Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Page 10
10
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990.
Myndbönd
Það eru eins og fyrri daginn tals-
verðar sviptingar á listanum. Sean
Connery í hlutverki kafbátsfor-
ingja í leitinni að Rauða október
tekur forystuna. Fast á hæla hon-
um fylgir Tom Selleck. í hlutverki
sakleysingjans í An Innocent Man.
Born on the Fourth of July hrapar
niður í íjórða sæti en hún á örugg-
lega eftir að vera talsvert lengiinni
á listanum enn. Úrvalsmyndin Ste-
el Magnolias er nú komin út á
myndbandi og kemur inn á listann
í sjötta sæti. Gamanmyndin Dow-
ntown er ennfremur ný á listanum
en annað er kunnuglegt.
DV-listinn
1 (2) Hunt for Red October
2 (4) An Innocent Man
3 (1) Born on the Fourth of July
4 (3) See no Evil, Hear no Evil
5 (5) Ski Patrol
6 (-) Steel Magnolias
7 (7) Sea of Love
8 (6) Harlem Nights
9 (8) l’m Gonna Get You Sucka
10 (-) Downtown
irk'A
Haltu mér, slepptu mér
SEE YOU IN THE MORNING
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Alan J. Pakula.
Aóalhlutverk: Jeft Bridges, Alice Krige
og Farrah Fawcett.
Bandarísk, 1989 -sýningartimi 119 mín.
Leyfó öllum aldurshópum.
Nafn Alan J. Pakula hefur hingað
til verið gæðastimpill á kvikmyndir
og svo er enn þótt See You in the
Morning teljist ekki til hans betri
mynda. Á farsælum leikstjórnar-
ferli hefur hann leikstýrt myndum
á borð við All the President’s Men,
Klute. Comes a Horseman og Sop-
hies Choice.
See You in the Morning er mjög
í anda Pakula. Hér fæst hann á
snyrtilegan hátt við vandamál sem
tengjast skilnaði og dauða. Ekkert
er verið að hlífa áhorfendum í byij-
un. í fyrsta atriði myndarinnar til-
kynnir Jo eiginmanni sínum,
Larry Livingstone, að hún vilji
skilnað. í næsta atriði fylgjumst við
með Beth og hennar íjölskyldu.
Maður hennar, sem er frægur
píanóleikari, fremur sjálfsmorð.
Leiðir Larry og Beth liggja saman
í gegnum sameiginlega vini og tak-
ast ástir með þeim, en fortíðin er
sterk í þeim báðum og því verður
sambúðin þeim erfiður skóli.
Pakula tekst vel að sneiða fram
hjá mýmörgum hættum sem liggja
í handritinu og glæðir meira að
segja myndina vissum húmor, en
handritið sem hann skrifaði sjálfur
er veikt og er ekki laust við að per-
sónurnar verði væmnar.
Jeff Bridges og Farah Fawcett
sýna bæði góðan leik. Það er samt
Alice Krige sem á hug og hjörtu
áhorfenda og ekki að ástæðulausu.
Hún sýnir næman og áhrifamikinn
leikíerfiðuhlutverki. -HK
Neðanjarðarmorð
UNDERGROUND TERROR
Útgefandl: Bergvík
Leikstjóri: James McMalmont
Aðalhlutverk: Doc Dougherty og Lennie
Loftin
Bönnuð börnum innan 16 ára
Underground Terror fjallar um
glæpagengi sem hefur sest að í af-
kimum þar sem neðanjarðarlestir
fara um. Þar drepa þeir hvern þann
sem dirfist að koma inn á yfirráða-
svæði þeirra.
Það virðist aðeins hafa verið einn
tilgangur með mynd þessari, að
sýna nógu mikið ofbeldi. Það tekst.
Annars er það fátt í myndinni sem
gleður augað. Þó má geta þess að
einstaka sinnum minntu sviðsetn-
ingar á hina þekktu Subway en það
var aðeins sviðsetningin. -HK
Vl
Dæmdur saklaus
Útgefandi: Bergvik
Leikstjórn: Peter Yates eftir handriti
Larry Brothers
Aöalhlutverk: Tom Selleck, F. Murray
Abrahams og Laila Roblns
Bandarísk - 1990 - sýningartiml 109
mínútur
Jimmie Rainwood er heiðarlegur
amerískur flugvirki sem stritar i
sveita síns andlitis við sitt fag og
unir tiltölulega glaður við sitt
ásamt sinni heittelskuðu. En Adam
er aldrei mjög lengi í paradís og
allra síst í bíó. Spilltar löggur í leit
að eiturlyfjum fara húsavillt og
taka Jimmy fastan og ákæra hann
fyrir smygl og sölu á dópi. Sönnun-
argögnum er plantað um allt hús,
Jimmy særist í skotbardaga við
löggurnar og áður en hann nær að
segja George Washington er búið
að loka hann inni með rösklega 20
ára fangelsisdóm á bakinu.
