Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Side 4
4
LAUGARÐAGUR 8. DESEMBER 1990.
Fréttir
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra um GATT-viðræðumar
Við samþykktum
málamiðlun Svía
„GATT-viðræðurnar eru ekki al-
veg fyrir bí en þær hanga vissulega
á hálmstrái. Hvernig komið er skrif-
ast alfarið á Evrópubandalagið því
það hefur látið stjórnast af skamm-
tíma-sérhagsmunum sínum í við-
ræðunum. Hneisa Evrópubandalags-
ins í þessu máli mun lengi verða
uppi,“ segir Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra.
Eins og fram hefur komið hafnaði
samninganefnd EB í GATT-viðræð-
unum eitt rikja málamiðlunartillögu
Steingrímur J. Sigfússon:
Við settum
fyrirvara
„Viðræðurnar um landbúnaðar-
mál virðast vera komnar í fullkomið
strand. Þetta hefur legið í loftinu
lengi en það er eins og menn hafi
ekki viljað viðurkenna þetta. Hvað
varðar til dæmis tilboð EB þá var það
vitað fyrir fundinn að samninga-
nefnd þess hefði ekki umboð til að
breyta sínu tilboði að neinu marki,“
segir Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaöarráöherra.
Steingrímur hefur undanfarna
daga tekið þátt í Gatt-viðræðunum í
Brussel. Hann segir málamiðlunar-
tillögu Mats Hellströms, landbúnað-
arráðherra Svíþjóðar, hafa mætt
mikilli andstöðu og meðal annars
hafi íslendingar gert ákveðna fyrir-
vara við hana. í tillögunni, sem lögð
var fyrir samninganefndina í gær,
var gert ráð fyrir allt að 30% niður-
skurði á útflutningsbótum á næstu
fimm árum og að þjóðirnar heimil-
uðu 5% aukningu á innflutningi
landbúnaðarvara til innanlands-
neyslu.
Að sögn Steingríms ítrekuðu ís-
lendingar sérstöðu sína hvað varöar
sjúkdómahættu við innflutning og
settu því fram fyrirvara gagnvart
allri aukningu, til dæmis á grund-
velli strangra heilbrigðissjónarmiða.
-kaa
Enn dýrara
aðverða
gjaldþrota
Trygging fyrir skiptakostnaði
við gjaldþrotaskipti hefur verið
hækkuð úr 6 í 12 þúsund krónur.
Sá sem fer fram á gjaldþrota-
beiðnina hvetju sinni greiðir
tryggingagjaldið.
Þannig greiöir einstaklingur
sem óskar eftir aö verða tekinn
til gjaldþrotaskipta þessa upp-
hæð og má segja að dýrara sé
orðið fyrir hann að verða gjald-
þrota en áður.
Tryggingin er notuð til aö
greiða skiptakostnað eins og aug-
lýsingu í Lögbirtingablaöinu,
endurrit, vottalaun og stundum
uppskriftakostnað.
Aö sögn Grétu Baldursdóttur
borgarfógeta dugðu 6 þúsund
krónurnar ekki lengur fyrir
skiptakostnaði og þvi var ákveðið
að hækka trygginguna. Reynist
kostnaðurinn þegar upp er staðið
nokkru minni en tryggingin, 12
þúsund krónur, er mismunurinn
endurgreiddur.
-JGH
Svía í landbúnaðarmálum. í kjölfarið
lá við aö viðræðunum yrði slitið en
á síðustu stundu var samþykkt að
fela formanni GATT-viðræðnanna
umboð fram í febrúar á næsta ári til
aö halda þreifmgum áfram og freista
þess að ná samkomulagi.
Að sögn Jóns Baldvins gaf hann
þau fyrirmæli til íslensku samninga-
nefndarinnar að samþykkja mála-
miðlunartillöguna sem samnings-
grundvöll án fyrirvara. Hann segir
hins vegar að landbúnaðarráðherrar
„Jólasveinninn á heima í íjallinu
úti,“ sagði Elín, ein af fjórburasystr-
unum í Mosfellsbæ þegar DV kom í
heimsókn í gær. Systurnar voru á
kafi í jólaundirbúningi og teiknuðu
jólamyndir og voru alveg með það á
hreinu hvar Sveinki ætti heima. Þær
eru ekki enn farnar að setja skóinn
út í glugga en eru mjög hrifnar af
öllu jóladótinu. Sérstaklega eru þær
hrifnar af jólaljósunum sem móðir
þeirra, Margrét Þóra Baldursdóttir,
hengdi upp í gluggunum.
