Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Page 37
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990.
49
og gefið vísbendingu og lögreglubíll
beið í nágrenninu því þjófabjallan í
bankanum beint á móti hafði farið
að hringja að ástæðulausu.
Grunið þið líka Otto Möller um að
hcifa reynt að ræna banka? spurði
hún.
Harald var ekki einu sinni hissa á
því að hún skyldi þekkja nafnið.
Nei, þetta voru samverkandi aðstæð-
ur. Möller kom að gistihúsinu meðan
vart varð þverfótað á Vestergade fyr-
ir lögregluþjónum vegna hávaðans í
þjófabjöllunni. Dyravörðurinn hljóp
út á götu til að sjá hvað væri um að
vera en konan viö skipiborðið sat
kyrr á sínum stað og sá Möller koma
og fara. Svo var hringt til okkar og
sagt að maður hefði verið skotinn á
Nordengistihúsinu. En nú er komið
að mér að spyrja... hvað er það sem
fékk þig til að koma hingað?
Mig langar til aö ræöa viö Möller
um leið og þið hafiö handtekið hann.
Harald var í jólaskapi af því hann
taldi aö málið yrði upplýst eftir
skamman tima. Hringdu til mín á
lögreglustööina á morgun. Þá verð-
um við búnir að handtaka náungann.
Á Þorláksmessukvöld lauk jóla-
undirbúningi ungfrú Abilgraa með
börnunum og þeim foreldrum sem
komiö gátu. Vinkona hennar tók
Mikkel að sér og ungfrú Abilgraa var
komin á lögreglustöðina klukkan eitt
eftir hádegi.
Möller var eins öskugrár i framan
og veggfóðrið. Skærliti vasaklútur-
inn, sem var vanur að standa upp
úr brjóstvasanum, lafði niður úr
honum eins og visið blóm. Harald
líktist gæslumanni réttlætisins þar
sem hann stóð hjá honum og gaf
honum leyfi til að fara á ný með skýr-
ingu hans á handtökunni.
Það er rétt að ég var í gistihúsinu
síðdegis í gær, muldraði hann þegar
ungfrú Abilgraa hafði fullvissað
hann um að Mikkel væri í góðum
höndum. Ég ætlaði að ræða við Brian
um dálítið en hann svaraði ekki þeg-
ar ég bankaði á hurðina. Þá tók ég í
handfangið og það reyndist ekki vera
læst. Mér brá afar mikið þegar ég sá
að hann lá dauður á gólfinu...
Tókstu á nokkru öðru en hand-
fariginu? spuröi Harald.
Nei... jú, það er að segja... ég lok-
aði glugganum svo enginn gæti séð
mig. Ég fór líka fram í baðherbergi
til að fá mér vatnssopa...
Hvers vegna fórstu ekki strax nið-
ur til dyravarðarins og sagðir honum
frá því sem gerst haföi?
Ég var alveg utan við mig. Og úti
,á götunni var heill her af vesaling-
um ... æ... lögregluþjónum því ein-
hver hafði reynt að ræna bankann
handan við götuna. Ég hlustaði á þá
um stund meðan ég var að ná mér,
drengurinn minn var jú aleinn
heima og ég get lagt æruna að veði
að ég var á leiðinni til að gefa mig
fram þegar ég var handtekinn í
morgun.
Hver var verjandi þinn síðast þegar
þú lentir í vandræðum? spurði
ungfrú Abilgraa.
Bo Nyberg lögfræðingur... en ég
veit ekki hvort hann...
Þér verður skipaður verjandi, sagði
Harald og leit hvasst á frænku sína.
Svo er þetta víst búið aö standa nógu
lengi!
Nyborg lögfræðingur var lágvax-
ínn, íþróttamannslegur maður með
hvítar tennur sem hann lét skína í
þegar hann brosti og augun voru
skærblá en köld. Það var eins og þau
brostu aldrei meö öðrum hlutum
andlitsins. Á gólfinu á skrifstofu
hana voru þykk teppi og á veggjun-
um héngu dýr málverk. Á bak við
glerhuröir í veggskáp voru þungir
silfurbikarar og báru með sér aö eig-
andi þeirra var meistari í ýmsum
íþróttagreinum.
