Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Blaðsíða 44
68
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1993
Fréttir
Hetmaslátrun:
„Ef maðw ber saman fláríjölda
í landinu og innlegg til sláturleyf-
ishafa má gera ráð fyrir að íram-
hjásalan sé 300 til 500 tonn. Aö
því má leiða rök aö síðasta skerð-
ing greiðslumarks í kindakjöti sé
aö mestu komin til vegna þessa,"
segir Þorsteinn Bergsson, hér-
aðsráðunautur hjá Búnaðarsam-
bandi Austurlands.
Stjóm Búnaðarsambandsins
lýsti í síðustu viku yfir þungum
áhyggjum vegna ólöglegrar dreif-
ingar kjöts af heimaslátruöum
gripum, jafnt á Austurlandi sem
annars staðar. Bent er á að
heimaslátrun feli i sér skattsvik
og litía neytendavernd. Skorar
stjómin á bændur og forráða-
menn þeirra að taka taka á þess-
um vanda, sem skert geti
greiðslumark næsta árs um ailt
aö6,25prósent. -kaa
Hólmavík:
GuðfinnurRnnbogason, DV, Hóteiavflc
Eindæma ógæftir haia verið
hér um slóðir nær allan þann
tíma sem hefðbundin haustvertíö
hefur staðið og lítill aíli þá gefið
hefur enda viðvarandi suövest-
lægar áttir.
Fyrstu daga desember snerist
vindátt til hafáttar - glæddist þá
smám saman afli en ógæftir hafa
haidist. í siðustu róðrura hafa
línubátar frá Hólmavík og
Drangsnesi verið að fá yfir 100
kíló á bala af þokkalegum fiski.
Meðan landáttin stóð var fiskur
oft blandaður svo sjómenn óttuö-
ust að til lokunar kæmi á slóðinni
líkt og gerðist frá febrúarbyrjun
til marsloka í fyrra.
Nú nýverið komu Guðmundur
Karlsson og tveir aðrir starfs-
menn Fiskistofu til fundar viö
sjómenn á Hólmavik. Eftir þau
skoöanaskipti sem þar fóm fram
em sjómenn og aðrir heimamenn
frekar bjartsýnir á að ekki komi
til lokunar á stóm svæði Húna-
flóa, að minnsta kosti ekki alveg
á næstunni enda fiskur sá sem
nú berst að landi mun vænni en
fyrr á vertiöinni.
STYRISENDAB
SKEIFUNN111 • SÍMI 67 97 97
v
Breytlngar hérlendis vegna sektardóms í Bandaríkjunum:
Ætlum að læra af
mistökum annarra
- segir framkvæmdastjóri Domino’s pizza hérlendis
„Viö höfum ákveðið að hætta tíma-
bundið að gefa pitsur ef við getum
ekki afhent þær innan þrjátíu mín-
útna. Þetta er gert af öryggisástæð-
um og verður skoðaö eftir að við
sjáum hver þróunin verður. Við ætl-
um að læra af mistökum annarra,“
segir Bjami Þór Þórhallsson, fram-
kvæmdasljóri Domino’s á Islandi.
Eins og greint var frá í DV í fyrradag
hætti Domino’s pitsufyrirtækið í
Bandaríkjunum að tryggja heim-
sendingu innan þrjátíu mínútna í
kjölfar úrskurðar kviðdóms um að
fyrirtækið skyldi greiða 78 milljónir
dollara eða sem svarar hálfum sjötta
milljarði króna í skaðabætur vegna
umferðarslyss.
Árni Jónsson, framkvæmdastjóri á
Pizzahúsinu, sem einnig býður upp
á þessa þjónustu, segir að áfram
verðiö boðið upp á fría pitsu ef hún
berist ekki innan hálftíma. Bílstjór-
amir hjá honum séu á tímakaupi
ólíkt því sem er í Bandaríkjunum þar
sem sendlunum er greitt fyrir hverja
afhenta pitsu.
„Ástandiö í þessum málum hér á
landi er búið að vera þolanlegt und-
anfarið. Það kom skyndilega upp
slæmt ástand í kjölfar þess að ís-
lenskir pitsustaðir tryggðu heim-
sendingu innan ákveðins tíma. Þá
var eins og skrattanum hafði verið
sleppt lausum og nokkur óhöpp
fylgdu í kjölfarið og eitt minniháttar
slys. Við gripum inn í strax og áttum
fund með pitsudreifingaraðilunum
sjálfum. Beindum þeim tilmælum til
þeirra að huga að þessu og setja ekki
óhóflega pressu á sína sendla. Síðan
hefur lítið borið á þessu en auðvitað
má leiða að því líkum að menn keppa
við tímamörk ef þau eru til staðar.
Það bíður upp á meiri hraða en ella
og aukna hættu í samræmi við það
og þess vegna er mjög nauösynlegt
fyrir þá aðila sem bjóða upp á þessa
þjónustu hér að horfa til þessarar
niðurstöðu í Bandaríkjunum,” segir
Ómar Smári Ármannsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík.
-PP
Fjölmiölakönnun Félagsvísindastofnunar:
Jaf nræði er með stærstu fjölmiðlum
Jafnræði meðal þeirra stærstu
- hlutfaii svarenda 12-80 ára sem eltthvað lásu, hlustuðu eða horfSu -
Bytgjan RAs 1 Rás2 RÚV SIÖ62 Morgunbt. DV Pressan
■1 AA
Jafnræði er með stærstu fjölmiðl-
um landsins samkvæmt fiölmiðla-
könnun Félagsvísindastofnunar sem
birt var í vikunni. Þar var kannað
hlutfall svarenda, 12-80 ára, sem eitt-
hvað lásu, hlustuðu eða horfðu á 4
vikum, á 3 mánuðum og á 12 mánuð-
um.
