Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Side 37
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991. 49 Helgarpopp Ópera er heimur þar sem tvö list- form, leiklist og tónlist, eru leidd í eina sæng. Ópera er heillandi heimur ævintýra þar sem mögulegir og ómögulegir hlutir gerast. Ópera er heiti nýjustu plötu Todmobile, hljómsveitarinnar sem skaut upp á himinfestinguna áriö 1989 og hefur í tvö ár skinið skærar flestum íslensk- um hljómsveitum. Af hverju Ópera? „Á nýju plötunni erum viö nær því að segja sögu,“ segir Eyþór Arnalds meðan hann og blaðamaður biðu hjónaleysanna Andreu Gylfadóttur og Þorvalds B. Þorvaldssonar. „Án þess að fólk megi taka það of bókstaf- lega þá er þema plötunnar lífshlaup- ið sem við erum öll þátttakendur í. Fyrsta lagið, sem heitir Byrjun, er til að mynda tilraun til að túlka svif í tómi fyrir tilvist, ástandið fyrir fæð- ingu. Annað lagið er Naíli sem er til- vísun til fæðingarinnar, Sofðu vært er vögguvísa og íjórða lagið, Uppi á þaki, lýsir barnabrölti þar sem heim- urinn er skoðaður ofan af húsþaki. Þannig rekur hvert lagið annað plöt- una á enda og við setjum punktinn yfir i-ið með laginu Bæn. Það að búa til svona plötu er kannski afsökun hjá okkur fyrir því að geta leyft okkur ólík stílbrigði. Ópera var á sínum tíma helsta vigi tónlistarinnar og í því formi leyfðist mönnum frekar að gera tilraunir en í öðru tónlistarformi. Á sama tíma og Tolstoj og fleiri voru að skrifa raunsannar sögur gat Verdi samið skrautlegar aríur. Til að geta leyft sér það samdi hann óperur um brjál- aðar konur eða fársjúkar eins og La Traviata er til vitnis um. Óperuform- ið er það fjölbreytt að þetta var ger- legt. Á sama hátt má segja að plötuform- ið sé yflrleitt ekkert sérlega fjöl- breytt. Reyndar ólumst við upp við albúm eins og Sgt. Peppers og verk Pink Floyd og Genesis sem voru ann- að og meira en safn af lögum. Óperu- platan okkar er viðleitni til að gera slíkt albúm.“ Vinsældir tvíeggjað vopn Eftir að Andrea og Þorvaldur stigu inn úr gætt og þrenningin var full- komnuð hringuðu hljómsveitin og blaðamaður sig utan um rókókóborð með fínlegt postulín í hönd. Umgjörð sem átti vel við krufningu á nýjasta verki Todmobile þar sem vandað handbragð og nostur er aðalsmerki. - Ef frá er skilið söguformið, á hvaða hátt er Ópera frábrugðin fyrri plöt- um Todmobile? „Hún er fjölbreyttari. Við hoppum út úr Todmobile stílnum í lögum eins og Stopp og Uppi á þaki. í öðrum lög- um þróum við það sem við höfum verið að gera á eldri plötum. Lagið í tígulega dal er þannig byggt á svipuð- um hugmyndum og voru að geijast í Eldlaginu á síðustu plötu. Uppröð- un laga miðast við atburðarásina á „Nei, þetta er ekki hræðsla. Öðru nær þá er það stórhættulegt að vera með tilraunastarfsemi í þessum geira tónlistar. Það er áhugi á því sem tnaður ekki þekkir eða hefur rejmt sem rekur okkur til þess að feta nýjar slóðir. Auk þess er það mjög leiðinlegt að ganga að hlutun- um vísum. Það væri mjög ódýr leið að pikka út vinsælustu lögin af síð- ustu plötu og gera ný eftir sömu for- skrift. ísland er lltið land með tak- markaðan markað og það góða sem leiðir af því er að maður getur leyft sér stílbreytingar. í sumum tilfellum eru þær nauðsynlegar svo að hljóm- sveit verði hreinlega ekki hafnað. Okkur hefur líka vegnað ágætlega og komist upp með það, allt frá fyrstu plötu, að vera með tilraunastarf- semi. Það verður engin breyting þar á.