Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGÚR 8. DESEMBER 1990.
Fréttir
Amór Sighvatsson, hagfræðingur Seðlabankans:
Þessi afsökunarbeiðni
skiptir mig engu máli
- ég stend við alla útreikninga sem fram koma 1 áliti hagfræðideildar
„Þessi afsökunarbeiðni skiptir
ekki nokkru máli. Ég stend við mitt
mat sem fram kemur í álitinu,“ sagði
Arnór Sighvatsson við DV en það var
hann sem vann þá skýrslu hagfræði-
deildar Seðlabankans sem banka-
stjórnin hefur nú beðist afsökunar á
opinberlega.
„Eg geri ráð fyrir að afsökunar-
beiðnin sé send út af þeim sem höfðu
fullan aðgang að álitsgerð minni all-
an tímann. Eg stend við það sem ég
sagði. Þetta er mitt álit, þetta er álit
hagfræðideildar. Hins vegar má ef til
vill afsaka ógætilegt orðalag sem
auðvelt er að misskilja. Það er ein-
hvers staðar í plagginu talað um loft-
flmleika í útreikningum. Þeim orð-
um var ekki beint gegn Þjóðhags-
stofnun. Þaö voru engar aðdróttanir
að henni þar. Við höfum bara komist
að annarri niðurstöðu eins og fleiri
raunar,“ sagöi Arnór Sighvatsson.
Hann sagði ennfremur að ef þjóðar-
sáttin sprundraðist færu af stað
miklar launahækkanir. Á því máli
væri ekki tekið í áUti hagfræðideild-
ar. Heldur væri þar aöeins um að
ræða hvað gerðist ef BHMR fengi 4,5
prósent launahækkun.
-S.dór
Bankastjóm Seölabankans:
Baðst af sökunar
- dregurútreiknlngahagfræðideildaríefa
Útreikningar hagfræðideildar
Seðlabanka íslands, sem gerðir voru
að ósk forsætisráðherra, og orðalag
í skýrslunni hafa valdið miklu
íjaðrafoki. Nú hefur bankastjórn
Seðlabankans beðist opinberlega af-
sökunar á skýrslunni.
í afsökunarbeiðni bankastjórnar-
innar segir að skýrslan hafi ekki ver-
ið send út í nafni bankastjómarinnar
enda hafi ekki veriö ætlast til aö hún
færi lengra. Aftur á móti láku upp-
lýsingarnar út úr bankanum. Því
hafi forstöðumaður hagfræðideildar,
sem er Bjarni Bragí Jónsson, ekki
talið hægt að synja alþingismanni
um skýrsluna.
Þá segir ennfremur að banka-
stjórnin biðjist sérstaklega afsökun-
ar á ógætilegu orðalagi í þessu áliti
hagfræðideildar sem skilja megi sem
ásakanir á hendur Þjóðhagsstofnun.
Loks dregur stjórn Seðlabankans
útreikninga hagfræðideildar i efa.
Segir í bréfinu að ef bráðabirgðalögin
verði felld telji bankastjórnin miklu
meiri hættur framundan viö þær
aðstæður en álit hagfræðideildar gef-
ur í skyn. Segist bankastjórnin vera
eindregið þeirrar skoðunar að um-
talsverð kauphækkun nú mundi
hafa í för með sér alvarlega röskun
á verðlagsþróun á næstu mánuðum.
Það mundi stefna langtímamarkmið-
um um lækkun verðbólgu hér á landi
íverulegahættu. -S.dór
Þróun framfærsluvísitölu
- þriggja mánaöa breyting miðað við heilt ár í %
40-
35
30
25
20-
15-
10-
5-
0-
■ Þjóðhagsstofnun
§ Hagdeild Seölab.
Þjóöarsátt Dæmi 1 Dæmi 2 Dæmi 3
Eggert i Felli ásamt hinum aldna Háfeta sínum.
DV-mynd Þórhallur
38 ára reiðhestur í Skagafiröi:
Sá elsti á landinu og
enn við hestaheilsu
Þetta súlurit sýnir muninn sem er á þeim útreikningum hagfræöideildar
Seðlabankans sem bankastjórnin dregur nú i efa og áætlunum Þjóðhags-
stofnunar.
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
„Það hefur lengi staðið til að farga
Háfeta en ég hef ekki tímt því hingað
til því hesturinn er við hestaheilsu
ennþá. Hófarnir í fínu lagi, þrekið
og holdafarið ágætt, einungis tenn-
urnar eru aöeins farnar að gefa sig,“
segir Eggert bóndi Jóhannsson í Felh
í Sléttuhlíð um reiðhest sinn, Háfeta,
sem er allra hrossa elstur á íslandi,
38 vetra.
Þó Háfeti sé orðinn ansi gamall ber
hann aldurinn bara nokkuð vel en
hins vegar ber hann varla nafn með
rentu því hann er fremur stuttfætt-
ur. Það stóð til að nota hann í drætti
á sínum tíma en klárinn tók það ekki
í mál svo að ekkert varð úr þvi. Hann
var seint taminn, lengi graður, og gat
veriö svolítið stúrinn i skapi á stund-
um. Þó var ekki annað að sjá en geðs-
lagið væri þokkalegt þegar Eggert
brá sér á bak. Minnsta kosti langt í
frá að hann teljist forn í skapi þrátt
fyrir aldurinn.
