Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Side 16
16
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990.
Reykjavík fyrr og nú
Ættstórir smiðir og
kaupmenn í Bankastræti
Flestir Reykvíkingar muna vel þá
götumynd sem hér er rifjuð upp af
horni Bankastrætis og Skólavörðu-
stígs en eldri myndin var tekin árla
morguns í júlímánuði árið 1962.
Stóra timburhúsið fyrir miðri mynd-
inni og timburhúsið, sern sést í lengst
til vinstri, heyra nú sögunni til en í
þeirra stað er risið íjögurra hæða
steinhús á horninu. Að öðru leyti er
umiiverfi myndanna óbreytt.
Miskunnsami sam-
verjinn í Miðbýli
Stóra timburhúsið er Bankastræti
14, byggt skömmu fyrir síöustu alda-
mót í landi Miðbýlis en sá bær reis
um 1840 og stóð nokkru ofar í lóð-
inni. í Miðbýli bjó Skafti Skaftason,
járnsmiður og bæjarfulltrúi, sem þó
var þekktastur fyrir læknisgáfu sína
og líknarstörf. Hvað svo rammt að
læknislist þessa ófaglæröa en áhuga-
sama læknis að hann var skipaður
aðstoðarmaður landlæknis og var
ugglaust vel að því kominn.
Halldór Laxness greinir frá því að
Skafti hafi haldið sjúkrahús á heimili
sínu og sinnt þar alls konar sjúkling-
um endurgjaldslaust, einkum þó
þeim sem bágast voru staddir.
Ömmusystir Halldórs, Guðrún
Klængsdóttir, var ráðskona hjá
Skafta eftir aö húsmóðirin féll frá en
ílest bendir til þess aö líknarlund sú
er einke'nndi heimilishaldið í Brekk-
ukoti eigi sér þessa fyrirmynd.
Sveinn Sveinsson
trésmiður
Skafti lést 1869 en Miðbýli, sem
einnig var nefnt Skaftabær, var rifið
um 1890.
Skömmu áður hafði Sveinn Sveins-
Gunnar R. Olafsson.
son trésmiður keypt bæinn og lóðina
en hann byggði á horninu húsiö
Bankastræti 14. Sveinn var um skeið
formaður Trésmiðafélagsins og í
hópi atkvæðamestu húsasmiða bæj-
arins á sinni tíð. Hann byggð m.a.
upp á skólasetrinu í Ólafsdal og á
Hvanneyri en meðal húsa eftir hann
í Reykjavík má nefna íbúðarhús Jóns
Baldvins og Bryndísar Schram á
Vesturgötunni og Staðastaö, eitt feg-
ursta húsið við Sóleyjargötu. Þaö hús
byggði Sveinn fyrir systur sína og
mág, Elísabetu og Björn Jónsson ráð-
herra, foreldra Sveins forseta. Kristj-
án Eldjárn forseti átti það hús um
skeið en þar er nú Reykvísk endur-
trygging.
Bróðir Sveins smiðs var Hallgrím-
ur biskup en hálfsystir þeirra var
Sigríður, móðir Haraldar Níelssonar
prófessors. Voru þau böm Sveins
Níelssonar, prófasts á Staðastað.
Eftir að Sveinn byggði í Banka-
strætinu bjó hann þar til dauðadags
en hann lést úr spænsku veikinni
1918. Tvær dætur hans komust til
fullorðinsára. Önnur þeirra var Guð-
rún Metta, kona Siguröar Jónssonar,
prests í Lundi í Lundarreykjadal, og
móðir Ágústs, dönskukennara og
- Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar
Umsjón:
Kjartan Gunnar
Kjartansson
fyrsta skólastjóra Námsflokka
Reykjavíkur. Hin dóttirin var Hanna
er ætíð bjó að Bankastræti 14, kona
Jóns Zoéga, smiðs og kaupmanns.
Verslanir í
Bankastræti 14
Jón byggði kvistina á húsið að vest-
anverðu og hann verslaði á jarð-
hæðinni austan megin með járn- og
byggingarvörur. Þá seldi Jón lengi
jólatré fyrir jólin og flugelda fyrir
áramót. Jón Zoéga lést á besta aídri
árið 1927 en eftir hann var Jóhann
Ármann úrsmiður með verslun í.
austurhluta jarðhæðarinnar. Fyrir
miðri jarðhæðinni var hannyrða-
verslun Unnar Ólafsdóttur sem var
systir Ásbjörns stórkaupmanns en í
vesturendanum var um áratuga-
skeið Litla blómabúðin í eigu Jó-
hönnu Zoéga, systur Jóns. Þá var
Valgeir Kristjánsson klæðskeri með
saumastofu í húsinu í fjölda ára en
hann var bróðir Eggerts stórkaup-
manns. í fjölda ára var svo Hattabúð-
in til húsa í austurhluta jarðhæðar-
innar.
Sveinn Zoéga
Fyrir stríð var sund á milli Banka-
strætis 14 og Bankastrætis 12 en eftir
að byggt hafði verið yfir sundið var
Sveinn, sonur Jóns Zoega, með
rjómaíssölu þar á stríðsárunum og
má vel vera að það sé fyrsta ísbúðin
í Reykjavík. Sveinn rak einnig skó-
verslunina Skóinn í húsinu á stríðs-
árunum. Hann var annars forstjóri
Hjólbarðans hf. og síðan Gúmmís hf.
og loks framkvæmdastjóri Rúg-
brauðsgerðarinnar hf.
Sveinn lést á þessu ári, sjötíu og
sex ára aö aldri, en ekkja hans, Sig-
ríður Jónsdóttir, dóttir Jóns Brynj-
ólfssonar, kaupmanns í Austur-
stræti, og Guðrúnar Jósefsdóttur,
býr enn á þessum stað í nýja húsinu.
Böm Sveins og Sigríðar eru Hanna,
húsmóöir í Garðabæ; Jón Gunnar
hrl.; Anna Sigríður, hjúkrunarfræð-
DV-mynd Gunnar V. Andrésson
ingur á Seltjarnarnesi, og Nanna
Guðrún, húsmóðir í Garðabæ.
Sögufrægt
norðausturhorn
Þegar gamla'húsið var rifið árið
1971 myndaðist útsýni upp Skóla-
vörðustíg að Hallgrímskirkju frá
horni Bankastrætis og Ingólfsstræt-
is. Þetta nýja sjónarhorn varð kveikj-
an að miklum blaðaskrifum þar sem
því var mótmælt að norðausturhorn
nýja hússins yrði til þess að byrgja
aftur fyrir þetta sjónarhorn.
Veigamikil mótrök gegn þessari
kröfu felast í þeirri staðreynd að
skörp horn og krappar beygjur eru
einmitt eitt af aðalsmerkjum gamalla
borgarhverfa.
En Sveinn Zoega kaus að verða við
þeim óskum sem fram komu í blaöa-
skrifunum og lét færa húsið í suð-
ur, þó svo að búið væri að steypa
undirstöðu nýja hússins. Þannig var
svo nýja húsið byggt árið 1972 og því
geta Reykvíkingar nú horft á Hall-
grímskirkju þó að þeir standi í
Bankastrætinu.
ér nýja bœklinginn í nœstu matvörubúð
■P'f/ \ i, ■ Tsm Á-.ý 1
gjp'* ■>/ ^(\ •'‘f.
- ftLt _!
f L