Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Síða 54
f
f
I
66
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990.
ÍK
‘5T
■rt\
KJÖRBÓK
...mikilvœgur liður
íþjóðarskútuútgerð
okkar litla lands
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Afmæli
Hjörtur Hjartarson
Hjörtur Hjartarson, sóknarprestur
að Ásum í Vestur-Skaftafellssýslu,
ersextugurídag.
Starfsferill
Hjörtur fæddist í Reykjavík en ólst
upp á ísafirði. Hann lauk gagn-
fræðaprófi á ísafirði 1947, hóf síðan
prentnám í prentsmiðjunni Eddu í
Reykjavík 1949 og lauk sveinsprófi
í setningu-1953. Hjörtur stundaði
söngnám við Tónlistarskólann í
Reykjavík hjá Þorsteini Hannessyni
og síðan hjá Einari Kristjánssyni og
Sigurði Demetz. Hann var við nám
í öldungadeild MH, lauk stúdents-
prófi þaðan 1985, stundaði nám í
guðfræði við HÍ og lauk embætt-
isprófi í guöfræði 1989.
Hjörtur starfaði við prentsmiðj-
una Eddu og síðan við prentsmiðju
Tímans á árunum 1949-70,4 prent-
smiðju G. Benediktssonar 1970-72,
var framkvæmdastjóri blaðaútgáfu
SFV1972-76 og var aðalféhirðir
Ferðaskrifstofu ríkisins 1976-88.
Hjörtur var vígður að Ásum 24.6.
1990.
Hjörtur hefur ætíð haft mikinn
áhuga á söng en hann hefur sungið
með Karlakórnum Fóstbræðrum
síðan 1957. Þá var hann meðlimur í
Fjórtán fóstbræðrum og í Dóm-
kirkjukórnum undir stjórn dr. Páls
ísólfssonar.
Hjörtur var formaður Félags
ungra framsóknarmanna í Kópa-
vogi 1960-63, sat í fulltrúaráði Fram-
sóknarfélaganna í Kópavogi og sat
auk þess nokkur flokksþing. Hann
var ritstjóri æskulýðssíðu SUF um
skeið og ritstjóri kjördæmisblaða á
ísafirði og í Kópavogi. Hann sat í
bæjarstjórn Kópavogs á árunum
1974-78 og í bæjarráði og sat í stjórn
Lista- og menningarsjóðs Kópavogs
1974-82. Þá sat Hjörtur á þingi Sam-
einuðu þjóðanna 1975 og 76. Hjörtur
var formaður Félags guðfræðinema
við HÍ1988-89 og situr í stjórn ríkis-
prentsmiðjunnar Guttenberg frá
1985.
Fjölskylda
Hjörtur kvæntist 20.5.1950 Unni
Axelsdóttur, f. 31.5.1931, húsmóður
og fulltrúa í félagsmálaráðuneytinu
en hún er dóttir Axels Gunnarsson-
ar, verkamanns í Reykjavík, og
konu hans, Stefaniu Stefánsdóttur.
Börn Hjartar og Unnar eru Stef-
anía, f. 21.10.1950, húsmóðir í Hafn-
arfiröi en hún á tvö börn; Sveinn
Hjörtur, f. 15.10.1952, hagfræðingur
LÍÚ, kvæntur Sigurveigu H. Sigurð-
ardóttur og eiga þau þrjú börn; Þó-
runn Ingibjörg, f. 17.4.1958, húsmóð-
ir í Kópavogi, gift Sveini Larssyni
símsmið og eiga þau þrjú börn, og
Axel Garöar, f. 5.8.1959, deildar-
stjóri hjá Scandinaviska Enskilda
Bank í Gautaborg í Svíþjóð og á
hann tvö börn.
Systkini Hjartar: Hermann, f. 19.7.
1934, útgerðarmaður í Ólafsvík,
kvæntur Eddu Halldórsdóttur og
eiga þau tvö börn; Kolbrún, f. 19.7.
1935, kennari; Sveinn, f. 10.8.1936,
d. í janúar 1942; Finnbjörn, f. 19.10.
1937, prentari og framkvæmdastjóri
Hagprents, kvæntur Helgu Guð-
mundsdóttur og eiga þau fimm
börn; Matthías, f. 5.8.1939, búsettur
í Reykjavík; Elísabet, f. 23.9.1940,
húsmóðir í Danmörku, gift Allan
Rune tölvufræðing og eiga þau þrjú
börn, og Sveingerður, f. 2.2.1942,
húsmóðir í Mosfellsbæ, gift Guð-
mundi Einarssyni húsasmið og eiga
þau tvö börn. Hálfsystur Hjartar,
samfeðra eru Nína og Margrét
Hjartardætur.
Foreldrar Hjartar: Jón Hjörtur, f.
