Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1992, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1992.
11
Jane Fonda og
Ted Tumer gift
-brúðguminn kjörinn maður ársins af Time
Ted Tumer, stofnandi og aðaleig-
andi CNN-sjónvarpsstöðvarinnar
bandarísku, og kvikmyndaleikkon-
an Jane Fonda eru nú loks gengin
í hjónaband. Mánuðum saman
vildu þau ekkert gefa upp um hve-
nær brúðkaupið yrði haldið og sá
orðrómur var ekki lengi að komast
á kreik að þau ættu í deilum um
samningu hjónabandssáttmála og
hvemig skipta ætti öllum milljón-
unum ef svo færi að þau skildu.
En það var svo 21. desember síð-
astliðinn, sama dag og Jane Fonda
varð 54 ára, sem stóra stundin rann
upp. Athöfhin fór fram á búgarði
hins 53 ára Tumers í Flórída og
voru um þrjátíu vinir og ættingjar
brúðhjónanna viðstaddir. Þetta er
þriðja hjónaband beggja. Jane
Fonda var áður gift Roger Vadim
og síðan Tom Hayden. Fonda og
ekki lengur greinarmun á skemmt-
un og raunveruleika.
En það er að minnsta kosti ekki
lengur hlegið að Ted Turner eins
og gert var þegar hann setti CNN-
stööina á laggimar 1980. CNN-
nafnið er skammstöfun á Cable
News Network sem þýðir kapal-
fréttasjónvarpsstöð. Þeir sem
hlógu að Turner uppnefndu stöð-
ina Chicken Noodle Network eða
kjúkhngastöðina.
Árangrinum
fylgteftir
Stöðin er nú orðin risi í fjölmiðla-
heiminum og vakti fréttaflutningur
hennar frá fyrsta degi árásar
bandamanna á írak gífurlega at-
hygli um allan heim. Vestanhafs
Jane Fonda og Ted Turner létu pússa sig saman þann 21. desember
siðastliðinn eða sama dag og Jane varð 54 ára. Viku seinna var Ted
kjörinn maður ársins af tímaritinu Time.
Turner trúlofuðu sig 7. desember
1990.
Maður ársins
Nákvæmlega viku eftir brúð-
kaupið, eða 28. desember, var Ted
Tumer kjörinn maöur ársins 1991
af tímaritinu Time. í tímaritinu
sagði að sjónvarpsstöðin CNN hefði
með fréttaflutningi sínum breytt
skilgreiningimni á frétt „úr ein-
hveiju sem hefði gerst í eitthvað
sem væri að gerast um leið og menn
sæju það og heyrðu“.
Menn ársins hjá Time undanfar-
in ár hafa meðal annarra verið
Mikhail Gorbatsjov, Corazon Aqu-
ino og George Bush. Margir höfðu
gert ráð fyrir að Boris Jeltsín eða
Norman Schwarzkopf hershöfðingi
yrðu fyrir vahnu nú og ýmsir hafa
jafnvel haft á orði að Time geri
þótti CNN hafa staðið sig best allra
sjónvarpsstöðva í stríðinu. Árangr-
inum frá Persaflóastríðinu var
fylgt eftir. Starfsmenn stöðvarinn-
ar vora við hhö Jeltsíns þegar
skriðdrekarnir óku að þinghúsinu
í Moskvu. CNN sendi frá yfir-
heyrslunum yfir Clarence Thomas
dómara sem kærður hafði verið
fyrir kynferðislega áreitni. Það var
einnig CNN sem sýndi myndbands-
upptöku leikmanns af ofbeldisað-
gerðum lögreglunnar í Los Angeles
og það var í útsendingu CNN sem
Magic Johnson greindi frá því að
hann væri með eyðni. CNN var
einnig viðstatt þegar Gorbatsjov
Sovétforseti sagði af sér.
Áhorfendum stöðvarinnar fjölg-
aði stööugt síðasthðið ár og þakka
menn það fréttaflutningnum. Utan
Bandaríkjanna hefur CNN notið
virðingar um árabil og stöðugt sótt
í sig veðrið. Ýmsir þjóðarleiðtogar
hafa haft á orði að þeir telji fréttir
stöðvarinnar ómissandi.
Ted Tumer er ekki eini eigandi
CNN heldur er stöðin í eigu fyrir-
tækisins Turner Broadcasting.
Auk Tumers er einn helsti hluthaf-
inn í því fyrirtæki eignarhaldsfé-
lagið Moran Asset Management.
Keypti kvik-
myndafyrirtæki
Áður en Ted Turner setti CNN á
laggirnar 1980 var hann löngu
þekktur fyrir veldi sitt í Bandaríkj-
unum. Ferilinn hóf hann 1970 með
því að kaupa htla sjónvarpsstöð.
Sex árum síðar setti hann á lag-
gimar kapalstöðina TBS, Turner
Broadcasting Services. Sama ár
keypti hann körfuboltafélagið Atl-
anta Braves og ári síðar Atlanta
Hawks. Tveimur ámm eftir að
Turner stofnaði CNN lét hann sjón-
varpa fréttayfirhti allan sólar-
hringinn og sama ár stofnaði hann
CNN-útvarpið.
Arið 1986 keypti Turner
MGM/UA kvikmyndafyrirtækiö.
Með í kaupunum fylgdi geysistórt
kvikmyndasafn fyrirtækisins og
hefur það margfaldast í verði vegna
eftirspumar frá sjónvarpsstöðvum
víða um heim. Tumer hefur nú
selt hluta MGM-fyrirtækisins.
Turner þykir gífurlegur keppnis-
maður og kemur mönnum það því
ekki á óvart hversu langt hann
hefur komist.
44
„HEYRÐU
Kennsla hefst mánudagínn 6. janúar
Afhending skírteina fyrir alla kennslustaði
er sunnudag 5. janúar kl. 13-17
að Smiðjuvegi 1, Kópavogi
Nemendur á haustönn,
hafíð meðferðis
skírteini
Janúar-
tilboð
2 mán. leikfimi/erobikk
10 tímar í ljós
kr. 5.500,-
Fjölskyldu-
afsláttur
Gestakennari
skólans
er Vernon Kemp.
Dansandi
kveðja
Dagný Björk
danskennari
DSÍ-DÍ-ICBD
Kennslustaðir:
•
Kópavogur:
Smiðjuvegur 1,
2 salir
•
Álftanes: íþróttahús
•
Seltjarnarnes:
Austurströnd 6
•
Reykjavík: Tónabær
v/Skaftahlíð
s. 642535 - 641333
VISA
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
99-6272
oia ^muIn isea
-talandi dæmi um þjónustu!