Ávísanaíalsari:
Fékktíumán-
aða f angelsi
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
yfir 24 ára manni sem dæmdur
hafði verið í 10 mánaða fangelsi
í Sakadómi Reykjavíkur fyrir
ávisanafals. Maðurinn áfrýjaði
dóminum að eigin ósk til Hæsta-
réttar.
Maðurinn haföi áður hlotið þrjá
skilorðsbundna og þrjá óskilorðs-
bundna fangelsisdóraa. Honum
var veitt reynslulausn í júlí 1989
á 270 daga eftirstöðvum refsingar
samkvæmt fyrri dómum.
í þessu máli var maðurinn í
raun aðeins sakfelldur fyrir fóls-
un á einum tékka að upphæð
rúmum 17 þúsund krónum. Mað-
urinn falsaði tékkann eftir að
hann fékk reynslulausn úr fang-
elsinu. Með tilliti til sakaferils og
að maðurinn rauf skilyrði
reynslulausnar var hann dæmd-
ur til afplánunar 10 mánaða fang-
elsisvistar. Honum var gert'að
greiða allan sakarkostnað í hér-
aði, svo og áfrýjunarkostnaö að
meðtöldum 30þúsund krónum til
bæði skipaðs veijanda síns og
saksóknara. -ÓTT
Melrakki:
Kröfurnar
140 milljónir
Þórhallur Asmunds., DV, Sauðárkróki:
Kröfulýsingar í þrotabú Mel-
rakka hf. eru samtals 140 millj.
króna. Þar af er Stofnlánadeild
landbúnaðarins með 80 milljónir,
Byggðastofnun 23,5 og Búnaðar-
banki með 13 millj. króna.
Kröfulýsingafrestur í þrotabúið
rann út í síðustu viku. Fyrsti
skiptafundur i búinu verður 13.
desember. í dag er allt á huldu
með það hvort fóðurstöðin verð-
ur rekin áfram eftir áramótin en
Kaupfélag Skagfírðinga hefur
reksturinn til leigu fram að þeim
tíma.
Styðja
Guðmund
Stjórn kjördæmisráðs Borgara-
flokksins í Reykjavík lýsti á fundi
sínum i vikunni yfír einhuga
stuðningi við Guðmund Ágústs-
son alþingismann og skilningi á
þeirri afstöðu hans að hætta
stúðningi við ríkisstjórnina. Tel-
ur kjördæmisráöið að Borgara-
flokkurinn hljóti að endurskoða
afstöðu sína til stjórnarsam-
starfsins náist ekki viðunandi
ái-angur í baráttu flokksins fyrir
afnámi lánskjaravísitölu og
lækkun skattlagningar á matvæl-
um. ,hlh
Gylfi Gunnarsson, skipstjóri í Grímsey:
Frekar að pakka saman strax
en að láta svelta sig í burtu
- óhressir Grímseyingar ræða við Halldór Ásgrímsson um helgina
,Menn hafa nú fengið gróft yfir
r* KoA Pfrni CJ.
„Það er eins hægt fyrir okkur að
pakka saman strax og fara í land
eins og að láta svelta sig í burtu
úr eynni,“ segir Gylfi Gunnarsson,
skipstjóri í Grímsey.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra mun funda með
Grímseyingum á sunnudag og
ræða við þá um smábátakvótann
og útfærslur á honum. Hyggjast
eyjarskeggjar fjölmenna á fundinn.
Það er mikill hiti í mönnum í eynni
yfir þeim kvótum sem smábátaeig-
endum hefur verið úthlutað og telja
margir íbúanna að á næstu mánuð-
um stefni í atvinnuleysi og fólks-
flótta. • ■
„Það heföi átt að miða smábáta-
kvótann við árin 1980 til 1983 í stað
þess að miða við árin 1987-1989, það
hefði komið betur út fyrir okkur.
Ástandið hér í Grímsey er að
veröa slíkt að maður horfir fram á
fólksflótta enda byggja nær allir
íbúarnir afkomu sína á veiðum og
fiskvinnslu. Við höfum ekki átt
þess kost á undanfórnum árum að
sanka að okkur kvótum þar sem
obbinn af útgerðinni byggist á smá-
bátum. Kvótaúthlutunin bitnar því
harðar á okkur en mörgum öðrum.
Nú stendur fyrir dyrum að héðan
verða seldir tveir smábátar því það
hefur enginn eyjarskeggi bolmagn
til að kaupa þá.
Þeir sem geta skrimt af þeim
kvóta sem þeir fá munu hins vegar
ekki hafa getu til að endurnýja
báta sína eða sinna eðlilegu við-
haldi á þeim,“ segir Gylfi.
yfir það sem þeir fá að veiöa
næsta ári og menn fara misilla i
úrþessu. Sunúr eru með viðunam
stöðu en aðrir eru verr settir E
horfurnar eru ekki góðar,“ segi
Þorlákur Sigurðsson, od’dviti
Grímsey.
-J.Ma