Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Side 22
22
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1990.
Ófriður og örlög í Sjónvarpinu:
Fólk kom grát-
andi til mín
- segir aðalleikkona þáttanna, Jane Seymour, sem segir hlutverkið eftirminnilegt
„Ég býst við að hlutverk mitt sem
Natalie hafi breytt lífi mínu. Atriðin
sem við lékum viö upptökur eru svo
minnisstæð að þeim gleymi ég aldr-
ei. Einnig voru móttökur áhorfenda
í Bandaríkjunum þannig, þegar
þættirnir voru sýndir, að allt gerir
hlutverk mitt mjög eftirminnilegt,"
segir Jane Seymour, ein aðalleik-
kona þáttanna, ÓtViður og örlög, sem
Sjónvarpið sýnir á sunnudagskvöld-
um um þessar mundir. Þriðji þáttur-
inn verður sýndur annað kvöld en
þeir eru alls þrjátíu. Þess má geta að
þetta er síðari hluti framhaldsmynd-
ar en fyrsti hlutinn, Blikur á lofti,
var sýndur fyrir nokkrum árum.
Þessi þáttaröð, sem er frá árinu 1989,
er ein sú dýrasta sem sögur fara af,
kostaði 120 milljónir Bandaríkjadala
í framleiðslu.
„Viðbrögð fólks voru ólýsanleg.
Það kom grátandi aö mér á götum
og jafnvel faðmaöi mig. Spurningin
var oft þessi: „Hvernig gátuð þið vit-
að hvað við upplifðum?" Það var
mjög margt sem ég lærði með hlut-
verkinu og ýmislegt sem ég skildi
betur,“ segir Jane Seymour.
„Foreldrar mínir komu til Póllands
til að vera viðstaddir upptökur. Móð-
ir mín sat í fangelsi í Indónesíu en
sagöi okkur börnunum aldrei frá
þeim grimmilegu atburðum sem þar
áttu sér stað. Eg vissi það ekki fyrr
en ég lék Natalie. Að hafa foreldra
sína við upptökur var sérstök lífs-
reynsla. Þeir ætluðu rétt að kíkja og
fylgjast með í smátíma en voru frá
sex á morgnana til sex á kvöldin og
fylgdust með upptökum meðan á
þeim stóð alla dagana. Oft á tíðum
fékk minningin fr.á gömlum tíma svo
á foreldra mína að þeir grétu,“ held-
ur Jane áfram.
Veiktist við upptökur
„Ég sjálf tók hlutverkið svo alvar-
lega að ég veiktist. Matarlystin var
engin, ég horaöist og það endaði með
því að ég fékk lungnabólgu. Eftir að
kvikmyndatöku var lokið viö mynd-
ina fékk ég eftirþanka og var virki-
lega langt niðri. Það tók mig langan
tíma að komast á fætur á nýjan leik
segir hún.
Jane Seymour fékk heiöursverð-
laun frá Simon Wiesenthal-stofnun-
inni eftir leik sinn í Ófriður og örlög.
Einnig hefur hún unnið fyrir gyð-
ingasamtök. Þessi tæplega fertuga
leikkona, sem byrjaði feril sinn sem
ein af James-Bond stúlkum, hefur
náð mjög langt á framabrautinni.
„Ég hef verið heppin að fá að leika
margar skemmtilegar konur,“ segir
Jane sem heitir réttu nafni Joyce
Frankenberg. „Ég er hrifin af konum
sem hafa verið sterkar og barist fyrir
sínu hlutskipti. Þó er ég hrifnust af
þeim konum sem upplifðu stríðið
enda vel ég hlutverk sem fá fólk til
að hugsa og hrífast með.
Þegar ég var ung stúlka hafði ég
mestan áhuga á ballett en sextán ára
ákvaö ég að verða leikkona. Fyrsta
hlutverk mitt var í mynd Richard
Attenboroughs, Oh, What á Lovely
War, sem leiddi af sér lítið hlutverk
í myndinni, One Dinlinjen. Þar á eft-
ir kom James Bond mynd. Sú mynd
gaf mér stórt tækifæri en um leiö
fékk ég ákveðinn stimpil á mig þann-
ig að í mörg ár fékk ég einungis hlut-
verk sem kynbomba," segir Jane
Jane Seymour fer með eitt aöalhlutverkið I Ófriður og örlög. Hún segir að hlutverkiö hafi verið erfitt og tekið mikið
á hana.