15.9.1909, d. 1977, prentari og söngv-
ari á ísafirði og síðar í Reykjavík,
og kona hans, Jensína Sveinsdóttir,
f. 23.11.1906, húsmóðir.
Ætt og frændgarður
Föðursystkini Hjartar eru Mar-
grét, söngkona og húsmóðir í
Reykjavík, Sigurður, múrarameist-
Hjörtur Hjartarson.
ari í Reykjavík og Ámi, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna.
Jón Hjörtur var sonur Finnbjarn-
ar, verslunarmanns á ísafirði, Her-
mannssonar, b. á Læk í Aðaldal,
Sigurðssonar, b. í Kjós og á Læk,
Sigurðssonar, b. í Þverdal, Jónsson-
ar.
Móðir Finnbjarnar var Guðrún
Finnbjörnsdóttir, b. í Sæbóli, Gests-
sonar.
Móöir Jóns Hjartar var Elísabet
Guðný Jóelsdóttir, b. á Valshamri í
Borgarfirði, Jónssonar. Móðir El-
ísabetar var Margrét Snorradóttir,
b. í Álftártungukoti á Mýrum, Árna-
sonar.
Jensína er dóttir Sveins, b. á Gilla-
stöðum í Reykhólasveit, Sveinsson-
ar frá Brjánslæk, Ólafssonar. Móöir
Jensínu var Vaigerður Bjarnadóttir,
af BeruQarðarætt, systir Eyjólfs
„bóka“áísafirði.
Símon Magnússon
Símon Magnússon húsasmiður,
Bakkahlíð 23, Akureyri, er fimm-
tugurídag.
Starfsferill
Símon fæddist að Stóru-Fellsöxl í
Skilmannahreppi og ólst þar upp.
Hann lauk prófi úr Reykholtsskóla
vorið 1958 og stundaði ýmsa vinnu,
t.d. á búi foreldra sinna og viðar.
Símon hóf nám í húsasmíði hjá Tré-
smiðjunni Akri á Akranesi haustið
1966 og lauk þaðan prófi vorið 1970.
Hann vann síðan við smíöar hjá
Trésmiðjunni Akri fram til ársins
1971 en flutti þá til Reykjavíkur og
hóf þar störf hjá Lerki hf.
Símon flutti til Akureyrar sumar-
ið 1977 og hefur starfað hjá Niður-
suðuverksmiðju K. Jónsson & Co
síðan.
Fjölskylda
Símon kvæntist 4.3.1972 Kristínu
Kristjánsdóttur, f. 15.3.1945, skrif-
stofustúlku og húsmóður, en hún
er dóttir Kristjáns Jónssonar, for-
stjóra á Akureyri, og Sigþrúðar
Helgadóttur húsmóður sem lést 24.3.
1985.
Böm Símonar og Kristínar eru
Helga María, f. 29.8.1973, nemi í
Verkmenntaskóla Akureyrar;
Magnús, f. 28.3.1976, grunnskóla-
nemi, ogMikael, f. 12.3.1982.
Systkini Símonar eru Sigurður, f.
_ 3.8.1931, bifreiðarstjóri á Akureyri,
kvæntur Ólöfu Sigursteinsdóttur og
Símon Magnússon.
eiga þau þrjá syni; Ingi Garðar, f.
30.12.1936, rafvirkjameistariá
Húsavík, kvæntur Grétu Sigfús-
dóttur og eiga þau tvö börn; Sigríð-
ur, f. 3.5.1945, skrifstofustjóri í
Reykjavík, gift Jóni Axel Egilssyni
ogeigaþautvosyni.
Foreldrar Símonar voru Magnús
Símonarson, f. 12.10.1894, d. 12.10.
1981, b. á Stóru-Fellsöxl, og kona
hans, Þórhildur Sigurðardóttir, f.
3.8.1900, d. 19.7.1986.
Foreldrar Magnúsar voru Símon
Jónsson og Sigríður Davíðsdóttir á
Iðunnarstöðum.
Foreldrar Þórhildar vom Sigurð-
ur Einarsson, b. í Rauðholti í Hjalta-
staðaþinghá, og Sigurbjörg Sigurð-
ardóttir.
Símon dvelur með konu sinni í
Amsterdam á afmælisdaginn.
Til hamingju með
afmælið 8. desember
95 ára
50 ára
Helga Jónsdóttir,
Hofteigi 18, Reykjavík.
90 ára
Guðrún Sigurgeirsdóttir,
Helluvaði 1, Skútustaðahreppi.
Ragnar Guðmundsson,
Hrauntúni 27, Vestmannaeyjum.
Sveinn Gunnarsson,
Melavegi 11, Hvammstanga.
Viggó Sigfinnsson,
Hlíðargötu25, Neskaupstaö.
María Sigursteinsdóttir,
Ljósalandi 9, Reykjavík.
Jónína Friðfinnsdóttir,
Starhólma 14, Kópavogí.