Við erum einmitt að fara að loka
skrifstofunni fyrir jólin, sagði hann
þégar ungfrú Abilgraa hafði fengið
að heyra hjá einkaritaranum að lög-
fræðingurinn væri á áríðandi fundi.
Já, við vorum einnig að loka barna-
heimilinu mínu í dag en dálítið
skelfilegt hefur gerst, sagði hún og
lét sig falla á stól sem ætlaður var
viöskiptavinunum.
Nyborg hnyklaði brýrnar. Hvað er
það, frú... ?
Ungfrú. Ungfrú Abilgraa. Það er
vegna Brians Holm sem var skotinn
í gær. Mig langar til að biöja þig að
verja þann sem ákærður hefur verið
fyrir morðið á honum.
ísköld, blá augun herptust saman.
„Hefur einhver verið handtekinn?"
Lögreglan heldur því fram að sá
seki sé Otto Möller, einn af þeim sem
sátu með honum i fangelsinu eins og
þú manst ábyggilega eftir. Þú varst
víst verjandi þeirra beggja.
Nú brosti Nyborg aftur.
Kæra frú... ungfrú Abilgra-
a... jafnvel réttlætið verður að virða
jólahelgina. Hvað segirðu um að við
hittumst aftur eftir áramótin?
Brian Holm var illa flæktur i af-
brot, sagði hún ákveöin. Nafn hans
tengist ráninu í Iðnaðarbankanum.
Lögfræðingurinn ræskti sig. Já,
einmitt. Otto Möller getur hafa heim-
sótt Brian Holm til að reyna að
þvinga hann til að gefa sig fram
vegna bankaránsins og síðan hefur
komið til átaka milli mannanna
tveggja. Holm hefur orðið bálreiður,
það hefur komið til handalögmála og
síðan hefur skotið hlaupið af fyrir
slysni. Möller er hetja. Hann hefur
flett ofan af bankaræningja, réttlæt-
iskennd kviðdómenda og almenn-
ings krefst vægs dóms, ef til vill að-
eins skilorðsbundins.
Ungfrú Abilgraa klappaði saman
höndunum. Nyborg lögfræðingur.
Þú ert á við jólasveininn! Þúsund
þakkir. Þannig á verjandi einmitt að
taka á málunum.
Nyborg leit á úrið si'tt. En nú verð-
urðu aö hafa mig afsakaöan. Það er
jólamatur hjá okkur hér á skrifstof-
unni í hádeginu.
Hún stóð á fætur um leið og hann.
Þótt það séu að koma jól er fundur
á lögreglustöðinni í fyrramálið áður
en lögbundið réttarhald fer fram.
Geturðu komið á skrifstofu frænda
míns klukkan tíu?
Frænda þíns? Já, einmitt. Ég skal
koma.
Otto Möller var ekki sérstaklega
glaður yfir því að fá heimsókn í mót-
tökuherberginu, jafnvel þótt ungfrú
Abilgraa kæmi með jólaköku og kaffi
á hitabrúsa. Ég var búinn að biðja
þig um aö blanda mér ekki í málið,
sagði hann ergilega.
Já, en þrátt fyrir þaö fórstu til
Nordengistihússins og það áður en
ég komst þangaö sjálf. Svo ,fór allt
úr böndunum. Vertu ánægður yfir
því að ég skuh vera búin að fá verj-
anda fyrir þig.
Hver er það? spurði hann fullur
grunsemda.
Bo Nyborg. Drekktu nú kaffið þitt
og borðaðu jólakökuna meðan þú
gefur mér skýringu á því hvers vegna
þú fórst þangað.
Möller leit út eins og hann væri
þegar komin í röndóttan fangabún-
ing og meö lóð hlekkjuö við fæturna.