Nú eru góð ráð vissulega dýr.
I [ , I
VI / \ i\
K'ÖSW. fWrti x« PWTXÍRS :V L' SAitMíCm;
* !TB! UTS5 f'n UUKX JfiMXi*" W Y f B5M* «$MkUI ft0e»6
•*m i> eicft x fM>ai=.a: Cí-fe&M' «i. hacks
ÍHWtw !:««* Swff «>.*»» rntrí> UW 6ÍCTXÍ X.*MniTE5 Tfll vt, f08:v».cafll
fyg txxvtimun.m
Sláreo v
Hvernig á heiðarlegur flugvirki að
komast af í samfélagi glæpamann-
anna innan múranna þar sem
★★
Saklaus skreytni
WHITE LIES
Útgefandi: Kvikmynd
Leikstjóri: Anson Williams eftir handriti
Jane Hirsch og Lynn Roth
Aðalhlutverk: Ann Jillian og Tim Mathe-
son
Bandarísk - 1988
Sýningartimi 90 mínútur - leyfð fyrir
alia aldurshópa
Rómaborg er afar rómantískur
staður og þar er auðvelt að verða
ástfanginn upp fyrir haus eða
lengra. Það er nákvæmlega það
sem hendir Harry og Liz. Þau hitt-
ast í sumarfríi í Róm og verða
Wtafl’s a jiívr affsir viiitiáit ,i few... vvhilo fe?!
óskaplega hrifin. í kjölfarið þarf
áhorfandi að þola langar senur þar
sem þau vafra hönd í hönd með
þekkta túristastaði í baksýn og
horfa þýðingarmiklu augnaráði
hvort á annað.
Harry er sjúkraliði á stóru
sjúkrahúsi en Liz er framkvæmda-
stjóri og eigandi lítillar fyrirtækj-
akeðju. Þetta er það sem þau segja
hvort öðru en sannleikurinn er sá
að Harry er hjartaskurðlæknir en
Liz er í rannsóknarlögreglunni.
Þegar heim kemur þarf Liz að elt-
ast við frægan gimsteinaræningja
sem liggur einmitt á spítala. Þar
hittir hún óhjákvæmilega Harry
og þá er að vita hvort blekkingin
getur gengið.
Þetta er ósköp meinlaus farsi í
hefðbundnum stíl sem er alveg
hægt að hafa gaman af þó góðan
vilja þurfi á köflum. Hér eru sæmi-
legir leikarar á ferð og þokkalega
fagmannleg vinnubrögð við gerð
myndarinnar. Gallinn er sá að
vegna ofuráherslu á grín og gaman
verður ástin út undan. Samband
Harry og Liz, sem á að vera stóra
ástin í lffi beggja, verður aldrei
ástríðufyllra en svo aö vel hefði
sómt sér í bók eftir Jennu og Hreið-
ar. i .ljósi þess að konur skrifa
handritið er ótrúleg mikil kvenfyr-
irlitning í viðhorfi til persónanna.
En það er kannski ósanngjarnt að
gera of iniklar kröfur til iðnaðar-
framleiðslu af þessu tagi.
Þaö eru margir sem spá þvi að á
næsta ári verði aukning á útgáfú á
myndböngum sem eihgöngu veröa
til sölu. Til þessa hefur það aðallega
veríð fræðsluefni sem þannig hefur
verið nieðhöndlað ásamt efni fyrir
börn. En bráðlega verða gefnar út
klassískar kvikmyndir sem ein-
göngu eru ætlaðar til sölu.
Fyrir stuttu komu á markaðinn
fimm barnaspólur sem eru aðeins
til sölu. Eru þetta spólur með ævin-
týrum Ástríks og Lukku Láka.
Þrjár eru með Ástriki og heita þær
Ástríkur og Kleópatra, Astríkur og
þrautirnar 12 og Ástríkur galvaski.
