Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991.
Veiðivon
Einn fjölmennasti aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur:
Ótrúlega spennandi
stj ómar ko sning
Aðalfundur Stangaveiðifélags
Reykjavíkur um síðustu helgi var vel
sóttur og hafa hklega mætt um 240-
•250 félagar.
Formaðurinn var kosinn með lang-
varandi lófataki, en öðru máli gegndi
um meðstjórnendur í félagið. Þar
buðu sig fram sex í þrjú embætti.
Þeir Ólafur Ólafsson, Halldór Þórð-
arson, Guðlaugur Bergmann, Bjarni
Júlíusson, Stefán Á. Magnússon og
Kristján Guðjónsson. Lokatölur úr
þeirri kosningu urðu þau, að Guð-
Íaugur Bergmann hlaut flest at-
kvæði, 145, næstur kom Halldór
Þórðarson með 123 atkvæði og svo
Stefán Á. Magnússon með 113 at-
kvæði. Rétt neðar var Bjarni Júlíus-
son, Ólafur Ólafsson og svo töluvert
neðar Kristján Guðjónsson.
Það kom ýmislegt fram í máli
manna á fundinum og segjum við
hérna frá nokkrum fróðlegum
punktum.
Jón Gunnar Borgþórsson fram-
kvæmdastjóri upplýsti að Stanga-
veiðifélagið hefði átt óseld veiðileyfi
fyrir 10 milljónir þegar veiðitíman-
um lauk.
Jón G. Baidvinsson formaður sagði
Otrúleg spenna var-í kosningu meðstjórnenda í Stangaveiðifélagi Reykjavik-
ur og hér stendur talningin sem hæst. Þórólfur Halldórsson fundarstjóri
réttir Jóni G. Baldvinssyni formanni atkvæðaseðla eftir lestur þeirra. Á
myndinni hér til hliðar sést hluti fundarmanna á einum fjölmennasta aðal-
fundi í sögu SVFR. DV-myndir G.Bender
að nokkir landeigendur við Víðidalsá
í Húnavatnssýslu hefðu ekki viljað
leigja félaginu ána vegna þess að það
vildi lækka veiðileyfi í veiðiánum á
íslandi. En Stangaveiðifélagiö átti
eitt af hæstu tilboöunum i ána fyrir
skömmu.
Það kom Iíka fram hjá nokkrum
ræðumönnum að útlendingamark-
aðurinn væri mjög þungur þessa
dagana. Og einhverjir hefðu farið til
Rússland að veiða.
Margir töluðu um að eitthvað yrði
að gera í ólöglegum laxveiðum með
ströndum landsins og það strax. Það
gengi ekki lengur að láta menn stela
löxum sem þeir ættu ekkert í.
-G.Bender
Þjóöarspaug DV
Sparðatínsla
Prestur nokkur var að messa
og þótti smnum kirkjugestum
ræða hans fremur lítið uppbyggi-
leg. Þegar gengið var úr kirkju
vék einn kirkjugesta sér að hon-
um og varpaði fram þessari vísu:
Þú vilt fræða þína hjörð
og þykist prestur fróður,
en æth þessi andans spörð
auki sálargróður?
Ekki eins
mannskæöur
Nokkru fyrir síðustu aldamót
voru tveir læknar starfandi í hér-
aði einu úti á landi. Hét annar
þeirra Sveinn en hinn Bjarni.
Voru þeir almennt álitnir skottu-
læknar.
Fcrðamaður nokkur kom eitt
sinn þangað í héraðiö þegar áður-
nefiidir læknar störfuðu þar.
Hann kenndi sér lasleika og
ákvað því að leita til annars
læknisms en þar sem slæmt orð
fór af þeim báðum ákvað hann
að spyrja bónda einn hvor þeirra
væri betri.
„Eigi veit ég það nú gjörla,"
svaraði bóndinn, „en ég hygg þó
að Bjarni muni ekki vera eins
mannskæður og Sveinn."
Áhverju
byrjið þér?
Guömundur Hannesson, pró-
fessor viö læknadeild Háskóla
íslands, var eitt sirrn að prófa
Iæknanema.
„Nú eruð þér sóttur til konu í
barnsnauð," segir Guðmundur,
„hvað byrjið þér ó að gera?“
„Ég athuga konuna vel til þess
að sjá hvemig fæðingin muni
ganga,“ svarar læknaneminn.
„0, nei, það gerið þér ekki,“
segir Guðmundur.
„Þá sýð ég verkfærin ef ég held
að þurfi að taka barnið með töng-
um,“ svarar læknaneminn þá.
„Það gerið þér ekki heldur,"
hreytti Guðmundur út úr sér.
„Þér byrjiö væntanlega á því að
heílsa fólkinu." r
Haldiö þér að þér getið skipað mér fyrir? Hvor okkar skyldi vera með Nafn:........
fleiri rendur á erminni?
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
2. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
Bækurnar sem eru í verðlaun
heita: Á elleftu stundu, Flugan
á veggnum, í helgi eipum hat-
urs, Lygi þagnarinnar og
Leikreglur. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiðl-
un.
Merkið umslagið með ■
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 114
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
tuttugustu og níundu getraun
reyndust vera:
1. Kristín Sveinbjörnsdóttir
Akralandi 1,108 Reykjavík
2. Marta S. Magnúsdóttir
Austurbrún 6,104 Reykjavík
Vinningarnir verða sendir
heim.