Þegar hann hafði verið kominn heim
með Mikkel hafði hann fengið undar-
lega símhringingu. Einhver maður
sem gat ekki nafns síns sagði honum
frá því að Brian Holm vildi ræða við
hann nákvæmlega klukkan fimm.
Hann hafði því lagt af stað; farið inn
í gistihúsið og bankað á hurð-
ina... og þá lá Brian á gólfinu,
steindauður.
Hvað gerðirðu svo? Lýstu því ná-
kvæmlega.
Ég er búinn að segja það. Ég hall-
aöi mér út um gluggann til að fá mér
ferskt Íoft en -gekk svo fram í bað-
herbergið og fékk mér vatnssopa.
Svo fór ég heim og var ekki farinn
að hreyfa mig þegar þeir komu morg-
uninn eftir og sóttu mig.
Ungfrú Abilgraa andvarpáði. Þú
hefur farið aulalega að, Otto Möller,
en þú ert faðir Mikkels og það er
aðfangadagskvöld á morgun. Áttu
nokkra peninga til að kaupa gjafir
handa honum fyrir?
Á aðfangadag klukkan tíu hitti hpn
á ný Nyborg lögfræðing á skrifstofu
Haralds. Dyravöröurinn frá gistihús-
inu var þar líka og Möiler sat á stól
úti í horni en við hliö hans stóð lög-
regluþjónn.
Eg var búinn að lofa frænku minni
því að hún fengi orðið því hún hefur
fengiö athyglisverðar upplýsingar
sem varpa nýju ljósi á máliö, sagði
Harald í upphafi.
Ungfrú Ábilgraa opnaði stóru
handtöskuna sína og tók fram skál
með piparhnetum. Fáið ykkur endi-
lega af þeim meðan ég tala því þetta
er dagur þegar allir eiga annríkt,
sagði hún og byrjaði.
Kúlunni sem varð honum að bana
var skotið úr mikilli fjarlægð, ég fékk
nefnilega spennandi hugmynd þegar
faðir Mikkels sagði mér frá því að
hann hefði hallað sér út um gluggann
áður en hann lokaði honum. Hann
var því opinn þegar morðiö var fram-
ið!
Nyborg brosti svo skein i tennurn-
ar en augum voru jafnköld og áður.
Ég sé ekki beinlínis hvaö það táknar,
sagði hann.
En það gerir hún frænka mín, sagði
Harald. Haltu áfram.
Hvað gerðist fáeinum mínútum
áður en Möller gekk inn í gistihús-
herbergið? Jú, þjófabjallan í bankan-
um á horninu á móti fór að hringja.
Brian Holm opnaði gluggann og í
húsinu á móti sat morðingi hans og
skaut hann með rifili. Skothvellur-
inn heyrðist ekki vegna umferöar-
innar og skarkalaiib a Vestergade.
Nú brosti Nyborg ánægjulega.
Þetta var skjótfengin ályktun en hef-
ur þó vart mikið gildi í réttarsal.
Ég fékk líka aðra skyndilega hug-
mynd þegar ég sá bikarana á fínu
skrifstofunni þinni, Nyborg. Þú varst
meðal annars Danmerkurmeistari í
skotfimi af löngu færi fyrir þremur
árum. Ég get mér til um að þú lifir
af því að kúga fé af viðskiptavinun-
um sem þú færö sýknaða fyrir rétti.
Brian Holm var einn þeirra. Það
gengur um það orðrómur að hann
hafi framið rániö í Iðnaðarbankan-
um og sá orðrómur barst þér til
eyrna. Þá var sem jörðin logaði und-
ir fótum þér. Hvaö ef hann yrði hand-
tekinn og játaöi allt...
Nyborg stóð á fætur. Það gleður
mig aö geta skýrt réttinum frá því
að rannsóknarlögreglan er byrjuð að
taka gamlar frænkur í þjónustu sína
við rannsókn sakamála. Takk fyrir í
dag og gleðileg jól.
