Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Side 6
6
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990.
Útlönd
Stefnubreyting eftir slit GATT-viðræönanna:
Bandarikin hóta að
hækka tollmúrana
Carla Hills hefur farið fyrir bandarísku sendinefndinni i GATT-viðræðunum
í Brussel. Símamynd Reuter
Ouppgert
við þýska
hermenn
Þýskir sagnfræðingar eru nú
að byrja að lesa sig í gegnum 12
milljónir skjala sem þýski herinn
lét eftir sig að lokinni heimsstyrj-
öldinni siðari. Skjölin hafa til
þessa verið vandiega varðveitt í
Domburg-kastala við ána Elbu í
Austur-Þýskalandi.
Austur-þýsk stjórnvöld gættu
þess að enginn kæmist 1 skjölin
en nú eftir sameiningu þýsku
ríkjanna hafa þau veriö flutt til
Berlínar til rannsóknar.
Skjölin í Dornburg-kastala
flalla aðallega um mannahald
hersins. Þau gætu. kostað þýsk
stjómvöld miklar fjárhæðir því á
þeirn geta erflngjar hermanna,
sem féllu i styrjöldinrti, reist
bótakröfur á hendur ríkinu
vegna ógreiddra líftryggina og
mála.
Enginn veit hve miklir pening-
ar eru hér í húfi en þýsk yfirvöld
gera ráð fyrir aö þurfa að borga
allt sem krafist ,er.
Rfcuttr
Thatcher
færafreks-
orðuna
Elísabet Englandsdrottning
hefur heiðrað Margréti Thatcher,
fyrmm forsætisráðherra, með
einni æðstu orðu sem drottning
veitir. Aðeins 24 Bretar geta
hverju sinni borið þessa orðu og
nú fyllir Margrét skarðiö sem
leikarinn Sir Lawrence OUvier
skildi eftir sig þegar hann lést á
síðasta ári.
Hér er um að ræða afreksorð-
una, Order of Merit, sem upphaf-
lega var aðeins ætluð stríðshetj-
um en hefur einnig falUð öðrum
1 skaut á síðari ámm. Winston
ChurchUl hlaut þessa orðu að
lokinni síðari heimsstyrjöldinni.
Margrét ætlar þó ekki að breyta
titU sínu og verður áfram frú.
Hún sagði eftir að tilkynnt var
um viðurkenninguna í gær aö
það hefði dugað sér ágætlega til
þessa.
Denis Thatcher getur þó eftir-
Ieiðis haft Sir fyrir framan nafn
sítt því drottning gerði hann að
baróni um leið og Margrét fékk
sinn pening. Denis ætlar ekki
taka heiðurinn alvarlega og heitir
hér eftir Sir Denis.
Reuter
Líklegt er talið að Bandaríkjamenn
snúi sér í auknum mæli að vernd-
arstefnu í viðskiptamálum nú þegar
ljóst er að GATT-viðræðurnar leiða
ekki til samkomulags um iækkun
tollmúra og frelsi í viðskiptum. Sér-
fræðirigar búast þó ekki við við-
skiptastríði á næstunni.
Þó er gengið út frá því sem vísu
að bæði Japan og ríki Evrópubanda-
lagsins herði einnig á haftastefnu
sinni. Því sjá menn fyrir sér að svæö-
isbiindin viðskiptabandalög styrkist
og viðskipti fari í æ ríkari mæli fram
með tvíhliða samningum milli aðila
í stað frjálsra viðskipta.
Carla Hills, aöalsamningamaður
Bandaríkjanna í GATT-viðræðun-
um, sagði eftir að þeim var skotið á
frest í gær að eftirleiðis yrði erfitt
að koma í veg fyrir aö Bandaríkja-
þing setti lög til að verja hagsmuni
bandarískra framleiöenda. Hún
benti á að Bandaríkjamenn hefðu
beðið eftir niðurstöðum úr GATT-
viðræðunum með að ákveða stefn-
una í utanríkisviðskiptum en nú
væri óhjákvæmilegt að taka mið af
því að enginn árangur hefði náðst.
Bandarískir bændur hafa undan-
Þegar baráttunni lauk fyrir for-
setakosningarnar í Póllandi á morg-
un virtist sem Lech Walesa, leiðtogi
Samstöðu, hefði afgerandi forystu á
keppinautinn, Stanislaw Tyminski.
Sérfræðingar um pólsk stjórnmál
vildu þó ekki bóka sigur Walesa því
Tyminski gæti höggvið nærri honum
ef þátttaka í kosningunum yrði lítil.
Allar skoðanakannanir bentu til
að Walesa hefði stuðning tveggja
þriðju kjósenda. Eftir að harka færð-
ist í kosningabaráttuna fyrr í vik-
unni jók Walesa fylgið þrátt fyrir
þungar ásakanir stuðningsmanna
Tyminski í hans garð. Svívirðingarn-
ar virðast því hafa orðið til þess að
farið þrýst fast á að fá að flytja hrís-
grjón til Japans en ekki getað vegna
innflutningshafta. Nú þegar ljóst er
að engin breyting verðilr þarna á
má búast við að Bandaríkjamenn
svari í sömu mynt með því að tak-
marka innflutning á japönskum
vamingi.
Enn hafa menn þó ekki gefið upp
alla von um árangur af GATT-við-
margir kjósendur, sem voru á báðum
áttum, tóku afstöðu með Walesa.
í einni síðustu skoðanakönnuninni
var Walesa spáð 73% atkvæða en
Tyminski aðeins 16%. Fáir telja þess-
ar tölur þó raunhæfar og benda á að
skoðanakannanir hafi til þessa
reynst rangar í ríkjum Austur-Evr-
ópu. Fólk tekur oft þann kostinn að
svara því sem það heldur að vald-
hafar vilji heyra.
