Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Side 26
2fr
Honig-uppskriftasamkeppnin:
Tíu verðlaunaréttir
Alls bárust á þriðja hundrað uppskriftir í Honig-
uppskriftasamkeppnina. Val dómnefndar var erfitt en
eftir bragðprófun rétta stóðu eftir þrír sigurvegarar og
níu manns fengu 3.-11. verðlaun. Fyrstu verðlaun, ferð
til Amsterdam fyrir tvo með Ferðaskrifstofu Reykjavíkur,
hlaut Gísli Guðmundsson fyrir pastarétt Seláströllsins.
Önnur verðlaun, ferð til Glasgow fyrir tvo, hlutu systurn-
ar Erna og Brynhildur Agnarsdæturfyrir pasta-kjúklinga-
salat. Reyndar sögðust þær systur hafa tekið þátt í
keppninni af því að þær langaði svo til útlanda fyrir
jól.
Þriðju til tíundu verðlaun fengu Kristín Gestsdóttir,
Sigurveig Hall, Guðjón V. Reynisson, Guðrún Eysteins-
dóttir, Margrét Ásgeirsdóttir, Arndís Hilmarsdóttir, Vig-
dís, Margrét Þórðardóttir og Benedikt Ingólfsson. Þeirra
verðlaun eru kassar með Honig-vörum sem sækja má á
Aðalstöðina í Aðalstræti.
-JJ
1. verdlaun >" ,;v "'r 2. verðlaun
Pastaréttur Seláströllsins i Pasta-kj úklingasalat
fyrir 4 s. f \ • •aeB #*-’} Hif-i i fyrir 3-4
500 g spagettí eða skrúfur íw 2 bollar spirali (soðið eftir leið-
200 g beikon beiningum)
2 hvítlauksrif l kjúklingur (grillaður)
1 stór laukur 1 lítil dós ananas
'A dós perur ; * 1 rauö paprika (ffekar stór)
3 dl rjómi 100 g vínber (blá og græn) steinar
2 tsk. rjómaostur teknir úr
smátt söxuð steinselja 175 g saltaðar hnetur.
100 g rifinn maribo-ostur íSK1 - ■ Sati % v~-/,’/ M . Setjið soðiö pasta í skál. Bætið
50 g sipjör síðan í kjúklingi (tekinn af bein-
Steikiö beikonið á þurri pönnu. w^ um og skorinn í bita), papriku og
Hellið feitinni af. Brúniö laukinn hálfum vínberjum og svo söltuö-
í smjörinu. Bætið beikoni, hvít- um hnetum.
lauk (pressuöum), ijómanum og Sósa
rjómaostinum út á pönnuna. Lát- 3 msk. majones
ið safann renna af perunum sem 1 dós sýrður rjómi
eru saxaðar (smátt) og bætt út í. f Ja Ay 1 msk. sætt sinnep
Látið sjóða í 2 mínútur. Stráiö 1 tsk. karrí (meðalsterkt)
maribo-osti yfir og steinselju ... 2 msk. ananassafi
einnig. Setjið lokiö á pönnuna og m mM , ^ ~ Gott að saxa ferska steinselju
látið standa við vægan liita i 5 saman við. Sósunni má blanda
minútur. \ wBí ' ^ SHJ"^:s saman við réttinn.
Spagettí eða skrúfurnar soðnar 1 ■ MWmmSgFfa Borið fram með heitu brauði
skv. upplýsingum á umbúðum. | ■* - >■- fcá'mS Z sem smurt er með smjöri og
Sósan borin fram með því. kryddað með parmesanosti.
Þessi réttur bragðast að sjálf- Höf.: Ema Agnarsdóttir og
sögðu best með Rieslingvíni frá Við verðlaunaafhendingu á Aðalstöðinni i vikunni. Gisli Guðmundsson fékk ferð til Amsterdam fyrir pastarétt Brynhildur Agnarsdóttir.
Alsachéraöi. Seláströllsins en systurnar Erna og Brynhildur Agnarsdætur fara til Glasgow fyrir pastakjúklingasalat.
Höf.: Gísli Guðmundsson. DV-mynd Hanna
3.-11. verðlaun
„Honig“ lasagna með ýsu
handa fjórum
350-400 g ýsuflak
1 msk. sítrónusafl
1 'A tsk. salt
nýmalaður pipar
1 hálfdós niðursoðnir sveppir
50 g smjör
1 dl hveiti
1 dl mjólk
1 dl ijómi
'/. tsk. múskat
2 egg
100 g hreinn ijómaostur
1 pk. Honig lasagnablöð
4 meðalstórir tómatar
l'tsk. oregano
100 g rækjur
1 meðalstór græn paprika
Hitið bökunarofn í 210° C, blásturs-
ofn í 190° C.
Roðdragið ýsuflakið og skerið úr
því bein. Skerið flakið í þunnar ílög-
ur, hellið yfir þaö sítrónusafa og strá-
ið á það salti og pipar.