Sestu og þegiðu! sagði Harald skip-
andi röddu.
Þótt undarlegt megi virðast höíðu
orð hans áhrif svo ungfrú Abilgraa
gat haldið áfram. Þú fékkst dyra-
vörðinn í gistihúsinu í lið með þér
og hann sá til þess að Brian 'fékk
herbergi beint á móti íbúöinni sem
þú varst búinn að fá lánaða sérstak-
lega til aö koma áætluninni í fram-
kvæmd. Þú veist líka hvernig þjófa-
bjalla virkar. Og það varst þú sem
hringdir til Möllers og baðst hann
um að koma til gistihússins klukkan
fimm stundvíslega...
Þetta er rugl í gamalli konu, sagði
Nyborg reiðilega.
Hún heyrði til hans. Þú gleymdir
að láta mistilteininn sverja eiö, það
er mig! Ég talaði við Brian tíu mínút-
um áður en hann var skotinn. Ég
sagði honum frá nafnlausa bréfinu
og ráðlagði honum að fá sér lögfræð-
ing. Hann var taugaóstyrkur og sagði
að hann hefði einmitt séð þig í íbúð-
inni á móti. Þá hélt hann þó ekki að
hann væri í lífshættu þótt svona færi
fyrir honum.
Nyborg og dyravörðurinn skiptust
á nokkrum orðum í lágum hljóðum.
Það hafði lítið með jólin að gera. Svo
tók Harald þá í sína vörslu.
Þótt Mikkel hefði unnið möndlujöf-
ina hafði hann vart átt von á því að
eiga eftir að geta dansað í kringum
jólatré.
Eruð þið ekki bráðunm búin?
spuröi hann.
Jú, eftir augnablik, sagði Harald
og leit á frænku sína. Þú hefðir vel
getað sagt okkur að þú hefðir rætt
við Holm rétt fyrir moröið.
Hún skellti í góm og bætti svína-
kjöti á diskana þeirra. Nei, þaö var
dálítið sem mér kom fyrst til hugar
í skrifstofunni þinni! Þið megiö alls
ekki kalla konuna við skiptiborðið
sem vitni, það gæti farið svo að Ny-
borg tæki játningu sína til baka.
Harald hristi höfuðiö. Þú ert ófor-
betranleg.
Hún er búin að bjarga Mikkel og
tilveru minni, sagði herra Möller
hátíðlega.
Við tölum ekki meira um það, sagði
ungfrú Abilgraa. Nú finnst mér að
þið karlmennirnir tveir ættuð að þvo
upp meðan við Mikkel kveikjum á
jólatrénu.
Hún hlakkaði líka til að heyra
hvort Mikkel kynni allar vísurnar í
„En sú umferð og skarkali."
\
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 - 108 Reykjavík - Sími 678500
VERKSTJÓRI í HEIMAÞJÓNUSTU
Okkur vantar nú þegar verkstjóra í heimaþjónustu
aö Aflagranda 40.
Hér er um að ræða afleysingar í 8 mánuði í 100%
starfi. Starfið er fólgið í daglegum rekstri heimilis-
þjónustu og stjórnun starfsmanna. Æskilegt er því
að umsækjandi hafi góða almenna menntun og helst
einhverja reynslu í félagslegri þjónustu.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður, Sigrún
Óskarsdóttir, í síma 622571. Umsóknarfrestur er til
14. desember nk. Umsóknum skal skila til Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla .39, á
umsóknareyðublöðum sem þar fást.
LÝSANDI KROSSAR Á LEIÐI
Fást fyrir 6-12-24 eða 32 volta straum.
Sendum í póstkröfu
LJÓS & ORKA
Skeifunni 19
Sími 91-84488
AFSLATTUR AF
STURTUKLEFUM,
HREINLÆTIS- OG
BLÖNDUNARTÆKJUM
_ Opið í dag kl. 9-16
Sj? VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 - 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 - 673416