Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Page 42
54
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990.
Helgarpopp
,.. í terlínbuxum teinóttum
- Langi Seli og Skuggamir ræða nýju plötuna, Rottur og kettir
Fáar hljómsveitir hafa veitt jafn-
ferskum blæ inn í íslenskt tónlist-
arlíf hin síöari ár og Langi Seli og
Skuggarnir. Hljómsveitin hefur
skapað sér sérstöðu . fyrir rokk-
stemningar frá liðinni tíð og á fyrri
verkum fóru fjórmenningarnir í
smiðju meistara 6. áratugarins og
námu þaðan rokkabillí.
Nýlega er komin ámarkað fyrsta
fullgilda (Lp) afurð Langa Sela og
skugganna og opinberar hún efnis-
tök á breiðari grundvelli en 'fyrr.
Yrkisefnið er rokk og ról í víðasta
skilningi hugtaksins. Reyndar opn-
ast Rottur og kettir manni eins og
konfektkassi. Molarnir eru ólíkir
að lögun, gerð og innihaldi. Þeir
gína við sem freistingar og áskor-
unin um að fmna þann besta er
yfirþyrmandi. Þegar kassinn er
tómur er vonlaust að benda á
mestu gómagæluna því konfekt-
kassinn „harmónerar" sem heild
og sem slíkur var hann lostæti. Og
þar með líkur samlíkingunni á
konfektkassa og hljómplötu. í stað
vambarfylli af „gúmmelaði" er höf-
uðið fullt af fantasíum. Langi Seli
og Skuggarnir veita þeim sem vilja
meðtaka fagnaðarerindið, hlut-
deild í grátbroslegum ævintýra-
heimi texta og tóna. Rottur og kett-
ir verðskuldaði að hús væri tekið
á hljómsveitinni og þeir Seli, Stein-
grímur, Jón Skuggi og Kommi innt-
ir eftir frekari leyndardómum
hljómplötunnar sem var tæplega
hálft annað ár í smíðum.
Erbarniðtilberi?
- Hvernig sjá meðlimirnir hljóm-
sveitina fyrir sér ?
Seli: „Langi Seli og Skuggarnir
er apparat sem fór í gang í bílskúr.
Það kom að því að fyrirbærið sætti
sig ekki lengur við lífið innan
veggja bílskúrsins og þróaði sig því
upp í að verða aðeins meiri stærð.
Vöxtur hljómsveitarinnar hefur
aukið töluvert pressuna á einstakl-
ingana í bandinu, það þarf að skila
meiri vinnu inn í þetta dæmi allt."
Steingrímur: „Skemmtilegt rokk
og ról band.“
Skuggi: „Við erum hljómsveit
sem hefur gengið í gegnum súrt og
sætt. Sú þrauta- og skemmtiganga
hefur styrkt Langa Sela og skugg-
ana."
Kommi: „Ég held það ætti að lög-
leiða tvíkvæni. Konan og hljóm-
sveitin sitja báðar að manni og
hvor þeirra fær meiri tíma get ég
ómögulega sagt um.“
- Lengd vinnslutímans vekur at-
hygli.
„Já, það var vandað til verksins.
Þaö fór ekki svo lítill tími í aö forða
plötunni frá þvíað vera of “pródús-
eruð“. Það er nefnilega töluverður
vandi að fá vandaða plötu til að
hljóma hráa. Við getum sagt að á
miðju vinnsluferlinu heyrðum við
hvernig Langi Seii og Skuggarnir
myndu hljóma niðursoðnir. Það
sem við heyrðum þá var ekki það
sem við vildum. Það voru ekki
Langi Seli og Skuggarnir eins og
við þekktum þá.“
- Varð ekki til mikið af lögum á
vinnslutímanum?
„Eitthvað var um það og við not-
uðum ekki öll þau lög sem við átt-
um í pokahornin. Lögin fóru í gegn-
um hreinsunareld, viö völdum úr.
Sum hurfu þegjandi og hljóðalaust,
önnur breyttust tvisvar þrisvar og
hurfu svo.“
- Rottur og kettir er nýkomin út.
Hvernig er tilfinningin?
„Þetta er ótrúlegt barn, vpnandi
að það fái ekki eyrnabólgu. Með-
göngutíminn var afbrigðilegur og
hvort barnið er þaó líka verða aðr-
ir að dæma um. Það á eftir að koma
DV-mynd S
vinur vor á vit náttúrunnar, horfir
upp í himininn og er hólpinn.
