Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1993, Page 13
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
13
Merming
^arminn
aldraðra
Annaö áriö í röð hefur Þórir S.
Guðbergsson tekið saman bók með
frásögnum sjö aldraðra íslendinga
imdir heitinu „Lifsgleði". Bókin
lætur ekki mikið yfir sér en er læsi-
leg.
Hér er um ólíka einstaklinga að
ræða og minnir það á að vissulega
eru aldraðir ekki steyptir í sama
mót frekar en aðrir aldurshópar,
eins og Sigfús Halldórsson sér
ástæðu til að nefna og gagnrýnir í
leiðinni ríkjandi stefnu um að sem
flestir aldraðir eiga að búa saman
í sérhönnuðum byggingum fyrir
aldraða. En vilji maður leita að ein-
hverjum samnefnara fyrir frásagn-
ir þeirra einstaklinga sem hér tjá
sig, kemur á daginn að allir eru
högum þeirra sem ólust upp fyrir
stríð og þeirrar kynslóðar sem nú
er að vaxa úr grasi, og sýnist full
ástæða til að efast um að hin aukna
velmegun hafi alltaf skilað ham-
ingjuríkara lifi. Ég get sagt það
sama um þessa bók og ég sagði um
bók Þóris í fyrra að hún hafi örugg-
lega að geyma mikilvægari boð-
skap en margar þeirra bóka sem
munu vekja meiri athygli fyrir
þessi jól.
Þórir S. Guðbergsson
Lifsgleði II
Vlðtöl og frásagnir
Hörpuútgáfan 1993 (184 bls.)
Þórir S. Guðbergsson hefur skráð
minningar sjö aldraðra íslend-
inga.
Bókmenntir
Gunnlaugur A. Jónsson
þeir trúaðir og gera trúmálin að
umtalsefni.
Pétiu- Sigurðsson alþingismaður
sem þekktari er sem „Pétur sjó-
maður" lætur þá skoöun sína í ljós
að bein tengsl sjómanna við nátt-
úruöflin geri þá trúaðri en þá sem
aldrei þurfi að standa frammi fyrir
lífshættu í starfi sínu. Sjálfur segist
Pétur alltaf hafa haldið sinni
barnatrú.
Ekki þarf að taka fram að Einar
J. Gíslason, fyrrverandi forstöðu-
maður Hvítasunnumanna, er trú-
aður. Kynnin af sjónum á hann líka
sameiginleg með Pétri. Frásögn
Einars er lífleg eins og vænta
mátti. Stundum er því haldið fram
að trúin eigi greiðari aðgang að
listamönnum en ýmsum öðrum.
Hér segja tveir landsþekktir tón-
hstarmenn frá. Æskuminningar
Kristins Hallssonar tengjast mjög
tónhst, fundum í KFUM og messum
í Dómkirkjunni. Hann segist trúað-
ur og að efasemdir hijái hann ekki.
Frásögn hans af kynnum við séra
Bjarna er minnisstæð. í frásögn
Sigfúsar Hahdórssonar er hins veg-
ar minnisstæðust lýsing hans á
Kjarval og kynnum þeirra, ekki
síst af því er þeir gengu saman
kringum Tjörnina heila nótt og seg-
ist Sigfús enn búa að því ævintýri.
Aðalheiður Bjamfreðsdóttir, sú
landskunna baráttukona verka-
fólks, ólst upp í hópi 20 systkina.
Faðir hennar kenndi þeim systkin-
unum að þau mættu aldrei vera
hlutlaus þegar níðst væri á ein-
hverjum. Þá áttu þau ahtaf að
koma til hjálpar. Varla verður Að-
alheiður sökuð um að hafa ekki
breytt eftir þeirri lífsreglu. í trú-
málum segist hún hafa endurheimt
barnatrú sína, trú móður sinnar
og lengi beðið daglega th Guðs.
Áslaug S. Jensdóttir, segist heyra
orðin hamingja og kærleikur
sjaldnar en áður var. Af reynslu
langrar ævi segist hún trúa á mátt
bænarinnar og guðlegrar hand-
leiðslu.
Síðustu orðin í þessari bók á Sig-
ríður Rósa Kristinsdóttir og nefnir
hún hugleiðingu sína „Leikmanns-
þankar um lífsgátuna". Hafi trúin
að vissu leyti verið samnefnarinn
í þessari bók þá fær hún hér langít-
arlegasta umfjöllun. Fjölmargir
Ritningarstaðir eru ræddir af sjón-
arhóh leikmanns og mörg forvitni-
leg sjónarmiö koma þar fram.
Þó afstaða þessa fólks til trúar-
innar hafl hér einkum verið gerð
að umtalsefni kemur það aht mjög
víða við. Það sem upp úr stendur
eftir lestur hennar er hugsunin um
hve ótrúlega mikhl munur er á
Haukur Vilhjálmsson, Félagi heyrnarlausra
Við höldum utanum allt
sem viðkemur félaginu
t.d. yfirlit og reikninga,
í röð og reglu í
FélagasjóðsmöppunnL'
Innheimta félagsgjalda
Greiðsluþjónusta
Yfirlit yfir félagsgjöldin
Rekstrarreikningur
árlega i
Bókhaldsmappa A
í kaupbæti
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna