Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1990.
Sveitarstjóri
Staöa sveitarstjóra í Raufarhafnarhreppi er laus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. desember.
Upplýsingar gefur Sigurbjörg Jónsdóttir í símum
96-51151 og 96-51277.
Mak-Sýn
Gagnabanki fyrir Macintosh
Allir módemnotendur eiga kost á að gerast meðlimir.
Um 25.000 titlar af skrám eru í bankanum og mun
fjölga fljótlega.
Númer í módem er 62 48 88.
Skrá yfir gögn verður hægt að fá á disklingum og gera
pöntun bréflega eða í síma.
Meðlimir fá aðgangsorð sem opnar þeim beinan að-
gang i Gagnabankann 24 stundir á dag.
Upplýsingar um afgreiðslu aðgangsorða og pöntun á
efnisskrám á diskum eru milli kl. 18 og 20.
Upplýsingasími 2 82 53 eða
Mak-Sýn:
Miklubraut 13, Reykjavík.
mmmréM ii/f
MEIRIHÁTTAR MICHEUN MARKAÐUR
STÓRKOSTLEGT GRIP FRÁBÆR ENDING
D^TOPPURINN Í DAG, MICHELIN.
f—.---^ MICHELIN
LAUSNARORÐIÐ
S-200.
FLESTAR
FYRIRLIGGJANDI.
MERKIO TRYGGIR GÆDIN.
MICHELIN.
0LL MICHELIN
ERU RADlAL
TVÖFÖLD ENDING.
HLJÓÐLÁT OG
RÁSFÖST.
HALLANDI GRIPSKURÐIR.
STAÐSETTIR SNJÓ-
NAGLAR.
MJÚKAR HLIÐAR, MEIRI
SVEIGJA.
ÁKVEÐIN SNÚNINGSÁTT,
0PNARA GRIP.
MICHELIN
MICHELIN
HMmmTöm m
SKEIFUNNI 5.SIMAR 687517 OG 689660
Nýtt merki
S.Í.H.U. auglýsir eftir tillögum að merki fyrir sam-
bandið.
1. Merkið skal vera einfalt aö allri geró.
2. Vera lýsandi (táknrænt) fyrir S.Í.H.U.
3. Ekki má nota íslenska fánann, nema þá
liti hans.
4. Merkið er ætlað til notkunar á fána og
barmmerki.
5. Verðlaun verða veitt fyrir bestu tillöguna,
kr. 50.000.
Sambandið áskilur sér rétt til aó hafna öllumTillögun-
um.
Tillögurnar sendist til formanns S.Í.H.U., Yngva Jó-
hannssonar, Hólastekk 3, 109 Reykjavík, fyrir 1. jan-
úar 1991.
Nafn sendanda fylgi tillögunni í lokuðu umslagi
undir dulnefni.
Stjórn S.Í.H.U.
Hinhlidin
Stefni á ad
missa
nokkur kíló
- segir Birgir Gunnlaugsson hljómsveitarstjóri
Birgir Gunnlaugsson hefur rekið
eigin hljómsveit í þrettán ár en auk
þess hefur hann gefið út barnaplöt-
ur. Fyrst var það platan Jólatrés-
skemmtun. Þá kom hljóðsnæida i
samvinnu við Umferðarráð, síðan
komu Rokklingarnir í fyrra og nú
er væntanleg önnur hljómplata
með þeim hópi. Rokklingarnir eru
svipaðir og Mini-Pops sem urðu
mjög vinsælir á árunum 1979-1981
um allan heim. Sextán börn eru
flytjendur á nýju plötunni, af þeim
eru fimm nýir sem valdir voru úr
hópi 180 barna sem komu í prufu.
Þaö er Birgir Gunnlaugsson sem
sýnir hina hhðina aö þessu sinni:
Fullt uiafn: Gunnlaugur Birgir
Gunnlaugsson.
Fæðingardagurogár: 28. júlí 1956.
Maki: Signý Guðbjörnsdóttir.
Börn: Hlaðgerður 17 ára, Drífa 14
ára, Þorsteinn 12 ára, Sara 9 ára
og Ástrós 4ra ára.
Bifreið: Toyota Corolla árgerð 1987.
Starf: Hljómlistarmaður.
Laun: Breytileg.
Áhugamál: Laxveiöi en ég er mjög
áhugasamur um hana og fer mikiö
í veiöiferðir, sérstaklega í Kjós,
Miðfjörð og Grímsá. Auk þess er
tónlistin auðvitað mitt áhugamál.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég man ekki til
þess að hafa spilað meö.
Hvað fínnst þér skemmtilegast að
gera? Veiöa lax.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Það er n'ú það. Æth það sé
ekki að gera skattframtalið.
Uppáhaldsmatur: Það hlýtur að
verá mjög lítið steikt nautakjöt.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvað íþróttamaður stendur fremst-
ur i dag að þinu mati: Það er góð
spurning. Kristján Arason.
Uppáhaldstimarit: Ég verð aö við-
urkenna að það tímarit sem ég lit
helst í er Sjónvarpsvísirinn.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Þú spyrð mig sem horfi aldrei á
kvenfólk, að minnsta kosti ekki síð-
an ég kvæntist, eða það segi ég eig-
inkonunni.
Brtu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Andvígur henni.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Mig sjálfan fyrir fjörutíu
kílóum.
Uppáhaldsleikari: Það er Peter Sell-
ers.
Uppáhaldsleikkona: Julie Roberts.
Uppáhaldssöngvari: Pavarotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi
Björn Albertsson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Dallas, ég
missi aldrei af neínum þætti þó ég
horfi annars lítið á sjónvarp.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna fínnst þér
best? Ég hlusta mest á rás tvö og
Aðalstöðina en það fer eftir tíma
dagsins hvora ég vel.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Eiríkur
Jónsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sennilega Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Mér
þykja þulurnar í Sjónvarpinu yfir-
leitt mjög „fyndnar".
Uppáhaldsskemmtistaður: Það
verður að vera heimili mitt þvi ég
fer aldrei neitt út að skemmta mér.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Valur.
Stefnir þú að einhverju sérstöku i
framtíðinni? Ég stefni að því að
veiða meiri lax og fækka nokkrum
kílóum. Auk þess sem ég stefni að
því aö vinna enn frekar með börn-
um.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Kem-
ur það á óvart ef ég segist hafa
verið i laxveiði? Mitt sumarfrí var
frá 17. júní til 1. september og fékk
ég 25 eða 30 laxa í sumar. Einnig
dvaldi ég nokkuö í sumarbústað
minum með fjölskyldunni og hélt
útiskemmtun í Húsafelli um versl-
unarmannahelgina. -ELA
Birgir Gunnlaugsson hljómsveitarstjóri.
DV-mynd Hanna