Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1993 17 Fréttir Elnar Jónsson, framkvæmda- stjóri Skagamarkaðarfns, við hrefnuna. DV-mynd Slgurður Unnið að rannsókn „norsku“ fuglanna: Einn f álkanna var f ullur af höglum Sigurður Sverrsson, DV, Akranesi; Valdimar Geirsson á Valdimar AK 15 fékk sannkallaðan hval- reka nýlega þegar fiögurra tonna hrefna flækti sig í netum bátsins og drapst. Hrefnuveiðar eru sem kunnugt er bannaðar en ekki er hægt að koma í veg fyrir veiöar af þessu tagi Við mælingu og vigtun á Skaga- markaðinum reyndist skepnan rúmlega 7,5 metra löng ogliðlega 4 tonn að þyngd. Þetta er í fyrsta skipti sem Skagamarkaðurinn fær hrefnu til sölu en önnur smá- hveli eins og hnísa og höfrungar hafa slæðst í net og komiö í sölu. Þekkt fiskbúö í Reykjavík rann strax á lyktina og keypti skepn- una og má gera ráö fyrir að 1300 kíló af kjöti fáist af henni. Það er því Ijóst að þetta var sannkallað- ur jóia-hvalreki fyrir Valdimar. Leikskóladeilan: Borgarráð féllstásam- komulagið Borgarráð samþykkti nýlega samkomulag borgaryfirvalda og Guðmundar Áma Stefánssonar heilbrigðisráðherra um hlutdeild borgarinnar í kostnaði við rekst- ur leikskóla sjúkrahúsanna næstu árin. Borgin hafði komist að samkomuiagi við Guömund Árna um að greiða 6.000 krónur með hveiju barni á leíkskólunura ó næsta ári. -GHS Ný öryggisþjónusta fyrir sjómenn: Stormfréttir frá loftskeyta- stöðvum - segir starfsmaður N áttúrufr æðistofnunar Starfsmenn Náttúrufræðistofnun- ar vinna nú að rannsókn dauðu fugl- anna sem fundust í Noregi í seinasta mánuöi. íslendingur var handtekinn vegna málsins á flugvelli í Noregi eftir að fuglamir fundust í sendingu frá Akureyri. í sendingunni vom meðal annars varahlutir sem áttu að fara í íslenskan togara en maðurinn reyndist saklaus þegar til kom. Eftir yfirheyrslur lögreglunnar á Akur- eyri gekkst annar Islendingur við að hafa drepið fuglana, sem vora um 40, þar á meðal 3 fálkar, himbrimi og nokkrar andategundir. Að sögn Jóns Baldurs Hlíöbergs, starfsmanns Náttúrufræðistofnun- ar, er um helmingur fúglanna friðað- ur en hinn helminginn er leyft að veiða á vissum árstímum. Búið er að röntgenmynda fuglana og virðist helmingur þeirra hafa verið skotinn, þar á meðal fálkamir og himbrim- inn. Stefnt er að því að kryfja fuglana á næstunni til að ákvarða á hvaða tíma þeir hafa verið drepnir og hvemig hluti þeirra hefur verið drepinn. Þá verða þeir kyn- og ald- ursgreindir. „Þetta eru vondir glæpir. Ég hef þurft að lóga fálkum og það tekur mann alltaf sárt að þurfa að standa í því. Héma virðast fálkamir hins vegar hafa verið skotnir samvisku- laust því einn fálkanna var fullur af höglum,“ segir Jón Baldur. Að lokinni rannsókn verður grein- argerð send til rannsóknarlögregl- unnar á Akureyri sem fer með rann- sókn málsins. I framhaldinu verður málið sent ákæruvaldinu. -PP Stormfréttir frá loftskeytastöðvum á þriggja stimda fresti em ný örygg- isþjónusta sem Veðurstofan er að taka upp við sjómenn á næstu dög- um. Á þriggja stunda fresti munu loftskeytastöðvar Landsímans láta vita af því á kallbylgju sinni ef spáð er stormi (9 vindstigum) eða meira á einhveiju þeirra miða eða djúpa sem næst em viðkomandi stöð. Strax á eftir verður gildandi spá fyrir viö- komandi spásvæði lesin á vinnu- bylgju stöðvarinnar. Þetta stormfréttaútvarp verður alltaf klukkan rúmlega tvö, fimm, átta og ellefu, bæði á morgnana og eftir hádegi en einungis þegar storm- fréttir liggja fyrir. Ixiftskeytastöðvamar í Reykjavík, á ísafirði, Siglufirði, í Neskaupstað, á Hornafirði og í Vestmannaeyjum munu annast þessa þjónustu. -hlh Jón Baldur Hliðberg, startsmaður Náttúrufræðistofnunar, virðir fyrir sér fuglana sem fundust í Noregi. Jón Baldur, sem er með skotinn himbrima í höndum, segir drápiö á fuglunum samviskulaust. DV-mynd GVA Grindavlk: Býður einstæðingum heim á aðfangadag Anna Ingibjörg Benediktsdóttir í Grindavík undirbýr ekki bara jóla- hátíðina fyrir fjölskyldu sína heldur einnig fyrir einstæða bæjarbúa. „Það er langt frá því að mér hefði dottið í hug að einhver færi að út- varpa þessu. Þetta er svo sjálfsagður hlutur og ég gleð sjálfa mig með þessu,“ segir Anna Ingibjörg. „Það em fleiri en ég sem aðstoða þá sem eiga um sárt að binda," leggur hún áherslu á. Anna Ingibjörg vinnur hjá Fiski- mjöli og lýsi við löndun og segist þakka guði fyrir að hafa fengið starf- ið en hún flutti ásamt fjölskyldu sinni úr Mosfellsbæ til Grindavikur íyrir rúmu ári. „Þetta var svolítið stór ákvörðim. Ég var í fastri vinnu á Reykjalundi og hálfnuö með sjúkraliðanám sem ég hef ekki haft tíma til að klára. Það er ákaflega gefandi starf. En ég er mjög ánægð þar sem ég vinn núna.“ Að sögn Önnu Ingibjargar hefur að minnsta kosti einn Grindvikingur þegið boð hennar um að verja að- fangadagskvöldi með henni og fjöl- skyldu hennar. Hún vonar að þeir „ÞaA eru fleiri en ég sem aóstoða þá sem eiga um sárt aö binda,“ segir Anna Ingibjörg. DV-mynd Ægir Már verði fleiri. „Það er svo notalegt að hafa hjá sér fólk sem hefur tíma til að vera með okkur.“ -IBS PERLUFESTAR <@utt Q^öllin Hinar þekktu japönsku Namida perlufestar sem búnar eru til úr skeljum sem perlur eru ræktaðar í. Þær fást í lengdum: 42 cm, 45 cm, 50 cm, 60 cm, 80 cm og 90 cm bæði í 6 mm og 7 mm perlum; verðið er frá 5.200 til 10.700 kr. Allar festarnar eru með silf- urlás. Einnig armbönd, ein- föld og tvöföld, á verði frá kr. 3.600 til 9.800. Einnig eyrnalokkar með silf- urpinna á 1.850, 1.950 og 2.050 kr. LAUGAVEGI 49 SÍMAR 17742 OG 617740 J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.