Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Page 21
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1991.
21
DV
Sviðsljós
Elísabet gaf Larry
andlitslyftingu í
brúðargjöf
Brúðkaup ársins þegar Larry
Fortensky gekk að eiga Elísa-
betu Taylor kostaði litlar
hundrað og tuttugu milljónir
króna. Þetta dýra brúðkaup fór
fram í einkatrjágarði Michaels
Jackson sem er umhverfis bú-
garð hans en staðurinn er met-
inn á einn milljarð og fjögur
hundruð milljónir króna. Það
var á þessum verðmæta stað
sem Elísabet Taylor varð frú í
áttunda skipti.
Þó brúðkaup stjörnunnar hafi
kostað skildinginn er ekki inn-
ifalið í þeim kostnaði lýta-
læknaaðgerðir brúðgumans
sem brúðurin greiddi. í brúð-
argjöf frá hinni nýju eiginkonu
fékk brúðguminn meðal annars
nýjar tennur, andlitslyftingu
sem var víst talin nauðsynleg,
nýja hárgreiðslu og fullan skáp
af glæsilegum fatnaði sem kost-
aði víst tíu milljónir.
Hin heimsfræga brúður þótti
afar glæsileg þennan dag og
þykir bera aldur sinn einstak-
lega vel. Elísabet verður sextug
í febrúar á næsta ári. Menn
höfðu hins vegar tekið eftir að
frúin þótti ekki líta vel út aðeins
viku fyrir hinn stóra dag. En
stjarnan virðist geta breytt út-
liti sínu eftir eigin geðþótta.
Brúðarkjólhnn var úr rjóma-
litu satíni, hannaður og saum-
aður af tískuhönnuðinum Va-
lentino.
Alls var hundrað og sextíu
manns boðið í hið stórkostlega
brúðkaup. Þar á meðal voru
fyrrverandi forsetahjón, Gerald
og Betty Ford, kyntröllið Ge-
orge Hamilton, leikkonan Shir-
ley MacLaine, söngvarinn
Frank Sinatra og eiginkonan
Barbara og leikarinn Dudley
Moore. Nokkrir ættingjar fyrr-
verandi eiginmanns, Richards
Burton, fengu einnig boðskort.
Betty Ford var sannkallaður
heiðursgestur, enda kynntust
hin nýgiftu á meðferðarstofnun
þeirri sem kennd er við hana.
Blaðamenn og ljósmyndarar
fengu ekki aðgang að brúð-
kaupinu og voru víst ekki glað-
ir með það. Michael Jackson
var með öflugan vörð við bú-
garðinn og til að koma í veg
fyrir að brúðkaupið væri mynd-
að úr lofti var útbúið þak yfir
brúðkaupið með risablöðrum
þannig að ljósmyndarar, sem
sveimuðu um í fimmtán þyrlum
fyrir ofan staðinn, sáu ekkert
og því náðist engin mynd.
Hvort hjónabandið eigi síðan
eftir að endast verður að koma
í ljós. Hjá veðbönkum í London
hafa menn veðjað um lengd
hjónabandsins og einhverjir
eiga eftir að verða ríkir ef það
endist í 25 ár.
Látum bíla ekki
vera í gangi aö óþörfu!
Utblástur bitnar verst
á börnunum
Hin hamingjusömu brúðhjón.
Brúðkaup Eiísabetar Taylor og Larry Fortensky kostaði hundrað og tutt-
ugu milljónir.
yUMFERÐAR
RÁÐ
A
CAT 438 Sería n — Ný og betri traktorsgrafa
Nú þegar CATERPILLAR hefur framleitt yfir 25.000 traktorsgröfur kynna þeir nýja og enn betri
traktorsgröfu undir heitinu Seríall
Reynslan af fyrri vélunum hefur veriö sérstaklega góö en lengi má gott bæta og Sería II
uppfyllir enn frekar þær kröfur sem gerðar eru til allra CAT véla.
Á þeim árum sem'CAT traktorsgröfur hafa verið fáanlegar hafa þær sýnt og sannað að fáar
vélar státa af meira rekstraröryggi.
Helstu breytingar: li9ura 'yrirli"iandi íélar ,H a,9rei4slu s,rax
27% stærri eldsneytistankur, 106 I.
Stærri rafgeymakassi, sem jafnframt er geymsluhólf fyrir verkfæri.
Minni snúningsradíus, framhjól hafa 25% meiri snúningsgetu.
Auðveldari aðgangur að smurkoppum, allir slitfletir smurðir.
Aukinn lokunarhraði á afturskóflu.
Aukin hljóðeinangrun, hávaðamörk aðeins 83 dBA.
Nákvæmari stjórnstangir.
Aukið vélarafl.
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500