Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Side 19
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992. 19 Ný hljómsveit hefur náð ótrúlegum vinsældum á stuttum tíma: Kvenhylli og frægðarljós - Páll Rósinkrans, 18 ára söngvari í Jet Black Joe, er poppstjama á uppleið „Fyrir ári ákváöum ég og félagi minn, Gunnar Bjami Ragnarsson, að semja lög og koma þeim á plötu fyrir sumarið. Við imnum stíft við lagagerðina, stofnuðum hljómsveit upp úr áramótum og áttum lög á safnplötu sl. sumar. Þannig að þetta tókst hjá okkur,“ segir Páll Rósin- krans Oskarsson, 18 ára poppsljama, sem þykir einn efnilegasti söngvari landsins um þessar mundir. Páll Rósinkrans hefur ásamt fjórum fé- lögum sínum í hijómsveitinni Jet Black Joe slegið rækilega í gegn á ótrúlega stuttum tíma. Eldri tónlist- armenn sóttust eftir að hafa hljóm- sveitina í upphitun á tónleikum í sumar. „Við æfðum okkur í bílskúmum heima hjá Gunnari Bjama en faðir hans, Ragnar, var í hljómsveitinni Randver á sínum tíma. Hann bað Pétur Kristjánsson að koma og hlusta á okkur, athuga hvort við værum að gera rétta hluti. Það má segja að það hafi orðið til þess að hjólin fóm að snúast hjá okkur. Pétri leist vel á það sem við vorum að gera og það varð til að við fengum að vera með á safnplötu hjá Steinum," segir Páll Rósinkrans. Strákamir í Jet Black Joe hafa náð mjög miklum vinsældum meðal ungs fólks. Þeir fylla alla þá staði þar sem þeir koma fram og aðdáendahópur- inn stækkar og stækkar. Það em ekki bara unglingamir, sem em í þeim hópi, margir eldri telja hljóm- sveitina með þeim bestu sem hafa komiö fram á sjónarsviðið um langt skeið. „Það er Jet Black Joe og við skírðum hljómsveitina í höfuðið á honum.“ Beintífyrstasæti Fyrsta plata þeirra félaga kom út nú í haust og rauk strax upp í fyrsta sæti vinsældalistans. Páll Rósin- krans segist ekki vita hvers vegna Jet Black Joe sé svo vinsæl hljóm- sveit. „Við höfum trú á því sem viö erum að gera og það skiptir miklu máli. Við ákváðum að taka tónlistina alvarlega, hættum í skóla og vinnu til að nota alla okkar krafta í hana. Núna lifum við á tónlistinni," segir Páll Rósinkrans. Útvarpsstöðvamar hafa verið dug- legar að ræða við þessar ungu popp- stjömur og þeir félagar hafa t.d. spU- að á Bylgjunni í beinni útsendingu. „Það hefur allt gengið okkur í hag frá byrjim," segir Páll. „Strax og við komum fram á sjónarsviðið spiluð- um við með Stjóminni um landiö og síðan hljómsveitunum Todmobiie og Sálinni.“ Jet Black Joe er ekki þungarokks- hljómsveit eins og einhver gæti hald- ið á úthti piltanna. „Síða hárið er ímynd rokksins, ekki endilega þungarokks," útskýrir Páll Rósin- krans. „Við viljum láta hljóma óma tært, við spilum original tónlist," heldur hann áfram. „Gítarleikarinn er með þrjátíu ára gamlan gítar og hljómborðsleikarinn leikur á Hamm- ond. Það hlýtur að segja heilmikið um okkur. Þetta em hijóðfæri sem hljómsveitir í gamla daga notuðu. Við viljum engin óþarfa aukahljóð í okkar tónlist.“ Roknaséns Óhjákvæmilega breytist líf ungra pilta þegar þeir verða óvænt miklar poppstjömur. Páll Rósinkrans neitar því t.d. ekki að hann njóti óhemju kvenhylii og að þeir félagar hafi roknaséns. Hann var á lista yfir kyn- þokkafyllstu karlmenn landsins í Pressunni nýlega. Páil er á lausu og finnst því ágætt að ganga í augun á kvenfólki. Honum finnst þó hallæris- legt að viðurkenna slíkt. „Það er stór aðdáendahópur í kringum okkur og við emm einungis þakklátir fyrir það,“ segir hann. „Ég held þó að eng- inn verði poppstjama nema hann leiki það sjálfur. Við höfum ekkert breyst sjálfir þótt hljómsveitin hafi náð vinsældum. Því er þó ekki að neita að popparapartí em mjög al- geng og við höfum snúið sólar- hringnum við. En þetta er skemmti- legt líf og nákvæmlega eins og ég hefði kosið það. Þetta er draumur- inn.“ Með honum í Jet Black Joe era Gunnar Bjami Ragnarsson, Hrafn Thoroddsen, Starri Sigurðarson og Jón Öm Amarsson. - En hvað segja foreldrar þínir um breytt líf sonarins? „Mömmu líst vel á þetta og er ánægð með mig. Sjálfsagt er pabbi það líka en hann á erfitt með að tjá sig um það.“ -ELA Ég held að enginn verði poppstjarna nema hann leiki það sjálfur," segir Páll Rósinkrans, 18 ára söngvari í Jet Black Joe, en margir telja að hann sé upprennnandi poppstjarna á íslandi. DV-mynd Brynjar Gauti Stóribróðir Páll Rósinkrans er fæddur 18. jan- úar 1974. Hann er elstur fjögurra systkina, það yngsta er rúmlega tveggja mánaða gamalt. Frá níu ára aldri hefur Páll alist upp í Hafnar- firði. Hann er skírður í höfuðið á afa sínum sem var skyldur Guðlaugi Rósinkrans, fyrrverandi þjóðleik- hússtjóra. Þaðan er Rósinkransnafn- ið komið. Páll hefur ailtaf haft áhuga á tón- list og byijaði að syngja með hijóm- sveitum aðeins fjórtán ára gamall 1988. „Það er mikið söngfólk í móður- ætt minni og móðursystir mín, Sig- ríður Guðnadóttir, vann t.d. söngva- keppni í þætti Hemma Gunn. Mamma, Hrefna Guðnadóttir, hefur líka sungið nokkuð, meðal annars inn á kristilegar hljómplötur." Eldra fólk er hneykslað á að þessir ungu drengir skuli syngja á ensku og gefa hljómsveitinni útlent nafn. Páil Rósinkrans telur það eðlilegt að syngja á ensku og segir að nítíu pró- sent af allri tónlist, sem spiluð er, sé á ensku. „Ég vil syngja á ensku,“ segir hann. „Þar sem við erum ákveðnir í að koma tónlist okkar á erlendan markað teljum við eðlilegra að vera með enska texta,“ útskýrir poppgoðið. Sú hljómsveit, sem höfðar mest til Páls Rósinkrans, er gamla Trúbrot. „Ég hlusta helst á Trúbrot af íslensk- um hljómsveitum," segir hann. Nafnið Jet Black Joe er komið frá líkneski sem þeir félagar eiga af Af- ríkumanni að beija bongotrommur. HANDBÆKUR UMTÖLVUROG HUGBUNAÐ, NÝJARBÆKUR ÍÓTRÍJtEGU URVAU bók/öslö. /túdervta. Hringbraut, Reykjavík sími 91-61 59 61 Bókabúb Keflavíkur, Sólvallagötu 2, Kcflavík, sími 92-111 02 Tölvutæki, Furuvöllum 5, Akureyri, sími 96-2 61 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.