Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1993, Page 56
w
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auyiysingar - Áskriffc - Preifing: Slini 63 27 Oð
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993.
Björgunar-
sveitarmaður
slasaðist
Björgunarsveitarmaður slasaðist í
gærkvöld þegar þakplötur fuku af
rússneska sendiráðinu við Garða-
stræti. Töluvert var um að þakplötur
fykju og rúður brotnuðu í Reykjavík.
í Borgamesi var fjöldi manns veð-
urtepptur. Að sögn lögreglu var vart
fært bílum yfir Borgarfjarðarbrúna.
Þakplötur fuku af vörugeymslu-
húsi við höfnina í Ólafsvík. Ekki var
stætt uppi á þakinu vegna hvassviðr-
is svo að menn brugðu á það ráð að
aka lyftara að húsinu og leggja gaffl-
ana á þakið. Þá fauk bíll út af vegin-
um á Fróðárheiði síðdegis og valt.
-hlh/pp
Haföminn:
Bærinn eykur
ekki hlutafé
„Menn eru að skoða hvað hægt er
að gera og ákveðnar hugmyndir'eru
í gangi sem ég get ekki tjáð mig um
nú. Þessar aðgerðir verða þó örugg-
lega ekki í þá veru að bærinn auki
þátttöku sína í fyrirtækinu. Annars
er þetta svekkjandi þar sem atvinnu-
ástandið er ekki gott hér á Skaganum
og slæmt ef 120 manns verða at-
vinnulausir," sagði Gísli Gíslason,
bæjarstjóri á Akranesi, en bærinn á
rúm 30 prósent í útgerðarfyrirtæk-
inu Haferninum sem fór í þriggja
vikna greiðslustöðvun vegna
rekstrarörðugleika í gær.
Var öllu starfsfólki, 120 manns, sagt
upp störfum. Nettóskuldir Hafarnar-
ins eru um 800 milljónir króna en tap
fyrstu 9 mánuði þessa árs voru 106
milljónir. Hafórninn gerir út tvo tog-
ara, Höfðavík og Sæfara, sem reynd-
arhefurveriðlagt. -hlh
_----■_—_
LOKI
I þessu hundaveðri varsem
sagt hundi útsigandi!
Þakplöturnar f uku
ems og spil ut a sjo
„Það er kraiú hérna að setja 500
kílóa heyrúllur hér upp á leifaraar
af þakinu til að stoppa þetta. Það
eru þvílíkar hviður sem koma
hérna niður Blikdaiinn. Þetta gýs
hérna niður og verður eins og
hvirfilvindur. Ég vona bara að hús-
ið standi," sagði Guðríður Gunn-
arsdóttir, ábúandi aö Dalsmynni í
Kjós, í samtali við DV í gærkvöld.
í Dalsmynni er starfrækt hunda-
hótel og voru flmm gestir á hótel-
inu þegar helmingurínn af þakinu
fauk af. Guðriður segist hafa verið
íljót að bjarga þeim inn í íbúðar-
húsið og hafi þeim ekki orðið meint
af.
Bílskúr er áfastur hótelinu og
hafði helmingurinn af þakinu fokið
af honum og voru heyrúllur hífðar
upp á leifarnar af þakinu til að
bjarga þvi sem bjargað yrði.
„Ég var stödd í eldhúsinu að baka
þegar lætin byrjuðu. Svo heyrði ég
þennan rosalega hvin og flýtti mér
út í glugga og sá manninn rninn
standa úti á miðju plani. Þá fóru
plöturnar að fjúka hver af annarri
og þær þeyttust eins og spil út í
sjó. Ég bara trúði þessu ekki," seg-
ir Guðríður.
Eíginmaður Guðríðar, Björn Ól-
afsson, var hins vegar farinn að
óttast um hlöðuna. Þar voru um tiu
björgunarsveitarmonn frá Kyndli í
Mosfellsbæ og nokkrir frá björgun-
arsveit i Kjós. Um tíma var vart
stætt þegar hörðustu hviðumar
buldu á mannskapnum og brugðu
björgunarsveitarraennirnir, sem
börðust við að bjarga hlöðuþakinu,
á það ráö að binda sig i krana sem
notaöur var til björgunarstarf-
anna. -pp
Björgunarmenn vinna að því að koma heyrúllum upp á þakið á
hundahótelinu að Dalsmynni. Á minni myndinni er einn björgunar-
sveitarmanna kominn upp á þakið og kaltar til féiaga sinna.
DV-myndir Brynjar Gauti
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Sunnanátt með skúrum
Á morgun, sunnudag, er gert ráð fyrir fremur hægri sunnan- og suðaustanátt á landinu. Smáskúrir verða sunnan- og vest-
anlands og einnig á sumum stöðum á Austfjörðum en þurrt norðanlands.
Á mánndag verður hæg suðaustan- og sunnanátt. Smáskúrir verða sunnan- og austanlands en úrkomulaust annars staðar.
Veðrið 1 dag er á bls. 61
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
í
á
I
(>