Drengir reigið hnakkann.
Þarfskáldió
að þjást?
í Minni heimsins veltum við okk-
ur áfram upp úr náttúrunni þar
sem niðurstaðan er Já, já, já, smæð
okkar í óendanleikanum er óum-
flýjanleg. Tónlistarlega hittumst
við þarna allir á heimavelli. Breið-
holtsóðurinn er gamall og tók þessa
rökréttu stökkbreytingu eftir að
við vorum búnir að spila lagið ca
300 sinnum. Undir súð er lag átaka
og trega. ímyndin af skáldinu sem
leigir undir súð. Þarna upplifum
við einsemd hins skapandi manns
sem kveikir spurninguna; þarf
skáldið aö þjást? Ef svo er er gitar-
inn eina huggunin. Orðið víkur fyr-
ir strengjunum og listamaðurinn
leggst til hvílu með gítarinn sinn.
Lagið endar svo í dúr eftir að hafa
verið í moll. Þetta er merki um að
skáldinu var veitt lausn."
Platan er á enda, tjórmenning-
arnir taka niður lonníetturnar og
ekki er laust viö að mynd plötunn-
ar Rottur og kettir sé skýrari í huga
manns en fyrr eftir þessa grafalver-
legu og djúppældu yfirferð skapar-
anna. Þeir segjast vona að fólk
hætti að taka Langa Sela og skugg-
ana sem hreinræktaða rokkabillí-
sveit eftir að hafa hlustað á nýju
plötuna því að það sé hljómsveitin
hreint ekki. „Viö rusluðum í mús-
íkkistunni og. mátuðum hvað færi
vel. Auðvitað er rokkabillíið enn til
staðar en það er fleira en áður sem
leggst ofan á. Það er erfitt að gera
rokkabihí í dag. ímyndið ykkur að
labba út á götu og sjá ekkert nema
Mözdur og Toyotur og ætla sér svo
áð setja saman stemnigar frá 6.
áratugnum sem fialla um „Heavy
Chevy“. Það sér það hver maður
að það gengur ekki upp.“
Við erum að reyna að bæta ímynd töffarans, gera hana jákvæðari og benda á að töffarinn er ekki svo slæmur.
í ljós hvort þetta er tilberi. Að öllu
gríni slepptu þá er nafnið á plöt-
unni nokkuð symbólískt fyrir það
sem er að gerast á plötunni. Ann-
ars vegar eru mjúkir hlutir sem
hægt er að strjúka og gæla við.
Hins vegar er grimmur undirtónn
sem getur bitið.“ Hvað vill lagiö
segja? - Fjöldi instrumental laga
vekur athygli. „Það hefur loðað við
okkur alla tíð að hafa mikið af
instrumental lögum á prógramm-
inu okkar. Við höfum aldrei lagt
sérlega mikið upp úr textum og auk
þess spilar inn í að lögin verða til
á undan og þá kemur oft í ljós að
lagið stendur fullkomlega eitt og
sér og þarf ekki aðstoð orðsins.“
- Hvert er gildi textanna þar sem
þá er að finna?
„Þegar við gerum texta þá leggj-
um við okkur fram um að skilja
hvað það er sem lagiö vill segja.
Þar hefur stemningin í laginu allt
að segja. Við getum verið lengur
að semja texta en lag. Enginn okkar
er yfirburða skáld þó hver okkar
sé kannski skáld á sínu sviöi. Þegar
við komum hins vegar fiórir saman
og ætlum allir að vera skáld versn-
ar i því. Þá eru alltaf þrír í því hlut-
verki að gagnrýna og sú aðstaða
veldur oft vissu harölífi.
