Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Page 17
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992. 17 Vísnaþáttnr Haraldur frá Kambi Skaust ég yfir Skarö í gær, skratti var ég röskur. Ætlaði mér að eignast tvær ákavítisflöskur. Á Sauðárkróki er fátt í fréttum, flestra heilsa er góð. Mér er ennþá afar létt um að yrkja bjöguð ljóð. Mér var að berast í hendur nýút- komið kver, sem heitir Ljóð og lausavísur eftir Harald Hjálmarson frá Kambi, fæddur 1908 og látinn 1970. Hann var af skagfirskum og húnverskum bændaættum, mennt- aðist í búnaðarsskóla í heimahér- aði og síðan fór hann í Samvinnu- skólann. Hann varð verslunar- og skrifstofumaður, gamansamur og léttlyndur, glaður við skál, frægur fyrir hagmælsku sína og hnyttnis- vör, hrókur alls fagnaðar þegar öl var á skálum. Ekki fyrir afskipti sín af konum. Hann kastaði fram vísum um sitt eigið líf og kunningj- anna, kröfulaus um alla hátíðlega viðurkenningu, hefur varla átt sér neina skáldadrauma. Þó veit mað- ur aldrei um slíkt. En alhr vísna- vinir á landinu áttu fljótt í fórum sínum vísu eða vísur eftir Harald frá Kambi og þeir sem settu saman vísnaþætti fyrir blöð og tímarit gengu í sjóð hans og stálu þar eftir lyst og þörfum. Einnig sá er þetta ritar. Ég er líka einn þeirra sem geymi einhvers staðar vísur sem ég hef satt að segja tahð rétt að hvíla um stund. Haraldur var einn af hagleiksmönnum ferhendunnar en nokkuð einhæfur í efnisvah. Það uröu örlög hans að tefla skák við Bakkus konung og gerast honum helsti fylgispakur. Líf hans varð leikur að eldi. Þá sögu hafa margir sagt í vísum og kvæðum, kannski nógu oft sumir, ekki allir miklu betur en sá er hér um ræðir. Næstu vísu orti Haraldur um fóstru sína og fleiri eru slíkar í bókinni. Annars sleppi ég skýring- um þaðan: Þú ert fögur daladrottning, draumar fagrir rættust þér. Upp th þín ég ht í lotning, ljósið fyrsta gafst þú mér. Nú, þegar hægt er að lesa þessar hagmælskuvísur á bók, skhur maður vel að ekki muni alhr vinir höfundarins hafa ráðiö honum th að gefa þær út. Auðséð er að þeim er kastað fram af meiri bragleikni en smekkvísi, vafasamt að höfund- ur hafl lagt í það nokkru sinni að koma saman handriti. Persónuein- kenni eru skýr. Þótt ég hafi blek og blað, borðið, stóhnn, tíma, lítið er mér létt um það að láta hugsun ríma. Að segja biturt orð í eyra angri veldur. Þögnin segir miklu meira en margur heldur. Toggi labbar leitandi, lét það vera að hátta. Það er orðin þreytandi þessi lífsbarátta. Að mér kjáninn gerir gys, þótt gáfaður sé ég drengur. Nú hlífi ég ekki helvítis hálfvitanum lengur. Fyrir að ræna fátækan var fanturinn heiðri sæmdur. Fyrir að segja sannleikann var saklaus maður dæmdur. Skokkar létt á skeiövöhum skáldagyðjan vökur. Gerðar undir áhrifum eru mínar stökur. Bestu vísur Haraldar frá Kambi sóma sér vel á prenti en hér er ekki nógu vel unnið, að mínum dómi. Hér dreifi ég nokkrum stök- um úr bókinni, ekki þeim bestu, ekki þeim veikustu. En annað les- mál er hripað eftir lestur bókar, ekki dómur né aht heldur sumt af því sem mér kemur í hug. Vel á við að ljúka þætti með þeirri vísu sem í einfaldleika sínum hlýt- ur að snerta mann dýpra en flestar hinar: Gott er að vera suður með sjó, sumar haust og vetur. Á Norðurlandi nýt ég þó náttúnmnar betur. Jón úr Vör r HASKOLABIO FRUMSÝNIR Jami Gertz Dylan McDermott Mynd sem kemur skemmtilega á óvart. Stúlka sem veit hvað hún vill. Tekst henni að negla draumaprinsinn? Gamanmynd fyrir þig. Aðalhlutverk: Jami Gertz, Dylart McDermott, Sheryl Lee, Aida Turturro, Molly Price, Star Jasper. Leikstjóri: David Burton Morris. Sýnd kl. 5 - 7 - 9 og 11. Fjölskyldutilboð: Hádegishlaðborð: Nóvembertilboð: 'pjggi i Þú færð einn og hálfan Heitar pizzusneiðar HeitSupremepizza 1 lítra af Pepsí og og hrásalat eins og þú getur fyrirtvo ásamtskammti -Hut s brauðstangir frítt með í þig látið fyrir aðeins 590 kr. af brauðstöngum stórri fjölskyldupizzu. alla virka daga frá kl. 12-13. á aðeins 1.240 kr. Hótel Esju, sími 680809 Mjódd,sími682208

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.