Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1993, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
Dagur í lífi Sigurðar G. Tómassonar, dagskrársljóra Rásar 2:
Bragðgóður
draumur
Miðvikudagurinn 24. var rétt eins
og segir í kvæðinu; hann gekk sinn
gang. Ég var þreyttur þegar ég fór á
fætur um háifáttaleytið. Það sat eig-
inlega enn í mér þreyta eftir að hafa
fylgst með gráðun í Karatefélaginu
Þórshamri á mánudagskvöldið fram
undir miðnætti.
Ég hlustaði á morgunútvarp Rásar
2 meðan ég reyndi aö tína til morgun-
mat handa syni mínum, karate-hetj-
unni. Það er reyndar ekki einfalt mál
því sá ungi maður er ekki mjög lyst-
argóður á morgnana eftir að hann
fann orm í hunangshringjunum sín-
um. Núnú, ég tók lýsið mitt, morgun-
þátturinn var góður hjá Leifi, reynd-
ar fannst mér ekki nóg að græða á
morgunverðarfundi Verslunarráðs-
ins, Friðrik Sophusson íjármálaráð-
herra hefði mátt miða ræðu sína bet-
ur við dagskrána hjá okkur. Viö
höldum því nefnilega fram að fólk
geti komiö öllu frá sér sem máli
skiptir á 5-7 mínútum. En þetta var
reyndar allt saman rætt á morgun-
verðarfundi dægurmálaútvarpsins
sem hófst klukkan hálftíu eins og
aila virka daga. Áður en hann hófst
náði ég að svara einu erindi símleið-
is. Það var ungt fólk úr framhalds-
skóla úti á landi sem vildi fá að hitta
mig og forvitnast um Rás 2 og Ríkis-
útvarpið.
Á morgunfundinum var farið yfir
síðdegisútvarp gærdagsins og morg-
unútvarp dagsins, varpað fram hug-
myndum um efni og „lagt upp“ fyrir
þættina fram undan. Okkur hijáði
dáhtið mannfæð því flensur og lun-
gangspestir gera sér sérstaklega dælt
við útvarpsfólk. Þennan dag gat ég
ekkert unnið fyrir dægurmálaút-
varpið sjálfur en aðrir lögðu því
meira af mörkum. Þessi miövikudag-
ur er áreiðanlega einhver mesti
fundadagur minn í langan tíma því
klukkan ellefu var ég kominn á
næsta fund. Áður en ég fór aö ræða
við verkfræöing og tónlistarritstjóra
rásar 2 um „endurhögun rásarinn-
ar“, sem nú er næsta stórverkefni
útvarpsins, hljóðvarpsmegin, gafst
mér þó ofurlítið andrúm til þess að
heyra í afmæhsnefnd rásar 2. Við
veröum nefnilega 10 ára í næstu
viku, 1. desember. Við eigum sama
afmæhsdag, ég og rásin, en erum
ekki alveg jafnaldrar. Fundurinn um
endurhögunina var góður. Við sátum
reyndar svo lengi að ég komst ekkert
í mat og gekk á forðann. Stórkostleg-
ar tækninýjungar eru nú að ryðja sér
til rúms í útvarpsrekstri og við sáum
hiha undir þær hjá yngsta bami rík-
isútvarpsins.
Úrhúsi
Að loknum þessum fundi fór ég úr
húsi. Ég hafði verið beðinn um að
skýra frá þætti Ríkisútvarpsins,
einkanlega rásar 2, í ferðaátaki innan
lands á næsta ári. Rásin ætlar að
sinna því sérstaklega, fylgjast með
viðburðum um aht land sem tengjast
þessu og koma á framfæri upplýsing-
um. Þetta tengist auðvitað markmið-
um Ríkisútvarpsins um efhngu þjóð-
legrar menningar. Reyndar var ég
svo þjóðlegur í tölu minni á þessum
fjölmenna fundi að nægt hefði til að
trylla ungmennafélagsfund um alda-
mótin. Félagi minn einn, sem var
þama, sagði að hann hefði orðið að
grípa í handlegginn á sér (rétt eins
og dr. Strangelove í samnefndri
mynd) til að hindra að hann hehsaði
fánanum ósjálfrátt. Ég náði í kaffi-
bolla og marengsköku áður en ég
æddi vestur í Háskóla þar sem ég
messaði yfir nemendum Hannesar
Hólmsteins í næstu tvo tíma og svar-
aði fyrirspumum. Það var komin
hálka þegar ég fór út úr Skakkhym-
ingi sem orðhagur nágranni Odda
kahar svo og á gangstéttinni komst
ég aö því að ég kemst í sphtt - næst-
um því. Þessi líkamsæfing var reynd-
ar á ábyrgð gatnamálastjórans í
Reykjavík og veðurguðanna.
Heim kominn hlustaði ég á kvöld-
fréttir og át svo dagskrá sjónvarpsins
með húð og hári eins og langsoltinn
maður kræsingar. Ég var ekki orð-
inn saddur fyrr en í upphafiþáttarins
um óháðu hstahátíðina. Eg ákvað
með sjálfum mér að það væri ekki
menningarfjandskapur þótt mér
þætti þessi tætingur ekki kræsilegur
í eftirrétt svona rétt undir svefninn.
En ekki sveik Hemmi frekar en fyrri
daginn. Hermann Gunnarsson sann-
ar þá kenningu að það er ekki tækn-
in 1 framleiðslu og útsendingu ljós-
vakamiðlanna sem skiptir megin-
máh. Það er manneskjan og hjarta-
lagið. Að viðbættu svohtlu skopi og
mátulegum skammti af hrekkjum.
Þakka þér fyrir, Hemmi minn. Og svo
sofnaði ég og dreymdi laufabrauðið
sem konan mín var að baka á neðri
hæðinni fyrir Búmannsklukkuna.
Það var bragðgóður draumur.
Sigurður G. Tómasson.
Finniir þú fíimn breytingar? 233
Já, en kæri Haraldur, hvers vegna vildir þú ekki sitja á aftasta bekk
eins og i gamla daga?!
Nafn:.........
Heimilisfang:
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í Ijós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfii sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta fjölskyldu-
spihð í heimi. Það er þro-
skandi, skerpir athyghsgáfu
og þjálfar hugareikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Mömmudrengur, Þrumu-
hjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn
þrá. Bækumar em gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 233
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð þrítugustu og fyrstu get-
raun reyndust vera:
1. Hera Karlsdóttir,
Birkimel 8,107 Reykjavík.
2. Guðni Þórir Jóhannsson,
Hhðargötu 27, 740 Neskaup-
stað.
Vinningamir verða sendir
heim.