Systurnar Alexandra, Brynhildur,
Diljá og Elín urðu 2ja ára 1. nóvemb-
er síðastliðinn. Þær eru nýbyrjaðar
Mikið umferðaröngþveiti varð á
eins kílómetra kafla á þjóðveginum
skammt norðan Leirár í Borgarfirði
á fimmtudag. Á skömmum tíma urðu
tveir þriggja bíla árekstrar, einn út-
afakstur og einn tveggja bíla árekst-
ur. Engin slys urðu á fólki en mjög
mikið eignatjón á bílunum sem urðu
íslands, Finnlands og Noregs hafi
lýst yfir óánægju með ákveðna þætti
tillögunnar. Hins vegar hafi náðst
samkomulag milli allra Norðurland-
anna um að samþykkja hana
óbreytta.
Jón Baldvin segir aö fyrir íslend-
inga séu miklir viðskiptahagsmunir
í húfi í viðræðunum, til dæmis varð-
andi tollalækkanir á fiski, tækjum
og veiðarfærum. Hann segir hins
vegar að tap heimsbyggðarinnar yrði
mælt í þúsundum milljarða dollara.
í leikskóla. Tvær þeirra byrjuðu 1.
nóvember og tvær 1. desember. Elín,
sem er yngst og minnst í sér, er ekki
mjög hrifin af leikskólanum. Margrét
Þóra segir að Elínu finnist skemmti-
legt á leiðinni þangað en hún vill
ekki fara inn. Hinar una sér betur.
Systurnar eru ekki mjög líkar í
útliti og heldur ekki í sér. Alexandra
er elst og hún er leiðtoginn í hópnum.
Hún er ákveðnust og nýjungagjörn-
ust. Brynhildur kemur næst og hún
er frekar viðkvæm í sér. Diljá er
mesti dundarinn og Elín er alvar-
legust og dregur sig mest í hlé.
Margrét Þóra segir að oft sé mikil
nokkrir óökufærir á eftir.
Lögreglan í Borgarfirði vará svæð-
inu á milli Lyngholts og Fiskilækjar,
um kílómetra kafla, frá klukkan tíu
um morguninn þar til að ganga tvö
eftir hádegi til að sinna ökumönnum
vegna þessara óhappa. Bjart veöur
var á þessum slóöum en mikill lág-
„Hagvöxtur í veröldinni er undir
því kominn að þetta samkomulag
náist. Ef ekki skapast fullkomin
hætta á því að einstök ríki og ríkja-
sambönd byggi upp tollamúra. Þar
með myndi tapast allur sá ávinning,-
ur í alþjóðaviðskiptum sem náðst
hefur frá síðustu heimsstyrjöld. í
kjölfarið gæti jafnvel skollið á ný
heimskreppa í viðskiptum.“ -kaa
keppni milli systranna um sig, þær
vilji allar vera hjá henni í einu og
allar séu þær mjög kelnar.
Eins og kunnugt er fæddust nýlega
þríburar eftir glasafrjóvgun og þegar
Margrét Þóra var spurð hvort hún
ætti ekki einhver góð ráð handa for-
eldrum þeirra svaraði hún aö bragði:
„Að vera bjartsýnn. Það er aðalatrið-
ið. Þetta kemur allt með kalda vatn-
inu því þótt eitthvað bjáti á í dag þá
lagast það örugglega á morgun. Það
er enginn vandi svo mikill aö ekki
sé hægt að leysa hann.“
-ns
renningur torveldaði mjög akstur.
Óhöppin urðu því eitt af öðru. Bfiar
ýmist runnu í veg fyrir aðra sem
komu úr gagnstæðri átt, óku út af
eða aftan á næsta bíl á undan vegna
lélegs skyggnis og glerhálku. Samtals
níu bílar skemmdust.
