Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1993, Page 33
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
41
f slendingar tengjast víða ólympíuleikunum í lillehammer:
Gistihús íslenskrar
konu valið í auglýsingar
- þar sem boðið er upp á hákarl og íslenskt brennivín
„Ég hef boöið upp á hákarl og
íslenskt brennivín og það hefur
vakið mikla athygli hér. Ung stúlka
klædd sem hafmeyja hefur boðið
gestum upp á þessar nýstárlegu
kræsingar," segir Sigurbjörg Harr,
veitingastjóri og eigandi gistihúss-
ins Barbro í Rörvik í Noregi, í sam-
taii við DV. Sigurbjörg, sem er
matreiðslumeistari, hefur boðið
upp á glæsilegt sjávarréttaborð í
veitingasal sínum sem skrifað hef-
ur verið um í fjölmörgum norskum
blööum. Ástæðan er sú að gistihús-
ið hennar er notað í auglýsingum
til kynningar á ólympíuieikunum
í Liilehammer.
Svo virðist sem íslendingar eigi
talsvert í þessum væntanlegu
ólympíuleikum og komi þar viða
við sögu. Fyrir utan veitingahús
Sigurbjargar, eða Bubbu eins og
hún er kölluð, var það íslendingur,
Björn Björnsson, sem sigraöi í slag-
orðakeppni fyrir leikana og Guð-
mundur Jónsson arkitekt teiknaði
söguhús Noregs sem verður sett
upp í Lillehammer. Vonandi tekst
skíðamönnum okkar, sem sendir
verða á leikana, jafnvel upp og
hugvitsmönnunum.
Rörvik er lítil eyja í Þrændalög-
um sem er tengd við landið með
brú. Oft eru haldnar ráðstefnur og
þing á eyjunni og er því nóg að
gera hjá Sigurbjörgu. Hún hefur
nú í hyggju að stækka gistihúsið
með því að byggja glerhýsi við það.
í mynd um
konur á uppleið
Dugnaður Sigurbjargar hefur
vakið athygli því að um leið og
upptökur fóru fram fyrir OL-aug-
lýsinguna vsir tekin upp mynd sem
verður hluti kvikmyndar um kon-
ur og atvinnulífið í Noregi eða Kon-
ur á uppleið. Barbro-veitingahúsið
var dubbað upp í sparifótin fyrir
upptökudaginn sem var 15. sept-
ember og fjörutíu gestum boðið í
sjávarréttakvöldverð að hætti
hússins. Að sjálfsögðu var byijað á
að bjóða gestum upp á hákarl og
brennivín að ísleriskum sið og
fengu allir þeir sem þorðu að
smakka viðurkenningarskjal upp á
það sem skrifað er á íslensku.
Sigurbjörg Harr hefur búiö í tutt-
ugu ár í Noregi. „Ég bjó fyrstu árin
í Ósló og starfaði þá sem þjónn.
Fyrir fimmtán árum fluttí. ég hing-
að og var í fyrstu hússtjórnarkenn-
ari en settist síðan á skólabekk til
að mennta mig sem kokkur," segir
Sigurbjörg. „Ég keypti Barbro
gistihúsiö fyrir tæpum fimm árum
á nauðungaruppboði og hef rekið
það síðan. Hér eru átta herbergi og
veitingasalur. En ég hef unnið að
stækkun sl. tvö ár og vonast til aö
hún geti orðið að veruleika á næsta
ári.“
Þegar gera átti kynningarmynd-
ina um Noreg fyrir ólympíuleikana
voru fyrst valdir 78 staðir á landinu
sem áttu að vera með. Þrír staðir
voru valdir í því fylki sem ég bý í
og einn þeirra var Rörvik. Sá staö-
ur valdi síðan Barbro vegna þess
hversu mikla áherslu við leggjum
á sjávarréttahlaöborðin.
Fáir íslendingar
„Norsku blöðin hér hafa gert
mikið úr því að ég bjóði hákarl og
íslenskt brennivín. Þeim fmnst það
mjög merkilegt," segir Sigurbjörg.
„Annars er það alveg frábært að
við skyldum verða fyrir valinu.
Þetta er gríðarlega mikil auglýsing
fyrir staðinn. Ég fékk styrk upp á
tuttugu þúsund norskar til að lag-
færa hjá mér fyrir sjónvarpsupp-
tökuna og þetta tókst frábærlega
vel.“
Sigurbjörg segist ekki fá íslend-
inga sem gesti til sín nema nánasta
skyldfólk að heiman. „Ég er það
mikið út úr hér að ég sé sjaldan
íslendinga," segir hún. Á sumrin
fær Sigurbjörg talsvert af ferða-
mönnum í heimsókn, aðallega
Þjóðveija og Svía.
