Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Qupperneq 30
38 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993 Eygeróur Inga tók m.a. þátt í heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins sem fram fór í júní sl. og eins og sjá má gefur hún þeim fullorðnu ekkert eftir á sprettinum. DV-mynd Jónas Ragnarsson Litla hlaupadrottningin í Reykjavikurmaraþoninu: Byrj aði fyrir alvöru í vor - segir Eygerður Inga Hafþórsdóttir Eygerður Inga segist ákveðin í að halda áfram að hlaupa og markmlð- ið sé að gera sitt besta. DV-mynd JAK „Ég hljóp fyrst í Reykjavíkur- maraþoninu 1989, þegar ég var fimm ára. Árið áður hafði pabbi minn tekið þátt í því, en þá horfði ég bara á. En hann hafði leyft mér að æfa með sér og fundið að ég hafði svolítið þol. Ég fékk því að hlaupa með honum árið eftir og gekk bara mjög vel. Þannig hófst þetta. í fyrra og aðallega í vor byij- aöi ég svo fyrir alvöru," segir ung hlaupadrottning, Eygerður Inga Hafþórsdóttir, sem vakið hefur mikla athygh fyrir góða frammi- stöðu í lengri hlaupum. Eygerður Inga er nýorðin tíu ára. Hún býr í Mosfelisbænum ásamt foreldrum sínum, Hafþór Jónssyni og Kristínu Egilsdóttur. í nýaf- stöðnu Reykjavikurmaraþoni hljóp Eygerður Inga tíu kílómetra. Hún náði besta tímanum í sínum flokki, 14 ára og yngri, og fimmta besta tímaallra kvenna sem hfupu þessa vegalengd. Óneitanlega vel af sér vikið af tíu ára stúlku. Eygerður Inga fékk tímann 44,11 að þessu sinni en segist hafa gert betur, því á Jónsmessunni hafi hún hlaupið sömu vegalengd á 41,19. Hún segir þetta stafa af því að hún hafi æft Utið fyrir Reykjavíkur- maraþonið nú, þar sem hún hafi verið „pínu meidd“ fyrr í sumar. En engu að síður stóð hún uppi sem sigurvegari í sínum flokki og var kölluð niður á Hótel Borg um kvöldið, þar sem henni var afhent viðurkenningarskjal. Þegar hún sagði frá því benti svipurinn á and- Utinu tíl þess að þar heföi hún upp- lifaö stóra stund. Eygerður Inga er náfrænka Jó- hanns Ingibergssonar, nýbakaðs íslandsmeistara í Reykjavíkur- maraþoni, og einnig skyld Konráð Gunnarssyni, hlaupara á Akur- eyri. Það má því segja að það renni hlaupablóð í æðum hennar. Hefurgengið mjögvel „Fyrstu þijú árin hljóp ég ein- göngu í Reykjavíkurmaraþoni," segir Eygerður Inga, „en fyrir tveim árum fór ég að taka þátt í fleiri hlaupum. í hittifyrra fór ég til dæmis líka í skólahlaup. Mér hefur gengið mjög vel á þessu ári og ég hef unnið öU hlaupin nema það sem ég tók þátt í á laugardag- inn. Þá tapaði ég í sex hundruð metrum og varð í 2. sæti. En mér tókst að vinna í víðavangshlaupi ÍR, Breiðholtshlaupi ÍR, víðavangs- hlaupi UMFA, Húsasmiðjuhlaup- inu og víöavangshlaupi íslands, svo dæmi séu nefnd.“ Raunar gerði Eygerður gott betur en aö vinna í víðavangshlaupi ís- lands. Hún krækti sér í íslands- meistaratitil í flokki 12 ára og yngri. í það skiptið hljóp hún 1500 metra. „Mér tókst að ná þetta góðum árangri þótt styttri hlaupin séu varla mín grein. Ég hef ágætt þol og þess vegna gengur mér vel í lengri hlaupum." Æfirmeð IR Eygerður Inga æfði með Umf. Aftureldingu til að byrja með en fyrir tæpum tveim árum flutti hún sig yfir í ÍR og æfir með því félagi nú. Hún hefur keppt sér til gamans í nokkrum greinum, svo sem lang- stökki, en hlaupin eiga hug hennar allan. „Ég er best í þeim,“ segir hún ákveðin, „og ætla að halda mig við þau, í bili að minnsta kosti. Ég stefni á að allt gangi vel í framtíð- inni.“ Eygerður Inga hefur ekki tíma fyrir margt annað er hlaupin. Hún segist þó hafa áhuga á dýrum, en eigi þó engin sjálf. Svo hefur hún stundað sund og fylgist mjög grannt með flestu því sem er að gerast í íþróttaheiminum, bæöi hér og erlendis. Hún segist halda mest upp á Carl Lewis og Merlene Ottey af erlendu íþróttamönnunum og Mörtu Emstdóttur og Fríðu Rún af þeim íslensku Undanfarin sumur hefur hún verið í sveit í Saurbæ í Skagafirði. Þar hefur hún m.a. haft þann starfa með höndum að reka kýmar, auk þess sem hún hefur mjög gaman af aö fara á hestbak. En nú er það skóhnn sem er framundan og svo auðvitað æfingamar. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.