“ Todmobile og Óperan - Eyþór, Andrea og Þorvaldur ræða nýja plötu hljómsveitarinnar albúminu og er því markvissari en fyrrum. Það sama gildir um textana, við fjöllum minna um dauðann en við höfum gert. - Velgengni Todmobile hefur verið mikil frá fyrstu plötu. Plagar sú vel- gengni þegar unnið er að nýrri plötu? „Velgengnin er tvíeggjað vopn. Fyrsta platan var jaðarplata og margir urðu mjög hrifnir og fannst þeir hafa höndlað eitthvað nýtt og spennandi. Þegar við komum með léttari lög, sem höfðuðu frekar til fjöldans, voru þeir sem tóku fyrstir við sér kannski ekki allir eins ánægð- ir. Frægt dæmi um þetta er David Bowie sem flestir elskuðu þegar við vorum unglingar. Þegar hann svo sendi frá sér plötuna Lets Dance og sló almennilega í gegn þóttust gömlu aðdáendurnir hafa veriö sviknir og fóru að úthúða þessum fyrrum Umsjón: Snorri Már Skúlason meistara sínum. Svo hefur komið í ljós að júdasarkossinn, Lets Dance, er þrælgóð plata. Orðspor Todmobile hefur góðu heilli verið jákvætt en um leið er búist við miklu af plötunum okkar. Ef við gerum mistök verða þau stór. Það er helst að við finnum pressunni þannig að menn bíði eftir að hljóm- sveitin misstígi sig. Þetta plagar okk- ur hins vegar lítt. Á Óperu er hljóm- sveitin samstilltari en áður. Þó ægi saman ólíkum stílum á henni, sem er meðvitað, þá er heildarsvipur yfir henni sem var t.d. ekki á síðustu plötu. Hljóðfærin njóta sín betur á nýju plötunni en á þeim fyrri. Áheyrand- inn heyrir hvar gítar eða selló eru á ferð. Að því leyti kveður við annan tón. Við vorum dulítið sinfónísk á fyrstu plötunni en nú má segja að það sé meiri kammermúsík í gangi.“ Kanna hið óþekkta - Það bregður fyrir afró-arabískum takti í Kamival lífsins. Er heimstón- hst ykkur hugleikin? „Þetta er nú ekki beint meðvitað. Við settumst ekki niður og sögðum: Nú gerum við afró-bít. Það er frekar að þetta séu gamlar pæhngar sem komu upp í hugann í þessum bún- ingi. Enda verða þessi fjarlægu áhrif aldrei áberandi, þau krauma frekar undir.“ - Fjölbreytnin,' sprettur hún af hræðslu við að verða mónótónísk? Myndbanda- vinnan áhugaverð Eyþór, Andrea og Þorvaldur voru sammála um að vinna við myndbönd væri skemmtileg viðbót við plötu- gerðina. Hljómsveitin hefur þegar lokið við gerð tveggja slíkra. Annað er við a la Zeppelin lagið Stopp og er rokkað myndband tekið á tónleik- um á Akureyri en Todmobile hefur einmitt nýlokið þeysireið um landið þar sem 13 staðir voru heimsóttir á þremur vikum. Hitt myndbandið er við sýrulagið í tígulega dal og er tek- ið á 8 mm filmu, unnið mikið ramma fyrir ramma. Það má því segja að Todmobile fari nýjar leiðir við mynd- bandagerðina eins og á plötunni. En flestum er enn í fersku minni mynd- bandið við Eldlagið frá því í fyrra sem vakti athygli fyrir frumleik og nýja tækni. Todmobile hefur undanfarin tvö ár haldið útgáfutónleika í Óperunni og það verður engin breyting þar á í ár. Fimmtudaginn 5. desember mun hljómsveitin ljúka hringferðinni um landið i Óperunni og segir þrenning- in að mikið spiUrí á undanfórnum vikum hafi þétt hljómsveitina þannig að fólk megi búast við Todmobile í hörkuformi. - Hljómsveitin hefur alla tíð lagt mikið upp úr sjónarspiU á tónleikum. Er það kannski önnur tilvísun í óperutitil plötunnar? „Það má alveg segja það. Við höfum einmitt lagt áherslu á það í myndböndunum að bjóða upp á veislu fyrir augað. Það sama hefur átt við sviðsupptroðslur. Þar blöndum við saman leikrænum farsa og tónlist.