Síið sveppina, notið soðið í jafning-
inn.
Bræðið smjörið í potti, setjið hveiti
út í, þynnið síðan með l'A dl af
sveppasoði, 1 dl af mjólk og 1 dl af
rjóma. -Takiðjafninginn af hitanum
og kælið örlítið, hrærið ijómaost,
múskat og egg út í.
Rífið ostinn. Dýfið tómötum í hálfa
mínútu í sjóðandi vatn, fjarlægið
hýöið, stappið síðan tómatana með
gaffli.
Smyijið eldfast kantað fat, u.þ.b.
15-20 cm á kant. Setjið 'A af jafningn-
um á fatið og smyrjið jafnt á botninn.
Raðið lasagnablöðunum þétt yfir
jafninginn. - Setjið ýsuflakssneið-
amar jafnt yfir lasagnaplöturnar,
setjiö þá stappaða tómatana þar yfir,
síðan 'A af ostinum, síðan aftur lag
af lasagnaplötum, þá aftur 'A af jafn-
ingnum, síðan sveppi síðan aftur la-
sagnaplötur, þá það sem eftir er af
jafningnum og það sem eftir er af
ostinum.
Setjið í miðjan ofninn og bakið í 25
mínútur.
Takið stilka og steina úr papriku,
skerið smátt.
Takið fatið úr ofninum, stráið pa-
priku og rækjum yfir og berið á borð.
Höf.: Kristín Gestsdóttir.
Honig grænmetis- og ostagratín
1 pk. fussilli
1 meðalstórt blómkál
1 box nýir sveppir
1 lítil púrra
2-3 hvítlauksrif
3 msk. olífuolía
100 g gráðostur
100 g hnetu-koníaksostur
1 camenbert ostur
2-3 dl rjómi
parmesanostur
Krydd:
1 tsk. jurtasalt
'A tsk. grófmalaöur pipar
1 'A tsk. oregano
1 tsk. majoram
1 tsk. basil
Sjóðið pastað og setjið í eldfast
mót. Skeriö púrrulauk og hvítlauk
smátt og steikið í örlitlu af olíunni á
pönnu, má ekki brenna viö. Skerið
blómkál og sveppi niður. Hafið blóm-
kálið í litlum hausum og steikið með
á pönnunni í 2-3 mín. Setjið ostana
á pönnuna ásamt ijómanum og
kryddinu. Stráið parmeseanosti yfir
og bakiö réttinn í ofni í ca. 15-20
mín. þar til osturinn hefur tekið á
sig lit.
Höf.: Sigurveig Hall.
Sj ávarréttaspagettí
fyrir 5-6
250-300 g spagettí
150 g rækjur •
100 g humar
100 g hörpuskelfiskur
2 stk. egg
l .stk. gul paprika, skorin í strimla
1 stk. græn paprika, skorin í strimla
1 stk. rauð paprika, skorin í strimla
8-10 stk. sveppir, skornir gróft
1-2 msk. tómatmauk
hvítlaukur
aromat
salt og pipar
olía til steikingar
Sjóðið spagettíið í sjóðandi salt-
vatni í 8-10 mín. eða þar til það verð-
ur meyrt undir tönn. Pískið eggin
saman og steikið á pönnu, færið síð-
an á disk og kælið. Rúllið steiktu
eggjahrærunni upp og skerið í ræm-
ur.
Takið humarinn úr skelinni og
hreinsið. Steikið í olíu á pönnu ásamt
hörpuskelfiskinum.
Setjiö rækjur, sveppi og papriku-
strimla á pönnuna og steikið létt.
Setjið tómatmaukiö á pönnuna og
blandið vel saman. Bætið eggjaræm-
unum að síðustu út í. Kryddið ef
þörf er á.
Höf.: Guðjón V. Reynisson.
Rauðsprettu-appelsínupasta
fyrir 2
220 g rauðspretta, roðlaus og bein-
laus
'A laukur
'A græn paprika
1 væn appelsína
100 g hreinn rjómaostur
1 dl nýmjólk
'A tsk. salt
'A tsk. chiliduft
'A tsk. hvítlauksduft
1 msk. parmesanostur, rifinn
4 bögglar Honig Mie-núðlur
Látið lauk, papriku, appelsínukjöt-
ið, ijómaost, mjólk og krydd í „blend-
er“ og maukið. Skerið rauðsprettuna
í litla bita og blandið saman við sós-
una. Látið í smurt, eldfast mót og
bakið við 200° C í 20 mínútur. Sjóðið
núðlurnar á meðan skv. leiðbeining-
um á pakkanum. Þegar hvort tveggja
er tilbúið er öllu hrært saman, parm-
esanostinum stráð yfir og boriö fram
strax.
Höf.: Guðrún Eysteinsdóttir.