-ÓTT
mælagjald á
laugardögum
Laugardagana í desember verð-
ur ekki krafist gjalds í stöðumæla
eða fyrir bílastæöahús i Reykja-
vík. Virka daga í desember verð-
ur ókeypis í stöðumæla eftir
klukkan fjögur síðdegis. 15.-20.
desember mun iögregla tak-
marka böaumferð inn á Lauga-
veg ef þörf krefur.
Gatnamálastjóri vekur sér-
staka athygli á 60 nýjum bíla-
stæðum í kjallara nýja ráðhúss-
ins enþar er ekiöinn fráTjarnar-
götu. Einnig er vert að benda á
100 stæði að Vesturgötu 7, 50
stæði á horni Skólavörðustígs og
Bergstaðastrætis, 90 stæði í Kola-
porti, nema á laugardögum, 350
stæði við austurbakka Reykja-
vikurhafnar, 60 stæöi við Al-
þingishúsið, 100 stæði hjá Olís við
Skúlagötu, nýtt stæöi við Mjöln-
isholt fyrir 100 bíla og stórt bíla-
stæði Eimskips á milli Frakka-
stigs og Vatnsstígs.
Löggæsla veröur aukin og
verða bílar fjarlægðir með krana-
bíl ef þeim er lagt þannig að þeir
skapi hættu eða hindri umferð.
Starfsmenn verslana eru hvattir
til að leggja bilum sínum fjær
vinnustað en venjulega fram að
jólum. Almenningur er eirídregið
hvattur til að nota strætisvagna
til að létta á umferð og spara tíma.
-óTr
Kveiktájóla-
tré á Akureyri
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri:
Kveikt verður á jólatrénu á
Ráðhústorginu á Akureyri í dag
og hefst athöfnin á torginu kl.
14.45. Jólatréð er gjöf frá Rand-
ers, vinabæ Akureyrar í Dan-
mörku.
Þar leikur Blásarasveit Tónlist-
arskólans jólalög. Siguröur Jó-
hannesson, ræðismaður Dana á
Akureyri, Hreinn Pálsson, for-
maður Norræna félagsins, og
Halldór Jónsson bæjarstjóri
flytja ávörp. Kl. 16.15 verður
kveikt á trénu og að því búnu
koma jólasveinar í heimsókn og
skemmta sér meö krökkunum.
Ragnaráfram
Forval Alþýðubandalagsins í
Norðurlandi vestra fer fram 15.
desember og 12. janúar. Ragnar
Arnalds gefur kost á sér í forval-
inu og er ekki búist við ööru en
hann verði i fyrsta sæti að því
loknu. Sveinn Allan Morthens,
formaður kjörnefndar, sagöi DV
að vangaveltur um hrókeringar,
þar sem Ragnar færi jafhvel fram
í Reykjavík, heyrðu sögunni til.
-hlh
Eimskip:
Engarviðræður
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarsviðs Eim-
skips, segir það rangt í DV á mið-
vikudaginn að þreifingar séu við
Eimskip um kaup á húsi Hvaleyr-
ar í Hafnarfiröi.
„Forstjóri Hagvirkis hafði sam-
band við mig einu sinni. Síðan
gaf ég honum ákveðið svar um
aö ekki væri áhugi. Eimskip hef-
ur enga þörf fyrir þetta hús og
þaö eru engar viðræður í gangi
um kaup á því,“ segir Þorkefi.
Þess má geta að í fréttinni var
Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri
Hagvirkis, spurður hvort rétt
væri að viöræöur væru viö Eim-
skip, Orörétt svar: „Það hafa ver-
Ið örlitlar þreifingar við Eim-
skipsmenn en þær viðræður eru
ekki komnar á neinn rekspöl.“
-JGH
Systurnar að föndra með Jóa bróður. í fanginu á Jóa er Alexandra, þá kemur Diljá, svo Brynhildur og loks Elin.
DV-mynd GVA
Fjórburamir 1 Mosfellsbæ:
Jólasveinninn á heima í fjallinu
Umferðaröngþveiti 1 Borgarfirði:
Níu bflar skemmdust