Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Side 17
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991.
17
vera glöð og brosa þegar maður
fær slæm spil á höndina.
Nú tekur mamma síðustu gjöf-
ina úr körfunni og ég get séð á
löguninni að það er bók. En auð-
vitað er hún ekki til mín. Þau
hafa orðið sammála um að gefa
mérekkibók.
En pakkinn er til mín og þegar
ég er búin að fá hann í hendurnar
sé ég strax að það er bók. Ég
roðna af gleði og bið strax í ákafa
mínum um skæri til að klippa
bandið utan af pakkanum. Ég ríf
síðan pappírinn af í skyndi og
fyrir augum mér er alveg yndis-
leg bók, ævintýrabók. Það sé ég
strax af myndinni á kápunni.
Mér flnnst allir við borðið horfa
á mig. Þau vita auðvitað að þama
er komin besta jólagjöfin mín, sú
eina sem ég er í raun glöð yfir.
- Hvaða bók er það sem þú
fékkst? spyr Daníel og hallar sér
fram til mín. Ég lít á titilblaðið
og stari og stari. Ég skil ekki eitt
einastaorð.
- Leyfðu mér að sjá! segir hann
ogfersvoaðlesa:
Nouveaux contes de fées pour
les petits enfents par Mme la
comtesse de Ségur: Ný ævintýri
um álfa fyrir smábörn eftir greif-
ynjunadeSégur.
Hann lokar bókinni og réttir
mérhanaaftur.
- Það eru ævintýri á frönsku,
segir hann. - Nú hefurðu eitthvað
til að skemmta þér við.
Ég er búin að læra frönsku í
hálft ár hjá Aline Laurell en nú,
þegar ég tek bókina og blaða í
henni, skil ég ekki eitt einsta orð.
Að fá bók á frönsku er næstum
því verra en að fá enga. Það er
erfitt að beijast við grátinn en
sem betur fer kem ég auga á
mynd á einni síðunni.
Þar sést ákaflega falleg prins-
essa aka í vagni sem er dreginn
af tveimur strútum og á bakinu
á öðrum þeirra situr lítill hirð-
sveinn með flaðraskreyttan hatt
ogí jakka með ísaumuðu skjald-
armerki. Prinsessan er í kápu
með pokaermum og pípukraga.
Strútarnir eru með stóra fjaðra-
búska á hausnum og aktygin eru
úr breiðum gullkeðjum. Það er
ekki hægt að ímynda sér neitt
fallegra.
Þegar ég held áfram að blaða
finn ég mikið af myndum af stolt-
um furstafrúm, glæsilegum
kóngum, göfugum riddurum,
brosandi álfum, hræðilegu trölla-
hyski og fallegum ævintýrahöll-
um. Það er engin ástæða til að
gráta yfir þessari bók, jafnvel
þótt hún sé á frönsku.
Alla jólanóttina ligg ég og skoða
myndirnar, einkum þær fremstu,
af strútunum. Það veitir mér
ánægju í margar klukkustundir.
Þegar við erum búin að hlýða á
predikunina á jóladagsmorgun
tek ég fram litlu frönsku mál-
fræðibókina og fer að lesa
frönsku.
Það er erfitt. Ég er jú bara búin
að læra undirstöðuatriði í
frönsku. Væri í ævintýrunum
sagt frá „litla hatti stóra manns-
ins“ eða „grænu regnhlíf góða
trésmiðsins" myndi ég skilja það
en hvernig á ég að skilja samfelld-
anfranskantexta?
Ævintýrabókin hefst þannig: II
y avait un roi. Hvað þýðir það?
Klukkutími líður þar til ég fæ
skilið að í þýðingu er það: Það
var einu sinni kóngur.
En teikningæ'nar hafa mikið
aðdráttarafl. Ég verð að komast
að því hvað þær tákna. Ég get
mér þess til og fer að leita í
frönsku orðabókinni og málfræð-
inni og kemst þannig fram úr
einni línunni eftir aðra.
Og þegar jólaleyfiö er á enda
hefur fallega litla franska bókin
kennt mér meiri frönsku en ég
hefði lært á mörgum árum með
aðferðinni hennar Aline Laurell.
Þýð.: ÁSG
STÓLAR
Eitt mesta úrval landsins af stökum
stólum - áklæði eftir vali
Opið mánudaga-laugardaga kl. 10-19,
sunnudaga kl. 13-19
Húsgagnaverslun sem kemur á óvart
GARÐSHORN Si
v/Fossvogskirkjugarð,
Húsgagnadeild símar 16541 og 40500
—Kátt erá jólunum - koma þau senn!
VerkstæÖi jóias\ anna í Kringltttttt
Nú er Kringlan komin í jólafötin
og jólasveinarnir búnir ,að opna verkstæðið slt ■
Glæsilegar jólaskreytingar og mikið úrval af jólavo
Laugardaginn 7. desember er opið til W-
Opið til kl. 19, mánudaga til föstHdflfifJ1*
Veitingastaðirnir eru opnir fram a k ^
ÍKringlunni er alltafbjart og hlýtt • Meira en 2000 bllaS!^—
/