Lukku Láka spólurnar eru tvær
Lukku Láki og hefnd Dalton-.
bræðra og Lukku Láki í Fagurfífla-
borg.
Nú er það svo að Ástríkur hefur
ávaUt verið í uppáhaldi hjá undir-
rituðum og tel ég að þar sé á ferð- þannig að ekki er víst að öllum liki.
inni einhver best heppnaða teikni- Ég var því ekki hissa að ég skyldi
myndaserían þótt vitanlega sé hún skemmta mér vel yfir Ástríki og
r7...c«T TM*
hans kostulegu fólögum. Lukku
Láka hef ég aftur á móti lítið kann-
að og það kom mér á óvart hversu
húmorinn í þessum myndaflokki
er skemmtilegur.
Það er óhætt að segja að þarna
er á ferðinni sérstaklega vel heppn-
uð útgáfa. Þa.ð sem gerir myndirn-
ar góöar er ekki aðeins að persón-
urnar eru skemmtilegar heldur
einnig hversu vel hefur tekist til
að tala inn íslenskuna fyrir þær.
Leiklesturinn er undir stjórn
Þórhalls Sigurðssonar (Ladda) og
hefur hann sér til aðstoðar úrvals
raddir þeirra Sigurðar Siguijóns-
sonar, Magnúsar Ólafssonar og
Erlu Rutar Harðardóttur. Og það
er ekki svo lítö þeim að þakka hve
vel hefur tekist til með útgáfu þessa
sem sæmir sér vel í jólapökkum til
barnanna. -HK
frumskógalögmálið gildir? Lífstíð-
arfangi, Virgil að nafni, vingast við
Jimmy og hjálpar honum að kom-
ast af án þess að tapa glórunni eða
lífinu. En Jimmy er efst í huga að
réttlætið nái fram að ganga og að
hann nái fram hefndum.
Þetta gæti verið dæmigerð hetju-
mynd með blossandi skotbardög-
um og tilheyrandi glæfraatriðum.
Hún er það hins vegar alls ekki.
Leikstjórinn Yates er hér að velta
fyrir sér spurningum um rétt og
rangt um siðferðisreglur samfé-
lagsins og hvar þeim sleppir og
frumskógalögmálið tekur við.
Tom Selleck er ágætur leikari og
skilar sínu hlutverki með prýði.
Fangelsissenurnar eru margar
hverjar mjög eftirminnilegar. Leik-
stjómin er öguð og markviss og
þrátt við klénan endi er athygli
áhorfandans óskipt nær allan tím-
ann. -Pá
Legið á
gægjum
LOVE AND MURDER
Útgefandi: Kvikmynd
Leikstjórn: Steven Hilliard Stern
Aóalhlutverk: Todd Waring, Kathleen
Lasky, Roon White og Wayne Robson
Amerisk - 1988
Bönnuð börnum innan 12 ára
Aðalpersónan í þessu drama er
ungur ljósmyndari sem býr í
subbulegri blokk í New York. í
húsinu beint á móti búa eingöngu
ungar ógiftar stúlkur og Hal stund-
ar það að gægjast á þær gegnum
myndavél og taka myndir af þeim
við gluggann. Auk þess rekur hann
hjónabandsmiðlun og tekur mynd-
ir í brúðkaupum.
Þau tíðindi gerast helst að morð-
ingi leikur lausum hala í hverflnu.
Tvær smámellur hafa þegar verið
drepnar þegar Hal garmurinn nær
mynd af þriðja fórnarlambinu í
þann mund sem því er hent út um
glugga. Morðinginn hringir más-
andi í Hal og segir að hann sé næst-
ur.
Þetta er óumdeilanlega vond
mynd. Hvergi vottar fyrir frum-
legri hugmynd og handritið er ein
hrúga af lausum endum. Persón-
urnar eru flestar illa skapaðar og
ótrúverðugar. Það versta er þó
leikararnir. Ekki veit ég hvar þeir
hafa verið dregnir upp en það hefur
ekki verið í leiklistarskóla. Metn-
aðarleysið við gerð myndarinnar
er algjört.
Má þá hafa eitthvað gaman af
þessu? Nokkrar senur eru nokkuð
laglega gerðar og hægt að glotta að
fyndnum tilsvörum á stöku stað.
En í meginatriðum hlýtur svarið
að verða: nei, það er ekki hægt að
hafa nema mjög takmarkað gaman
af þessu.