“ Todmobile er í dag orðin fóst sjö manna hljómsveit að því leyti að þeir íjórir menn sem eru með Ey- þóri, Andreu og Þorvaldi á tónleikum ætla að einbeita sér að því næstu mánuði og verða ekki í öðru. Aðstoð- armennirnir eru Matthias Hemstock á trommur, Eiður Arnarson bassi, Kjartan Valdimarsson á hljómborð og Jóhann Hjörleifsson slagverk. Þessi hópur mun troða upp sem hljómsveitin Todmobile á næstu mánuðum. Keltneskur undraseiður Enya hin írska hefur í tæp tvö ár unnið að gerð nýrrar plötu sem var opinberuð á dögunum undir heitinu Shepherd Moons. Árið 1988 eignaðist Enya fjölmarga aðdáendur með hinni frábæru plötu Watermark og á nýju plötunni rær hún á svipuð mið með góðum árangri. Enya hóf feril sinn með því að semja kvikmyndatónlist árið 1985 og ári síðar gerði hún tónlist við þáttaröð fyrir sjón- varp. Hún á ekki langt að sækja hæfileikana því tvö eldri systkin á hún í þjóðlagasveitinni Clannad. Watermark árið 1988 var afrakstur samstarfs Enyu og útsetjarans Nicky Ryan og konu hans Roma Ryan sem samið hefur marga af textum Enyu. Watermark sló í gegn svo um munaði og hefur nú selst í meira en fjórum milljónum eintaka. Nýja platan iimiheldur sömu draumóratónlistina og Water- mark. Tónlist sem á sér djúpar rætur í keltneskri menn- ingu. Enya er í hlutverki galdramannsins sem magnar upp heillandi seið sem grípur áheyrandann og hrífur hann með sér inn í ljúfsáran heim fortíðar. Þeir sem heilluðust af fyrri plötunni fmna góðan vin í Shepherd Moons. Þó efnistökin séu svipuð verður Enya seint sökuð um endurtekningu af þeirri einfóldu ástæðu að hún skilar hlutunum hnökralaus- um. Sjálf segir listakonan að þó nokkrir mánuðir séu liðnir frá því að hún lauk gerð plötunnar hafi hún ekki enn fengið sig til að setjast niður og hlusta á hana. „Mér hefur aldrei Uðið eins illa og eftir aö ég kláraði plötuna," segir Enya. „Það helgast af hræðilegum ótta sem ég ber til plötunnar. Ég ótt- ast allar þær tilfinningar og ást sem ég hef gefið í verkið, á þann hátt þá aö þegar ég heyri plötuna þá standi hún engan veginn undir þeim væntingum sem ég ber til hennar.“ AlUr þeir sem hlusta á plötuna skilja hvað tónlistarmaður- inn er að fara. Til að skapa jafn magnþrungið verk og Shep- herd Moons er hefur þurft að færa miklar fórnir. Enya held- ur áfram: „Þaö urðu oft árekstrar milU mín og Nicky Ryan. Það kom fyrir aö við vorum búin að vinna að tilteknu verki í tvo mánuði þegar Nicky sá að við vorum á rangri braut, hann sá að ég gat gert hlutina betur og þess vegna yrði að byrja upp á nýtt. Ég veit að ég er erfið í samvinnu, íhpldssöm og þver. Ég vona hins vegar að neistaflugið í sambandi okk- ar hafi gert gott sem komi fram í heilsteyptari plötu. Þrumu- veðrið hreinsaði loftið og gaf okkur tækifæri til að greina veilur. Eftir slíka storma gátu menn brett upp ermar og helgað sig efninu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.