Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991.
51
Gizur í Helgason, Kaupmannahö&i:
Einn af þeim fjölmörgu íslending-
um sem eru við nám í Danmörku er
rithöfundurinn Páll Pálsson. Á dög-
unum kom út eftir hann skáldsagan
Á hjólum, en hún er þriðja bók höf-
undarins.
Páll er við nám í kvikmyndafræði
og hefur verið í fimm ár. Hann lýkur
því eftir u.þ.b. tvö ár. Hann býr hér
ásamt eiginkonu sinni, Elsu Maríu
Ólafsdóttur, ogþremur bömum. Elsa
María er einnig við nám og útskrif-
ast brátt sem handavinnukennari.
Páll er fæddur í Reykjavík árið 1956
en alinn upp í Hafnarfirði. Hann lauk
landsprófi í Flensborgarskóla. Var
síðan 2 ár í Verslunarskólanum og
tók þaðan verslunarpróf. Þá fór hann
í Flensborgarskóla á nýjan leik og
lauk stúdentsprófi af félagsfræði-
sviði. Páll nam síðan við Háskóla ís-
lands og las félagsfræði og bók-
menntafræði.
Páll var ákveðinn í því að verða
rithöfundur strax um tvítugt og segir
kvikmyndafræðina vera lið í að út-
víkka starfssviö sitt. Erfitt er að lifa
af því að skrifa skáldskap einan sam-
an.
Páll hefur komið víða við á ferli
sínum, m.a. sem blaðamaður í um
14 ár og upplýsti undirritaðan um
að blaðamennskan hefði verið prýð-
isskóli fyrir rithöfundinn. Páll hefur
skrifað fjöldann allan af viðtölum
fyrir helgarblað Vísis, Helgarpóst-
inn, Sam-útgáfuna, Morgunblaðið,
Mannlíf o.fl. Hann hefur samt ætíö
verið lausamaður í blaðamennsk-
unni, aldrei fastráðinn.
Var poppari
Á táningaárunum og fram yfir tví-
tugt var Páll poppari. Söng með
hljómsveitinni Dögg svo og stúdíó-
hljómsveitinni Fjörefni sem gerði
tvær plötur. í dag saknar Páll þess
að hafa aldrei lært að spila á neitt
hljóðfæri. Því getur hann þó auðveld-
lega kippt í liðinn enda á besta aldri.
Reyndar hef ég aldrei getað skilið
neitt í því þegar fólk á öllum aldri
er að segja að það sjái eftir að hafa
ekki lært þetta eða hitt á yngri árum:
„Alveg eins og það sé komið með
annan fótinn ofan í gröfina."
Hann segir: „Að vera rithöfundur
eða kvikmyndafræðingur á íslandi
er ekki leiðin til auðs og valda.“ En
hann valdi þessa braut vegna þess
að þetta er það skemmtilegasta sem
hann getur hugsað sér að fást við.
„Maður á fyrst og fremst að gera það
sem mann langar til,“ segir rithöf-
undurinn og verðandi kvikmynda-
fræðingurinn. „Fái ég brennandi
áhuga á einhverju þá verð ég að
spreyta mig á því sjálfur. Mér nægir
ekki bara að lesa bækur og hlusta á
popp.“
ísland - barnfjand-
samlegtþjóðfélag
Líta má á veru Páls hér í Dan-
mörku sem þátt í þroskaferli hans
sem rithöfundur. Enda hefur hann
talið nauðsynlegt að dveljast fjarri
heimahögum í nokkur ár. Ná áttum,
eins og hann segir. Enda þótt hjónin
séu bæði í skóla, og eigi þrjú lítil
börn, er aíkoma þeirra góð. Þegar
Páll er að bera saman muninn á fé-
lagslegum aðstæðum þessara frænd-
þjóða segir hann: „Það versta við ís-
lenskt þjóðfélag er hversu barnfjand-
samlegt það er. Almenningur kemst
ekki af nema vinna 14 tíma á sólar-
hring. Því er lítill sem enginn tími
aflögu fyrir börnin. Einnig er erfitt
fyrir fólk að fá dagvistun fyrir börn
á íslandi. Hér er undantekning ef
unnið er meira en 8 tima á dag og
lítill sem enginn biðtimi varðandi
kaffibollanum, þegar ég spurði hvort
jafnlangt yrði í næstu bók. Hann
sagðist iítið vera farinn að hugsa í
þá veru. Það er þó draumur hans að
geta varið mun lengri tíma í skriftir
að námi loknu og er heim til íslands
væri komið.
Þau hjónin eru farin að hlakka til
heimkomúnnar þótt tvö ár séu til
stefnu. Greinilegt var á Páli að það
væri ekkert metnaðarmál hjá honum
aö gefa út margar bækur. Aftur á
móti vildi hann gjarnan að bækur
sínar væru góðar og þá skipti það
ekki meginmáli hversu langan tíma
það tæki að skrifa þær. Páll þarf
reyndar ekki aö kvarta yfir viðtökum
fyrstu bóka sinna. Þær voru með
ágætum. Aðspurður sagðist Páll ekki
hika við að halda áfram að skrifa
enda þótt nýjasta bók hans fengi ekki
sömu viðtökur.
■Tvær fyrstu bækur Páls hafa fjall-
að um vandamál unglinga, drykkju,
eiturlyfjanotkun og útigang m.m.
Nýja bókin fjallar einnig um þjóðfé-
íagsvandamál, þ.e. aðstöðu og mál-
efni fatlaðra í nútíma þjóðfélagi.