Þá er einnig talið líklegt aö þátttaka
verði lítil í kosningunum því flestir
gera ráö fyrir að Walesa sigri með
yfirburðum. Því gæti farið svo að
margir stuðningsmanna hans sætu
heima í andvaraleysi meðan sá hóp-
ræðunum því þeim hefur aðeins ver-
ið frestað í einn til tvo mánuði. Þann
tíma á að nota til að leysa málin en
litlar líkur eru á að þaö takist. Um-
boð bandarísku samningamannanna
rennur út 1. mars. Eftir það þarf að
taka málið upp að nýju í þinginu með
ófyrirséðum afleiðingum.
ur, sem stendur að baki Tyminski,
er mjög ákafur í stuðningnum og
lætur sig örugglega ekki vanta á
kjörstaö.
Því er jafnvel haldið fram að kjör-
sókn verði aðeins 40%. Fari svo er
það raunverulegur möguleiki að
Tyminski verði kjörinn. Mörgum
hefur ofboðið harkan í kosningabar-
áttunni og svívirðingamar sem geng-
ið hafa milli frambjóðenda. Það gæti
orðið til þess að einhverjir sætu
heima til að mótmæla því hvernig
lýðræðið hefur þróast í Póllandi á
þeim stutta tíma sem liðinn er frá
fallistjórnarkommúnista. Reuter
Reuter
Forsetakosningamar í Póllandi á morgun:
Walesa með yfirburði
en er ekki öruggur
HANDBOLTI
Laugardaginn 8. des.
1. deild karla
GRÓTTA - KR
kl. 16.30
1. deild kvenna
GRÓTTA - FRAM
kl. 18.00
Seltirningar. Mætum öll og styðjum okkar fólk.
Jafnaðarmenn
treysta ekki
leiðtoganum
Danir eru ekki sérlega hrifnir
af hugmyndum Svends Auken,
formanns jafnaðarmanna, um að
mynda stjórn með íhaldsmönn-
um að loknum kosninguuum á
miðvikudaginn. Auken hefur í
kosningabaráttunni mælt fyrir
eins konar „viðreisnarmynstri" í
dönskum stjórnmálum að lokn-
um kosningum.
í nýrri skoðanakönnun kemur
í ljós að aðeins þriðji hver kjós-
andi telur þetta álitlegan kost. Þó
vekur það mesta athygli að þeir
sem styðja hugmyndina eru flest-
ir jafnaðarmenn en vilja að
íhaldsmaðurinn Paul Schliiter
verði forsætisráðherra. Þetta er
vantraustáAuken. Ritzau
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækurób. Sparireikningar 2-3 Ib
3ja mán.uppsögn 2,5-3 Allir
nema
Bb
6mán. uppsögn 3,5-4 Ib.Sb
12mán.uppsögn 4-5 Íb
18mán. uppsögn 10 Íb
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Bb
Sértékkareikningar Innlán verðtryggð 2-3 Ib
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán. uppsögn 2,5-3,0 Allir
Innlán með sérkjörum Innlángengistryggð 3-3,25 nema Ib Ib
Bandaríkjadalir 6,5-7 Íb
Sterlingspund 12,25-12,5 ib.Bb
Vestur-þýsk mork 7-7,1
Danskar krónur 8,5-8,8 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennirvíxlar(forv.) 12,25-13,75 Bb.Sp
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 12,5-14,25 Ib
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 15,5-17,5 Bb
. Skuldabréf Útlán til framleiðslu 7,75-8,75 Lb.Sb
isl. krónur 12,25-13,75 Lb.Sb
SDR 10,5-11,0 Lb.Sb
Bandaríkjadalir 9,5-10 Lb.SB
Sterlingspund 15,25-15,5 Lb.Sb
Vestur-þýsk mörk 10-10,2 Allir
nema
Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 4,0 5-9 Sp
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. nóv. 90 Verðtr. nóv. 90 12,7 8,2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2938 stig
Lánskjaravisitala des. 2952 stig
Byggingavisitala nóv. 557 stig
Byggingavísitala nóv. 174,1 stig
Framfærsluvisitala nóv. 148,2 stig
Húsaleiguvísitala óbreytt l.okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5.186
Einingabréf 2 2,813
Einingabréf 3 3,412
Skammtímabréf 1,744 —
Auðlindarbréf 1.007
Kjarabréf 5,136
Markbréf 2,730
Tekjubréf 2,029
Skyndibréf 1,527
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,491
Sjóðsbréf 2 1.775
Sjóðsbréf 3 1,732
Sjóðsbréf 4 1.490
Sjóðsbréf 5 1,044
Vaxtarbréf 1.7590
Valbréf 1,6500
Islandsbréf 1.079
Fjórðungsbréf 1,053
Þingbréf 1,078
Öndvegisbréf 1,070
Sýslubréf 1,084
Reiðubréf 1.061
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv •
Sjóvá-Almennar hf. 688 kr.
Eimskip 572 kr.
Flugleiðir 245 kr.
Hampiðjan 180 kr.
Hlutabréfasjóður 181 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 189 kr.
Eignfél. Alþýðub. 142 kr.
Skagstrendingur hf. 420 kr.
Islandsbanki hf. 180 kr.
Eignfél. Verslunarb. 140 kr.
Olíufélagið hf. 630 kr.
Grandi hf. 225 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
Skeljiytgur hf. 667 kr.
Ármannsfell hf. 240 kr.
Útgerðarfélag Ak. 330 kr.
Olís 204 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og vit
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðj
aðila, er miðað við sérstakt kaupgeng
kge.
Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinr
lb = Islandsbanki Lb= Landsbankinr
Sb-Samvinnubankinn, Sp = Sparisjót
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaí
inn birtast i DV á fimmtudögum.