Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Síða 25
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991. 25 blöndun, þó auövitaö geti komið fram athyglisverðir einstaklingar." 30 þúsund íslenskir hestar í Þýskalandi í Þýskalandi er talið að séu nú um 30 þúsund íslenskir hestar, ýmist fæddir á íslandi eða af annarri kyn- slóö innfluttra. Sérstakt félag eig- enda íslandshestá er starfandi í land- inu og sérstakar keppnir eru haldn- ar. - Er íslenski hesturinn orðinn heimavanur í Þýskalandi? „Um þetta mætti halda langan fyr- irlestur," segir Ines. „Það hafa verið vandamál meö hross sem koma beint frá íslandi, bæði hvað varðar húðsjúkdóma og aðra kvilla. Hestar sem eru fæddir hér virðast þola loftslagiö heldur betur. Hitt er svo annað mál að fleiri hestakyn en það íslenska þjást í vax- andi mæh af húðsjúkdómum. Þá vaknar sú spuming hvort um sé að kenna aukinni mengun á síöari árum fremur en beinlínis uppruna dýr- anna. Hvaö varðar síðan sambúð ís- lenska hestsins og þýskra eigenda hans þá er ég persónulega ekki alveg sátt við margt sem þar fer fram. Ég tel að þýsk ögun í reiðmennsku og tamningu sé oft of harkaleg fyrir skapgerð íslenska hestsins og gangi á köflum gegn eðh hans. Eitt af því sem er mest heillandi við íslenska hestinn er nefniiega hin sjálfstæða skapgerð hans og slíkt er hægt að bijóta niður og skemma meö of mik- ilii ögun,“ segir Ines og er nú tölu- vert niðri fyrir. „Það er hægt að fá hvaða hest sem er með brellum til þess að lyfta fótun- um í reið til þess að ganga í augun á dómurum á sýningum. En ég er á móti slíku nema það sé hestinum eðlilegt." Auglýstu eftir íslenskum unglingum Ines og Bárbel auglýstu í haust í DV eftir 2 íslenskum „au pair“ ungl- ingum til þess að dvelja á búgarðin- um og vinna. Svörin létu ekki á sér standa því rösklega 50 umsóknir bár- ust - strax í fyrstu vikunni. „Það eykur tengslin við landið og svo höfum við grum um að íslenskir unglingar séu duglegri að vinna en þeir þýsku,“ sögðu þær stöllur að- spurðar um ástæöur þessa. Helgina, sem blaðamaður DV dvaldi á Auenhof, voru að meðaltali 12-14 manns þar, ýmist við nám eða í heimsókn. Þaö gafst því sjaldan róleg stund til formlegra viðtala því öfugt við þaö sem þýskir eru orðlagð- ir fyrir, nefnilega „Ordnung" og röð og reglu, einkenndist heimilshaldið af léttlyndi og hæfilegri óreiðu sem jaöraði viö galgopahátt á köflum. Hápunktur heimsóknarinnar var svo auðvitað tveggja tima útreiðar- túr um nágrennið. Islensku hestam- ir voru þar í félagsskap með aröbum, að ógleymdum shetlandhestinum Ines og Fjörður, hennar eftirlætis- hestur. smáa og skapvonda. Nægir skeiðvell- ir voru í nágrenninu því landið þama er eins flatt og flatneskja getur orðið. Ines sagði að í Þýskalandi þætti slík- ur tveggja stunda reiðtúr án hvíldar ekki tiltökumál þar sem haldnar væm allt að 100 km þolreiðir með íslenskum hestum. Fyrir blaðamann DV, sem alls ekki er vanur hestum, var það eftirminni- leg reynsla að setjast á bak Khayam, arabískum stóðhesti, og hleypa hon- um um stund. Á íslandi er ekki van- inn að nota stóðhesta mikið til reið- ar, allra síst þegar útlendir viðvan- ingar eiga í hlut. Khayam var hins vegar svo vel taminn að honum var riðið við teymingsbeisli og hlýddi auðsveipur minnstu bendingum. En þeir íslensku eru ólíkt mikið þýðari og því var að minnsta kosti annar endi undirritaðs afar feginn að skipta. Tandri, rúmlega tvævetur blendingur íslensks og arabísks hests. SPAÐISTJORNURNAR Allt sem þarf til að búa til stjörnukort Gerið stjömukortin sjálf! Handhæg bókaaskja sem hefur að geyma allt til að þið getið sjálf búið til nákvæmt stjömukort á tíu til fimmtán mínútum og sagt ótrúlega margt um persónuleika manna og hegðun. Reynið stjömuspána á sjálfum ykkur, fjölskyldu og vinum! Verðkr. 3.390.- BETRA KYNLÍF eftir bandaríksa sálfræðinginn Barböru Keesling. Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur þýddi og ritar einnig formála. Bókin leiðbeinir fólki að glæða unað kynlífsins. Fjallað er á faglegan hátt um algenga kynlífsvanda og sett framinákvæmt æfingakerfi sem einstaklingar og pör geta nýtt sér til að draga úr spennu um kvíða í kynlífi. ÖRN OG ÖRLYGUR Síðumúli 11 -108 Reykjavík - Sími: 684866 v/s unova uan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.