Þjóðfélagi sem fram að þessu hefur
vart tekið þaö með í reikninginn að
sumir komast ekki ferða sinna á
tveimur jafnfljótum.
Málefni fatlaðra
Við hér í Danmörku erum orðin
því vön að sjá þar til gerðar skábraut-
ir fyrir hjólastóla upp og inn í opin-
berar byggingar, gististaði, veitinga-
hús og verslanir. Einnig sérstök sal-
erni fyrir þá sem eru bundnir hjóla-
stólum. Þá er breidd dyra og dyra-
búnaður allur hannaður með það
fyrir augum að fatlaðir í hjólastól
eigi greiðan aðgang. Við Páll sendum
samúðarkveðjur til allra lamaðra og
fatlaðra á íslandi og hörmum þann
seinagang sem enn er varðandi um-
bætur á þessu sviði.
Bókin í ljótu kápunni
Sjálf bókin er bæði auðlesin og
skjótlesin. Söguþráðurinn er einfald-
ur. Bókin fiallar um ungan mann,
kominn af ríku foreldri, lífið er gleði,
glens og gaman, eða þar til óhappið
gerist. Söguhetjan dettur aftur yfir
sig ofurölvi og niður kjallaratröppur.
Hann kemst ekki aftur til fullrar
meðvitundar fyrr en tæpum mánuði
síðar og er þá lamaður frá mitti og
niður úr.
Á afskaplega trúverðugan hátt seg-
ir höfundur okkur frá örvæntingu
söguhetjunnar. Allt frá afneitun
hans, þegar hann neitar einfaldlega
að trúa því að lömunin sé staðreynd,
sorg hans yfir því að geta ekki kom-
ist ferða sinna án hjólastjóls og allra
þeirra óþæginda sem því fylgir, reiöi,
ótta og vanmætti. Að lokum sjálfs-
morðstilrauninni þegar eiginkonan
kallar hann aumingja. Hún ætlaði
að náð sér í eiginmann sem hlypist
ekki frá henni eins og fyrri eiginmað-
ur hennar hafði gert.
Við fáum skyggnst inn í heim ríka
fólksins í höfuðborginni, þar sem allt
virðist fást fyrir peninga - nema eitt
- heilsuna er ekki hægt að kaupa í
lömunartilfelh söguhetjunnar, Jóns
Sigurðssonar.
Endir bókarinnar er nokkuð
óvæntur og lætur lesandann eftir,
þenkjandi hvort þetta hafi allt saman
verið draumur frá upphafi til enda.
Hér gæti verið að áhrifa frá kvik-
myndagerðarnáminu gæti á höfund-
inn. Það er ekki óalgengt hér í landi
að maður sitji í einn til tvo tíma yfir
spennandi kvikmynd sem síðan fær
óvæntan endi. Það getur orðið gaman
að fylgjast með Páli í framtíðinni og
mér finnst allt í lagi að eyða einni
kvöldstund yfir bók hans, Á hjólum.
Páll Pálsson, rithöfundur og nemandi í kvikmyndagerð, er að senda frá sér þriðju bók sína. Hún fjallar um ungan
mann sem dettur niður stiga og iamast.
dagvistun. Fjölmargir aðrir þættir
spila hér einnig inn í en þeir eru flest-
ir íslendingum í óhag hvað þetta
varðar.“
Greinarhöfundur hefur ekki neina
þekkingu á ofangreindu en við lestur
nýjustu bókar Páls, Á hjólum, kemur
fram hnífskörp, og að mínu mati rétt-
mæt, ádeila á hversu htið er gert fyr-
ir fatlaða á íslandi. Borið saman við
málefni fatlaðra á Norðurlöndum
ættum við að blygðast okkar fyrir
frammistöðuna.
Vandamál unglinga
Páll og Elsa María ásamt börnum sinum Ólafi Sölva, 7 ára, og Margri
Kristinu, 6 ára.
í fyrstu skáldsögu Páls, Hallæris-
planið, sem út kom 1982, benti hann
á flótta unghnga heiman frá, m.a.
vegna samskiptaleysis hinna full-
orðnu, drykkjuskapar eldri kynslóð-
arinnar svo eitthvað sé nefnt. Hann
hefur oftar en einu sinni lýst yfir
þeirri skoðun sinni að mikilvægara
sé að þéna örlítið færri krónur og að
geta eytt örhtið meiri tíma með börn-
um sínum en aö þessu sé öfugt farið.
Hahærisplanið fékk frábærar und-
irtektir og er undirrituðum kunnugt
um að fiölmargir skólar notuðu bók-
ina við kennslu um hríð. Hvort svo
er enn veit ég ekki enda langt síðan
ég hef verið í tengslum við hið ís-
lenska framhaldsskólakerfi.
Áhjólum
Önnur bók Páls Pálssonar, Beðið
eftir strætó, kom út-T983, eða ári eft-
ir að fyrsta bókin kom á götuna. Síð-
an eru hðin 8 ár og nú gefur Forlag-
ið út skáldsöguna Á hjólum, bók upp
á 194 blaðsíður með, að mínu mati,
forljótri kápusíðu sem gæti hugsan-
lega vakið athygli íslenskra bóka-
búðarápara vegna ljótleika. Ég á þó
von á að bókin seljist vegna inni-
haldsins en ekki umbúðanna.
Páll var þöguh sem gröfin, yfir
Ný bók, Á hjólum:
Skyggnst í heim fatlaðra
- Páll Pálsson rithöfundur fjallar um lamaðan mann í nýrri bók sinni