Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Blaðsíða 48
60
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991.
Helgarpopp
Guðmundur Jónsson, lagahöfundur Sálarinnar hans Jóns míns:
Lagakrókur
„Það gefur mér miklu meira að
semja lög en að spila. Ég hef mjög
gaman af að semja lag, fylgja því
eftir á öllum vinnslustigum og sjá
svo viðbrögðin þegar það er flutt.“
Þetta segir Guðmundur Jónsson,
gítarleikari og aðallagahöfundur
hljómsveitarinnar Sálin hans Jóns
míns. Hann og félagar hans voru
nú í vikunni að senda frá sér nýja
plötu sem ber nafn hljómsveitar-
innar.
„Þetta er tólf laga plata," segir
hann. „Tíu þeirra eru eftir mig og
tvö eftir Jens Hansson. Friðrik
Sturluson á þrjá texta og hina
samdi Stefán Hilmarsson. Eg kom
með tuttugu lög í upphafi þegar við
byrjuðum að undirbúa plötuna.
Helminginn samdi ég síðasta vetur
þegar við vorum í fríi. Hin voru
bæði eldri og yngri. Það er gott að
hafa úr nógu að velja. Þá er hægt
að móta heildarmyndina strax.“
Guðmundur átti talsvert af lög-
um þegar Sálin hans Jóns míns var
stofnuð. Flest voru þau þó í þyngri
kantinum og samin undir áhrifum
nýbylgjurokks. Nú er talsvert farið
að ganga á innstæðuna enda hefur
Sálin verið dugleg að senda frá sér
lög, ýmist á eigin plötum eöa safn-
plötum.
■ „Stíllinn hefur breyst með árun-
um,“ segir Guðmundur. „Lögin eru
orðin léttari en fyrr. Þá lá við að
maður væri rekinn úr hljómsveit-
um fyrir að koma með létt og auð-
grípanlegt lag. Ég skammast mín
ekkert fyrir að semja létta tónlist.
Það er hreint ekkert leiðinlegra
heldur en hitt.“
Smellirnir
Guðmundur hefur sýnt það og
sannað á liðnum árum að hann á
auðvelt með að semja lög sem slá
Umsjón
Ásgeir Tómasson
í gegn. Nægir þar að nefna Neist-
ann, Hvar er draumurinn?, Eltu
mig uppi, Ábyggilega og Brostið
hjarta. Og nú er að minnsta kosti
enn einn smellurinn að bætast í
safnið: Láttu mig vera af nýju plöt-
unni.
„Ég sest aldrei niður til að semja
„hit“ lag,“ segir Guðmundur.
„Stundum liggur ekki fyrir hvaða
lag er líklegt til vinsælda fyrr en
búið er að útsetja, semja texta og
jafnvel taka upp. Láttu mig vera
var hins vegar valið snemma á
nýju plötuna og þar með töldum
við þvi máli bjargað og þurftum
ekki að hafa frekari áhyggjur. Ég
heyri til dæmis ekki nærri því allt-
af hvaða lag er líklegt til vinsælda
Sálin hans Jóns míns: Melódían er í öndvegi.
og hvað ekki. Stefán er hins vegar
naskur á að finna smellina. Ég átti
til dæmis aldrei von á aö Eltu mig
uppi af plötunni Hvar er draumur-
inn? yrði vinsælt. Þar var annað
sem ég var til í að veðja á, lagiö
Gefðu mér. Það vakti hins vegar
enga athygli og við spilum það ekki
lengur.
Ég get nefnt fleiri lög,“ heldur
Guðmundur áfram. „Ég var til
dæmis aldrei ánægður með Neist-
ann og varð mjög hissa á að það lag
skyldi slá í gegn. Ég man þegar ég
heyrði það á leikið á plötukynn-
ingu. Mér leiö einfaldlega Ola. Lag-
ið var afleitt. En við spilum það
mun betur nú en áður. Sum lög ná
fluginu í hljóðversvinnslunni, önn-
ur missa flugið. Maður getur aldrei
sagt neitt fyrirfram um endanlegu
útkomuna. En ég verð að játa að
við vorum vissir um Láttu mig vera
strax frá upphafl."
Guðmundur færist undan því að
spá um gengi annarra laga á nýju
EINN BILL A MANUÐI
í ÁSKRIFTARGETRAUN
SVARSEÐILL
ö Já takk. Ég vil svo sannarlega
gerast áskrifandi að DV. Ég fæ
eins mánaðar áskrift ókeypis
og það verður annar áskriftar-
mánuðurinn.
Áskriftargjald DV er aðeins
1.200 kr. á mánuði, eða 48 kr.
á dag.
□ Já takk. Ég vil greiða með:
Athugið!
Núverandi áskrifendur þurfa ekki
að senda inn seðil. Þeir eru sjálf-
krafa með í áskriftargetrauninni.