Sigurbjörg á þijú börn, 17 ára,
22ja og 24ra ára, en tvö þeirra eru
búsett á íslandi.
íslendingar eiga væntanlega eftir
að sjá gistiheimili Sigurbjargar
þegar kynningarmyndirnar um
Noreg verða sýndar eftir áramótin.
-ELA
AVfön^,
Barbroson
Vertstíiikí
OL-reklai
SJamatve:
kvinnéarl
Vertshus
utvider
. ^.odeUen er
^rCTOve Haug fr* ”
_ ««íll lfl —uikjer somharv—
Vertshuset Barbri
Suttatt til OL ’94
Úrklippur úr norskum blöðum sem segja frá hinni ísiensku Sigurbjörgu
og gistiheimili hennar sem býður upp á hákarl og islenskt brennivín.
Sigurbjörg Harr með likan af gistihúsi sínu sem notað verður í kynningarmyndir og auglýsingar fyrir ólympiu-
leikana í Lillehammer.
VERÐLÆKKUN
Verð frá
kr. 23.785.*
ÓDÝRARFERÐIR
Flórída - Fort Lauderdale
7 eða 11 nætur
Gist á Hotel Best Western Oceanside Inn,
Grand Hotel Krasnapolski
2 nætur, brottför 3. des. og 10. des., kr. 27.755.
3 nætur, brottför 2. des. og 9. des., kr. 32.350.
4 nætur, brottför 3. des. og 10. des., kr. 36.995.
Hotel Citadel
2 nætur, brottför 3. des. og 10. des., kr. 23.785.
3 nætur, brottför 2. des. og 9. des., kr. 28.895.
4 nætur, brottför 3. des. og 10. des., kr. 30.005.
ÁRAIVIÓT í AMSTERDAM
30. des. til 2. jan. Gisting á Grand Hotel Krasnapolski sam er á besta stað í borginni. Verð i tvibýli kr. 41.455. Brottför 30. des. dvalið til 2. jan.
InnifaliA: Flug, gisting, morgunveröur. fiugvallarsk.
og glæsilegur 5 rétta hátíðarkvöldverður með tilheyr-
andi drykkjarföngum á gamlárskvöld. Hljómsveit,
skemmtiatriði, dans. Allar nánari uppl. á skrifstofunni.
Pantaðu fyrir 10. des. ‘93.
^RKEREIZEN
Pakkaferðir til Spánar, Portúgal, Madeira, Kýpur, Tyrk-
lands. Flogið um Amsterdam.
Hagstætt verð-fáðu upplýsingar og bækling hjá okkur.
■ Staóemró i I tvlbýli. I»H. Ilng.
gístiag, morgunv. og flugnk. i Glasgow u Islaosk fararstj.
Morguov. ar akki imtifalinn i Bandarlkjunun.
Verð frá kr. 23.790.*
Glasgow
frá kr. 41,110,
Golfferð á Myrtle Beach
27. febrúar -16 dagar - islensk leiðsögn
Gisting á Hospitaiity Inn
4 nætur, brottför 30. nóv. og 7. des.
kr. 24.890.
Gisting á Central Hotel
4 nætur, brottför 30. nóv. og 7. des.
kr. 23.790.
Ft. Lauderdale - Orlando
Baltimore - l\lew York
6.000 króna afsláttur á mann i allar pakka-
ferðir til Bandaríkjanna janúar og febrúar
'94. Tilboðið miðast við að ferðin sé bókuð
og staðfest fyrir 28. niv. ‘93.
London
Clifton Ford Mount Royal
2 nætur, kr. 30.810. 2 nœtur, kr. 29.910.
3 nætur, kr. 33.510. 3 natur, kr. 32.510.
4 nastur, kr. 36.310. 4 natur, kr. 34.910.
TRIER jólamarkaður
3. des. til 7. des.,
4 nætur, verð I tvibýli kr. 30.610
Gisting á Hotel Deutscher Hof
ImH Flug, gisting, morgunv., f lutningur til og frá f lugvslli og f lugvallarsk.
Við verðum með kynningu
í Perlunni laugardag og
sunnudag.
Hringdu I sima 621490
mmbi og fáðu nánari upplýsingar.
“ FERÐASKRIFSTOFA
(% REYKJAVÍKUR
Aðalstrætí 16 - simi 62-14-90