. Evrópumeistarar
AC Mílanó uröu að láta sér
lynda 3. sætiö i l. deildinni.
Þeir enduðu keppnistímabiliö
þó með glans og unnu stórsigur
á Bologna, 4-1. AC Milanó
hafnaöi aðeins einu stigi á eftir
Napólí. Marco Van Basten
skoraöi tvö mörk fyrir Evrópu-
meistarana gegn Bologna. Tór-
íno féll niöur í 2. deild í fyrsta
sinn i 30 ár.
• Árni Kópsson sigraöi með tiiþrifum og misbauð raunveruleikaskyni áhorfenda eða var það mengun frá hláturgasinu.
Fimm jeppar ultu
- blkarkeppni Bllabúöar Benna háö í Jósepsdal
Torfærumenn fengu útrás fyrir fiör-
inginn um helgina. Þó ekki innan-
bæjar eða með lögregluna og land-
vemd á hælunum, heldur í malamámi
Jósepsdals á skipulögðu svæði undir
sterkri handleiöslu Jeppaklúbbs
Reykjavíkur í bikarmóti Bílabúðar
Benna. Erfiðar þrautir vom lagðar
fyrir þá aldrifskónga sem háðu harða
og spennandi keppni sem fjölmargir
áhorfendur kunnu vel aö meta.
Götubílaflokkur
í flokki "venjulegra" jeppa sem all-
ir vom af Willis gerð bar Stefán
Gunnarsson höfuð og herðar yfir
keppinautana, sigraðist á hverri
þraut og hlaut 2.080 stig. Annar varð
Þórður Gunnarsson með 1.775 stig
og þriðji Trausti Sigvaldason sem
hlaut 1.695 stig fyrir sín tilþrif frá
dómurunum þrem.
Sérbúinn flokkur
Fyrir 10 ámm gátu úrslit í torfæm-
keppni ráðist af því hversu snöggur
keppandi var að drekka appelssín,
skrifa nafnið sitt, eða negla nagla í
spítu og þriggja tonna diesel trukkur
sigraði eftir að ílestir brutu framdrif-
ið á moldarabaröi. Nú er öldin önn-
ur. Ljósmyndarar veröa að beina
linsum sínum til himna þegar hlát-
urgasskrímslin virðast ætla á braut
umhverfis jörðu eftir að hafa sigrast
á ómanngengu þverhnýpi.
Ámi Kópsson heitir maður og hef-
ur smíðað sér farartæki undir nafn-
inu Heimasætan, byggt á Bronco
grind og hefur sérstaka eiginleika til
torfæruaksturs. Fyrirbærið minnir
einna helst á formúla eitt kapakst-
ursbíl og hagar sér sen slíkur á jafn-
sléttu, líkt og fjallageit í hliðarhalla
og þegar íjallsbrúnin endar eins og
vel lukkað geimskot frá Góðrarvon-
arhöfða.
Hann sigraðist á öllum þrautum
utan einni og vann keppnina vand-
ræðalaust með 2.160 stig enda þó
úrslit réöust ekki fyrr en í tímaþraut
sem var síðust. Fimm af keppinaut-
um hans höföu þá hrapað veltandi
niður hlíðamar en gátu samt allir
haldið áfram eftir lagfæringar.
Jón S. Halldórsson alhliða aksturs-
íþróttamaður háði hér frumraun
sína í torfæmastri á sérbúnum Je-
epster. Eftir mikla eldskím í mis-
lukkuðu fjallaklifri náði hann sér
bærilega á strik og átti fræðilega
möguleika á fyrsta sæti þegar kom
aö tímaþrautinni. Eftir allt sitt skó-
slit á bensínfiölinni áttu menn von á
að Jón nyti reynslunnar, en áhang-
endum sínum til sárra vonbrigða var
hann algjörlega taktlaus og þarf að
æfa sig fyrir næstu keppni. Hann
naut þess að Gunnar Guðmundsson
(4.sæti) náði engu stigi úr tímabraut-
inni og endaði í 2. sæti með 1.980 stig.
Haraldur Ásgeirsson íslandsmeist-
ari í torfæru mætti á Jeepster. Hann
hóf keppnina með hangandi hendi
en eftir mikið brölt á dekkjaþraut
virtist hann vakna til meðvitundar
og reyndi a.m.k. við þær þrautir sem
eftir voru. Þriðja sætið féll í hans
hlut, 1.925 stig.
Þrátt fyrir að appelsíndrykkja sé
aflögð keppnisgrein í torfæraakstri
mun sigurvegarinn geta veitt sér
slíkan munað því verölaunafé gott
sæti gefur. -ÁS/BG
• Sovétmenn sigruöu ítali og hlutu bronsverðlaun fyrir vikið. Hér eru sov-
ésku leikmennirnir að skora körfu í leiknum.
HM-keppnin í körfuknattleik:
Júgóslavar
heimsmeistarar
- eftir stóran sigur á Grikkjum í úrslitaleik
Júgóslavar unnu auðveldan sigur
á Grikkjum, 98-77, í úrslitaleik Evr-
ópukeppninnar í körfuknattleik sem
fram fór í Júgóslavíu. Júgóslavar
voru álitnir mjög sigurstranglegir
fyrirfram og það kom á daginn að
Grikkir höfðu ekkert í þá að gera.
Júgóslavar vom búnir að ná.10
stiga forystu strax eftir 3 mínútna
leik og staðan í hálfleik var síðan
54-34 fyrir Júgóslava. Síöari hálfleik-
ur var einungis formsatriði og í lokin
skildi 21 stig liðin aö.
„Það er ekki erfitt aö vera þjálfari
með svona frábært lið í höndunum.
Þetta era geysilega efnilegir leik-
menn sem em uppistaðan hjá okkur
og það em miklar vonir bundnar viö
liðið fyrir næstkomandi heimsmeist-
arakeppni í Argentínu og ólympíu-
leikana í Barcelona," sagði Ivkovic,
þjálfari júgóslavnesku Evrópumeist-
aranna, eftir úrslitaleikinn.
Sovétmenn höfnuðu í 3. sæti á
mótinu en þeir unnu ítali, 104-76.
Flestir bjuggust við að Rússar
myndu leika til úrslita en þeir töpuðu
óvænt með einu stigi fyrir Grikkjum
í undanúrslitunum.
í leiknum um 5. sætið lögðu Spán-
verjar Frakka að velli með 95 stigum
gegn 87. Búlgarar sigruðu Hollend-
inga, 91-86, og höfnuðu í 7. sæti á
Evrópumótinu.
-RR