Pasta með reyktum laxi
200 g fussilli
1 stk. laukur
1 stórt hvítlauksrif
1A tsk. dill
nýmalaður svartur pipar úr kvörn
'/, tsk. fennikel
salt eftir smekk og saltmagni í laxin-
um
'/,—'A 1 rjómi
'A msk. smjör
100 g rjómaostur
100 g reyktur lax
Sjóðið fussilli samkvæmt leiðbein-
ingum á pakka. Saxið laukinn smátt
og gljáið á pönnu í olíu ásamt press-
uðum hvítlauknum. Bætið dilli og
fennikelinu út í. Setjið síðan smjör,
rjómann og rjómaostinn á pönnuna
og látið sjóða þar til sósan er orðin
sæmilega þykk. Saltiö og piprið eftir
smekk. Skerið reykta laxinn í ca 'A
cm stóra teninga og setjið út í sósuna
sem er ekki látin sjóða eftir að laxinn
er kominn út í hana.
Pastað er sett í skál og sósunni
hellt yfir.
Höf.: Margrét Ásgeirsdóttir.
Lifrarsmásteik á pastahreiðri
fyrir þrjá.
200 g spagettí
1 stk. grænmetissúputeningur
2 1 vatn
1 stk. lifur, ca 450 g
6 stórir, ferskir sveppir
2 litlir laukar
100 g beikon
3 dl mjólk
2 msk. sojasósa
'A dl púrtvín
hveiti til að velta lifur upp úr.
Sjóðið spagettíið í ca 10-20 mínútur
í vatninu, teningurinn settur út í.
Skerið lauk, beikon og sveppi í litla
bita og steikið í lítilli smjörklípu í ca
5-10 mín. og hrærið í. Takið af pönn-
unni. Himnuhreinsið lifrina, skerið
í bita eins og gúllas og veltið upp úr
hveiti og léttsteikið á pönnunni í 2
mín. á hvorri hlið. Setjið lauk, beikon
og sveppi saman við. Bætið mjólk-
inni, sojasósu og púrtvíni út í og lát-
ið suðuna koma upp.
Berið fram heitt ofan á spagettíinu.
Höf.: Arndís Hilmarsdóttir.
Saltfiskpasta
800 g saltfiskur
2 bollar núðlur
1 stór púrra
1 laukur
5 hvítlauksrif
4 gulrætur
1 rauð paprika
1 græn paprika
2 Honig teningar (fiski- eða grænmet-
iskraftur)
1 piparostur
(rjómaostur) má sleppa
vatn í sósu
ólífuolía til steikingar
Sjóðið saltfiskinn og hreinsiö. Sjóð-
ið núðlurnar og léttsteikið grænmet-
ið á pönnu. Blandið öllu saman og
gerið sósuna á pönnunni. Setjið vatn,
kraft og piparost á pönnuna og
blandið vel saman. Helliö að lokum
yfir fiskinn, núðlumar og grænmet-
ið. Ef óskað er eftir sterkari sósu má
brytja niður (smátt) pepperonipylsu
og láta út í sósuna.
Höf.: Vigdís
Kókosmakkarónur
'A bolli maccaroni
'A bolli rjómi
‘A bolli vatn
'/, tsk. salt
150 g kókosmjöl
150 g strásykur
2 egg
100 g suðusúkkulaði
25 g plöntufeiti
Sjóðir makkarónur í 13 mínútur
(eða einhverja teg. af pasta) í vatni
og rjóma. Saltið örlítið. Sigtið og setj-
ið á pappír til þerris. Setjið í bland-
ara.
Þeytið egg og sykur þangað til
blandan er ljós og létt. Bætiö út í
söxuöum makkarónum og kókos-
mjölinu. Hrærið. Búið til toppa með
teskeiðum á bökunarplötu. Bakist
við 175-200 í 15 mínútur. Deigiö næg-
ir í 25-30 kökur. Kælið. Bræðið súkk-
ulaði og plöntufeiti í vatnsbaði. Hjúp-
ið botna makkarónutoppanna.
Höf.: Margrét Þórðardóttir.
Veislupasta námsmannsins
500 g maccaroni elbow
3 msk. jurtaolía
4 smátt brytjaðar pepperonilengjur
5 niðurskornir sveppir (ekki mjög
smátt)
'A rauð paprika, brytjuð
6 fylltar olífur, skornar til helminga
100 g rifinn gráðostur
14 1 rjómi (eða mjólk ef mjög skal
spara)
salt og svartur pipar
mynta
Takið gráðostinn úr kæli 2 klst.
áður en hafist er handa. Sjóðið fyrst
makkarónurnar. Steikið sveppina í
olíunni og bragðbætið með salti og
pipar. Bætið pepperoni út á og síðast
paprikunni og ólífunum. Hellið
makkarónunum á pönnuna þegar
þær eru soðnar, þ.e.a.s ef pannan er
stór en annars er hellt af pönnunni í
pottinn. Hrærið þessu vel saman og
hellið gráðostinum saman við. Rjóm-
anum (eða mjólkinni) er hellt rólega
yfir. Saltið og piprið. Notið með þessu
myntu sem gefur góðan keim.
Höf.: Benedikt Ingólfsson