Seymour. „Þetta hefur sem betur fer
breyst og ég hef verið í alvarlegum
hlutverkum undanfarin ár.“
Lék Wallis Simpson
Jane Seymour lékk Wallis Simpson
í „Konan sem hann elskaöi" og einn-
ig Mariu Callas Onassis sem hún
fékk Emmyverðlaun fyrir. Eftir að
hún lék Natalie í Ófiður og örlög fékk
hún hlutverk sem Maria Anontoi-
nette í „Franska byltingin“. „í þeim
þáttum fengu börnin mín, Sean,
íjögra ára, og Katie, sjö ára, lítil hlut-
verk. Þegar ég er á ferðalögum tek
ég þau alltaf meö mér,“ segir leik-
konan.
„Ég veit að ég er fræg kona en reyni
alltaf að standa á jörðinni. Ég á önn-
ur áhugmál en vinnuna og hef gaman
af að umgangast fólk í öðrum störf-
um. í Hollywood er ég eins lítið og
Úr sjónvarpsmyndaflokknum Ófriður og örlög, frændinn Aaron, Byron,
Natalie og sonurinn.
mér er unnt. í rauninni er ég samt
allt of lítið heima hjá okkur í Bath á
Englandi. En á hverju sumri reyni
ég aö fá gott frí svo öll fjölskyldan
geti verið saman. Hér í Bath slappa
ég nefnilega vel af og safna kröftum
fyrir næsta verkefni."
Eiginmaður Jane Seymour er
David Flynn. „Viö kunnum best við
okkur hér í Bath en húsið okkar í
Kaliforníu notum við einungis þegar
ég er að leika þar. Þar njótum við
strandarinnar, förum í reiðtúra og
þess háttar. Einnig eigum við íbúð í
París en þar búum við einungis þegar
það hentar," heldur leikkonan
áfram.
Upptökur
í tíu löndum
Ófriður og örlög er ekki einungis
dýrasti myndaflokkur sem fram-
leiddur hefur veriö. Hann var lengi
í vinnslu og upptökur fóru fram í tíu
löndum, Frakklandi, Ítalíu, Austur-
ríki, Júgóslavíu, Sviss, V-Þýskalandi,
Englandi, Póllandi, Kanada, Banda-
ríkjunum og á Hawaii. Síðari hluti
myndaflokksins er í þrjátíu hlutum
og byggður, eins og sá fyrri, á bókum
Hermans Wouks „Winds of War“ og
„War and Remembrance“ sem einnig
gerði kvikmyndahandritið. Höfund-
ur gerði miklar kröfur til þess aö
sögulegir atburðir væru færðir í rétt-
an stíl.
Höfundurinn, Herman Wouk, gaf
út fyrri bók sína árið 1971. Hann
byrjaði að skrifa bókina árið 1962 og
hún segir frá hans eigin upplifun við
ameríska flotann í byrjun heims-
styrjaldarinnar. Wouk fór í ferðalög
til Evrópu, Sovétrikjanna og ísrael á
þeim tíma sem hann skrifaði bæk-
urnar til að hafa allt nákvæmlega
staösett. Bókin er vel unnin enda vel
launuð af aödáendum um allan heim.
Bókin varð metsölubók og svo var
einnig um síðari bókina sem kom út
árið 1978. Hún fjallar um fjölskyldu
Henrys frá því að Bandaríkin drag-
ast inn i heimsstyrjöldina áriö 1941
fram til ágústloka ársins 1945. Það
þótti nokkuð djarft aö reyna að koma
bókunum í sjónvarpsþætti en upp-
tökur á þeim hófust í Frakklandi 6.
janúar 1986.
Ástir og örlög
Sagt er að seinni myndaflokkurinn
Ófriöur og örlög sé ekki síðri en fyrri
- jafnvel betri. Reynt var að koma
því svo fyrir að allar upptökur færu
fram á réttum stööum.
Fyrri myndaflokkurinn endaði þar
sem Bandaríkjamenn sprengdu Pe-
arl Harbor og þar byrjar sá síðari. í
fyrri myndcdlokknum gerðust hlut-
irnir hratt í kringum íjölskyldu
Henrys, eiginkonu hans Rhodu og
þrjú uppkomin börn þeirra. Pug
verður áríöandi milligöngumaður
Hvíta hússins þar sem hann er stað-
settur í Berlín og ráðgefandi fyrir
Roosevelt forseta. Hann hittir meðal
annarra Mussolini, Göring og Churc-
hill og auk þess hittir hann marga
þekkta menn sem uppi voru á þess-
um tíma.
Sonur Pugs, Byron, starfar á ítalíu
fyrir amerísk/gyðingættaðan rithöf-
und, Aaron Jastrow. Systurdóttir
hans og aðstoðarmaður Natalie er í