Birgir Hermannsson,
Háaleitisbraut 30, Reykjavík.
85 ára
Sigurður Stefánsson,
Norðurgötu 46, Akureyri.
Guðmundur Torfason,
Víðimel 50, Reykjavík.
40 ára
60ára
Jóhannes Þorsteinsson,
Hamrabergi 3, Reykjavík.
Guðríður Stefánsdóttir,
Reykholti, Reykholtsdalshreppi.
Ragnar Þorvaldsson,
Dvergholti 6, Mosfellsbæ.
Ástríður Eyj ólfsdóttir,
Grettisgotu 94, Reykjavík.
Gunnar Jón Hilmarsson,
Engihjalla 11, Kópavogi.
Sigurlaug Þóra Gunnarsdóttir,
Lítluhlíð 2F, Akureyri.
Matthías Páll Ma tthiasson,
Lönguhlíð 19, Akureyri.
Gunnlaugur Bjarnason,
Bröttugötu 4, Hólmavík.
Róbert Arinbjömsson,
Hrafnhólum 8, Reylqavík.
Ólöf Helga Guðmundsdóttir,
Víðimel 48, Reykjavík.
Hjálmar Viggósson,
Þangbakka 10, Reykjavík.
Anna Inga Rögnvaldsdóttir,
Kollsá, Bæjarhreppi.
Alda Norðfjörð Guðmundsdóttir
Alda Norðfjörð Guðmundsdóttir
húsmóðir, Espigerði 2, Reykjavík,
verður sextug á mánudaginn.
Fjölskylda
Alda fæddist á Neskaupstað og
ólst þar upp. Hún og maður hennar
hófu sinn búskap í Reykjavík en
fluttu vestur á ísaflörö 1952 og áttu
þar síðan sitt heimili, lengst af að
Fjarðarstræti35.
Eiginmann sinn missti Alda í sjó-
slysi 4.5.1976. Hún flutti til Reykja-
víkur vorið 1979 og hefur búið þar
síðan.
Eiginmaður Öldu var Leifur Jón-
asson, f. 3.6.1924, d. 4.5.1976, sjó-
maður.
Alda og Leifur eignuðust níu böm.
Þau eru Sigurður G. Leifsson, f. 20.1.
1950, stýrimaöur í Reykjavík,
kvæntur Önnu Jónu Arnbjöms-
dóttur húsmóður; Kolbrún, f. 14.6.
1951, kennari í Reykjavík, gift Jóni
G. Óskarssyni verkfræðingi; Svan-
hvít Leifsdóttir, f. 5.6.1952, húsmóð-
ir í Hnífsdal, gift Sævari Birgissyni
framkvæmdastjóra; Bryndís Leifs-
dóttir, f. 20.6.1953, d. 26.12.1980, var
búsett í Keflavík en sambýlismaður
hennar var Ingólfur Helgi Matthías-
son; Ómar Leifsson, f. 29.6.1954, sjó-
maður í Reykjavík en sambýliskona
hans er Hlíf Hjörleifsdóttir húsmóð-
ir; Sigurrós Sigurðardóttir, f. 3.11.
1955, húsmóðir á ísafirði, gift Frið-
riki Jóhannssyni sjómanni en hún
var ættleidd; Haraldur Leifsson, f.
21.4.1958, rafmagnstæknifræðingur
í Reykjavík en sambýliskona hans
er Rósa Björk Barkardóttir sam-
eindalíffræöingur; Hulda S. Leifs-
dóttir, f. 20.3.1960, verkakona á
ísafirði; Ágúst Leifsson, f. 13.10.
1961, trésmiður í Svíþjóð, kvæntur
Guðnýju Ævarsdóttur námsmanni.
Barnabörn Öldu og Leifs eru nú
tuttugutalsins.
Systkini Öldu: Ágúst Norðfjörð
Guðmundsson, útgerðarmaður í Se-
attle í Bandaríkjunum en hann er
látinn; Bára Norðfiörð Guðmunds-
dóttir, húsmóðir í Reykjavík; Jón
Ægir Norðfiörð Guðmundsson, tré-
smiður í Reykjavík, og Guðjón
Norðfiörð Guðmundsson, útgeröar-
maðuríSeattle.
Foreldrar Öldu voru Guðmundur
Eyjólfsson, f. 13.1.1905, d. 1967, út-
gerðarmaður í Neskaupstaö og síðar
kaupmaður í Reykjavík, og kona
hans, Sigríður Guðjónsdóttir, f. 7.1.
1912, d. 1988, húsmóðir, dóttir Guð-
Alda Norðfjörö Guðmundsdóttir.
jóns Símonarsonar, útgerðarmanns
í Neskaupstað, og Sigurveigar Sig-
urðardóttur.
Alda heldur upp á afmælið á heim-
ili sínu þann 9.12. eftir klukkan
16.00.