Metnaðurinn í hljómsveitinni
liggur í ööru en því að binda saman
orð. Orðin eru meira áhersluauki
þar sem hans er þörf. Stemningin
í lögunum er það sem öllu ræður
og meö tilliti til þessarar stemning-
ar má segja að Rottur og kettir bjóði
upp á ferðalag með upphaf og
endi.“ Þegar hér var komið sögu
gleypti geislaspilarinn „Rottur og
ketti“ og tónlistin fyllti kvisther-
begið við Hverfisgötuna. Tónlistin
sem hafði verið ær og kýr fjór-
menninganna síðustu misseri virt-
ist vekja upp góðar minningar. Þeir
skeggræddu ýmis smáatriði sem
komu og fóru án þess að leikmaöur
tæki eftir þeim. Það urðu hálfgerð
hamskipti í kvistherberginu og áð-
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
ur en blaðamaður missti af Langa
Sela og skuggunum inn í ævintýra-
heim plötunnar bað hann þá að
veita sér hlutdeild í ferðalaginu.
Þeirri bón var vel tekið.
Kafað í kött
og rotta reifuð
„Nautið og vatnið er opnunarlag
plötunnar. Kántrílag í Texas-stíl
þar sem stemningarnar bera lagið
uppi. Þaö má gjörla heyra í upphaf-
inu óhamingju nautsins sem á end-
anum kemst í tilfmningalegt upp-
nám viö það að hitta vatnið. Spurn-
ingunni um hvort hér hafi sænaut
verið á ferö látum við ósvarað.
Köttur í kadillakk er líklega ald-
ursforsetinn' í lagasmiðju Langa
Sela og skugganna en hefur breyst
mikiö í áranna rás. Einn á ísjaka
er lag eftir Steingrím. Það segir frá
hreint ótrúlegum ævintýrum, svo
fáránlegum að sjálfur Munchausen
barón hefði roðnað. Textinn fiallar
um mann sem fer beint af götunni
og á isjaka. Ef menn vilja kafa
dýpra í textann verða þeir fljótt
varir við tilvísanir í landnám ís-
lands, þegar menn sigldu í vestur-
veg og lentu í hinum ýmsu ævin-
týrum. Okkur líður vel í tímaleys-
inu sem lagið endurspeglar. Tilvís-
unin í Titanic segir okkur að hill-
ingar eru ekki fyrirbrigði sem ein-
skorðast við eyðimerkur.
í Absinta bera fræðirannsóknir
Langa Sela og skugganna árangur
og má segja að lagið sé okkar skerf-
ur til heimstónlistarinnar. Þarna
bræðum við saman fiamingótónlist
og rokkabillíi. Textinn er undir
áhrifum frá bók Hemmingway’s
„Hverjum klukkan glymur" og er
óður til borgarastyrjaldarinnar á
Spáni. Absinta er nafn á kenjóttum
drykk sem var bruggaður þar
syðra og fólkið svolgraði við gín-
andi byssukjafta. Það er rétt að
vekja athygli á harmakveini Anda-
lúsíuhundanna sem gefur laginu
sérstakt yfirbragð."
Ástarkall
kondórsins
„Frá Spáni liggur leiðin í dalverpi
í Suður-Ameríku þar sem kondór-
inn svífur yfir og segir hrú-hrú.
Með gítarnum svífur „menningin”
inn í þennan friðsama dal, það
verða átök og við fylyjum aðalbóf-
anum á flótta hans til Argentínu.
Myndin sem stemningin skilur eft-
ir sig er fiúkandi dollaraseðili sem
man sinn fífil fegurri í búnti. Doll-
araseðillinn sem fylgdi menning-
unni í dalverpið er á þvælingi
manna á milli og endar í 230% verð-
bólgu í Argentínu í höndum sjúsk-
aðrar skjækju. Já, Mammon fer
víöa.
Rabbi rotta er Reykjarvíkurlag
Langa Sela og skugganna. Við gerð-
um myndband við lagið sem skýrir
innihald þess. Hér eru á ferð átök
milli þess kvenlega og hrjúfa og
karlmannlega og mjúka. Svik er
fyrsta lagið sem við syngjum um
konu. Örlög, ást og hatur. Þetta lag
varð til með seinni skipunum nú í
haust og eitt fárra sem varð að stór-
um hluta til í hljóðveri. Við erum
heldur meiri í þessu lagi eða
kannski voru víxlarnir orðnir það
háir að við neyddumst út á þessa
braut. Alténd mælum við með því
að ungir drengir í ástarsorg hækki
og taki undir í laginu og leiti sér
þannig fróunar. Það má gjörla
heyra sálarflækjurnar túlkaðar í
gítarspili þegar söguhetjan segir
við sjálfan sig : „Ég er tuðra“. En
í stað andlegs skipbrots hverfur