Starfsfólki FRJAL3RAR FJOLMIÐLUNAR og mökum
þeirra er ekki heimil þátttaka í áskriftargetraun blaðsins.
Vinsamlegast notið prentstafi:
NAFN_________________________
HEIMILISFANG/HÆÐ_
PÓSTSTÖÐ.
. SÍML
KENNITALA L
J I I I I
□ VISA □ EUROCARD □ SAMKORT □ INNHEIMT AF BLAÐBERA
KORTNÚMER
J J I L
GILDISTÍMI KORTS.
UNDIRSKRIFT KORTHAFA
SENDIST TIL: DV, PÓSTHÖLF 5380, 125 REYKJAVÍK, EÐA HRINGIÐ í SÍMA 27022 - GRÆNT NÚMER 99-6270,
FAX (91) 626684.
1
I
1
I
1
I
I
I
I
i
I
I
I
i
;l
11
I
1
«1
plötunni. Segir þó að eftir að text-
inn við Færðu mér frið var kominn
hafi lagið færst mjög í aukana.
Einnig líst honum vel á Gagntekinn
eftir Jens.
Að kunna að hætta
En af hverju geta sumir samið lög
sem hitta í mark og aðrir ekki?
Hvað gerir lagahöfund góðan? Guö-
mundur Jónsson brosir að spurn-
ingunum og hugsar sig um.
„Málið er kannski það að vita
hvenær maður á að hætta, átta sig
á því hvenær nóg hefur verið verið
gert við lagið,“ segir hann loks.
„Sumum finnst einfaldlega
ómerkilegt að semja einfóld og
grípandi lög. Það er fyrir neðan
þeirra virðingu. Ég er ósammála
þessu. Hjá okkur í Sálinni hans
Jóns míns er melódían í öndvegi.
Núna erum við líka komnir í þá
aðstöðu að geta leyft okkur ýmis-
legt. Við sömdum til dæmis Brosið
blíða á nýju plötunni staðnum og
létum allt vaða. Við erum meira
að segja djassaðir í einum kafla
lagsins! Á endanum varö það uppá-
haldslag hljómsveitarinnar. Við
reyndum að hafa nýju plötuna sem
fjölbreyttasta. Blönduðum saman
poppi, soul/fónki og rokki.“
Guðmundur semur á kassagítar,
prófar sig áfram með hljóma og
syngur með. Síðan getur nýtt lag
sprottið út frá einum gítarfrasa.
„Annars er allur gangur á þessu,“
segir hann. „Ég get nefnt sem dæmi
að lagið Ábyggiiega varð til út frá
löngu forspili lags með Bruce
Springsteen. Ég fór að raula laglínu
með og þegar forspilinu lauk og
kom að söngnum var byrjunin að
nýju lagi komin hjá mér. Þegar ég
samdi Láttu mig vera var ég að
spila upphafstóna Doobie Brothers
lagsins Long Train Running og
fékk þá allt í einu hugmyndina að
nýju lagi.“
Gott frí
Sálin hans Jóns míns tók ekki
þátt í plötuslagnum fyrir síðustu
jól. Liðsmenn hljómsveitarinnar
ákváðu að hvíla sig yfir eina jóla-
vertíð.
„Við vorum ekkert síður að hvíla
hlustendur," segir Guðmundur
Jónsson. „Þegar við erum að spil-
um við mikið, átta til tíu sinnum í
mánuði. Síðastliðið sumar spiluð-
um viö um allar helgar og vorum
svo virka daga í hljóðveri við að
vinna að nýju plötunni. Viö erum
einfaldlega svo mikið saman að það
þarf ekki mikið að ganga á svo að
allt sjóði upp úr. Einnig verðum
við að gæta þess að ofgera ekki
hlustendum. Markaðurinn er svo
lítill og við erum ákveðnir í að lifa
af þvi að gera út á hann. Það þarf
ekki að koma nema ein plata sem
ekki verður vinsæl. Hún getur riðið
okkur að fullu. Því er vissara að
fara varlega.“
Aö sögn Guðmundar gerði síö-
asta vetur það að verkum að allir
voru orðnir til í slaginn þegar
hljómsveitin tók til starfa að nýju.
Allir voru búnir að hlaða batteríin,
ný lög urðu til í fríinu og þar af
leiöandi kom Sálin frísk á dans-
leikjamarkaðinn. Nú er keyrt á
fullu og verður svo út árið. Jafnvel
talsvert lengur.
„Við verðum að setjast niður
fljótlega eftir áramótin og skipu-
leggja það sem við gerum á nýja
árinu. Við verðum fyrst og fremst
á Reykjavíkursvæðinu fram eftir
vetri en skreppum að sjálfsögðu út
á land ef tækifæri býðst og veður
leyfir. Ég sé ekki fram á annað en
að það verði nóg að gera.“
L.