Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Side 50
62 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991. Trimm Fimmtugurframhaldsskólakennari með svartabeltið í karate: Held áfram eins - segir Gérard Chinotti í karate er maöur alltaf að læra Auövitað gerðu vinnufélagarnir Karate byggist í raun á tvennu. eitthvað nýtt. DV-mynd JAK smá grín og gera enn. En það er Kata og Kumite. DV-mynd JAK allt í góðu. DV-mynd GVA „Eg byijaði fyrir sjö eða átta árum í karate. Ég veit nú ekki ná- kvæmlega af hverju ég fór af stað en ég vildi allavega hreyfa mig eitt- hvað og mér fannst leiðinlegt að vera bara í leikfimi eða einhverju þess háttar. Ég vildi jafnframt læra eitthvað í leiðinni og í karate lærir maður margt og er einnig alltaf að læra eitthvað nýtt. Ég var aldrei of þungur og það var því ekki ástæðan heldur hitt að ég vildi gera eitthvaö líkamlegt," sagði Gérard Chinotti, karate-maður og fram- haldsskólakénnari, í samtali við DV. Ekki bara fyrir unga menn Gérard er rólegur í fasi þegar hann tekur á móti útsendurum DV og leiðir þá til stofu í Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ en þar hefur starfsvettvangur hans veriö und- anfarin tíu ár viö kennslu. Klæða- burðurinn og framkoman er eins og við er að búast hjá manni í hans stöðu og þegar kappinn er sestur í kennarastólinn og kominn með kaffibolla í höndina er komin fram ijóslifandi mynd af „dæmigerðum kennara". Það er þó eins gott að reita ekki þennan kennara til reiði því hætt er við að nemendurnir færu halloka í þeim viðskiptum enda er Gérard vel að sér í karate og hefur svarta beltið til vitnis um þaö. „Fólki fannst nú ekkert sérstakt um það þó ég færi að æfa karate. Sumir hugsuðu kannski að ég væri eitthvað skrítinn og auðvitað geröu vinnufélagarnir smá grín að mér og gera enn. En það er allt í góðu lagi. Reyndar hafa margir rangar hugmyndir um karate og t.d. er þetta ekki bara fyrir unga menn. Karate byggist í raun á tvennu. Annars vegar Kata sem eru ákveð- in kerfi, högg og hreyfmgar o.s.frv. Svo er náttúrlega Kumite sem er bardaginn sjálfur." S U Z U K I Reykjavik: Suzuki bílar hf., Gym 80, Stúdíó Jónínu og Ágústu, Ræktin og World Class. Kópavogur: Alheimskraftur Hafnarfjörður: Hress Keflavík: Líkamsrækt Önnu Leu og Bróa, Æfingastúdíó og Perlan Akureyri: Dansstúdíó Alice ísafjörður: Studio Dan Sjálfstraust og jafnvægi Gérard er greinilega á heimavelli þegar karate er annars vegar og ekki spillir að viðtalið á sér stað í kennslustofunni hans. Japönsk orð sem hljóma ókunnuglega í eyrum blaðamanns eru rituð á töfluna og ekki laust við að honum finnist sem um einkatíma sé að ræða þar sem setið er á fremsta bekk í gluggaröð- inni. Gérard er sjálfum ekkert voða- lega mikiö gefið um keppni í grein- inni og hann eyðir ekki miklum tíma í að spjalla um það. Hann seg- ir þetta alveg eins íþrótt fyrir aUa og þá ekkert síður fyrir konur en karla. Iðkun hans gerir það að verkum að líkamsformið er gott og einnig veitir þetta ákveðiö öryggi. í því sambandi nefnir hann sjálfs- traust og jafnvægi. Karate segir hann vera ekkert síður andlega íþrótt en líkamlega og það eigi reyndar við um aðrar greinar líka. Aö lemja fólk meö stæl „Karate er að læra að lemja fólk með stæl en maður gerir það auð- vitað ekki í raunveruleikanum. Ég gæti t.d. afgreitt þig hér á fimm sekúndum ef því væri að skipta," segir Gérard þegar hann er spurð- ur hvort karate sé slagsmálaíþrótt. Hann sýpur á kaífinu við svo búið og blaðamanni léttir mikiö enda ekki fýsilegur kostur að takast á við mann sem hefur svarta beltið í karate. Gérard er þó hógværðin uppmáluð og virðist mikið ljúf- menni og blaðamaður áræðir því að halda viðtalinu áfram. „Það er búin að vera ákveðin stígandi í þessu hjá mér síðan ég byrjaði. Ég er í mjög góðu formi og get yfirleitt gert meira en unga fólkið sem er að byrja. Strákarnir sem eru um tvítugt eru þó auðvitað sneggri en ég en það er bara eðli- legt. Þolið hjá mér er þó tvímæla- laust miklu betra en þegar ég byrj- aði fyrir sjö eða átta árum og þá var ég þó yngri sem því nemur.“ Innri ró og útrás Gérard segist hafa fengið mikið út úr karate og þá ekki síst innri ró og þá geti þetta verið mjög hent- ugt fyrir þá sem vilja fá útrás. Sjálf- ur æfir hann þrisvar í viku með karatedeild Fylkis og hefur eitt- hvað fengist við þjálfun líka. Hann segist alltaf reyna að æfa reglulega og gildir þá einu hvort hann er staddur í vinnu hérlendis eða er- lendis en Gérard hefur starfað sem fararstjóri á Spáni undanfarin sumur. „Þegar ég byrjaði hugsaði ég auð- vitað ekkert út í svarta beltið. En það var ánægjuleg tilfinning þegar ég fékk það í síöasta mánuði enda var maður búinn að leggja á sig mikla vinnu og æfa lengi. Þetta er eins og. allt annað, stundum er gaman í þessu og stundum ekki. Ég hef þó aldrei verið á því að gef- ast upp og ég er ákveðinn í að halda áfram eíns lengi og ég get.“ Afi í greininni Gérard var ekki sá eini sem fékk svarta beltið í karate í síðasta mán- uði. Þorleikur Karlsson, leikmuna- vörður hjá Leikfélagi Reykjavíkur, fékk einnig svarta beltið í sína vörslu en hann er íjórum árum yngri en Gérard. Það er því greini- legt á öllu að mönnum á „þessum aldri“ eru ýmsir vegir færir í íþróttaheiminum. Gérard veit ekki um eldri menn sem eru í þessu og segir sjálfur á léttum nótum aö hann sé nokkurs konar afi í grein- inni. Nemendur Gérard vita flestir af áhugamáli hans og sjálfsagt hafa ýmsar glósur fengið að fljóta út í loftið en hann segir þær á léttum nótum og neitar alfarið að hafa tek- ið nokkra syrpu fyrir nemendur sína sem og að hafa beitt kunnáttu sinni á þá þó stundum væri kannski þörf á því! -GRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.