Á undanfomum 12 mánuðum hafa
88 prósent landsmanna eitthvað lesið
í DV og 87 prósent eitthvað í Morgun-
blaðinu. Munurinn er ekki mark-
tækur. Á undnafömum þremur
mánuðum hafa 85 prósent lands-
manna lesið eitthvað í báðum blöð-
unum.
Sé hins vegar tekið mið af undan-
fómum fiómm vikum kemur í ljós
að 81 prósent hafa lesið eitthvað í
DV en 84 prósent eitthvað í Morgun-
blaðinu.
Töluvert færri hlustuðu eitthvað á
Bylgjuna og rás 1 á sama tímabili en
hlustun á rás 2 var nær sú sama og
lestur DV og Morgunblaösins.
Horfun á Stöð 2 er á sama róh og
lestur dagblaðanna en horfun á Sjón-
varpiðeríkringum95prósent. -hlh
Borgarráð:
1,6% hækkun hjá Raf magnsveitu
Borgarráð hefur samþykkt hækk-
un á verðskrá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur um 1,6 prósent vegna
þriggja prósenta gjaldskrárhækkun-
ar Landsvirkjunar nýlega. Sigrún
Magnúsdótíir, Framsóknarflokki, og
Guðrún Ögmundsdóttir, Kvenna-
lista, greiddu atkvæði gegn hækkun-
inni þar sem borgarráð samþykkti
ívið meiri hækkun á verðskránni í
ágúst en þurfti - til að mæta gjald-
skrárhækkun Landsvirkjunar.
„Blanda ætlar að reynast okkur
dýr því að það er stöðugt verið að
hækka gjaldskrána. Ég greiddi ekki
atkvæði gegn þessari hækkun í sum-
ar í þeirri von að við myndum ekki
hækka gjaldskrána hjá Rafmagns-
veitunni ef til frekari hækkunar
kæmi hjá Landsvirkjun heldur taka
það á okkur,” segir Sigrún Magnús-
dóttir.
Merming
Hugmyndaríkur köttur
Þriðja bókin um heiöursköttinn Markús Árel-
íus er komin út. Enn lendir hann í ótrúlegum
ævintýrum og mikilli lífsreynslu. En hann
kemst í gegnum þetta allt, en þarf þó að sjá af
stöku líkamshluta og rófan verður fyrir ein-
hverjum áfóllum.
Stundum fer þannig þegar rithöfundar hafa
fundið góða formúlu að vinsældum, að þeir
halda áfram að skrifa margar bækur í sama
stíl þar til þeir átta sig allt í einu á að enginn
hefur lengur áhuga á bókunum þeirra. Fólki
finnst þær skorta frumleika þegar frá líður og
tilbreytingu. Slík hætta er vissulega fyrir hendi
þegar farið er af stað með sögur eins og Helgi
Guðmundsson hefur samið um Markús Árelíus.
En honum tekst mjög vel aö halda athygli le-
sandans og aldrei virðist hann vera aö reyna
að teygja lopann.
í þessari bpk, Markús Árelíus fer suöur, lend-
ir kötturinn í þeirri alvarlegu lífsreynslu að
þurfa að flytja suður. Hann er í eðli sínu íhalds-
samur og telur allt nýtt og ókunnugt vera hættu-
legt og vill forðast það eins og kostur er. Hann
nálgast ókunnugt fólk með gætni og jafnvel
óvild. Hann telur nærri öruggt að það eigi eftir
að valda sér skaða. Hann er óþarflega var um
sig og þegar gera á sjónvarpsþátt um Ólaf Eiríks-
son skáld og eiganda Markúsar Árelíusar óttast
hann að það sé ekki alltof gott mál, fær oiegn-
asta ímigust á þeim sem að þættinum slanda
Bókmenntir
Sigurður Helgason
og fær hundinn Jobba til hðs við sig til að draga
úr áhuga þeirra á að gera þátt af þessu tagi.
Helgi Guðmundsson er hugmyndaríkur. Hann
sér margar spaugilegar hliðar á tilverunni og
hefur lag á að gæða sögu lífi. Textinn rennur
létt, lesandinn reynir að njóta sögunnar allt til
loka. Helgi Guðmundsson hefur átt góða inn-
komu í sveit íslenskra bamabókahöfunda. Hann
skapar sögum sínum ramma sem allir þekkja.
Inn í hann setur hann skemmtilegheit og ég
held að flestir sjái sjálfán sig í einhverjum þeirra
persóna sem fyrir koma í sögunni. Það gerist
ýmislegt í þessari sögu. Hildur, eiginkona Ólafs
skálds tekur þá ákvörðun að bjóöa sig fram til
þings, tekur þar sæti og áður en varir er hún
orðin ráðherra. Áöur en langt um liður taka
böndin milli hjónanna að gliðna og þaö endar
með þvi að þau slitna.
Meðan ég var að lesa þessa bók rifiaðist upp
fyrir mér bókaflokkur frá því fyrir tæplega 30
árum. Það eru sögur Hjartar Gíslasonar um
Salómon svarta. Þessi bók lýtur svipuöum lög-
málum og ég hygg að bömin okkar geti haft
svipaða ánægju af að lesa um Markús Árelíus
og ég minnist frá lestri bókanna um Salómon
svarta.
Ólafur Pétursson annast myndskreytingar í
bókinni og á kápu. Vonandi á Helgi Guðmunds-
son eftir að nýta sér hugmyndaauðgi sína í fram-
tíðinni og leita uppi í hugskotinu persónur til
að auka áhuga bama á lestri bóka.
Helgi Guðmundsson: Markús Árelius flytur suður.
Myndskreytingar: Ólafur Pétursson.
Reykjavík, Mál og menning, 1993.